Fimmtudagur 09.02.2012 - 17:05
- Ummæli ( )
Æsir
Deilt er um þátttöku Íslendinga í Evróvisjónkeppninni í Aserbaidjan.
Ekki virðist vera ýkja mikið um þetta rætt á Norðurlöndum.
En til er sú kenning að við séum einmitt ættuð frá Aserbaidjan – og séum þannig Aserar.
Eða Æsir.
Illugi fjallaði um þetta í pistli eftir Evróvisjónkeppnina síðasta vor.
Á sama tíma skrifaði ég litla grein þar sem einmitt kom fram að vandkvæði gætu verið við að halda keppnina þar eystra – vegna spillts stjórnarfars. Þar var til dæmis minnt á þegar Páll Stefánsson ljósmyndari (og gamall bekkjarbróðir okkar Illuga) var handtekinn í Aserbaidjan þar sem hann var að taka myndir af umhverfisspjöllum.
Ummæli
( )
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is