Hér er frásögn hins víðlesna dagblaðs De Volkskrant af yfirheyrslu rannsóknarnefndar yfir Nout Wellink, seðlabankastjóra Hollands. Greinin birtist 5. febrúar.
Svo hljómar hluti hennar í íslenskri þýðingu:
“Traust” er í teóríunni sá grunnur sem eftirlitsstofnanir evrópsku fjármálamarkaðanna byggja samstarf sitt á. Banki heyrir undir eftirlit í því landi þar sem höfuðstöðvar hans eru, og sá eftirlitsaðili miðlar upplýsingunum til þeirra landa þar sem bankinn er með starfsemi.
Nout Wellink, forseti Hollandsbanka (DNB), greindi rannsóknarnefnd De Witt á fimmtudaginn í stórum dráttum frá því hvernig samstarfinu við Ísland var háttar. Það var síðsumars 2008 og lánsfjárkreppan fór að taka á sig mjög alvarlega mynd. Ísland var augljóst fórnarlamb kreppunnar; eyþjóðin starfrækti risavaxinn fjármálaiðnað með íbúafjölda sem taldi 300 þúsund sálir.
Wellink spurði íslenska starfsbróður sinn hvernig staða íslensku bankanna og íslenska fjármálakerfisins væri. Áhyggjur hollenska eftirlitsaðilans voru þungar því þá hafði íslenski Icesafe bankinn náð til sín mörg hundruð miljónum af sparifé í Hollandi. “Hann byrjaði heillanga ræðu um möguleika íslensks efnahagslífs þegar til lengri tíma væri litið, um uppsprettur, hveri, fisk og ég veit ekki hvað meir. Og það hversu vel bankarnir stæðu,” sagði Wellink.
Þetta var þann 3ja september. Tæpri viku seinna sagði Íslendingurinn við Wellink að hann hafði þegar fyrir sex mánuðum síðan varað við valtri fjárhagslegri stöðu íslenska bankakerfisins. “Ég vonaði lengi að hann hafi einfaldlega ekki gert sér grein fyrir því”, sagði Wellink fyrir rannsóknarnefndinni. “En þá hugsaði ég með sjálfum mér: það var einfaldlega logið að okkur.”
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
71 ummæli
Rita ummæli07.02 2010 kl.23:06
Slóð
Enn er logið að okkur af hálfu forsvarsmanna í fjármálakerfinu, þeir hika ekki við að lýsa þá hæfasta sem mestum skaða hafa valdið og silkimjúkar lygar vella af vörum þeirra.
07.02 2010 kl.23:10
Slóð
Íslenskur starfsbróðir hollenska seðlabankastjórans laug að honum? Hér getur varla farið á milli mála við hvern er átt sem sakaður er um lygi. Það er eins gott að sá hefur heilt dagblað til andsvara.
07.02 2010 kl.23:11
Slóð
Fyrir utan það að íslenski starfsbróðirinn talaði tungum tvennum þá verð ég að segja að þetta þykir mér sýna slappleika íslenskra fjölmiðla.. Hversvegna sögðu þeir bara frá seinna samtalinu? Eiga þeir ekki að segja okkur allar staðreyndir máls en ekki bara hálfsannleikann?
07.02 2010 kl.23:16
Slóð
„Light touch, hands off“.
Vafalaust ljúga hollenskir og enskir bankamenn jafn greiðlega að sínum viðskiptavinum og íslenskir bankamenn lugu að okkur.
IceSlave er „ekki nema“ 10% af 5,2 trilljóna króna skuld íslenska þjóðarbúsins.
En nú er öllum orðið ljóst að braskararnir við Ermarsund keyra á þetta til að hindra afhjúpanir sem yrðu í dómsmáli aldarinnar, íslenska þjóðarbúið gegn drottningum Hollands og Englands.
Þess vegna kemur ekki til greina annað en fara dómstólaleiðina fyrir opnum tjöldum, jafnvel þótt það kosti okkur tíma og peninga.
Andstæðingurinn hefur ónýtan málstað og almannarómur um alla Evrópu bakkar okkur upp, þótt „Her Majesty´s Civil Service“ reyni enn að fara þöggunarleiðina aldagömlu.
07.02 2010 kl.23:17
Slóð
Staksteinar verður ekki í vandræðum að snúa út úr þessu í fyrramálið – sannið þið til …
07.02 2010 kl.23:24
Slóð
Hollendingurinn nefnir ekkert í vitnaleiðslunum hvort þessi ákveðni Íslendingur hafi verið edrú í annað skiptið eða hvorugt.
