Silfrið í dag
Ástralski hagfræðingurinn Steve Keen verður gestur í Silfri Egils á sunnudag.
Keen er einn af örfáum hagfræðingum sem spáði fyrir um fjármálakreppuna á sínum tíma, strax árið 2005 gerði hann sér grein fyrir því hvað var að gerast, enda byggði spásögn hans mjög á harðri gagnrýni sem hann hafði sett fram á þá hagfræði sem var nær allsráðandi á þeim tíma. Hana má lesa í bók eftir hann sem nefnist Debunking Economics.
Eitt helsta viðfangsefni Keens er skuldavandinn sem nú hrjáir Vesturlönd. Hann er þeirrar skoðunar að við séum í miðri kreppu – og að ekki sé von að úr rætist nema tekið sé á skuldunum. Keen hefur ákveðnar hugmyndir um hverni það skal gert, eins og kemur fram á vef hans sem nefnist Debtwatch.
Af öðrum gestum í þættinum má nefna Styrmi Gunnarsson, Sighvat Björgvinsson, Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur, Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur, Guðmund Gunnarsson, Vilhjálm Birgisson og Sigurð Þ. Ragnarsson.

Ummæli
( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is