Sendu Agli póst
silfuregils@eyjan.is
08.02 2010 - 53 ummæli »

Skrítinn reikningur

Alþingi fær erlenda lögmannsstofu til að vinna álit um Icesave. Eins og áður hefur komið fram er þetta ekki nema miðlungsgóð lögmannsstofa.

Svo berst fáránlega hár reikningur, upp á 25 milljónir.

Og stærsti hlutinn á að fara í að borga íslenskum lögmanni sem áður starfaði fyrir Björgólf Thor. Samkvæmt þessu virðist hann hafa unnið mestu vinnuna sem undirverktaki.

53 ummæli

Rita ummæli

Jenný Anna
08.02 2010 kl.15:39

Þetta er með ólíkindum.
Hvað varð um samvisku þessara manna, er engin áttun í gangi varðandi ástandið og hver velur þessa lögfræðistofu?

Björn
08.02 2010 kl.15:46

Myshcon de Reya er eingöngu ráðin af kröfu stjórnarandstöðunnar.
Og svo rukkar hagfræðingurinn Jón Daníelsson reikninginn fyrir stofuna samkvæmt því sem kemur fram hérna http://www.dv.is/frettir/2010/2/8/Mishcon-de-reya-sendir-25-milljona-reikning/
Er hann kannski líka undirverktaki ??

HF
08.02 2010 kl.15:46

Hver réð þessa lögfræðistofu, sem er sögð vera annars eða þriðja flokks?
Erum við ekki búin að fá nóg af fúskurum?

aRNAR hELGI
08.02 2010 kl.15:52

Fyndið.

Halldór Á
08.02 2010 kl.15:53

Hvernig dettur mönnum í hug að segja að þessi lögmannsstofa sé þriðja flokks þótt hún sé ekki ein af stærstu lögmannsstofunum í London?

Hins vegar er ljóst að þessi stofa hafði ekki rétta sérþekkingu til að vinna fyrir Alþingi – en það er ekki henni að kenna, heldur þeim sem báðu um þjónustuna.

Ef einhverjum finnst 25 milljónir hár reikningu, hvað finnst fólki þá um milljarða króna reikningana sem skilanefndir bankanna eru að borga erlendum endurskoðendum og lögfræðistofum?

Skrítið ef fólki finnst sjálfsagt að borga milljarða til sérfræðinga sem handfjatla peninga bankanna, en vilja helst ekkert borga fyrir ráðgjöf sem skiptir sköpum um hversu marga milljarða íslenskur almenningur á að borga fyrir Icesave glæpinn.

Má ég frekar biðja um enn hærri reikning.

Hættum að vera svona miklar smásálir.

Hjörtur Hjartarson
08.02 2010 kl.15:55

Þetta eru allt saman strákarnir okkar. Hvort sem er innan þings eða utan:

http://dagskammtur.wordpress.com/2010/01/21/%E2%80%9Estrakarnir-okkar%E2%80%9C/

jsnorra
08.02 2010 kl.15:55

Ekki veit ég hver raunverulega óskar eftir svona löguðu, þ.e. fyrir hönd Alþingis, en mér er spurn, er ekki nein forkönnun gerð hvað svona lagað muni koma til með að kosta, er bara skotið og spurt svo.

AG
08.02 2010 kl.15:59

Frekar vil ég dýra sérfræðinga en ódýra fúskara!

Vindurinn
08.02 2010 kl.16:06

Hefði ekki verið ódýrara að fara á miðilsfund?
Hvað var gert með þessa ráðgjöf og hverju hefur hún skilað?
Maybe I should have?

Agnar Kr. Þorsteinsson
08.02 2010 kl.16:10

Stjórnarandstaðan heimtaði þessa lögfræðiskrifstofu þar sem hún vændi mun virtari og vandaðri lögfræðiskrifstofu um að vera handbenid stjórnarinnar.

Og hvað svo? Það er fenginn einhver helblár Heimdælingur, einn af fjöldamörgum Sjálfstæðismönnum sem vann fyrir Bjögga Thor, sem er góðvinur Sigurðs Kára, fyrrum þingmanns og núverandi aðstoðarmanns Bjarna Ben, til að vinna þetta álit til handa stjórnarandstöðunni.