07.02 2010 kl.23:29
Slóð
@ Íslensk þýðing á hinni hollensku frétt. : ,,Tæpri viku seinna sagði Íslendingurinn við Wellink að hann hafði þegar fyrir sex mánuðum síðan varað við valtri fjárhagslegri stöðu íslenska bankakerfisins. “Ég vonaði lengi að hann hafi einfaldlega ekki gert sér grein fyrir því”, sagði Wellink …“
Ég skil ekki þessa þýðingu.
,, … að hann hafði …“ Þetta er óskiljanlegt.
,, …að hann hafi …“
Þetta er líka óskiljanlegt.
07.02 2010 kl.23:43
Slóð
Mér er sama þó logið hafi verið að Hollendingum.
Mér er hinsvegar ekki sama hvernig logið var að okkur íslendingum. Það verður seint fyrirgefið.
07.02 2010 kl.23:47
Slóð
Það fyndasta er, er að sennilega er ekkert minnst á þetta í skýrslu Rannsóknanefndarinnar. Af því hún talaði örugglega ekkert við forstjóra útlensku Seðlabankana.
07.02 2010 kl.23:49
Slóð
maður skamastsýn fyrir þetta. þegar það er lógið í okkar nafni sem þjóð. er það eithvað skríttið að þessar þjóðir eru að sýna okkur hörku í þessu máli.
07.02 2010 kl.23:50
Slóð
Þetta er kerfi lyga og blekkinga, ekkert nýtt þar.
07.02 2010 kl.23:54
Slóð
Það er ekki von að nokkur skilji þetta.
Þessi sami maður var að finna það út að ákvörðun hans sjálfs og Halldórs Ásgrímssonar að lýsa yfir stuðningi við innrásina í Írak 2003 hafi verið lýðræðisleg !
…eða fengið lýðræðislegan stimpil…eða eitthvað.
Hollendingurinn átti aldrei séns !
07.02 2010 kl.23:54
Slóð
Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið áttu að sjá um eftirlit með bönkunum.
Seðlabankinn átti að vernda fjárhagslegan stöðugleika þjóðarbúsins.
Fjármálakerfið hrundi.
Þessir aðilar brugðust – eins og frekast er hægt að bregðast.
Davíð talaði svo teimur tungum við Hollendinga – laug til að fegra sjálfan sig.
Fjármálaeftirlitið sendi áfram upplýsingar frá bönkunum, án þess að fara ofan í gildi þeirra. Þeir létu bankana ljúga að sér og sendu svo lygina áfram til útlanda.
Hvers lags land er þetta sem við búum í?
08.02 2010 kl.00:01
Slóð
Skuldum við ekki hollenskum skattgreiðendum skýringar. Sammála þeim sem vilja að Jón Sigurðsson fyrrverandi stjórnarformaðurmaður fjármálaeftirlitsins fari til Hollands og svari fyrir ásakanir Hollendinga.
Það má lengi reyna landann. Björgvin Sigurðsson fyrrv.viðskiptaráðherra segir eins og fleiri sem ábyrgð bera að allt hafi verið hér í himna lagi.
08.02 2010 kl.00:08
Slóð
Rannsókn efnahagshrunsins á Íslandi fer fram víða um lönd. Icesave-deilan er ekki það sem mest veikir trú umheimsins á Íslandi, heldur framganga ríkisstjórnarinnar við að gera upp við fjárglæframennina:
http://dagskammtur.wordpress.com/2010/02/04/agndofa-rikisstjorn/
08.02 2010 kl.00:17
Slóð
Hjörtur
Jóhanna þarf ekki að vera lengur agndofa. Það getur fjarað undan ríkisstjórninni fyrr en ella ef hún er ekki á varðbergi.
Gömlu skálkarnir fá fyrirtæki sín aftur eftir milljarða afskriftir. Almenningur og smáfyrirtæki verða látin bera byrðarnar og fá enga eftirgjöf af erlendum skuldum. Stjórnarliðar eru alltof værukærir og er að mörgu leyti vorkunn vegna Icesave-málsins, en verða að lokum að bera ábyrgð.
Þetta getur varla endað nema á einn veg verði ekki breytingar, þá munu mótmæli aukast og að lokum fer stjórnin frá. Mynduð verður tímabundin þjóðstjórn með skilyrðum mótmælanda.
08.02 2010 kl.00:17
Slóð
Hvenær ætlar fólk að átta sig á því að Sjálfstæðisflokkurinn er ekkert annað en hagsmunasamtök stórrar klíku s.b.r. kenning Bourdieu um félagslega mismunun og hvernig menn fara að við að viðhalda misskiptingu í þjóðfélaginu. Fyrir það fyrsta er hafður augastaður á því sem er eftirsóknarvert. Klíkubræður hjálpast svo við að ná þessu til sín og nokkrir toppar ráða því hverjir fái að vera með og hverjir ekki. Til að viðhalda þessum félagsskap sem nota bene, enginn gengur í nema til að fá eitthvað í staðin, þá þarf sá hinn sami að vera sammála toppunum alveg sama hvaða bull shit er í gangi. Allt gengur út á að standa saman. Og það sorglega við þetta allt saman er, að fólk kýs þetta aftur og aftur.
