eyjan.is

Sunnudagur 29.01.2012 - 11:03 - Ummæli ()

Silfrið í dag

Í Silfri Egils í dag fjöllum við um sjálfstæði Skotlands. Skotar stefna hraðbyri í átt að sjálfstæði – eða meira sjálfsforræði – sú þróun hlýtur að teljast í meira lagi áhugaverð fyrir Ísland og Norðurlöndin, eins og sjá má með því að skoða legu Skotlands á landakorti. Skotar eru fráhverfir þeim stjórnmálum sem eru stunduð í London – og vilja horfa meira til velferðarsamfélaga norðursins.

Gestur þáttarins er Gerry Hassan sem er höfundur margra bóka og sérfræðingur um stjórnmál í Skotlandi.

Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði, kemur í þáttinn og ræðir um hvítflibbabrot, viðhorf til þeirra, meðferð þeirra fyrir dómstólum og afleiðingar þeirra.

Þóra Helgadóttir er sérfræðingur hjá Office of Budget Responsibility í London. Þessi stofnun á að meta áhrif fjárlaga og efnahagsákvarðana stjórnvalda bæði á grundvelli skammtíma og langtíma áhrifa. Svipaðar stofnanir eru farnar að starfa víða um heim – Þóra kemur í þáttinn, segir frá þessu starfi og ræðir möguleikann á að koma upp slíku eftirliti hér á landi.

Fleiri mál verða til umræðu í þættinum, Landsdómur, umdeild skýrsla Hagfræðistofnunar og forsetakosningar – en aðrir gestir eru Soffía Sigurðardóttir, Jón Magnússon, Lilja Mósesdóttir og Vilhjálmur Bjarnason.

«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is