Það verður ekki annað sagt en að stjórnmálaflokkarnir hafi komið sér vel fyrir í borginni. Nú eru ekki bara borgarfulltrúar á launum, og þiggja líka laun fyrir að sitja í nefndum, heldur fá varaborgarfulltrúar sporslur líka. Það sem lengi taldist vera aukastarf er nú full tæm djobb.
Og þess utan upplýsir Fréttablaðið í dag um háar greiðslur til stjórnmálaflokkanna í borginni. 130 milljónir síðan 2007. Segir að þetta sé gert samkvæmt heimildum í lögum frá 2006 um fjármál stjórnmálasamtaka.
Það ár voru leiddar í lög takmarkanir á því hvað flokkar gætu fengið í styrki frá fyrirtækjum – frægt er hversu gráðugir flokkarnir urðu í styrkfé stuttu áður en lögin tóku gildi.
En líklega hefur fæsta grunað að borgin væri líka að veita háum fjárhæðum í stjórnmálaflokkana.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
27 ummæli
Rita ummæli09.02 2010 kl.10:37
Slóð
Ættu stjórnmálasamtök ekki frekar að heita sjálftökusamtök?
09.02 2010 kl.10:40
Slóð
Mig langar að grenja
Ömurlegheitin eiga sér engin takmörk í þessu samfélagi og hvað gerum við…….. rífum kjaft á internetinu!!
Ég elska Ísland og það breytist aldrei. En ég er að missa trúna á Íslendingum
09.02 2010 kl.10:45
Slóð
Hvað er með þetta samfélag.
Gengur það út á að færa aur úr vasa skrílsins í vasa hina fáu og útvöldu..
09.02 2010 kl.10:46
Slóð
Á sveitarstjórnarstiginu er spillingin því miður miklu meiri en á landstjórnarplaninu og er hún þó næg þar. Í Reykjavík er þetta 130 manna hópur sem stundar grimma sjálftöku. Borgarfulltrúar og vinir auk 100 embættismanna.
09.02 2010 kl.10:55
Slóð
Pólitík stendur fyrir:
spillingu, mismunun, græðgi, óheiðarleika, hroka og valdníðslu.
Á Íslandi hafa stjórnmál reynst mafíukennd og ófarsæl og maður hefur áhyggjur af unga fólkinu og börnunum sem erfa skulu þetta land.
09.02 2010 kl.11:03
Slóð
Stjórnmálastarf á Íslandi er einfaldlega komið langt út fyrir mörk heilbrigðrar skynsemi. Það þarf að bylta þessu kerfi sem allra fyrst, og með skynsemi að leiðarljósi, þar sem valið er hæft fólk til starfa og markmiðin skýr. „Óbragð í munni“ er ekki nóg til að lýsa þeirri spýju sem stendur út úr þessu fyrirbæri og venjulegt fólk þarf að fylgjast með.
Mæli með atriðinu með gubbukallinum á veitingahúsinu í „Monty Python and the Meaning of Life“, fyrir fína lýsingu á þessu ástandi.
09.02 2010 kl.11:10
Slóð
Stjórnmálaflokkar landsins eru orðnir að glæpasamtökum sem er óhæfa að styrkja með almannafé.
Óháðar kosningar STRAX!
09.02 2010 kl.11:18
Slóð
Gerið ykkur grein fyrir því að fimm af sjö núverandi borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins eru öruggir með áframhaldandi setu í borgarstjórn? Þrír af fjórum fulltrúum Samfylkingarinnar eru það sömuleiðis og svo eflaust báðir fulltrúar VG sem eru fréttaefni dagsins.
Með öðrum orðum eru tveir þriðju hlutar borgarfulltrúanna ósnertanlegir þegar rúmur ársfjórðungur til kosninga og reyndar gæti þetta þaulsetna fólk hæglega myndað nýjan borgarstjórnarmeirihluta nú strax í febrúar!
Krafan um persónukjör var mjög hávær fyrir ári síðan og þrátt fyrir að breytingafrumvarp um kosningalög í átt til persónukjörs hafi tvívegis verið lagt fram af núverandi dómsmálaráðherra, bæði á sumarþingi og haustþingi, er greinilega takmarkaður áhugi fyrir því meðal stjórnmálaflokkanna. Sérstaka athygli hefur vakið hvað fólk innan VG hefur talað gegn þessu frumvarpi. Líklega hugnast þeim betur prófkjörin eins og þau tíðkast þessa dagana.