08.02 2010 kl.00:18
Slóð
Nei, hver röndóttur!
Hefur Seðlabankastjóri þeirra Hollendinga einnig smitast af Davíðsheilkenninu.
Þetta er greinilega bráðsmitandi fjandi.
08.02 2010 kl.00:18
Slóð
En var ekki Robert Wade að enda við að tala um ábyrgðarleysi og grunnhyggni þessa Nout Wellink í þættinum hjá þér? Skv. Wade átti þessi maður sem formaður Basel bankaeftirlitsnefndarinnar að vita í febrúar 2008 allt um glataða lausafjárstöðu Landsbankans og hefði því getað stoppað af Icesave. Í staðinn fær hann „þungar áhyggjur“ mörgum mánuðum síðar!
08.02 2010 kl.00:39
Slóð
Veit ekki Hollenski seðlabankastjórinn að það má ekki persónugera hrunið?
08.02 2010 kl.00:42
Slóð
Helgi LOL
08.02 2010 kl.00:57
Slóð
Ekki eru svona fréttir til að auka traust á okkur erlendis.
08.02 2010 kl.01:01
Slóð
Er ekki Íslendingurinn sem varaði við sex mánuðum fyrri einmitt DO en lygamerðirnir hafi átt bæli í FME og ónefndu ráðuneyti??
En eyjubloggarar hafa náttúrulega bara skrifað nýja sögu sem passar betur í þeirra tilbúna heim sannleikans.
08.02 2010 kl.01:05
Slóð
VV.
sagði Robert Wade að lausafjárstaða Landsbankans hafi verið til umfjöllunar hjá Basel nefndinni í febrúar 2008? Þó við höldum gjarnan að Íslendingar séu merkilegir og allir hljóti að vera að fjalla um okkar mál öllum stundum sé það ekki svo.
Hið rétta er þá að í febrúar var ákvæðið að fylgjast betur með lausafjárstöðu bankanna og neytendavernd, vegna yfirvofandi kreppu og gefin út viðmið í þeim efnum.
Ég reikna fastlega með að farið hafi verið að við það þannig að þegar opna átti Icesave var haft samband við Íslenskar stofnanir FME og SÍ og spurt um stöðu bankans. Allir vita hvaða klappstýruhópur FME var og svo framv….
Athugið að þegar talað er um neytendavernd í þessu sambandi er átt við innstæðutryggingar. Væntanlega mun koma í ljós í rannsóknarskýrslu alþingis að þeir hafi einnig spurst fyrir um þau mál og fengið að vitað að hér væri allt í gúddí með það og að íslenska ríkið standi við bakið á TIF.
Þessvegna er því afar mikilvægt að rannsóknarskýrslan komi út áður (og ef) kemur til atkvæðagreiðslu um Icesave. Mig grunar að Steingrímur Joð muni leggja mikla áherslu á það ef ekki verður hægt að koma í veg fyrir þjóðaratkvæðið
08.02 2010 kl.01:09
Slóð
Er ekki pointið hérna að hann spyr kollega sinn á Íslandi um stöðu Landsbankans og trúir því sem honum er sagt „in good faith“.
“Traust” er í teóríunni sá grunnur sem eftirlitsstofnanir evrópsku fjármálamarkaðanna byggja samstarf sitt á. “
Sá hollenski hefði þurft að kafa soldið til að finna það út að sá hinn sami Seðlabankastjóri og hann var að tala við hafði handvalið kaupendur að Landsbankanum, sem forsætisráðherra, aðeins 6 árum áður og gert sig svo að Seðlabankastjóra í millitíðinni !
Svo hefði líka einhver þurft að segja honum að besti vinurinn og framkvæmdastjóri Flokksins hefði verið formaður bankaráðsins til skamms tíma og að hinn besti vinurinn og ráðuneytisstjórinn í Fjármálaráðuneytinu ætti formúu í þessum banka og að hann sjálfur ætti þar séreignasparnaðinn sinn og hver veit hvað.
Sá hollenski hefði sennilega þurft að láta segja sér þetta tvisvar en það hefði etv. skýrt að einhverji leyti þessa tölu sem hann fékk um : „…möguleika íslensks efnahagslífs þegar til lengri tíma væri litið, um uppsprettur, hveri, fisk og ég veit ekki hvað meir. Og það hversu vel bankarnir stæðu”.
