Sendu Agli póst
silfuregils@eyjan.is
08.02 2010 - 51 ummæli »

Spilavíti

Fjárhættuspil eru allt í kringum okkur. Háskóli Íslands rekur spilakassa sem velta háum fjárhæðum. Það er hægt að spila fjárhættuspil á netinu – og í fjölmiðlum á netinu er að finna auglýsingar um vefi þar sem er boðið upp á slíka iðju. Efnisveitur símafyrirtækjanna dreifa sjónvarpsstöðum þar sem er spilaður póker upp á peninga inn í stofur landsmanna. Víða um bæinn kemur fólk saman og spilar fjárhættuspil. Sumt af þessu er löglegt, annað ekki. Lögreglan gengur samt ekki hart fram í því að stöðva fjárhættuspil.

Þannig að það ríkir nokkur tvískinnungur í þessum málum. Það er svo spurning hvort það yrðu biðraðir ef leyft yrði að spila upp á peninga á hóteli í Reykjavík. Ég er ekki viss.

51 ummæli

Rita ummæli

Kefas
08.02 2010 kl.20:17

Gjaldeyrisskapandi. Leyfum þetta

Japis
08.02 2010 kl.20:20

Frjálshyggjan lengi lifi.

Glaumur
08.02 2010 kl.20:25

Hverjir eru á bak við þetta? Við sjáum bara leppana og fortjöldin.
Hverjir eru að innkalla greiða hjá stjórnmálamönnum?
Hverjir „eiga“ hótelin?

Atli Steinn Guðmundsson
08.02 2010 kl.20:35

Tvískinnungur er vægt til orða tekið. Ég gat ekki varist brosi yfir ræðu Harðar Oddfríðarsonar í fréttum RÚV þar sem hann ræddi um orðspor landsins og slæmt siðferði í tengslum við spilavíti (með fyrirvara um ívitnað orðalag þar sem RÚV hefur ekki enn sett fréttatímann á vef sinn svo mér er ekki tækt að rifja upp nákvæm orð Harðar).

Fólk flykkist til heilu borganna sem gera nær eingöngu út á þennan iðnað (Las Vegas og fleiri) en þegar rætt er um að færa þessa starfsemi, sem hér er stunduð grimmt, upp á yfirborðið með tilheyrandi regluverki ærast siðapostular og bera fyrir sig orðspor landsins. Ef hægt væri að sverta orðspor Íslands meira yrði það varla gert með einu spilavíti.

Menn gleyma því að allt má misnota og viss hópur einstaklinga mun alltaf misnota suma hluti, leyfða eða bannaða. Hinstu rökin í þessu máli eru þau að fólk verður að vera ábyrgt gjörða sinna og haga lífi sínu þannig að velferð þess og annarra sé ekki í stórhættu.

Með rökum Harðar (og fleiri) gætum við allt eins bannað áfengi, tóbak, sykur, hnetusmjör….listinn er endalaus. Það verður alltaf til fólk sem notar þessa hluti í óhófi og veldur sér einhvers konar skaða. Fjárhættuspil eru þarna ekki undanþegin. Sennilega er mun auðveldara að meðhöndla þann vanda sem af hlýst ef neyslan/starfsemin/athöfnin er sýnileg og lýtur löglegri stjórn.

Spilafíklum fjölgar ábyggilega ekki hér á landi með löglegu spilavíti frekar en að Íslendingar drukku sig í hel allir með tölu þegar þeir fengu að kaupa bjór löglega 1. mars 1989. Þó fullyrtu háværir menn það um götur og torg á þeim tíma.

Jóhann
08.02 2010 kl.20:37

Það er fáránlegt að menn séu að tengja þetta við frjálshyggju eða reyna á einhvern hátt að gera þetta grunsamlegt. Þetta er löglegt í nágrannaríkjum okkar sem við berum okkur saman við, Danmörk verður t.a.m. seint tengt við einhverja frálshyggju enda leitun að sósíaliskra ríki í evrópu.
Þetta er einn af þeim þáttum sem hefur verið leyfilegur á Íslandi í mörg ár með spilakössum, lengjunni og öðru hvar menn hafa auðveldlega getað spilað frá sér aleiguna og meira til. Svo hefur þetta grasserað neðanjarðar og á allra vitorði að menn eru að veðja miklum fjárhæðum sem ríkið fær enga skatta af.

