Færslur fyrir september, 2011
Hvernig mótmæli?
Sjálfstæðiskonan Ragnheiður Ríkharðsdóttir, varaformaður forsætisnefndar Alþingis, segir að það komi mótmælum ekkert við að þingsetning skuli vera í fyrramálið en ekki eftir hádegið. Vefurinn Smugan skýrir frá þessu. Það skiptir varla öllu máli varðandi mótmæli hvort þingsetningin er klukkan 10 að morgni eða klukkan 2 eftir hádegi. Ef fólk vill mótmæla, þá kemur það. Einhver [...]
Aflvana ríkisstjórn
Ríkisstjórnin er að heykjast á kvótafrumvarpi Jóns Bjarnasonar. Vestfirðingarnir Lilja Rafney úr VG og Ólína úr Samfylkingu eru að setja fram tillögur þar sem eiga að koma í staðinn fyrir frumvarpið. Fyrir ríkisstjórn er þetta náttúrlega meiriháttar ósigur, að einu stefnumáli hennar sé stefnt í algjört óefni vegna þess að ráðherra lagði fram frumvarp sem [...]
Afglapar
Ég er að lesa nýja bók Michael Lewis sem nefnist Boomerang: Travels in the New Third World. Hann fjallar mikið um Ísland. Það er ekki beint upplífgandi. Lewis trúir því ekki að Ísland hafi einungis fallið vegna þess að Lehman féll eða vegna þess að einhverjir hafi gert samsæri gegn landinu, nei, hann lýsir íslenskum [...]
Fyrir vestan
Við erum komin heim starfsfólk Kiljunnar eftir frábæra daga á Vestfjörðum. Tókum upp efni sem tengist sagnabálki Jóns Kalmans Stefánssonar – hann lokar honum nú í haust. Fórum í skrítna og skemmtilega bókabúð á Flateyri. Skoðuðum gömul hús og hlustuðum á sögur frá Ísafirði af vörum Sigurðar Péturssonar sagnfræðings. Hann er manna fróðastur um bæinn [...]
Pólitísk upplausn
Það er skringilegt ástand í landinu á þessu hausti. Þing er að hefjast á laugardag og það er boðað til mótmæla. Þau hafa fengið mikla athygli í fjölmiðlum, svo kannski má búast við fjölda fólks. Fjárlög eru væntanleg í þingbyrjun – þar er að vænta niðurskurðar og skattahækkana. Það verður stærsta verkefni ríkisstjórnarinnar næstu vikurnar [...]
Tölvuleikir og lestur
Það eru nöturlegar staðreyndir sem sjá má úr skýrslunni sem segir að fjórðungur 15 ára drengja virðist ekki geta lesið sér til gagns eða aflað sér upplýsinga í gegnum lestur. Það má sjálfsagt finna ýmsar skýringar á þessu í skólakerfinu og heimilunum. En ein breyta er sjaldnast nefnd og það eru tölvuleikir. Drengir stunda tölvuleiki [...]
Verst að búa í Bretlandi
Guardian segir frá könnun sem leiðir í ljós að af tíu þróuðustu ríkjum í Evrópu sé verst að búa á Bretlandi. Þrátt fyrir efnahagserfiðleika eru lífsgæðin meiri á Írlandi, Ítalíu og Spáni. Best er samkvæmt könnuninni að búa í Frakklandi. Þarna spila ýmsir þættir inn í, kaupmáttur, eftirlaunaaldur, skólakerfi, heilbrigðisþjónusta, glæpir – og veður.
Eyðibýli, flugur og Gamlinginn sem skreið út um gluggann
Það er fjölbreytt efni í Kiljunni í kvöld. Við skoðum eyðibýli ásamt Nökkva Elíassyni og Aðalsteini Ásberg Sigurðssyni en þeir eru höfundar bókar þar sem má skoða blöndu af annarlegri fegurð og tortímingu í yfirgefnum bæjum umhverfis landið. Bryndís Björgvinsdóttir verður gestur í þættinum. Hún fékk í gær Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir bókina Flugan sem stöðvaði [...]
Sjúk viðhorf
Á maður að segja að þeir sem hugsa svona séu psýkópatar, sósíópatar, siðleysingjar, gráðugir drullusokkar – eða er þetta hressandi hreinskilni í manninum? Að þetta sé bara einn af þeim sem kann að spila á kerfið. Kannski blanda af þessu öllu. Guð hjálpi okkur ef þetta eru viðhorfin sem stjórna heiminum. Þetta er sjúkt – [...]
Fyrrverandi þjóðarleiðtogar hvetja til viðurkenningar á Palestínu
Fjöldi evrópskra stjórnmálamanna af eldri kynslóð skrifar undir yfirlýsingu þar sem er hvatt til viðurkenningar á ríki Palestínumanna. Meðal þeirra sem skrifa undir eru Martti Ahtisaari, fyrrverandi forseti Finnlands, John Bruton, fyrrverandi forsætisráðherra Írlands, Uffe Elleman-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur, Felipe Gonzales, fyrrverandi forsætisráðherra Spánar, Lionel Jospin, fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands, Romano Prodi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, Mary [...]