08.02 2010 kl.01:25
Slóð
Hvað með matsfyrirtækin
AAA
08.02 2010 kl.01:34
Slóð
Hægt að sjá Wellinks fyir nefndinni hér:
http://nos.nl/artikel/134173-wellink-dnb-kon-opsplitsen-abn-niet-tegenhouden.html
(skrolla niður á miðja síðu, nokkur video og ma, „video
President Wellink (DNB) over Icesave bij commissie-De Wit“)
Sumir hafa verið að spekúlera í hvort hann sé í tilfellunum sem nefnd eru í upphafspistli að tala um sama mannin. þ.e. sá sem talaði um fisk og hveri og þann sem hafði varað við í lagan tíma o.s.frv. Einhvernveginn finnst mér að ann sé að tala um sitthvorn manninn. Erfitt að meta það – en hollenskumælandi maður ætti að fara létt með að átta sig á því.
Það er heillangt mál um icesave í yfirheyrslunni.
Þegar Wellink lýsir ummælunum íslendinga eða „íslendingsins“ „um uppsprettur, hveri, fisk og ég veit ekki hvað meir.“ – þá hlær nefndarheimur nánast.
08.02 2010 kl.01:43
Slóð
Þessi þýðing hjá Agli virðist stangast á við fyrri fréttir af þessu máli, sjá þessa grein: http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/02/05/ekkert_bendir_til_ad_fme_hafi_logid/
og þessa
http://altice.blog.is/blog/altice/entry/1015038/
veit ekki hvort þessi setning „Wellink spurði íslenska starfsbróður sinn “ sé óskhyggja, léleg þýðing eða eitthvað annað enda hef ég engin tök á tungumálinu ber aðeins saman það sem formaður viðskiptanefndar segir og þetta blogg Egils.
08.02 2010 kl.03:32
Slóð
Þegar ég var í MBA námi 2003 þá kenndi mér um tíma professor frá Erasmus háskóla sem sagði frá því stoltur að hollenskir ættu kreditsögu fjölskyldna sem næðu 200 ár aftur í tímann. Ég spurði hann hvort þarlenskir væru galnir, en hann svaraði að óheiðarleiki lægi oft í ættum. Þetta er mentalítetið hjá þeim. Altso: Hollendingar eru fílminnugir í fjármálum og fyrirgefa seint.
Ég hef sagt áður að það mun hafa verið þungur róður hjá Svavari að sækja náð og miskunn hjá Hollenskum eftir að logið hafði verið að þeim af fjármálayfirvöldum á Íslandi. Nú skiptir ekki öllu máli í þessu (það er hins vegar réttlætismál fyrir íslenska þjóð) hvaða fulltrúi Íslands laug að Nout Wellink, en gera má ráð fyrir að Wellink hafi ekki af handahófi valið íslenskt númer af ja.is heldur hafi verið hringt í mann af hans kalíberi á Íslandi. Og frásögn hans af atburðum er sú sem lögð er til grundvallar viðbrögðum í Hollandi. Ef menn telja sig geta sýnt fram á annað þá dugar ekkert minna en að sýna að Wllink sé sjálfur lygari. Halda menn að það muni ganga vel eða að sé vænlegt til árangurs?
Það var ámátlegt að hlusta á Kristrúnu Heimisdóttur í þætti þínum reyna að skella skuldinni af því að Íslandi hefur enn ekki náð betri Icesave samningi en raun ber vitni á samninganefndina. Henni væri nær að líta til þeirrar manneskju sem hún þáði laun fyrir að aðstoða. Sú hafði allar upplýsingar um herfilega stöðu íslensku bankanna ÁÐUR en Icesave reikningar voru stofnaðir í Hollandi. Með þá vitneskju valdi hún að fara í road-show vorið 2008 með Sigurði Einarssyni ofl. til að mæra styrk bankanna. Hvað var það annað en lygi við samfélagið?
Halda menn virkilega að við munum ná að sprikla okkur laus úr þessari spennitreyju með lagatæknilegum klækjum? Hvað mun það kosta að vera læst úti frá lánamörkuðum meðan snillingar meðal lögfræðinga vinna í málinu? Hvað mun það kosta ef við töpum málinu? Munum við nokkru sinni geta vænst þess að ná til baka kostnaðinum af málaferlunum (mestur hluti kostnaðarins myndi vera í formi algerrar stöðnunar íslensks atvinnulífs með stórkostlegu atvinnuleysi, hruni krónunnar og greiðslufalli erlendra skulda)?