Þetta bætir í flóru ferðamannaiðnaðarins og er sjálfsagt tómstundargaman. Tal um spilafíkn og þá vá sem fylgir henni á varla við þar sem í öllu munu menn finna leið til þess að misnota það sem er í boði. Einnig mætti skattleggja þessa starsfemi þannig að hluti þeirra tekna rynnu í sérstaka sjóði sem tengdust endurhæfingu spilafíkla.

Guðmundur Guðmundsson
08.02 2010 kl.20:41

Atli Steinn 20:35

„Spilafíklum fjölgar ábyggilega ekki hér á landi með löglegu spilavíti frekar en að Íslendingar drukku sig í hel allir með tölu þegar þeir fengu að kaupa bjór löglega 1. mars 1989.“

Rökhugsun óskast!

frikkki
08.02 2010 kl.20:42

Það er hægt að eyða öllu sínu´í net-póker,spilakassa, lottó eða lengjuna á Íslandi í dag. Þeir sem hafa þörf fyrir það eru að því. Spilavíti breytir engu.

Tryggvi
08.02 2010 kl.20:45

Örugglega mjög sniðugt til að koma Ísbjargarpeningunum í umferð sem löglegum peningum (stór snjöll peningaþvottavél)

Atli Steinn Guðmundsson
08.02 2010 kl.20:45

Guðmundur: Hjá mér eða…??? Ég er bara að vitna í það sem haldið var fram á þeim tíma með bjórinn. Það reyndist rangt, kolrangt.

Með sömu rökum tel ég að löglegt spilavíti fjölgi ekki spilafíklum hér. Þeir sem ætla sér að spila fjárhættuspil gera það nú þegar á netinu og út um alla borg þar sem haldin eru pókermót fyrir opnum tjöldum.

Rökin eru nú ekki flóknari.

Jói
08.02 2010 kl.20:46

Þetta er það sem þjóðin þarf á að halda eftir að efnahagskerfið hrundi þá er altaf hægt að láta sig dreyma um stóra vinninginn :-)

Elfa Jóns
08.02 2010 kl.20:50

Spilafíkn er alveg jafn raunverulegt vandamál og alkóhólismi. Það er alveg morgunljóst. Aftur á móti er rétt hjá Agli að við erum nú þegar búin að missa tökin á spilatilboðunum. Eitt casino breytir sennilega litlu þar um.

Miklu frekar vildi ég að strangari löggjöf, öflugra eftirlit og virkari skattlagning yrðu sett á þessa „atvinnuvegi“. Skattféð mætti nota til að hjálpa þeim sem lentu í vandræðum vegna spilafíknar.

Það er mikil spilamennska í samfélaginu öllu og fer vaxandi. Er stór munur á þessu og vogunarsjóðum og kauphallarbraski?
Þetta virkar allt jafn sjúkt á mig. Veðjað á skyndigróða.

Þetta getur bara endað illa, en bann er ekki rétta leiðin.

Atli Steinn Guðmundsson
08.02 2010 kl.20:54

Mæl þú kvenna heilust, Elfa, og …. það sem kannski vantaði hjá mér í síðustu athugasemd (til Guðmundar): Fólk sem ætlaði sér að drekka bjór fyrir 1. mars 1989 hafði nægan aðgang að smygluðum bjór sem hér var nánast offramboð á. Nákvæmlega það sama gildir um fjárhættuspil núna og á hinn bóginn eftir hugsanlegar leyfisveitingar.