Þettta álit verður því að skoðast í því ljósi að þetta var greinilega pantað og skrifað af handbendi Sjálfstæðisflokksins sem er eins og óður hundur í þessu máli með populisma sínum og moldviðrum vegna valdagræðgi og óttann um að menn fari að beina augum sínum meir að gjörðum flokksins sem lagði hér samfélagið í rúst.

Gunnar G
08.02 2010 kl.16:11

Vá hvernig væri að FÓLK VÆRI SVOLÍTIÐ PISSED þá líka útí helv. skilanefndirnar…. HALLÓ!!!!

MEÐALLAUN 14 MILLJÓNIR….

Djöfull vantar mikið upp á forgangsröðun hjá fólki???

Æi sorry nei… þetta snýst ekki um Ísland, þetta snýst um hvaða flokkur gerði hvað og hvernig, ekki um það sem er best…

Fari ísland norður og niður!!!!

Anna Kristín Pétursdóttir, áður Móvinda
08.02 2010 kl.16:16

@ Gunnar G..

Dáldið sammála þér þarna… – Hreint óhuggulegt að verða vitni að þessari „hrægammahegðun“ sem gerist með fólki um leið og það kemst í aðstöðu til …

Ómar Kristjánsson
08.02 2010 kl.16:23

Á að segja manni að enginn hafi sé gegnum „lögmannstofan miskon de reija“ skrípaleikinn ??

Afhverju halda menn að mogginn td hafi látið svona mikið með þetta „miskon de reija“ etc.

Skípaleikur frá a-ö.

Oddur Ólafsson
08.02 2010 kl.16:29

Já þetta er athyglisvert.
Hverra hagsmuna er Jón Daníelsson að gæta í þessu máli?

Ég vissi ekki að hann væri handrukkari.

Lífklöpp
08.02 2010 kl.16:33

Er eitthvað í þessu Icesavemáli sem er ekki tómt klúður?

Fjúkandi
08.02 2010 kl.16:37

Þar fauk trúverðugleiki Jóns Daníelssonar…

L
08.02 2010 kl.16:42

Það væri gott að vita hvað það hefur kostað þjóðina að fara í djúpu laugina með H-körlunum.

lbg
08.02 2010 kl.16:46

Hár reikningur, vissulega, en er þetta nema ICESAVE vextir í ca. 5 klst.

Villi
08.02 2010 kl.16:48

Þetta er innan við 0,005 % af Icesave upphæðinni sem við þurfum að borga. Ef þjónusta þessara manna verður til þess að við þurfum kannski að borga 0,01% minna í Icesave þá eru þeir búnir að borga sig margfalt. Ég væri til í að borga einhverjum góðum sérfræðingum t.d 500 milljónir sem er dropi í hafið þegar horft er á heildar Icesave skuldina ef það verður til þess að Icesave lækkar um segjum 10.000 milljónir. Það verður að horfa á þessa hluti í samhengi.

Anna Kristín Pétursdóttir, áður Móvinda
08.02 2010 kl.16:52

@ Villi og Lbg… sennilega rétt hjá ykkur .

Reikningurinn er sennilega í hlutfalli við heildarfjárhæðir – enda er sjálfsagt að borga góðu fólki sem vinnur heiðarlega. … en var það ekki annars Jón D. sem hefur alltaf haldið fram þeirri skoðun (?) að við ættum að borga innistæðutrygginguna?

bogga
08.02 2010 kl.16:52

Egill tekur of mikið mark á bókinni þegar honum hentar en nefnir ekki að innlendar stofur sem hann hefur mikið gagnrýnt eru hátt metnar þar.

Þessi bók er enginn algildur mælikvarði.

Það er ekki rétta aðferðin að draga reikninginn í efa að reyna að gera lítið úr stofunni með vísun í vafasamar heimildir.

Betra að skoða hann efnislega.

Hilmar
08.02 2010 kl.16:52

Ef þú situr fyrir fram tölvuna og íhugar reikningsskriftina, hugsar um kúnnann og minnist þess að hann er tilbúinn til að greiða hudruði miljarða króna, án þess að þurfa þess, er þá niðurstaðan, 25 miljónir skitnar, bara ekki nokkuð vel sloppið.

