Færslur fyrir maí, 2010
Ehrenreich
Ég bendi á viðtalið við rithöfundinn og baráttukonuna Barböru Ehrenreich úr Silfri gærdagsins – það hefur líklega farið framhjá mörgum vegna kosningafársins. Í viðtalinu ræðir hún meðal annars um hlutskipti láglaunafólks í Bandaríkjunum, millistétt sem býr við mikið óöryggi og falska bjartsýni og jákvæðni sem hefur ríkt í bandaríska hagkerfinu og á vinnumarkaðnum. Viðtalið má [...]
Fjórflokkurinn er veruleiki
Menn eru að fetta fingur út í hugtakið fjórflokkarnir eða fjórflokkurinn. Þetta er samt veruleiki í íslenskum stjórnmálum. Þau hafa í meginatriðum byggst upp á fjórum flokkum allan lýðveldistímann. Sjálfstæðisflokknum – sem er óvenju breiður flokkur á hægri vængnum, nær að sameina í sínum röðum frjálshyggjumenn, miðjumenn, bændur og fólk sem getur jafnvel talist sósíaldemókratar. [...]
Krísa í Samfylkingunni
Karl Th. Birgisson, einn af stuðningsmönnum Össurar í Samfylkingunni, vill að Dagur B. Eggertsson fari frá vegna úrslitanna í borgarstjórnarkosningunun. Það er svosem ekki óeðlileg krafa. En þá má kannski horfa víðar um land. Samfylkingin tapar hérumbil alls staðar og víða mjög stórt. Varla verður Degi kennt um það. Á landsvísu tapaði flokkurinn meira en [...]
Eru hjaðningavíg að byrja í flokkunum?
Ég benti í gær á heimasíðu Marinós Gunnars Njálssonar þar sem hann er að taka saman ýmiss konar talnaefni um kosningarnar. Nú bætir hann um betur og skoðar útkomu flokkanna eftir kjördæmum. Samkvæmt þessu eru það Vinstri grænir sem tapa hlutfallslega mest, en Sjálfstæðisflokkurinn sem tapar flestum atkvæðum. Annars sér maður ekki betur en að [...]
Tap flokkanna í þéttbýlinu
Marinó Gunnar Njálsson reiknar saman kosningaúrslit í stærstu sveitarfélögunum, Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og Akureyri. Ég vitna í þetta, Marinó er talnagleggri maður en ég. Skoðið þetta endilega hjá honum. Samkvæmt þessu er tap Vinstri grænna gríðarlegt – andstætt því sem Steingrímur J. Sigfússon segir – flokkurinn tapar 39,4 prósentum af fylgi sínu á þessum stöðum. [...]
Dennis Hopper og Easy Rider
Easy Rider var mesta kúltmynd áttunda áratugarins. Ég man að ég sá hana í listabíói í Kaupmannahöfn sirka árið 1977. Þá eimdi ennþá eftir af hippatímanum og frelsisþránni sem myndin túlkar. Auðvitað var þetta toppurinn á leikstjóraferli Dennis Hopper, þessa sérstæða leikstjóra og leikara – þótt hann ætti margar aðrar flottar stundir á hvíta tjaldinu. [...]
Auðu atkvæðin
Í kosningum er komið fram við auða kjörseðla af mikilli óvirðingu, því vissulega er það afstaða að skila auðu – rétt eins og til dæmis að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Það væri mjög áhugavert að fá samantekt um auða kjörseðla í helstu sveitarfélögum. Í Hafnarfirði var enginn valkostur við gömlu flokkanna og þar brugðu kjósendur á það [...]
Áhrifin á landsmálin
Ég minnti á það um daginn að Halldór Ásgrímsson hefði sagt af sér sem forsætisráðherra eftir síðustu sveitastjórnakosningar. Er eitthvað slíkt í spilunum núna? Einhverjar breytingar í landsmálunum? Ríkisstjórnarflokkarnir fara mjög illa út úr kosningunum; í Reykjavík fá þeir samanlagt 26 prósent atkvæða. Kallar það á uppstokkun í stjórninni? Og Sjálfstæðisflokkurinn, hann er að fara [...]
Úrslit gærdagsins
Þetta eru skrítnar niðurstöður kosninga. Sigur Besta flokksins í Reykjavík eru náttúrlega einhver ótrúlegustu tíðindi í íslenskri stjórnmálasögu, bylmingshögg á fjórflokkana. Sigur L-listans á Akureyri er líka stórtíðindi, og þar var enginn grínari í framboði. Maður veltir fyrir sér hvað hefði gerst ef svona framboð hefðu tekið þátt í kosningunum víðar um landið. Það er [...]
Framboð um heiðarleika
Þegar fyrstu tölur birtust í Reykjavík var H listinn með ekkert atkvæði. Þá varð einhverjum að orði að Ólafur F. væri orðinn svo heiðarlegur að hann hefði ekki kosið sjálfan sig.