08.02 2010 kl.03:54
Slóð
@Ari Matthiasson
08.02 2010 kl.03:32
„Nú skiptir ekki öllu máli í þessu (það er hins vegar réttlætismál fyrir íslenska þjóð) hvaða fulltrúi Íslands laug að Nout Wellink“
Hollendingar hafa anna sið líka en hann er sá að geyma höfuðin af óvinum sínum þannig að það skiptir líklega öllu máli að ligarinn sé rétt feðraður ef það liggur fyrir honum að enda eins og aðrir óvinir Hollendinga.
http://www.telegraph.co.uk/news/worldnews/africaandindianocean/gambia/5024840/Netherlands-to-return-kings-head-to-Ghana.html
Eða kannski er Wellink bara að bjarga eigin ætt frá 200 ára útskúfun fyrir helbera vanhæfni í sínum störfum.
08.02 2010 kl.04:21
Slóð
Heiðarleiki er ekki sterkasta hlið íslendingsins. Hér er óheiðarleikinn regla.
08.02 2010 kl.04:31
Slóð
walrus já thví midur rétt hjá thér.
08.02 2010 kl.04:45
Slóð
Greyið Hollendingurinn hefur eflaust trúað þessum manni…Ekki hefði ég nú gert það enda maður orðin ýmsu vanur á að fylgjast með Sikileyjar-pólitíkinni hérna…
08.02 2010 kl.04:46
Slóð
Kannski að menn í móa búi til nýja óperu: „Hollendingurinn ljúgandi“???
08.02 2010 kl.06:17
Slóð
Árið 2008 var haldinn í Kaupmannahöfn fundur þar sem fjallað var um íslensk efnahagsmál.
Hann er vert að skoða nánar.
08.02 2010 kl.06:55
Slóð
HANN hefur aldrei logið. HANN hefur aldrei misbeitt valdi sínu. HANN ber enga ábyrgð á því að náfrændi hans, bridsfélagi og einkasonur voru skipaðir dómarar við dómstóla landsins. HANN ber enga ábyrgð á hruninu. HANN hefur aldrei gert mistök. HANN hefur aldrei reynt að endurrita söguna. HANN er frelsari vor !!!
08.02 2010 kl.06:58
Slóð
Ef um er að ræða hádegismóra þá er Hollendingurinn að gefa því undir fótinn að það hafi verið hluti af framtíðarmálsvörn mórans, að setja þann orðróm af stað í september 2008 að hann hefði „allan tímann“ varað við stöðu bankanna.
08.02 2010 kl.07:09
Slóð
alveg ótrúlegt hvað Íslendingar líta alltaf upp til útlendinga. Ef útlendingur segir eitthvað þá er það heilagt. Þessi seðlabankanstjóri er í bullandi vörn, reynir að kenna einhverjum öðrum en sjálfum sér og kýs það auðveldasta að sparka í liggjandi hræ. Hvernær ætla síðan Íslendingar að skilja það að það vissi enginn að þetta myndi allt hrynja. Staðan var erfið og það var spilað úr henni eins illa og hægt var og afleiðingar voru þær að þetta hrundi. Þetta er svona líkt og einhver segir í dag að ríkisstjórnin falli eftir 1 vika…síðan gerist það og þá er hann alvitur, maðurinn sem vissi allt. Ég t.d. spái því að það snjóar eftir 1 viku ,ef það snjóar, er ég þá maðurinn sem spáði rétt um snjóinn, alvitur. En vissi ég það, var ég ekki bara að giska? En þetta hljómar kannski ekki nógu vel sem trúa á stóra samsærið.
08.02 2010 kl.07:20
Slóð
Þurfa nú ekki einhverjir kratar að fara taka geðlyfin sín. Þvílík komment!!
Hollendingurinn lýgur það er deginum ljósara. Meira að segja litlu börnin segja: Hann gerði það! eða Hann sagði mér að gera það. Íslenskir ráðamenn og ekki síst kratarnir með Ingibjörgu og Jóhönnu og Össur göluðu eins og hanar á hól um hversu æðislegir bankarnir væru og hversu svakalega klárir fýrar Björgúlfur og Jón Ásgeir væru. Össur gerði þetta meira að segja glottandi enda nýbúinn að svindla út 30 milljónir af öðrum stofnfjáreigendum í Spron með léttum innherjasvikum. Íslenskir ráðamenn LUGU útum allar koppagrundir. Geir gunga, Kúlulána-Katrín og Árni fjármálalæknir LUGU. Allt gjörspillta Alþingisliðið laug. Hollenska fjármálaeftirlitið laug. Breska fjármálaeftirlitið laug.
Eftir stendur að allt þetta lið er þó sammála um að íslenskir skattborgarar eigi að greiða fyrir þjófnaðinn og að bófarnir fái skuldirnar sínar niðurfelldar og fyrirtækin aftur upp í hendurnar hvíthreinsuð. Það ætti hreinlega að banna íslenska fjórflokkinn svo spilltur og ömurlegur er hann.