L
08.02 2010 kl.20:57

Spila-víti skal vera ríkisrekið vegna greiðslu Icesave og annara skulda sem tengjast bankahruninu og starfrækt í Perlunni ( er hún ekki til sölu ? kannski þegar í eigu ríkisins ? )

Íslenskum einka aðilum er ekki treystandi til reksturs spila-vítis, eftir að skuldabagginn er greiddur skal selja það erlendum aðila sem hefur reynslu af slíkum rekstri.

einsi
08.02 2010 kl.20:58

Má ekki nota sömu rök um hass og amfetamín. Við skráum bara neytendurna og skattleggjum vel.
Styrkjum síðan SÁÁ til að bregðast við tjóninu.
Það verða víst alltaf nokkrir notendur dópsins sem kunna ekki með það að fara.

L
08.02 2010 kl.21:04

Annars væri þetta tilvalin leið til peningaþvotts fyrir útrásarvíkinga eða þeim tengdum.

Elfa Jóns
08.02 2010 kl.21:08

Arnar Gunnlaugs kom voða vel fyrir í Kastljósinu. Virtist hafa frekar óbrjálaðar hugmyndir um málið og bera virðingu fyrir þeim vandamálum sem fylgja.

Miðað við ógnarvöxtinn sem er á þessum spilaiðnaði alls staðar, þá er ljóst að gróðinn er gífurlegur (fyrir eigendurna alltvso).

Því finnst mér að núna í kreppunni ættu stjórnvöld að líta til þess að auka verulega skattheimtu á þessu. Þetta er vissulega atvinnuvegur sem má vera skattlagður á við áfengi og tóbak.

Jenný Stefanía
08.02 2010 kl.21:15

Styð þetta. Miklu betra að fá ‘casino’ upp á yfirborðið. Reglur og eftirlit í kringum svona starfsemi er rosaleg. Spurningin í mínum huga er frekar, getur íslenskt eftirlitskerfi ráðið við slíkt.

Sjonni
08.02 2010 kl.21:17

Það var nú uppástunga á sýnum tíma að breyta Perlunni í spilavíti til að hún gæti staðið undir sér. Að sjálfsögðu á að leyfa spilavíti á Íslandi!

Borgari60
08.02 2010 kl.21:17

Undanfarið hefur borið talsvert á auglýsingurm frá (að mínu mati) fremur ógeðfelldu spilavíti á netinu, kallað bettsson eða eitthvað álíka.

Eitthvað tekst þessu liði að narra tíl sína af fé spilasjúkra hér ef marka má umfang auglýsinganna.

Ég vona að stjórnvöldum takist að losa okkur við þessa óværu því tryggt er að „frjáls markaður“ mun ekki vernda börnin okkar fyrir henni.

ÁG
08.02 2010 kl.21:18

er nefskatur/ kastljós fyrir gráðugu leppa lúðana ? ný hugmynd ?

Atli Steinn Guðmundsson
08.02 2010 kl.21:20

Einsi: Jú, reyndar má færa góð rök fyrir því sem þú segir. Amfetamín fór t.d. fyrst að verða til vandræða í Svíþjóð eftir að þarlend yfirvöld takmörkuðu aðgengi að því upp úr 1940. Fram að því gat almenningur nálgast það í apótekum og aldrei varð neitt fréttaefni úr fólki undir áhrifum amfetamíns á þeim tíma. Það voru mest námsmenn í próflestri og vörubílstjórar í næturkeyrslu sem notuðu þetta.

Heimild: Edward M. Brecher: „The Swedish Experience“, sami (ritstj.): The Consumers Union Report – Licit and Illicit Drugs. (1972), kafli 39.

valdi kaldi
08.02 2010 kl.21:22

Vegna starfrækslu Hóskaóla Íslands á spilakössum má rifja upp að
það er ákveðin hefð fyrir því að spilavíti, sprúttsala og vændi séu á
hendi sömu aðila.

Hér er rakin leið fyrir H.Í . að breikka tekjustofna sína.

Það er að vísu sjálfsagt Siðfræðistofnun skólans skoði málið.
Ég er ekki í vafa um að þeir komast að þeirri sömu vísindalegu
niðurstöðu og í fyrra sinni með spilakassana.