Getur verið að þessi stofa sé þriðja flokks (mælt af fólki sem alltaf ferðast á fyrsta, á kostnað almennings) en kúnninn lendir í flokki með verstu bananlýðveldum heims.

Með þessa stjórn erum við það sem Afganistan er í fótoltanum.

L
08.02 2010 kl.16:58

Okkur var auðvitað sagt að stund frelsisins væri runnin, litlir, smáir sem agnarsmáir gætu tekið þátt í leiknum, ekki yrði hlegið að okkur í sturtuklefanum þótt örlítið væri undir okkur … en það var hlegið að okkur og enþá erum við staðráðin í að halda leiknum áfram.

Gamli
08.02 2010 kl.17:03

Reikningurinn sem slíkur er ekkert úr takti við það sem þarf að greiða góðum lögmönnum í Bretlandi og alls ekki ef tekið er tillit til þeirra hagsmuna sem um er að ræða. Það að íslenskir þingmenn hafi haldið að þeir þyrftu bara að greiða kr. 1.500.000 milljónir fyrir þjónustu stofunnar (sem nær því varla að vera startgjald á góðri lögmannsstofu) segir okkur það hversu miklir amatörar og kjánar íslenskir þingmenn eru!
Þá er náttúrulega búið að liggja lengi fyrir af hverju stjórnarandstaðan var svona æst í að fá álit þessarar lögmannsstofu, en hún er sú að gamall heimdellingur vinnur fyrir stofuna og skrifaði álitið.
Hins vegar er þessi stofa engin þriðja flokks stofa, hún er bara sérhæfð á öðrum sviðum. Nokkrar aðrar úrvals stofur eru staðsettar í London (4-5 bestu stofurnar í London), sem hafa verið í miklum samskiptum við Íslendinga undanfarin ár, hefðu getað tekið þetta að sér og leitt samningaviðræðurnar við Breta og Hollendinga og það hefði gefið okkur mikla vigt. … en íslenskir kjánar vildu hafa þetta heimatilbúið og fá Svabba og Indriða til að klúðra þessu!

Hrönn
08.02 2010 kl.17:07

Þetta er svo skemmtilegt. Ráðum erlenda aðila í málið, þeir ráða svo íslenska undirverktaka og senda svo feitan reikning í erlendri mynt, minnir mann á textann góða “ sker af þeim skallann, þurrk´ann og herði og sel þeim svo aftur á uppsprengdu verði“.
Þeir skála líklega í kampavíni og skellihljæja á þessari lögfræðistofu!!

Alþingi á auðvitað að krefjast sundurliðunar á reikningnum og sérstaklaega á verkþætti Íslendingsins. Næst þegar erlendir aðilar verða ráðnir þá eiga menn að muna að taka það fram að þeir eigi EKKI að fela Íslendingum verkið. Hvaða hálfviti er það á bresku lögmannsstofunni er það sem heldur að Alþingi Íslendinga sé að leita að Íslendingi í vinnu í gegn um breska lögfræðistofu?? Þeir eiga greinilega skilið þá lágu einkunn sem þeir fá.

sprettur
08.02 2010 kl.17:12

Þetta eru 6 tíma vextir af Icesave….

Hilmar
08.02 2010 kl.17:25

Í rauninni er það hlægilega í þessu, að þeir opinberu starfsmenn sem hafa stutt IceSlave samninginn skuli leyfa sér að hneykslast á reikningum sem þessum.

Skammist ofan í holurnar gott fólk. Við hefðum engan reikning fengið ef þið hefðuð bara haldið ykkur þar.

Kefas
08.02 2010 kl.17:45

Er þetta bara ekki í fullu samræmi við aðra snilldartakta hjá ríkisstjórninni í Icesave. Þetta er ekki nema nokkurra klukkutíma vextir sé miðað við snilldar samning Svavars sem ríkisstjórninni fannst svo einstaklega hagstæður og samþykktu svo glatt á Alþingi. Hví að gera svona smáaura að umtalsefni. Ég er bara steinhissa.