09.02 2010 kl.11:19
Slóð
Sammála Heiðu, þetta er sama „fyrirbæri“ og hefur dregið úr launum til almennra starfsmanna og tímir ekki að veita þeim sem þurfa desemberuppbót.
Skömm að þessu
09.02 2010 kl.11:20
Slóð
Fjölmargir Reykvíkingar hljóta að kjósa Besta flokkinn. Af hverju? Jú liðsmenn þar sýna sennilega:
spillingu, mismunun, græðgi, hroka og valdníðslu.
En frambjóðendurnir eru heiðarlegir!!!!!!!!!!!
Ég endurtek frambjóðendur Besta flokksins eru heiðarlegir!!!!!!!
Hvar fyrir finnst sá góði eiginleiki í öðrum flokkum?
Ferskir vindar takk fyrir, allir ættu að kjósa Jón Gnarr
09.02 2010 kl.11:24
Slóð
Í þessum anda kann ég líka ákaflega vel við nýja framboðið í stúdendaráðskosningunum:
„Skrökva, félag flokksbundinna framapotara“.
Þeir hlutu viðunandi kjörgengi og eru í oddaaðstöðu. Frábært
Frambjóðendur félagsins „Skrökva“ eru eru heiðarlegir!!!!!!!
Yndislegt
09.02 2010 kl.11:27
Slóð
Hvers konar lýðræði er þetta?
http://silfuregils.eyjan.is/2010/02/09/sjalftaka/#comment-155517
09.02 2010 kl.11:28
Slóð
Við viljum öfluga stjórnmálaflokka með frambærilega frambjóðendur sem vita hvað þeir eru að segja og taka skynsamlega ákvarðanir.
Kjörnir fulltrúar – og flokkarnir á bakvið þá – leiða stjórnkerfi þessa lands.
En það má ekkert kosta.
Mikið rosalega er þetta dæmigerður íslenskur tvískinnungur.
Á sama tíma er milljörðum eytt í að handfjatla þrotabú gömlu bankanna – raða upp pappírum sem eru einskis virði. Það finnst okkur allt í lagi, enda eru þetta útlendir sérfræðingar á háum launatöxtum – 30 þús kr á tímann eða meir.
09.02 2010 kl.11:31
Slóð
Halldór ….
Finnst þér þú hafa fengið „öfluga stjórnmálaflokka með frambærilega frambjóðendur sem vita hvað þeir eru að segja og taka skynsamlegar ákvarðanir“ fyrir peninginn?
gaman að þessu.
09.02 2010 kl.11:35
Slóð
Elli Kelling og Halldór Á að dreifa umræðunni annað.
Atvinnubloggarar.
09.02 2010 kl.11:38
Slóð
Talandi um styrkjamál; eru Sjálfstæðismenn búnir að borga þessa tugi milljóna frá FL Group sem Bjarni Ben lofaði að borga til baka? Er einhver sem veit það?
09.02 2010 kl.11:46
Slóð
Sammála Agli núna og heldur betur. Ömurlegt að sjá hvernig fjórflokkurinn er orðinn að krabbameini í samfélaginu okkar.
09.02 2010 kl.11:57
Slóð
Stjórnmálaflokkar eru greinilega að mestu ríkis og borgar-sveitastyrktir. Við sumse fáum að borga fyrir þetta fólk og þessa flokka allt sem þau troða á okkur svona alltaf rétt fyrir kosningar, við fáum að borga fyrir auglýsingarnar þeirra, borga fyrir sukkið þeirra, árshátíðir og mannamót!
Þetta er svo skítlegt að það hálfa væri hellingur, ef eitthvað ætti að vera einkavætt eru það einmitt stjórnmálaflokkarnir.
En svona til að víkja smá frá þessu en samt halda sig að efni, eru ekki trúmál og stjórnmál nákvæmlega það sama.
Enn erum við með þjoðkirkju sem fær góða summu, fólk fer í lið og skiptir helst ekki um nema það komist ekki til valda. Sumir fæðast inn í ákveðna flokk og já stjórnmálahreyfingar.
Alltaf er talað um að stefnan sé góð, hugsjónin er falleg en fólkið skemmir…
Svo eru alltaf til eitthverjir sem í rauðann dauðann verja sína „flokka“ eða sín trúfélög þrátt fyrir allan viðbjóðinn sem leynist þar.
Er þetta ekki bara alveg það sama?
09.02 2010 kl.12:07
Slóð
Svo á nú eftir að upplýsa hvaða aukasporslur borgarfulltrúar og ríkisstarfsmenn eru að fá.