Orðlaus
08.02 2010 kl.21:27

Etv ætti að eyrnamekja tekjurnar til ýmissa góðgerðarmála eins og SÁÁ, Mæðrastyrksnefndar, ýmis meðferðarheimil fyrir fíkla og þess háttar.
Hjálpar fólki, skapar störf og setur þennan geira undir eftirlit hjá ríkinu.
Hví ekki?

núman
08.02 2010 kl.21:31

Fjárhættuspil, vímuefni og vændi eru leiðir óvandaðs fólks til að hafa veikleika annarra að féþúfu.

Þess vegna ber að berjast gegn þessu.

Eiður Guðnason
08.02 2010 kl.21:31

Spilavítið Ísland ? Ætli Englendingar og Kanarnir segi ekki bara: “ What else is new ?“

Frjálshyggjumunkurinn í HÍ
08.02 2010 kl.21:32

Það er mikilvægt fyrir endurreisn Íslands að opna hér sem flest spilavíti.

Við Davíð vildum breyta þessari verstöð í fjármálaparadís fyrir auðmenn. Þar sem almenningur borgar alla skattana en auðmenn eru skattfrjálsir. Það er frelsið, maður lifandi!

Spilavíti falla vel að skattaparadís auðmanna.

Áfram allir frjálshyggjumunkar Íslands – Sameinumst!

Egill Helgason
08.02 2010 kl.21:33

Það eru spilavíti í Stokkhólmi og Kaupmannahöfn, líklega þó ekki í Osló!

Lífklöpp
08.02 2010 kl.21:42

Ríkið á að reka stórt og glæsilegt spilavíti í Perlunni.
Nota þessa fallegu byggingu til þess að trakka að túrista.

Mín skoðun er að ríkið á að reka þetta og hafa einkarétt. Svipað og Vínbúðin. Svo allur ágoðinn af þessu fer í vasa skattborgara.

L
08.02 2010 kl.21:46

Búinn að skipta um skoðun.

Var að fá símtal frá aldraðri móður minni sem liggur veik á sjúkrahúsi í Fossvogi.
Hún á að fara í rannsóknir á Landsspítala Hringbraut, þangað verður hún að koma sér sjálf og til baka aftur í sjúkrarúmið.

Spila-víti skal vera ríkisrekið til frambúðar til að reka heilbrigðiskerfið, þeir ferðamenn sem vilja láta féfletta sig eru velkomnir og ágóðinn rennur í gott málefni !!!

Þannig mun hið norræna velferðarkerfi verða að veruleika !!!

Sigurður #1
08.02 2010 kl.21:56

Ríkisrekið spilavíti er hið besta mál.

Einkarekstur tryggir að ekki ein einasta króna skilar sér í sköttum né öðru.

Bókhaldið fixað í drasl.

Það verða að koma einhver gáfulegri rök á móti þessu en að spilafíklar rambi þar inn.

Ef það eru einu rökin þá þarf að banna allt sem getur orðið að „fíkn“, eins og sjónvarp, leikjatölvur,áfengi,kynlíf mat ofl.

Nær væri að leyfa þetta og nota hagnaðinn í t.d. SÁÁ.

Guðmundur Guðmundsson
08.02 2010 kl.22:11

Rökin fyrir spilavíti eru af ýmsu tagi. Af þeim eru „þetta skiptir engu máli rökin“ kannski sérkennilegust:

Ákveðið hlutfall manna misnotar alla hluti. Og þeir eru þegar fallnir. Allir landsins spilafíklar fá nú þegar fíkn sinni svalað, á netinu, í spilakössum, í fjárhættuspili, í lottóinu, hvar sem er. Þeir eru nú þegar að setja foreldrana á hausinn, fjölskylduna á götuna, snúa upp á handlegginn á gömlum konum, stela og svíkja. Um það verður engu breytt. Barnið er þegar komið á bólakaf ofan í brunninn og tilgangslaust að þusa um e-ð lok.

Ólafur Ágúst
08.02 2010 kl.22:16

Æ, ekki…

Leyfið frekar Macao að sitja að þessu!

Örn A.
08.02 2010 kl.22:20

Jenný Stefanía
08.02 2010 kl.21:15
>>Styð þetta. Miklu betra að fá ‘casino’ upp á yfirborðið. Reglur og eftirlit í kringum svona starfsemi er rosaleg. Spurningin í mínum huga er frekar, getur íslenskt eftirlitskerfi ráðið við slíkt.