08.02 2010 kl.08:18
Slóð
Þessi Hollendingur ávkeður nú að leika aumingja fyrir þingnefnd. Auðvitað vissi hann meira. Allir vissu. Seðlabankar ESB og USA vissu þegar í mars að hann væri á kúbunni. Seljendur skuldatrygginga vissu, greiningadeildir flestra nálægra banka vissu, höfundar Landsbankaskýrslunnar undir stólnum vissu – yfirleitt allir sem kynntu sér málið vissu vorið 2008 að fall bankana væri skammt undan. Bara þessi eini seðlabanakstjóri í Hollandi vissi ekkert. Þetta er ekki trúlegt.
08.02 2010 kl.08:29
Slóð
Hvernig væri nú að fara að birta blessuðu skýrsluna……….
08.02 2010 kl.09:02
Slóð
Mér finnst alvarlegast að Davíð talar þarna gegn íslenskum hagsmunum, við hollenska kollega sinn.
Hafi íslenskir eftirlitsaðilar logið, þá er það euðvitað alvarlegt mál. Ef Davíð var kunnugt um slíkt átti hann auðvitað að taka það upp við viðeigandi aðila, þe FME, Seðlabanka og ríkisstjórn. Gera athugasemdir við að rangt væri farið með og láta leiðrétta þau skilaboð.
En að okkar eigin Seðlabankastjóri spili með hinu liðinu. Viljandi og í laumi gefi færi á íslenskum stofnunum, þar með sinni eigin. Það finnst mér aldeilis rosalegt.
Hann verður seint kallaður Íslandsvinur eftir þetta.
08.02 2010 kl.09:24
Slóð
Fólk er alment ótrúverðugt og það sem ekki er hægt að stiða með gögnum er bull þangað til annað sannast. Er td. til upptaka af þessum fundi, undirrituð fundargerð, eða eitthvað annað áþreifanlegt.
NEI, örugglega ekki enda er þetta bara eins og annað rugl hjá manni sem er að fela eigin skít (eins og annar ótíndur glæpamaður)….
08.02 2010 kl.09:48
Slóð
„You were led by fools…“ sagði Aliber og hann veit hvað hann syngur. Eftirlitsstofnanir hérna rímuðu við stjórnvöldin.
08.02 2010 kl.09:48
Slóð
Elfa Jóns
Já menn verða vitrir eftir á og klárari. Hér á Eyjunni skiptast menn í fylkingar með flokkseigendum.
Á Íslandi eru stunduð skotgrafastjórnmál eins og gert var í fyrri heimsstyrjöldinni. Stjórnmálamenn vega úr launsátri og flokkurinn er eins og bryndreki, keyrður áfram án tillitis til hagsmuna almennings. Reynt er að veikja vörn andstæðingsins og síðan eru laskaðar fallbyssur látnar tala.
Í hvert skipti sem foringinn tekur sér frí milli lota er reynt að koma með bombur á borð við innkomu Framsóknar. Einkabankar hafa nú tekið til við að bæta stöðu sína með gömlu eigendum fákeppnisfyrirtækja sem eiga ekki aðra kosta völ en borga uppsett kjör og vexti bankans. Þeir vinna gegn stjórninni og bætast við flokkseigendablöð. Mótmælendur eiga hinsvegar engin önnur úrræði en að krefjast réttlætis.
08.02 2010 kl.10:12
Slóð
Sigurrafn
Því miður verð ég að vera sammála skilgreiningu þinni. Skiptir þar litlu hvaða flokkar eiga í hlut. Þeir nota sömu vinnubrögðin allir saman.
Fáránlegast er að almenningur sé að taka þátt í þessu flokkastríði. Eftir allt sem gengið hefur á og hörmungarnar sem riðið hafa yfir landið … þá er ennþá fullt af fólki í liði með stjórnmálaflokkunum …. í að viðhalda ruglinu.
Varla von að nokkuð breytist. Pöpullinn hefur ekki vit á að standa með sjálfum sér.
08.02 2010 kl.10:16
Slóð
Eiginlega umhugsunarefni … hvernig þessir aðilar treysta á að orðspor Íslands sé orðið þannig að það hægt sé að kenna þessu blessaða landi um allt og ekkert…
Alveg nákvæmlega sama hvað þeir reyna að skýla sér á bak við hvað við erum ómerkileg…. þá breytir það ekkert þeirri staðreynd að fyrst Hollendingar vissu um hættuna með þetta löngum fyrirvara… AF HVERJU GERÐU ÞEIR EKKERT Í AÐ STOPPA ÞESSA STARFSEMI..??