IE
08.02 2010 kl.18:09

Eitthvað hlítur að vera bitastætt í skýrslunni því á heimasíðu MdR segir „always provide our clients with a clear return on their investment.“

Ómar Kristjánsson
08.02 2010 kl.18:17

Þið bræður Hilmar og Kefas, haldið þið að vextirnir á icesave lækki í réttu hlutfalli við hvað ausið er af almannafé í einhvern skrípaleik sjalla undir dulkódinu „lögmannsstofan miskon de reija“ ?

Eg sá strax í gegnum þetta.

Þessi greinargerð var húmbúkk og hreinn brandari.

Muna menn kannski vað var gert mikið úr þessu á sínum tíma ? Ok. sjallar búnir að gleyma því náttúrulega.

Það átti að útvega gögn og hvort það var ekki „brúnne und keyser und fisses“ og eg veit ekki hvað og hvað.

Nei, eg skal segja ykkur það, að þetta er typikal fyrir framferði sjalla og framara í þessu máli öllu. Nefnilega: SKRÍPALEIKUR FRÁ A-Ö.

Það merkilega er í rauninni hve margir láta spila með sig.

Guðrún
08.02 2010 kl.18:22

Er ekki í lagi með þá, er allt í lagi að senda svona reikning

Hilmar
08.02 2010 kl.18:27

Skrípaleikurinn Ómar, er sá að það hefur kostað þjóðina óhemju fé, stöðnun og þunglyndi meðal þjóðarinnar að reka ykkur Samspillingarfólk til baka með IceSlave fíflaganginn ykkar.

Það hefur tekist, enda hillir undir þjóðaratkvæðagreiðslu sem kemur til með að segja mér, og ætti að segja þér, að eyðsla í þetta álit var fullkomlega út í hött.

Það hefur nefnilega ekki stðaið til Ómar, að við landsmenn ætluðum að greiða þetta. Hvorki fyrir þig, alls ekki fyrir útrásarglæpamenninar sem stálu þessu fé, og þá heldur ekki leiguliða þeirra í stjórn Samspillingar.

Já Ómar minn, það hefur verið okkur dýrt að hafa Samspillinguna íá fóðrum í ríkisjötunni.

friðrik indriðason
08.02 2010 kl.18:28

hvað skilja menn ekki við að það var stjórnarandstaðan sem krafðist þess að fá framangreind lögmannsstofu. hún síðan réð einhvern sjálfstæðisflokkskopp sem undirverktaka og sá á að fá 10 millur fyrir tveggja daga vinnu.

Baldur
08.02 2010 kl.18:40

Þetta er nú makalaust. Lögfræðingur Björgólfs fær aukavinnu fyrir Alþingi á uppsprengdu verði og ræðurJón Daníelsson hagfræðing sem handrukkara!!!

Hvar nema á Íslandi gerast svona hlutir?

Borgari60
08.02 2010 kl.19:28

Skammt er að minnast þess að Lex lögmannsstofa lagði fram fáránlega háa þóknunarkröfu (var það ekki hundruðir milljóna??) fyrir að innheimta eina skuld.

Lögmenn og endurskoðendur spiluðu alvarlegt hlutverk í sturluninni sem kostaði föðurland þeirra fjárræðið (með því að gerast mellur auðmannana), og nú leggjast þessir aðilar eins og hrægammar á náinn og reyna að maka krókinn á ástandinu. Stjórnendur bankanna hjálpa stórskuldugu fólki sem sætir rannsókn og hefur réttarstöðu grunaðra um stórfellda fjárglæpi við að halda fyrirtækjum sínum.

Svo lengi telja áfram.

Á meðan skal almeninngur borga og reynt er að segja fólki að þetta sé því að kenna, það keypti flatsjá !

Ógeðfelldara verður þetta varla og væntanlega er stutt í að sjóði uppúr.

H.T. Bjarnason
08.02 2010 kl.19:45

Mín spurning er þessi; er þetta í raun óeðlilega hár reikningur?