Eftirlit á Íslandi!!! Já góð hugmynd, virkaði mjög vel varðandi íslensku bankanna. Svo segja þeir að eftirlitið hjálpi spilafíklum ef þeir spila og mikið! Fá ekki að spila rassin úr buxunum inn á þessum löglegu stöðum því þeir eru undir eftirliti. Hmmm… hvert fara þeir þá?? Undir yfirborðið aftur og allt við það sama. Leyfum bara ands… allt, því fólk gerir hlutina þó það sé bannað. Boð og bönn þvælast bara fyrir.

Afsakið meðan ég æli!

Ólafur Ágúst
08.02 2010 kl.22:21

Coalition of the willing, AD 1900:

http://en.wikipedia.org/wiki/Boxer_Rebellion

Japan
Russia
United Kingdom
France
United States
Germany
Italy
Austria-Hungary

Í dag myndi þetta kallast „alþjóðasamfélagið“.

Við erum öll Kínverjar!

Halldór Á
08.02 2010 kl.22:27

Það kom nú fram hjá Arnari Gunnlaugssyni í viðtali á Bylgjunni í dag að þegar Danir leyfðu rekstur á svona kasínó, þá færðist spilastarfsemin úr ólöglegu klúbbunum inn í þennan löglega rekstur.

Ég trúi því aldrei að hinir rammsósíalísku Danir og Svíar færu að leyfa spilavítisrekstur (kasínó) nema að tryggja í bak og fyrir að allt sé löglegt og að ríkið fái bróðurpartinn af hagnaðinum. Arnar sagði að hugmyndin væri að taka upp danska módelið hér á landi, þannig að þá er engin ástæða til að hafa áhyggjur.

Auðvitað mun svona spilavíti höfða mest til erlendra ferðamanna, þannig að þetta er besta mál og gaman að heyra af þessu mitt í allri armæðunni.

Skrítið samt að horfa á fréttir í Sjónvarpinu (RÚV) og viðtal í Kastljósinu í kvöld. Þar voru menn bara að velta sér upp úr hvaða vandamál fylgdu spilavítisrekstri (spilafíkn) en ekki orð um hvernig þetta væri hugsað. Óttalega er þetta eitthvað sænsk fréttamennska. Problem, problem, problem.

Ingvaldur
08.02 2010 kl.22:47

Heimurinn er spilavíti.
Íslendingar sem og aðrir geta veðjað á það hvort kaffi hækki eða lækki í verði, hlutabréf, veður, gjaldmiðlar og í raun hvað sem er.
Það er fullkomin hræsni að vilja svo ekki leyfa spilavíti af því að einhverjir fara ílla útúr því þegar allir Íslendingar hafa farið ílla útúr því að ríkið veðjaði á vitlausa flokksgæðinga til að eignast banka.
Spilavíti verða leyfð á Íslandi, enginn vafi, það þarf bara réttur aðili að sækja um, það er nefnilega flokksréttindi að græða peninga hér á landi.

Elfa Jóns
08.02 2010 kl.23:02

Persónulega er ég mjög mótfallin öllu gambli, hverju nafni sem það nefnist. En ef á að banna það, þá er erfitt að draga línuna. Happdrætti SÍBS er til dæmis ekkert annað en fjárhættuspil, hið sama gildir um bingó … þó hvorutveggja sé kannski ekki það sem er mest ávanabindandi.

Auðvitað er hægt að setja ýmsar reglur og reyna að stemma stigu við verstu hliðunum.

Varðandi Danmörku, þá er fjárhættuspil gífurlega mikið stundað hér og vex með ógnarharða. Þetta er vaxandi vandamál og mér finnst nú ekki mikið gert í að stemma stigu við því. En það er ekki casinoið sem er stóra vandamálið. Pókerklúbbarnir eru aðalhittið.

Það er td virkilega ógeðfellt hversu mikið magn auglýsinga hér eru frá spilafyrirtækjum.

