Í Kiljunni í kvöld verður fjallað um þrjár síðustu skáldsögur Halldórs Laxness, Kristnihald undir Jökli, Innansveitarkróniku og Guðsgjafaþulu. Haukur Ingvarsson, bókmenntafræðingur og útvarpsmaður, hefur ritað bókina Andlitsdrættir samtíðarinnar þar sem fjallað er um þessi verk, og ekki síst hvernig þau komu samtíðarmönnum fyrir sjónir. Í bókinni er einnig sagt frá því þegar Halldór fékk Sonningverðlaunin dönsku og stúdentar mótmæltu ákaft. Haukur færir rök fyrir því að í bakgrunni hafi verið danskir kommúnistar sem hugsuðu Halldóri þegjandi þörfina vegna Skáldatíma.
Við heimsækjum Njörð P. Njarðvík sem hefur nýlega sent frá sér ljóðabókina Hlustaðu á ljósið.
Halldóra Kristín Thoroddsen segir frá uppáhaldsbókum sínum.
Kolbrún og Páll ræða um bækur sem hafa komið út að undanförnu í bókaflokknum Íslensk klassík: Snöruna eftir Jakobínu Sigurðardóttur, 79 af stöðinni eftir Indriða G. Þorsteinsson og Undir kalstjörnu eftir Sigurð A. Magnússon.
En Bragi dregur fram gamla víxla.
Fólki á Íslandi fækkar. Það flytur burt.
Umferð minnkar verulega. Við keyrum minna.
Notum minna af bensíni.
Áfengisneysla dregst saman – nema menn séu aftur farnir að brugga.
Fæðingum fjölgar hins vegar.
Í ítarlegri grein velta blaðamenn Der Spiegel fyrir sér svínaflensunni og hinum ofsafengnu viðbrögðum við henni og spyrja hvernig tiltölulega meinlaust afbrigði af infúensu varð að slíku fári. Greinin er á ensku.
Afmælistertan var blá.
Þegar var liðið á veisluna uppgötvuðum við að þetta myndi vera Avatar-terta.
Fyrsti krókusinn var sprunginn út í beðinu við útidyratröppurnar i gær.
Ólafur Reynir Guðmundsson flytur fyrirlestur um bresti í íslenska ríkiskerfinu við Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands klukkan fjögur á morgun.
Hann var gestur í Silfrinu í gær og fjallaði um ríkisbrestina á mjög áhugaverðan hátt – og benti á leiðir til úrbóta.
Erindi hans er mjög tímabært nú þegar nauðsyn er að gera endurbætur á stjórnsýslunni, stjórnkerfinu og stjórnmálunu í þessu landi.
Viðtalið við Ólaf Reyni má sjá með því að smella hérna.
Eftir Silfrið í gær er Alex Jurshevski orðinn umdeildur maður á Íslandi.
Þeir sem vilja kynna sér hugmyndir hans betur geta til dæmis skoðað þetta blogg.
http://www.recoverypartners.biz/blog/2010/01/
Þar stendur meðal annars um kerfisbreytingar (Structural Reform):
„Iceland must free up parts of its economy and make increased revenues available to the Government as part of the attempt to did itself out of this hole. For example Iceland’s Treasury currently receives no recurring revenue from the domestic fishery. Fishing Licenses have become a “rentier” instrument whose benefits accrue to a narrow slice of the populace This needs to be changed to the benefit of the entire country rather than the few insiders who now control the licenses.
Among the other issues to address is the free lunch given to financial firms through debt indexation which places the burden of adjustment primarily on households and has led to a rash of mortgage defaults.“
Eirikur Bergmann Einarsson skrifar pistil á vef Pressunnar undir yfirskriftinni Skussum bjargað – ráðdeildarsömum refsað. Upphaf pistilsins er svohljóðandi:
— — —
Samkvæmt nýlegum fréttum hefur komið í ljós að húsnæðislánið mitt – og annarra lántakanda – hjá Glitni var fært niður um ríflega helming þegar það var fært yfir í Íslandsbanka.
Í sjálfu sér er ekkert óeðlilegt við það að lánin hafi verið færð niður eftir að höfuðstóllinn hafði rokið upp úr öllu valdi í verðbólgufellbylnum sem gekk yfir við hrunið. Þá varð einfaldlega forsendubrestur sem rétt er að leiðrétta.
Það eina sem er undarlegt er að við, hinir almennu skuldarar, höfum ekki enn fengið nokkurn hlut í niðurfærslunni. Samt eru þetta okkar peningar.
Samkvæmt öðrum fréttum sem nú berast innan úr bönkunum hefur niðurfærslan á almennum húsnæðislánum þvert á móti verið notuð til að fella niður skuldir óreiðumanna – fólksins sem tók alltof mikil lán til að kaupa allt of stór hús, bíla, sumarbústaði, vélsleða og glænýtt innbú.
Fyrir þetta eru almennir húsnæðislánaskuldarar látnir greiða. Og nú berast þær fréttir að afgangurinn af afslættinum sem Íslandsbanki fékk á láninu mínu eigi að nota til að færa niður bílalán.
Aldrei hlusta á hugmynd eða tillögu ef hún kemur frá pólitískum andstæðingi.
Hér er frétt úr DV, frá því í ágúst í fyrra, þar er rætt við Vilhjálm Bjarnason sem segir að bónusar séu eitt af því sem setti banka á hausinn.
En á því nýja Íslandi sem við lifum á – og líkist því gamla furðu mikið – er talin mikil nauðsyn á að endurvekja bónusa í bönkunum.
Eiginlega forgangsmál.