Vikingur
08.02 2010 kl.19:48

alltaf sama skítapakkið sem ræður hér öllu
þótt það sé ekki í ríkistjórn tekst þessu pakki að sólunda peningum okkar

Magnús Björgvinsson
08.02 2010 kl.19:56

Bendi á færslu Jóhanns Haukssonar um þetta mál. Auk þess að benda á að að tímakaupið sem þeir reikna sé er um 100 þúsund á tíman. En aftur að Jóhanni Haussyni hann segir m.a.

„Ég er að tala um lögmannsstofuna Mishcon de Reya.

Bjarni og Sigmundur Davíð lögðu allt kapp á að fá álit í bak og fyrir um Icesave fyrir jól og áramót. Heimtuðu Mishcon de Reya. Þyrluðu upp miklu fárviðri sem endaði með blysför til Bessastaða á vegum kampavínsklúbbs miðaldra karla úr Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum.
Eins og DV greinir frá í dag hefur þessi lögfræðistofa sent fátækri þjóð 25 milljóna króna reikning í boði Sigmundar Davíðs og Bjarna Ben. Þar af á góðvinur Sigurðar Kára Kristjánssonar, aðstoðarmanns Bjarna, að fá 10 milljónir króna.
Ég er að tala um Gunnalaug Erlendsson lögfræðing, fyrrverandi starfsmann Björgólfs Thors og flokksbróður þeirra Bjarna og Sigurðar Kára. Sá vinnur greinilega fyrir Mishcon de Reya.
Ofan í kaupið er Jón Daníelsson hagfræðingur og ráðgjafi Sigmundar Davíðs fenginn til að rukka Alþingi um þessar 25 milljónir króna. Hann viðurkennir í DV að hafa hringt í Alþingi til að rukka.

Hagfræðikennari við London School of Economics??!! ?? Hvað er í gangi?“
Sjá nánar hér http://www.dv.is/blogg/johann-hauksson/2010/2/8/hamark-osvifninnar/
Legg sérstaklega áherslu á að það er Íslenskur Lögfræðingur sem á að fá 10 milljónir af þessu.

Einar Jónsson
08.02 2010 kl.20:08

Fer fram ritskoðun á innleggjum sem skýra þá hlið sem blogghöfundinum er ekki þóknanleg?

Gunnur
08.02 2010 kl.20:10

Furðulegt og fréttastofa Sjónvarpsins (Rúv) hafði ekkert um málið að segja !
Ekki heldur Stöð 2.
Rás1 var eina fréttastofan sem fræddi okkur um þetta.
Einnig að Jónína Bjartmars hefði sótt um forstjórastöðu hjá Útlendingaeftirlitinu. Er hún ekki að JÓKA ?

Egill Helgason
08.02 2010 kl.20:11

Það er margt tekið hér út. Til dæmis ef menn eru með dylgjur um nafngreint fólk sem eiga líklega enga stoð í veruleikanum.

Unnur G. Kristjánsdóttir
08.02 2010 kl.21:32

Þessi lögfræðistofa var ráðin af stjórnarandstöðunni og málið var að hún lék þetta líka „gagnsæja“ leikrit milli jóla- og nýárs fyrir stjórnarandstöðuna. Var það ekki 30. des. þegar Icesave var afgreitt öðru sinni, þá var einhver á vegum þessarar lögfræðistofu að dæla inn tölvupóstum á þingmenn þar til Ásta Ragnheiður þingforseti stöðvaði bullið. Stjórnarandstaðan var röflandi, hneyksluð og full stóryrða í ræðustól Alþingis vitnandi í þessa pappíra.
Þetta kostaði 25 milljónir sem fleiri fleiri manns mun nú skamma Steingrím og Jóhönnu fyrir – þau komu víst ekkert nálægt þessu máli.
Dýrt leikrit það!

Viðskiptafræðingur
08.02 2010 kl.23:44

Það er með ólíkindum að sjá ljótt orðbragðið á þessum spjallþræði og menn gasprandi um mál sem þeir vita ekkert um!