Pharmacon
08.02 2010 kl.23:16

:) :) :)

*****Hey… vitiði hvað…. íslenska ríkið verður af gríðarlegum skatttekjum þar *****sem flest fíkniefni eru ólögleg á ástkæra ilhýra. Er ekki hægt að fá *****einhverja fyrrverandi fótboltastráka til að skipuleggja hassbari á *****Íslandi. Kannski einn svoleiðis á Hótel Holt? Það væri áræðanlega *****hægt að markaðsetja þetta í stóra útlandinu og fá fullt fullt af gjaldeyri.

********Jafnvel hægt að fara í útrás. Flytja út eitthvað af þeim kannabisjurtum ********sem íslenska ríkið lætur brenna þegar löggan lætur til skara skríða ********gegn nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi í landinu. Mikill tekjumissir ********þar….

:) :) :)

Elli kelling
08.02 2010 kl.23:26

Dostoyevskí var spilafíkill og skrifaði fallega sögu um spilafíkn, Fjárhættuspilarann, sem þeir ættu að lesa sem mæra þessa hugmynd hér.
Það mætti breyta nafni Reykjavíkur í Roulettenburg.

Jenný Stefanía
08.02 2010 kl.23:30

Örn A … vonandi ertu hættur að kúgast.

„Eftirlitið“ …. er einmitt það sem vert er að setja stóran varnagla á.
Bankaeftirlitið brást gjörsamlega á Íslandi, og það þarf enginn að reyna að segja okkur eitthvað annað.

Við óbreytt kllíkusamfélag og góðvinavæðingu, er þessi „casino“ hugmynd dauðadæmd.

Þessi starfsemi er líka talin stoðgrein við „peningaþvætti“ og kallar því á enn harðara eftirlit.

Svo það er full ástæða til að kúgast, miðað við óbreytt samfélag.

Á hinn bóginn, búandi í eftirlits-og lagaríki dauðans, þar sem blómstrandi casino eru rekin, get ég vel séð þetta virka, svona prívat og persónulega enda hefur tilkoma þessara spilavíta auðgað „skemmtanaflóruna“ fyrir ákveðinn hóp af fólki, sem nennir ekki að dansa eða djöflast á næturklúbbum.

Forræðishyggja sem skerðir frelsi okkar sem einstaklinga, (áfengi, tóbak, fjárhættuspil o.þ.h) hugnast mér ekki, bara af því að sumir einstaklingar missa stjórn á sér, og því eigi að banna öllum hinum.

Held að einhver fjölbrautaskóli hafi farið í setuverkfall í dag, einmitt á svipuðum forsendum. Þeim er ekki leyft að gista á Selfossi, af því 2 eða 3 nemendur létu illa í fyrra og hitteðfyrra.

Skorrdal
08.02 2010 kl.23:33

Egill. Langaði bara að minna þig á, að SÁÁ – sem er einn umsjónaraðila þessarar umsóknar, og meðferðaraðili spilafíkla – er hluti af Háspennu spilakassadæminu. Þeir gætu alveg eins rekið bar, eins og að reka spilakassa, sem færir þeim eflaust nokkra kúnna á ári, sem við borgum með skattfé okkar.

Ég er ALLS EKKI að draga úr þeirri staðreynd, að SÁÁ hefur hjálpað mörgum að halda lífi – mig langaði samt bara að benda á hræsnina.

Skorrdal
08.02 2010 kl.23:33

umsagnaraðila :P ekki umsjónaraðila…

viktor
08.02 2010 kl.23:40

spilafíkn er og verður til staðar hérna.rétt eins og önnur fíkn.
ef þettað verður leift þá spretta upp fullt af svona búllum.
verður spennandi á meðan nyabrumið er.
eins og þegar mellubúllurnar voru leifðar hérna.
nú er það sama og búið.
er ekki bara allt í lagi að láta reyna á þetta?
það má þa´bara banna þetta aftur ef reynslan verður ekki góð.

einsi
09.02 2010 kl.00:21

Það mætti ábyggilega fá fyrrverandi starfsmenn fjármálaeftirlitsins til að setja reglur og hafa eftirlit með væntanlegum ReichsCasino og ReichsNarko.

