Færslur fyrir júní, 2011
Norðmenn verða áfram vellauðugir
Ekkert bendir til annars en að Noregur verði áfram eitt allraríkasta land í heimi. Magnús Þór Hafsteinsson skrifar greinargóða grein um það hér á Eyjuna hvernig Norðmenn og Rússar eru að skipta á milli sín Barentshafinu. Þar er mikið af gasi og olíu sem mun áfram stuðla að hinum feiknargóðu lífskjörum í Noregi. Norðmenn þurfa [...]
Pyrrosarsigur
Það er talað um að gríska stjórnin hafi í dag unnið Pyyrrosarsigur. Það er búið að samþykkja neyðarlögin sem ganga út á niðurskurð, skattahækkanir og sölu ríkisfyrirtækja. Grikkland getur þá fengið frekari efnahagsaðstoð frá ESB og IMF. Það er semsagt búið að bjarga málum fyrir horn – í bili. Í raun hefur vandanum eingöngu verið [...]
Þrjár konur gegn Sarkozy
Eva Joly færðist í gær skrefi nær því að verða frambjóðandi í forsetakosningunum frönsku. Þá voru greidd atkvæði milli þeirra sem sækjast eftir útnefningu hjá flokki græningja. Eva Joly hlaut næstum hreinan meirihluta í fyrri umferð. Hún hlaut 48,7 prósent atkvæða, en sjónvarpsstjarnan Nicholas Hulot hlaut 40,2 prósent. Kosið verður á milli þeirra 12. júlí. [...]
Skilja dómarar ekki?
Eva Joly varaði við því á sínum tíma að dómarar skildu ekki efnahagsglæpi. Þeir væru vanari að fást við smáþjófa. Þeim þætti líka erfitt að dæma menn sem þeir litu á sem eins konar jafningja sína. Þess vegna þyrfti málatilbúnaðurinn að vera þannig að einfaldasti dómari skildi hann. Dómurinn í Exetermálinu vekur furðu margra. Málið [...]
Öfugmæli
Það er eiginlega alveg einstakt að snúa málunum þannig á hvolf að segja að háir verndartollar séu góðir fyrir neytendur. Flest bendir til þess að aðild að Evrópusambandinu verði hagfelld fyrir sauðfjárbændur. Mjólkurbændur þurfa litlu að kvíða – þeir hafa ákveðna vernd sem felst í fjarlægð frá meginlandi Evrópu. Grænmetisbændur gætu mætt harðari samkeppni – [...]
Landakot
Því fjölgar enn fólkinu sem stígur fram og segir sögur af framferði stjórnenda Landakotsskóla á árum áður. Ég er alinn upp í Vesturbænum, gekk í Vesturbæjarskólann sem þá var á Öldugötu – var þá yfirleitt kallaður Öldugötuskóli. Það var sérlega indæll skóli. Við krakkarnir þar vorkenndum börnunum í Landakotsskóla. Börn eru býsna nösk. Maður fann [...]
Mótmælaþreyta í Grikkland
Niðurskurðarpakkinn var samþykktur í gríska þinginu áðan – og seinni hluti áætlunarinnar verður til umfjöllunar á morgun. Það er tímabundinn léttir fyrir Evrópusambandið. Síðasta niðurskurðarplan gekk ekki eftir – og fæstir vænta mikils árangurs af þessum aðgerðum. Fyrr eða síðar verður að afskrifa eitthvað af skuldum Grikklands. Þrátt fyrir miklar fréttir í heimspressunni eru mótmælaaðgerðirnar [...]
Skammarlegt
Það að auglýsingar frá hvalavinum hafi verið teknar niður á Keflavíkurflugvelli er ekki bara grín. Nei, þetta er atlaga að tjáningarfrelsinu. Framganga stjórnenda flugvallarins í þessu máli er til háborinnar skammar. Auglýsingarnar sem ganga út á að fólk skuli skoða hvali en ekki éta þá eru ljómandi kurteislegar – brjóta ekki gegn neinu velsæmi. Það [...]
Ágíasarfjós
Auðvitað breyttust mótmælin í miðborg Aþenu í dag í óeirðir. Það höfðu verið kallaðir til 5000 lögregluþjónar. Grímuklædd ungmenni sem kalla sig anarkista tóku yfir mótmælaagerðirnar þegar leið á daginn – það kom líka til átaka milli þeirra og mótmælenda sem vildu hrekja anarkistana brott. Vandinn er að mótmælin fara fram í einstefnugötu. Þau bera [...]
Grikkir þurfa skuldaafskriftir
The Economist segir að eina leiðin sem sé fær í tilfelli Grikklands sé að afskrifa eitthvað af skuldum ríkisins. Það þurfi í raun að helminga þær niður í 80 prósent af þjóðarframleiðslu. Ástandið yrði samt erfitt í Grikklandi, en það yrði þó viðráðanlegt. Eins og staðan er nú í landinu er þar fjárlagahalli áður en [...]