Það getur vel verið að MDR sé ekki Tier 1 lögfræðistofa en það er l

Með því að gúgla pínulítið þá má finna upplýsingar um þennan Gunnlaug Erlendsson:

Í fyrsta lagi er íslenski lögmaðurinn Gunnlaugur Erlendsson sem hér er verið væna um að vera handbendi Björgólfs Thors er í raun og veru í málaferlum við sinn fyrrverandi yfirmann. (http://www.dailymail.co.uk/money/article-1076674/Hammered-Icelands-richest-man-suffers-Landsbanki-nationalisation-1-5million-writ-partner.html)

Í öðru lagi er Gunnlaugur sérfræðingur í Evrópurétti og einnig með málafærsluréttindi í Englandi og New York (Solicitor – England & Wales / Attorney At Law – New York State – sjá http://uk.linkedin.com/in/gunnlaugurerlendsson)

Það eru fáir íslenskir lögmenn sem státa af þessum árangri og ættu menn frekar að fagna því að erlend lögfræðistofa skuli vinna með þessum tiltekna Íslendingi.

Í þriðja lagi er hann nú ekki blárri en svo að Sigurður Kári kannast ekki við að hann hafi starfað í Heimdalli og vill ekki vera vinur hans skv. DV.

Ef við Íslendingar ætlum að komast áfram þá verðum við að moka okkur uppúr skotgröfunum, hætta að kjósa alltaf sama pakkið og standa saman.

Ísland er að molna í sundur frá miðjunni vegna þess að fólk rýkur upp og gargar hástöfun um allt og ekkert í algeru hugsunarleysi. Ef þú veist ekki hvað þú ert að tala um þá er betra að anda nokkrum sinnum rólega og leita sér síðan lágmarks heimilda. Þannig getum við stuðlað að uppbyggilegri umræðu byggðri á gagnrýninni hugsun í stað þess að skipta alltaf í tvö lið og garga sig síðan hásan.

Réttsýnn
09.02 2010 kl.00:49

Það er merkilegt að hin hámenntaða og viti borna þjóð Íslendingar þurfi ávallt að fá „ráðgjöf og dóma“ að utan… Einkennandi heimóttarskapur okkar sem við gjöldum dýru verði nú þegar fjöldi hæfra vafrar atvinnulaus um stræti og torg.
Þetta landlæga útlendingadekur mun á endanum verða til þess að þjóðin glatar sjálfri sér og geldur þess dýru verði, sbr. Mischon de Reya reikningurinn (25milljónir) og mútugjöld innlendra (10 milljónir) við þá skýrslugerð, sem margir innlendir hefðu getað gert við eðililegu endurgjaldi. Nornaveiðarnar og ásakanirnar í samfélaginu eru enda með þvílíkum ósköpum að enginn treystir neinum – allir eru glæpamenn þar til sakleysi sannast – og við förum brátt að beita hestum fyrir bílana okkar sökum vöruskorts og þverrandi greiðslugetu við útlönd

Réttsýnn
09.02 2010 kl.00:51

Tek síðan heils hugar undir með „Viðskiptafræðingi“, svona í slútt

guy
09.02 2010 kl.03:35

Heimildir?

Viðskiptafræðingur
09.02 2010 kl.08:21

það virðist vera að ég hafi óvart klippt á kommentið um lögfræðistofuna hér að ofan en hér kemur það :

„Það getur vel verið að MDR sé ekki Tier 1 lögfræðistofa en það er langt í frá að þetta sé einhver lágklassastofa. Meðal viðskiptavina hafa t.d. verið lafði Diana í skilnaði sínum við Karl bretaprins og síðan voru þeir verjendur í máli sem kallað hefur verið lögsókn aldarinnar þegar David Irving lögsótti umbjóðenda þeirra fyrir meiðyrði (http://en.wikipedia.org/wiki/Mishcon_de_Reya)

Um MdR er sagt:
„As well as being top notch for commercial disputes, the team is especially well regarded for commercial fraud, financial services and trust litigation. Recent highlights include successfully representing American Express Bank in the Court of Appeal in a demand guarantee dispute, which formed part of a US$130m contract for the supply of electricity in Bangladesh. Other active clients include Peugeot and the recruiter, Hays. (http://www.legal500.com/firms/2379/offices/371)

Reikningur upp á 25 milljónir fyrir lögfræðiþjónustu er ekki tiltökumál – t.d. má benda á að kostnaður við skilanefnd Glitnis var 700 milljónir eða 15 milljónir á starfsmann.

