eyjan.is

Miðvikudagur 08.02.2012 - 15:32 - Ummæli ()

Margar Samstöður

Ef maður slær orðinu „samstaða“ inn í leitarvél koma upp ýmis svör.

Þarna er Samstaða – bandalag grasrótarhópa.

Þarna er stéttarfélag sem nefnist Samstaða.

Þarna eru samtök sem nefna sig Samstaða þjóðar.

Svo er það Samstaða þjóðar gegn Icesave.

Og Samstaða – pólskt samband verkalýðsfélaga.

Jú og svo er það Samstaða Lilju Mósesdóttur og Samstaða sem starfar í bæjarmálum á Patreksfirði.

Mér skilst að deilt sé um nafnið.

En auðvitað er þetta margþvælt heiti í stjórnmálabaráttu og vandséð að einhver eignarréttur sé á því þótt það hafi verið notað í hinu smáa byggðarlagi fyrir vestan.

«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is