Færslur fyrir júlí, 2010
Sumarkvöld
Þegar amma mín, sem var norsk, kom fyrst til Reykjavíkur 1928 var varla nein tré að finna í bænum. Hún gerði sér ferð bæjarenda á milli til að skoða tré sem var uppi í Þingholtum. Kannski hefur það bara verið vanþekking sem olli því að hér voru ekki fleiri tré eða kannski voru það tregðulögmálin, [...]
Ofurölvi á ævikvöldi
Eiður Guðnason bloggar um Útvarp Sögu. Meðal annars um þátt sem nefnist Stelpurnar á stöðinni. Einn sem gerir athugasemdir segir að þátturinn sé rangnefndur. Hann ætti að heita: Ofurölvi á ævikvöldi.
Óskalög sjúklinga
Halldór Laxness spurði einhvern tíma eftir að hafa hlustað á þáttinn Óskalög sjúklinga hvort músíkalskt fólk yrði ekki veikt á Íslandi. Ég man að maður hlustaði á bæði Óskalög sjúklinga og Óskalög sjómanna í von um að þar heyrðist svona eitt almennilegt lag. Auðvitað var maður fyrst og fremst að vonast eftir Bítlalögum sem heyrðust [...]
Þáttur Jóa Hauks
Við lifum á tíma mjög taugaveiklaðrar umræðu. En bara svo því sé haldið til haga: Ég man glöggt að eitthvert dótturfélag Baugs kostaði útvarpsþáttinn sem Jóhann Hauksson var með á Sögu á sínum tíma. Og man ekki að það hafi verið neitt launungarmál.
Speak Low
Lagið Speak Low eftir Kurt Weill er þekktur djassstandard. Það hefur verið hljóðritað af listamönnum eins og Lotta Lenya, Billie Holiday, John Coltrane, Bill Evans, Frank Sinatra, Smokey Robinson, Sarah Vaughan og Nat King Cole. Barbara Streisand setti það líka á plötu í sykursætri útgáfu sem er lakari en til dæmis flutningur Sigtryggs Baldurssonar sem [...]
Badabing og myntkörfufólkið
Þórarinn Þórarinsson blaðamaður kann að koma orði að hlutunum. Hann skrifaði í morgun pistil á síðu sína Badabing undir yfirskriftinni Megi myntkörfufólkið brenna í helvíti. Pistillinn fékk ekki góðar viðtökur. Og nú er Tóti búinn að setja inn annan pistil sem nefnist Óvinsælli en Brynjar Níelsson. Eru Íslendingar kannski alveg búnir að missa húmor fyrir [...]
Illt hlutskipti sígaunabarna
Það er sagt að sígaunar velji sinn lífsstíl, en svo einfalt er það auðvitað ekki. Ég er ekki viss um að börnin myndu endilega velja líf sem felst í flakki, sníkjum og betli, eins og margir sígaunar stunda. Oft er raunalegt að fylgjast með sígaunabörnum í erlendum borgum. Þau þurfa að þvælast um götur og [...]
Viðskiptablaðið: Ragnar Önundar um Magma og orkulindirnar
Ragnar Önundarson er einn af þeim sem varaði við hruni íslenska fjármálakerfisins. Því er hlustað á það sem hann segir. Ragnar, sem nú er varaformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna, skrifar grein um Magmamálið í nýútkomið Viðskiptablað og gagnrýnir tvöfalt siðgæði sem einkenni umræðu um erlenda fjárfestingu í landinu. Inntak greinarinnar hljómar svo í endursögn blaðamannsins Magnúsar Halldórssonar: [...]
Að benda á Sigurjón
Það er gott að hafa blóraböggul, í Ameríku hafa þeir orðið fall guy sem lýsir þessu ennþá betur. Þetta er klassísk týpa í ákveðinni tegund af kvikmyndum. Sigurjón Þ. Árnason hentar vel í þetta hlutverk, einfaldlega vegna þess hvernig hann lítur út og hvernig hann kemur fyrir. Það er mjög hentugt að benda á Sigurjón. [...]
Veðurpistill
Það sem maður upplifir er alveg nýtt loftslag á Íslandi, a.m.k. hér suðvestanlands. Þetta var ekki svona þegar ég var að alast upp. Þá voru aðallega tvær tegundir af veðri á sumrin. Rigning og sólrik en köld norðanátt. Vorin byrjuðu seint – ég man eftir sköflum fram í júní. Móðir mín segir að veðrið á [...]