Það er jú hefð fyrir glæstum árangri. Maður verður að vera bjartsýnn.

GS
09.02 2010 kl.01:11

Spilavíti, hóruhús, lögleiðing á fíkniefnum, áfengi í matvöruverslanir, reykherbergi í barnaskólana, bari á spítalana

Allt er þetta sjálfsagt til bóta og leyft víða í heiminum.
Þetta er atvinnuskapandi og eykur skatttekjur.

Mikið mætti maður verða stoltur af börnunum sínum ef þau fengju vinnu við eitthvað af þessu til að létta undir með manni í ellinni og hruninu..

Hvaðan koma peningarnir annars sem eytt er á spilavítum?

Guðmundur Guðmundsson
09.02 2010 kl.08:10

„Allir í mínum bekk eru með spilavíti rökin“ eru dálítið skemmtilegt:

Allir sem við viljum miða okkur við eru með spilavíti. Stokkhólmur, Kaupmannahöfn, allir nema Norðmenn auðvitað. Enda eru þeir halló og púkó og við megum alls alls ekki miða okkur við þá. Það eru bara afdalamenn sem eru á móti spilavítum, hundasúru og lopapeysukerlingar af báðum kynjum. Spilavíti eru hluti af nútímavæðingunni. Ekkert nútímaþjóðfélög fæst þrifist án spilavíta. Viljum við ekki byggja upp nýtt Ísland?

Egill Helgason
09.02 2010 kl.08:14

Hættulegustu fíkniefni heims eru áfengi og tóbak. Þessum efnum er dreift af íslenska ríkinu.

Guðmundur Guðmundsson
09.02 2010 kl.08:38

Hárrétt Egill, en stafar svona mikil hætta af þeim gramm fyrir gramm eða er ástæðan sú að þetta eru lögleg fíkniefni og neyslan því þúsundföld á við önnur efni?

María Reynisdóttir
09.02 2010 kl.11:50

Rannsóknir og reynsla annarra borga hafa sýnt að svona spilavíti laðar sjaldnast að nýja erlenda ferðamenn og þ.a.l. nýjan gjaldeyri af nokkru ráði. Það er mest lókal fólk sem notar slíka þjónustu. Þetta virkar í Las Vegas þar sem heilmikill iðnaður hefur byggst upp í kringum þessa starfsemi, og ímynd borgarinnar og heildarupplifunin laðar að erlenda ferðamenn. En ég tel mjög ólíklegt að útlendingar myndu ferðast hingað útaf spilavítinu per se (þetta yrði þá frekar viðbót í afþreyingarflóruna sem er n.b. orðin mjög mikil) m.a. vegna þess hve spilamennska er orðið útbreidd m.a. á netinu. Og þá er spurning hvort við viljum taka áhættuna með mögulegar neikvæðar afleiðingar, fyrir lítil hagræn áhrif. Menn ættu að skoða þessa hluti betur.

Unnur Guðmundsdóttir
09.02 2010 kl.13:37

Alltaf sami andskotans tvískinnungshátturinn.

Hrönn
09.02 2010 kl.14:55

Ég skil ekki af hverju verið er að ræða um eitt spilavíti. Annaðhvort eru spilavíti bönnuð eða leyfð og ef þau eru leyfð , eiga þá ekki allir sem uppfylla lagakröfur að geta opnað spilavíti?? Eða eigum við að halda áfram á braut frjálshyggju sem byggist á úthlutunum til útvalinna frá ríkinu?

Og af hverju að stoppa hér? Með sömu rökum má færa dópneyslu og vændi upp á yfirborðið og úthluta einstökum mönnum leyfi til dóp- og vændissölu, vandlega skattlagt af ríkinu og undir umsjón heilbrigðisyfirvalda?
Ég hefði gaman af því ef einhver sækti um leyfi til reksturs hóruhúss og rökstyddi það með því að hann hefði svo sannarlega áhyggjur og samúð með vændiskonum Íslands og vildi nota tekjurnar af vændinu til að hjálpa vændiskonunum !!?? þetta voru rök Arnars í Kastljósinu.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

 


Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar