eyjan.is

Fimmtudagur 02.02.2012 - 17:09 - Ummæli ()

Kaffisamsæ(t)(r)ið ógurlega

Það er ber oft árangur að sá í akur vænisýkinnar. Það þarf ekki nema eitt lítið fræ til að upp spretti litskrúðugar jurtir.

Nú hefur komist á kreik sú saga að við Hallgrímur Helgason, Helgi Seljan og Jóhann Hauksson höfum verið saman við kaffidrykkju í gærmorgun.

Það er rétt, svo langt sem það nær. En bara rétt svo.

Kaffifélagið á Skólavörðustíg er lítill staður, eins og lítil sjoppa, þar sem eru eiginlega engin sæti. Maður kemur þangað inn, skutlar í sig kaffibolla standandi – oft gerir maður það raunar á götunni fyrir utan. Þarna er oft þröng á þingi.

Í gær kom ég þangað sem oftar – þarna fæst jú besta kaffi í bænum – og þar inni stóð Hallgrímur Helgason og margt fleira fólk.

Ég kastaði á hann kveðju, átti við hann fáein orð.

Helgi Seljan var þarna álengdar, ég tók ekki sérstaklega eftir honum, enda hittumst við oft í vinnunni.

Síðan fór ég út og þar var Jóhann Hauksson sem stundum gengur niður Skólavörðustíginn að morgunlagi. Ég átti líka við hann örfá orð – hann sagði mér að það væri nýjabrum fyrir sig að vera kominn í fasta vinnu aftur.

Ég held ekki að Hallgrímur og Jóhann hafi talað saman, get þó ekki verið alveg viss.

Reyndar má upplýsa að þarna voru að mig minnir líka Rósa Brynjólfsdóttir, upplýsingafulltrúi fjármálaráðuneytisins, Þorgerður Agla bókmenntakynnir, Karl Pétur, tengdasonur forsetans, margt annað fólk sem lítur þarna inn á morgnana,  jú og Eirikur Jónsson, sagan mun víst eiga upptök sín hjá honum.

Það var hann sem sáði þessu fræi og birti meira að segja þessa mynd.

«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is