Færslur fyrir maí, 2011
Fáránlegt?
Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks, segir að sú tillaga Vinstri grænna og Lilju, Ásmundar og Atla að ganga úr Nató sé fullkomlega fáránleg. En hvað er fáránlegt við að vilja ekki vera í hernaðarbandalagi sem fer með hernaði víða um heim, var aldrei samþykkt af Íslendingum í almennri atkvæðagreiðslu og er sífellt að breyta markmiðum [...]
Of fá
Ég get ekki beðið eftir þeim degi að Íslendingar verða hálf milljón. En líklega verð ég ekki lifandi þá. Við erum alltof fá.
Innantómt tal
27 þjóðir Evrópu eru aðilar að Evrópusambandinu og nokkrar þjóðir bíða inngöngu. Þarna eru lýðræðisríki eins og Danmörk, Svíþjóð, Finnland, Frakkland, Bretland, Þýskaland, Holland, Belgía – og svo má lengi telja. Það að vilja ganga í Evrópusambandið er ekki trúarbrögð hvað sem formaður Framsóknarflokksins segir, slíkt er bara innantómur frasi. Og það er heldur ekki [...]
Eðlileg tillaga
Vinstri græn ásamt Lilju, Ásmundi og Atla leggja fram tillögu um úrsögn Íslands úr Nató. Ég hef áður sagt að það sé ekkert óeðlilegt að látið sé á þetta reyna. Íslendingum var troðið inn í Nató á sínum tíma með afskaplega ólýðræðislegum hætti. Líklega var þá ekki meirihluti þjóðarinnar fyrir inngöngunni. Nató var í Kalda [...]
Myndin sem vantaði
Lesandi síðunnar brást skjótt við og sendi mér myndina áhrifamiklu af vatnsberunum sem ég nefndi í síðasta pistli. Það er horft niður Bóklöðustiginn í átt að Lækjargötu. Takið eftir skólprennunni sem er vinstra megin á myndinni. Þið getið smellt á myndina til að stækka hana, og þá sjást betur tötrar þessa fólks.
Vatnsberar
Ég finn ekki áhrifamestu ljósmyndina sem til er af vatnsberum í Reykjavík. Hún er tekin við Íþöku, bókhlöðu Menntaskólans, og sýnir gama konu og karl í tötrum silast upp Bókhlöðustiginn með vatn í ílátum. Þetta er ein áhrifamesta ljósmynd sem til er á Íslandi. Og ég fór að hugsa um hana þegar sá að deilt [...]
Ólöglegur ávinningur verndaður
Arnar Jensson, sem hefur starfað sem lögreglumaður á ýmsum vettvangi, sendir stjórnlagaráði merkilegt erindi. Hann bendir á að eignarréttarvernd á Íslandi séu sterkari en annars staðar og því njóti ólöglegur ávinningur meiri verndar. Arnar skrifar í bréfi sínu: „Að mínu áliti, svo og ýmissa annarra sem ég hef rætt þetta við (bæði Íslendinga og erlendra [...]
Rollingarnir og Dressmann
Ég sá skemmtilega umræðu á Facebook um hvort Rolling Stones hefðu hætt að vera töff þegar norska verslunarkeðjan Dressman fór að nota þá í auglýsingar. Einn sagði, nei, þá hefði Dressmann loks orðið pínulítið kúl. En svo benti Þorgeir Tryggvason á að Rolling Stones hefðu kannski opinberlega hætt að vera töff þegar lagið Start Me [...]
Flokkarnir og Evrópumálin
Það er náttúrlega langsótt hjá Jóhönnu að öfl úr Sjálfstæðisflokki og Framsókn fari að stofna nýjan flokk með Samfylkingunni. Hins vegar er vel hugsanlegt að hér gæti orðið til flokkur aðeins hægra megin við miðju sem væri Evrópusinnaður – flokkur sem væri áþekkur Venstre í Danmörku. Þar er stóra eyðan í íslenskum stjórnmálum. Þangað gæti [...]
Gat rétt hægra megin við miðju
Kannski verður ekki kosið á Íslandi fyrr en í lok þessa kjörtímabils – ríkisstjórnin mun gera allt til að missa ekki völdin. Draumur Samfylkingarinnar er að kosningar um Evrópusambandsaðild renni upp skömmu fyrir þingkosningar, svo Sjálfstæðisflokkurinn kofni í málinu. En það er að myndast stórt gat í stjórnmálunum hérna. Vinstrið er þéttpakkað með Samfylkinguna, Vinstri [...]