eyjan.is

Fimmtudagur 02.02.2012 - 09:07 - Ummæli ()

Fríkirkirkjuvegur 11

Einkennileg er sú árátta útrásarvíkingsins Björgólfs Thors Björgólfssonar að vilja sífellt tengja sig við minningu Thors Jensen.

Jú, Thor var vissulega langafi Björgólfs – en afkomendur Thors skipta hundruðum. Margir þeirra eru og hafa verið áberandi í opinberu lífi án þess að hafa þessa sérstöku tilhneigingu.

Það sem stingur mest í augu er að þetta virðist allt vera gert af einhverri minnimáttarkennd, ekki vegna ástar á gömlum minjum eða minningum. Thor Jensen var merk persóna í sögu Íslands, en milli hans og Björgólfs Thors eru sáralítil líkindi.

Eitt  fyrsta verk Björgólfs eftir að hann eignaðist hið gamla hús Thors Jensen var að skuldsetja það upp í rjáfur.

Sérlega fallegu hestagerði sem er bak við húsið var naumlega bjargað þegar kom í ljós að það var orðið hundrað ára – þannig var því bjargað frá öflum eyðileggingarinnar.

Annars var hugmyndin að malbika yfir gerðið.

Og nú mótmælir Húsafriðunarnefnd breytingum á húsinu sem hún telur að muni eyðileggja það að innan.

Þetta er mjög sérstætt viðhorf gagnvart byggingu sem hefur mikið sögulegt gildi –  og einkennist framar öðru af tilraunum til sjálfsupphafningar.

«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is