Endalausir nefndarstarfapeninga, bílapeninga, fríir gemsar og gemsareikningar, greitt fyrir internet notkun, óunnir yfirvinnutímar, styrkir til líkamsrækta (fyrir utan aukastyrki frá þaðan sem félagsgjöldin eru greidd) frí dagblöð, afsláttur af leikskólagjöldum, hærra orlog, ofl. ofl. ofl. ofl. – Listinn er endalaus
09.02 2010 kl.12:07
Slóð
Rétt Unnstein.
Afnema þarf ríkisstyrkina til stjórnmálaafla að mestu eða öllu leyti. Skerða hlutfallið t.d. um 80-90%.
Auk þess aðskilja með öllu ríki og þjóðkirkju. Löngu tímabært
09.02 2010 kl.12:43
Slóð
Heldur fólk að það kosti ekkert að halda úti lýðræðinu?
Við viljum fá að vita stefnu einstaklinga í prófkjörum, við viljum sjá hvað flokkarnir hafa fram að færa. Hvers vegna má það ekkert kosta? Við erum að velja okkur stjórnendur þessa lands.
Ef við erum ekki ánægð með þá kjörnu fulltrúa sem við sitjum uppi með, þá getum við sjálfum okkur um kennt. En það réttlætir ekki þessa heimóttarlegu afstöðu að framkvæmd lýðræðisins megi ekkert kosta og kjörnir fulltrúar okkar eigi að lifa við sult og seyru.
09.02 2010 kl.12:49
Slóð
Þið eigið þetta skilið……
Þetta lið kjósa reykvíkingar yfir sig aftur og aftur, svo blogga menn yfir því að ekki séu til aurar til að reka leikskólana …..
Hvað þarf til að íslendingar nenni uppúr stólnum ?
Hvað ef slökkt væri á internetinu og fótboltaútsendingar bannaðar. Yrði þá eitthvað gert ??
09.02 2010 kl.12:57
Slóð
Halldór,
ég vil að mínir skattpeningar fari í almenningsþjónustu! Það er ekki furða að önnur framboð koma nánast aldrei neinum inn á þing eða bæjarstjórnir, þegar flokkarnir sem sitja þar skammta sér sjáflir peningum!
Þetta hefur einmitt ekkert með lýðræði að gera!
Skattpeningar mínir fara sumsé í auglýsingar hjá öllu þessu fólki, sem bullar og bullar og bullar!
09.02 2010 kl.13:03
Slóð
p.s. „að framkvæmd lýðræðisins megi ekkert kosta og kjörnir fulltrúar okkar eigi að lifa við sult og seyru.“
það er enginn að tala um að það eigi ekki að borga þeim laun… en að borga flokkunum… það er bara allt annað mál!
og þau eru nú ekkert á skítalaunum þarna…
09.02 2010 kl.14:34
Slóð
Breytingar á lögum vegna styrkveitinga til stjórnmálaflokka eru tilkomnar til þess að minnka áhrif styrkja frá fyrirtækjum og hagsmunaaðilum.
Myndi fólk frekar vilja að heilu og hálfu fyrirtækinu gætu „keypt“ stjórnmálaflokka með endalausum styrkjum???
Það skiptir kannski ekki öllu, þessi blessaði athugasemda-grátkór myndi án efa röfla og gargast og væla yfir því hvort sem er . . .
09.02 2010 kl.15:01
Slóð
Þú ert væntanlega flokksbundinn Magnús eða hvað?
Fyrirtæki hafa ekki efni á að múta flokkunum eins og áður, a.m.k. í mun minna mæli en fyrr.
Liðsmenn flokkanna geta bara sjálfir lagt til fé. Það þarf bara ekkert svona mikið fjármagn í rekstur flokkanna og kominn er tími til að sklrúfa allt niður miðað við undangegna áratugi. Sjáið bara síðasta landsfund sjálfstæðismanna. Þvílíkt bruðl og umfang. Samfylkingin líka með ansi stóra og dýra landsfundi.
09.02 2010 kl.16:15
Slóð
Best að eyða fé í þetta… Heilbrigðiskerfi og Sáá og Menntamál WHO CARES anyhow! Einkavæða það allt en borga sjálfum sér ríflega styrki.
Gott mál.
Ef þau geta ekki verið sjálfbær, tekist á við þetta án ríkisstyrkja og marghundruð milljón króna styrkja frá fyrirtækjum, þá kannski er þetta bara svolítið glatað concept eða hvað?
Einu sinni rukkaði líka kirkjan inn… svo maður færi nú ekki til helvítis