Þó ekki væri nema til að láta sanna fyrir sér að starfsemin væri eðlileg..
Ef ég skil fréttafluttninginn rétt, þá lá maðurinn yfir vitneskju um glæpsamlega fjárplógsstarfsemi í hvað.. SEX MÁNUÐI !!!!
08.02 2010 kl.10:19
Slóð
Eins og fram kemur í upphafi greinarinnar þá er traust lykilatriði í rekstri eftirlitsstofnana. Á því er enginn vafi. Hér stillir maður sér ekki upp í liði eins og í boltanum. Það á ekki að verja trúnaðarrof bara af því að „landið mitt“ Ísland eða íslenskir einstaklingar eiga hlut að máli. Hafi íslenskar eftirlitsstofnanir brugðist trausti og eftirlitsskyldu sinni þá er það grafalvarlegt mál og ber að rannsaka, upplýsa og draga þá til ábyrgðar sem eiga það skilið. Þ.e.a.s. ætli íslensk stjórnvöld að öðlast traust á ný. Vissulega má spyrja um deilda ábyrgð. En hafi menn logið. Hvar liggur ábyrgðin þá?
Það er óbærilegt að þessi fjandans rannsóknarskýrsla kemur ekki út. Hér er umræðan hjá moldviðrisstrákunum í pólitík og þeim sem hafa maðkað mjöl í pokahorninu rekinn áfram á IceSave. Þ.e. Ísland á móti hinum. Eins og hér hafi allt verið í stakasta lagi. Þetta sé allt einhverjum útlendingum að kenna.
Það var lausafjárkrísa í bönkunum. Það voru opnaðir netreikningar til að draga inn fé frá einstaklingum (tær snilld sagði einhver). Amk íslenskar etirlitsstofnanir voru með í plottinu og misreiknuðu eða reiknuðu alls ekki áhættuna sem í þessu fólst. Nú reyna menn að þvo hendur sínar. Samanber „ég varaði við fyrir sex mánuðum“.
08.02 2010 kl.10:21
Slóð
Það var logið og logið og það er ennþá logið og logið.
Hvað er Jóhanna oft búin að telja upp allt sem hún hefur gert þegar hún er spurð um skjaldborg heimilanna? Allt sem að hún hefur gert fyrir bankana og Breta og Hollendinga og hina og þessa. Jú það er búið að auðvelda fólki að fara í gjaldþrot annað hefur ekki verið gert.
Hvað er Steigreímur búinn að leysa icesave málið OFT með Svavari og Indriða?
Hann gleymdi öllu sínum loforðum um leið og hann varð fjármálaráðherra og breyttist í hægri frjálshyggjumann. Hann hefur ekki gert annað en að moka peningum almennings í banka og Sjóvá og ætlar núna að bæta rottuholunni BYR við þann lista.
Það er búið að auðvelda almenningi að missa allt sitt og meira til annað ekki. Og núna er verið að vinna að því að koma þýfinu sem ræningjarnir stálu aftur í þeirra hendur.
08.02 2010 kl.10:29
Slóð
Þessir 6 mánuðir eru stórlega ofmetnir, í byrjun 2007 var þetta dauðadæmt, samt komust þeir upp með Icesave.
08.02 2010 kl.10:38
Slóð
Nú vitum með hvenær Davíð ákvað að búa til nýja söguskýringu um það að „hafa varað við bönkunum 6 mánuðum fyrr“. Það var eftir 3.sept 2008, en fram að þeim tíma hafði hann eins og aðrir lofsamað þá. En sem sagt, ca. 10. sept. ákveður aðalseðlabankastjóri SÍ að segja við hollenskan starfsbróðir að hann hafi varað við fyrir 6 mánuðum síðan. En viku áður hafði hann allt annað en varað við, heldur lofsungið þá í eyru sama manns. Gera menn sér grein fyrir því hve þetta er allt saman alvarlegt í samskiptum manna sem báðir eru seðlabankastjórar í sínu heimalandi. Að sjálfsögðu finnst þeim hollenska að íslenski seðlabankastjórinn hafi því logið að sér áður. Þegar hann kemur með svona „frábæra“ eftiráskýringu til að reyna að bjarga eigin skinni, enda til þess leikurinn gerður. Hann er síðan svo vitlaus eða siðlaus að honum er sama um trúverðugleika sinna þjóðar, bara ef hann nær að bjarga sjálfum sér.
Hvernig ætli rannsóknarblaðamenn á Mogganum munu taka á þessu máli ?
08.02 2010 kl.10:46
Slóð
ABC
Fyllilega sammála því að maður á ekki að hylma yfir lýgi. Það er enginn að verja lýgina hér, eða lygarana.
