Athyglisverðir viðskiptagjörningar
Það er langt frá því að öll kurl séu komin til grafar varðandi útrásina.
Nú upplýsist það til dæmis í réttarhöldum hvað bankastjórar Landsbankans hafa búið vel í haginn fyrir sig rétt fyrir hrun – þá eru að tínast alls konar sporslur til þeirra sem sumar nema reyndar ævilaunum verkafólks.
Þetta er kannski ekki af því að þeir Sigurjón og Halldór voru svo verðmætir, heldur vegna þess að þeir höfðu kverkatak á bankanum.
Þeir voru búnir að klúðra svo stórt að ef þeir hefðu hætt er hugsanlegt að komist hefði upp um allt bixið fyrr en ella.
En það má kannski spyrja hvað allt það fólk sem tapaði hlutafé sínu í Landsbankanum segi við þessu?
Og viðskiptasnilldin ríður ekki við einteyming.
Deutsche Bank þarf að afskrifa 66 milljarða króna vegna Actavis. Bankinn neyddist til að taka fyrirtækið mestanpart yfir fyrir tveimur árum.
Þetta er sögð vera mun hærri upphæð en bankinn þarf að afskrifa vegna grískra ríkisskuldabréfa.
Ummæli
( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is