eyjan.is

Færslur fyrir september, 2011

Sunnudagur 11.09 2011 - 11:42

Fyrir tíu árum

Í dag er dagurinn þegar allir muna hvar þeir voru fyrir tíu árum. 11. september 2001. Sjálfur var ég á Marbella á Spáni. Lá á strönd, konan mín var á hótelherbergi og hóf að senda mér símskilaboð í gríð og erg um furðulega atburði sem sáust í sjónvarpinu. Fyrst vissu menn ekki hvort þetta var [...]

Sunnudagur 11.09 2011 - 09:43

Tilgáta um tvær danskar nýlendur

Valur Gunnarsson skrifar um bæinn Sólvang í Kaliforníu, brot af Danmörku á norður-amerískri grund. Ég kom þarna fyrr á þessu ári. Það sem sló mig mest var að bakkelsið í bakaríunum var eins og á Íslandi. Íslensk bakarí eru reyndar mjög íhaldssöm – úrvalið frekar staðnað og einsleitt. Búseta Dana á Sólvangi hófst 1911 – [...]

Laugardagur 10.09 2011 - 19:13

Rétti tíminn fyrir Hönnu Birnu?

Tímasetning er fyrir öllu í pólitík. Það var frægt árið 2007 þegar Gordon Brown var kominn að því að boða til kosninga, en hætti við á síðustu stundu. Nokkru síðar fjaraði undan honum og tap í kosningum blasti við. Orðrómur getur líka öðlast sjálfstætt líf. Það var farið að hvísla um formannsframboð Hönnu Birnu Kristjánsdóttur [...]

Laugardagur 10.09 2011 - 16:08

Þvottur

Halldór Baldursson er með þetta eins og endranær. Myndin birtist í Fréttablaðinu í gær.

Laugardagur 10.09 2011 - 11:40

Líf á Bókmenntahátíð

Ég fór í Norræna húsið á Bókmenntahátíð. Heillaðist af mexíkóska ljóðskáldinu Alberto Blanco. Svo kom Nawal El Sadaawi og fyllti húsið. Það er hörkukona. Herta Müller sat að snæðingi í matstofunni – hún er smávaxin og fíngerð kona, en andlitið er markað af lífsreynslu. Eftir að hafa lesið bók hennar sem nefnist Andarsláttur á íslensku [...]

Laugardagur 10.09 2011 - 09:25

Þorsteinn Pálsson: Rétt að kalla saman ríkisráð vegna framgöngu Ólafs Ragnars

Það er ljóst að ríkisstjórnin er logandi hrædd við Ólaf Ragnar Grímsson. Jóhanna Sigurðardóttir segist ætla að ræða við hann. Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, gerir grein fyrir því í Fréttablaðinu hvernig ríkisstjórnin gæti tekið stjórnskipunarlega á framgöngu forsetans – ef henni finnst hann hafa gengið of langt. Hann telur að ríkisstjórnin geti kallað saman fund [...]

Föstudagur 09.09 2011 - 20:29

Viðtalið við Chomsky

Noam Chomsky hefur verið kallaður áhrifamesti þjóðfélagsrýnir samtímans. The most influential public intellectual. Chomsky troðfyllti Háskólabíó í dag, það var staðið frammi á göngum. Chomsky verður í ítarlegu viðtali í Silfri Egils á sunnudag. Þar ræðir hann meðal annars um hryðjuverkin í New York fyrir tíu árum, stjórnmálin í Bandaríkjunum, Barak Obama, markaðstrúna, Kína, kjarnorkuvopn [...]

Föstudagur 09.09 2011 - 15:35

Ekki beysið

Ríkisstjórnin er með eins atkvæðis meirihluta á þingi. Hún er mjög lemstruð. Hver einasti þingmaður stjórnarinnar getur sett sig í oddaaðstöðu. Ríkisstjórnarflokkarnir eru heldur ekki í beysnu ástandi. Jóhanna Sigurðardóttir verður endurkjörin formaður Samfylkingarinnar í haust þótt eiginlega enga í flokknum langi til að hafa hana áfram. Enn verra er ástandið hjá Vinstri grænum. Sá [...]

Föstudagur 09.09 2011 - 10:45

Kallar á þéttingu byggðarinnar

Þeirri ákvörðun verður líklega ekki breytt að nýjar sjúkrahússbyggingar rísi á Landspítalalóðinni. Það heyrast háværar gagnrýnisraddir, en innan stjórnmálanna virðist vera nokkur samstaða um þetta. En menn skyldu átta sig á því að þessar framkvæmdir útheimta breytingar í borgarmynstrinu. Spítalinn verður væntanlega stærsti vinnustaður á landinu. Það þarf að efla strætósamgöngur vegna þessa. Jú, það [...]

Föstudagur 09.09 2011 - 07:47

Chomsky í Silfri Egils

Fyrsti þáttur Silfurs Egils á nýrri vertíð verður á sunnudag. Meðal gesta er Noam Chomsky, einn frægasti þjóðfélagsrýnir samtímans.