Egill Helgason
09.02 2010 kl.08:32

Einhvern veginn held ég að þegar menn voru að fá álit erlendrar lögmannastofu á þessu þá hafi hugmyndin ekki verið sú að fá Gunnlaug þennan til ráðgjafar.

Viðskiptafræðingur
09.02 2010 kl.10:33

.. af því að hann er íslenskur?

Egill Helgason
09.02 2010 kl.10:53

Já, það var talað um að ráða virta erlenda lögfræðistofu, ekki íslenskan lögfræðing sem getur haft alls kyns tengsl sem við vitum ekki um.

Viðskiptafræðingur
09.02 2010 kl.12:33

Ættum við ekki að reyna að koma okkur uppúr hjólförum samsæriskenninganna ?

Það er t.d. auðvelt að hrekja það að Björgúlfur Thor hafi hagsmuni af því að setja Icesavesamningana í uppnám. BTB stundar viðskipti í UK og myndi væntanlega hafa meiri hagsmuni af því að íslendingar myndu greiða Icesave upp í topp. Það að Icesave fari í málaferli ætti frekar að auka líkurnar á að nafn BTB verði dregið inn í umræðuna í UK sem getur ekki verið gott fyrir hann.

Það má minna á að það hefur alla tíð verið ljóst að lagalega séð eru álitamál hvor við íslendingar eigum að greiða Icesave og benti Stefán Már lagaprófessor t.d. á það nokkrum vikum eftir hrun. Mishcon de Reya benti á þessi sömu atriði og fleiri og reyndi ríkisstjórnin að stinga þessum óþægilegu atriðum undir stól . Stjórnarandstaðan greip þetta á lofti, vakti athygli á málinu og þá er MdR allt í einu orðin handbendi sjálfstæðisflokks og InDefence!!!

Ég held að við kæmumst lengra ef við hættum að persónugera þetta allt og einbeittum okkur að því að leita lausna með pólítíkska gulrót og lagalega svipu að vopni ekki að fara aðra hvora leiðina. Í þetta sinn held ég að bæði stjórn og stjórnarandstaða hafi rétt fyrir sér og ættu aðilar að sameinast um markmiðin og nýta það sóknartækifæri sem fékkst þegar forseti neitaði að skrifa undir. Stjórnin á að taka því með æðruleysi þegar þegnarnir neita að borga og snúa sér við og segja … sjáið við reyndum að troða þessu samkomulagi ofaní lýðinn en það er bara ekki að virka…!

Unnur Guðmundsdóttir
09.02 2010 kl.13:41

Ég trúi því ekki fyrr en tek á að Alþingi borgi þennan reikning þeijandi
og hljóðalaust.

Unnur G. Kristjánsdóttir
10.02 2010 kl.11:41

Viðskiptafræðingur! Ég efast ekki um að þér finnist þetta allt eðlilegt, faglegt og skynsamlegt. Engar samsæriskenningar segir þú. Ekki persónugera heldur. En hvað finnst þér um þá mynd sem ég hef af málinu sem er:
Stjórnarandstaðan vildi þessa lögfræðistofu vegna þess að´Íslendingurinn Gunnlaugur vann þar og hann var til í að leika leikrit daginn sem Icesave var afgreitt. Hann var til í margskonar liðsinni við málstað stjórnarandstöðunnar eins og sést ef þú ferð ofan í máli. Gunnlaugur var augljóslega í miklum tengslum við stjórnarandstöðuna og Moggann. Ég man líka að Björn Valur sagði í umræðunni að lögfræðistofan væri fyrst og fremst að hækka reikninginn sem íslenskir skattborgarar greiddu.
Er það málefnalegt og gagnlegt fyrir Alþingi og okkur öll í Icesave-málinu?
Er þetta tilhæfulaus samsæriskenning hjá mér eða byggt á raunsæi og reynslu af pólitíkinni sem er rekin á Alþingi um þessar mundir?
Hversu trausta telur þú svona lögmannstofu ef ég hef rétt fyrir mér?

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

 


Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar