Færslur fyrir janúar, 2012
Viltu ekki bara skjóta þig strax?
Það er rætt um verslunareinokun. Fræg er sagan af framleiðandanum sem kemur til forstjóra stórrar verslunarkeðju á Íslandi. Segir við hann að hann geti þetta ekki lengur, það sé ómögulegt að veita verslunarkeðjunni svo mikinn afslátt – hann hafi í raun ekki efni á að selja vörur til hennar lengur. En um viðbrögð forstjórans er [...]
Mammon á Sæbraut
Hallgrímur Helgason skrifar grein um Vafningsmálið. Í henni eru ýmsar áleitnar spurningar um það sem var á seyði í viðskipta- og efnhagslífinu árið 2008. Jú, greinin er umdeild og það eru ýmsar ástæður fyrir því. En það var strax farið að hjóla í persónu Hallgríms – hann er kallaður „brjóstmylkingur“ útrásarinnar, hvað sem það þýðir. [...]
Boðsferðir eru ekki nýnæmi
Það er dálítið spaugilegt þegar því er haldið fram að boðsferðir til útlanda sé eitthvað sem var fundið upp þegar Íslendingar fóru að nálgast Evrópusambandið. Árum og áratugum saman var meginstoð íslenskrar utanríkisstefnu veran í Nató og vináttan við Bandaríkin. Í tengslum við þetta voru stanslausar boðsferðir bæði til Evrópu og Bandaríkjanna. Undirritaður játar að [...]
Ríkið getur varla samþykkt launahækkun til bankastjórans
Ríkisstjórnin getur tæplega látið það eftir bankastjóra og bankastjórn Landsbankans að hækka laun bankastjórans. Þetta er reyndar orðið mjög dramatískt, það er talað um að Steinþór Pálsson þurfi hætta eða minnka við sig vinnuna vegna þess hvað launin eru léleg. Þarf hann þá kannski að fá sér kvöldvinnu? Það hefur reyndar komið fram að enginn [...]
Sjúkt athæfi
Það er sjálfsagt mál að rísi moska á Íslandi ef einhver vill byggja hana – það eina sem ég gerði eitt sinn fyrirvara við var að það ætti að vera ljóst hvaðan peningar til slíkrar byggingar koma. Það er vitað að ofstækisfullir múslimar í Saudi-Arabíu hafa fjármagnað moskubyggingar víða um heim – það verður að [...]
Við þangað…
Risavaxið smástirni er sagt vera á leið framhjá jörðinni. Það er úr gulli – í smástirninu er meira gull en hefur verið unnið á jörðinni frá upphafi vega. Gullið er sagt vera virði tuttugu þúsund milljarða dollara. Við í fjölskyldunni erum á leiðinni út úr húsinu að vita hvað við getum gert. Reyndar gæti vandinn [...]
Um hvítflibbaglæpi
Hér er viðtal úr Silfri gærdagsins, Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði, ræðir um hvítflibbaglæpi, viðhorf til þeirra, áhrifin af þeim og hvernig gengur að rannsaka slík brot. Þökk sé Láru Hönnu.
Að ánetjast – eða ekki?
Hér má sjá hvert Ögmundur Jónasson hefur farið eftir að hann hélt ræðuna um íslenska stjórnmála- og embættismenn sem ánetjast ESB. Ögmundur er í öftustu röð á myndinni, lengst til vinstri. Hann má þó eiga það að hann heldur sig aðeins frá meginhópnum – kannski til að ánetjast ekki?
Forsetakjör á Íslandi og Írlandi
Ólafur Ragnar Grímsson hefur ekki enn svarað því hvort hann ætli að bjóða sig fram til forseta Íslands í fimmta sinn. Reyndar skildi ég áramótaávarp hans svo að hann ætlaði ekki að gera það, en síðan komu fram menn sem skilja hann betur en ég með aðra túlkun – að hann hefði í raun haldið [...]
Silfrið í dag
Í Silfri Egils í dag fjöllum við um sjálfstæði Skotlands. Skotar stefna hraðbyri í átt að sjálfstæði – eða meira sjálfsforræði – sú þróun hlýtur að teljast í meira lagi áhugaverð fyrir Ísland og Norðurlöndin, eins og sjá má með því að skoða legu Skotlands á landakorti. Skotar eru fráhverfir þeim stjórnmálum sem eru stunduð [...]