En sá sem bendir á lýgina í málinu, í þessu tilfelli Davíð, gerir það ekki á þann máta að hvísla að mótaðilanum að þetta sé nú ekki satt og rétt.
Hann tekur lýgina upp við lygarana og gefur þeim kost á að leiðrétta mál sitt, að öðrum kosti neyðist hann til að opinbera skoðun sína.
Þannig skaðar hann minnst íslenska hagsmuni.
08.02 2010 kl.10:57
Slóð
Eh…er það bara ég eða er þetta að verða dálítið þreytt?
Margra mánaða tuð og …ekkert.
Ég er búinn að missa trúna á þetta svokallaða „samfélag“ , spillingin og ógeðið ristir of djúpt . Íslendingar sjálfir eru of innviklaðir í málið….Athugið að eftir allan þennan tíma hefur engin stigið fram og talað svo vitað sé …..
Ég sé fyrir mér að eyða bestu árum ævinnar við að byggja upp þetta land og til hvers ? Svo hægt sé að ræna mig á gamals aldri ? Skella mér í einverja skúffuna þegar ég er búinn með minn rúnt á hlaupahjólinu? Ekki var nú meðferð okkar eða virðing fyrir þeim er byggðu þetta land til mkillar fyrirmyndar í öllu peningaflóðinu.
Æi , það er ekki hægt að standa í þessu endalaust, ég sé enga aðra leið færa en að fara héðan , það er hreinlega of stórt verkefni að laga þetta land.
Hér er einfaldlega ekki verandi fyrir sæmilega hugsandi og sómakært fólk.
Attbú…
08.02 2010 kl.10:58
Slóð
@ L 08.02 2010 kl.10:29
Var hrunið ekki í Október 2008… – Þá hefur sá Hollenski væntanlega vitað um fjárglæfrastarfsemina fljótlega upp úr áramótum 2008 (í Mars eða þar um bil)…
Það var einhversstaðar logið .. svo mikið er víst…
Ætlar þjóðin sem sagt að hrifsa til sín reikninginn fyrir þessa slöppu starfsmenn sem eru greinilega að reyna að moka yfir skítinn eftir sig…
Ekki skrýtið þó að Bresk og Hollensk yfirvöld hafi rokið til og tekið lán til að bjarga andlitinu á sjálfum sér fyrir svona lélegt starfslið…
Svo átti að berja Ísland á hnén og borga, svo örugglega væri hægt að vísa á okkur, en ekki léleg vinnubrögð hjá þeim sjálfum – gaman að sjá hvað bretar og hollendingar bera mikla virðingu fyrir öðrum þjóðum…
08.02 2010 kl.11:07
Slóð
Hann segir sko, að hann hafi talað við ísl. etirlitsaðila og bla bla og nefnir 3. sept. þá hafi hann talað, heyrist mér, hann hafa talað við „sjáver bank“ – þ.e. hljómar svoleiðis – og þá hafi verið talað um „brúnnenn, keysers, fisses und alles etc.
Og nefndarheimur hlær.
Eg skal meta hvernig á að skilja. Er hann kannski að tala um bankastjóra LB. Nei eg veit ekki.
08.02 2010 kl.11:22
Slóð
[...] hafa fengið boltann of oft í hausinn, sem munð ýta undir spilafíkn og það er síður en svo þýdda fréttin af bloggi Eglis Helga þar sem kemur fram að Davíð Oddson talaði tungum tvennum við hollenskan [...]
08.02 2010 kl.11:24
Slóð
Er hann ekki tala um sama manninn ? Segir hann ekki aðeins seinna þegar „varaði við“ ber á góma – að það hafi verið sami maður og 3 sept ?
Eins og eg segi, skal ekkert meta það.
En hollensku/íslensku mælandi maður hlýtur að átta sig létt á því. Þá þarf ekki að reiða sig á túlkun einstkra blaða í hollandi.
08.02 2010 kl.12:02
Slóð
Þetta eru merkilegar vangaveltur.
Minnir á fréttamennsku stöðvar tvö í gærkvöld sem er að telja greiðslukort hjá verkalýðsfélögum á meðan verið er að afskrifa 50 miljarða skuld baugsliðsins hjá Arion banka. Arion banki fékk 70 miljarða frá ríkinu til að verða starfshæfur.
Seðlabankastjóri Hollands er í sama djúpa skít og íslenskir eftirlitsaðilar. Spurningin er hvort við eigum að pönkast á embættismönnum á meðan þjófarnir leysa inn þýyfið. Það er óumdeilt að baugsliðið skuldar þrefalt gjaldþrot seðlabankans.
Hefðum við sloppið við gjaldþrot seðlabanka ef Jón Ásgeir hefði aldrei komið nálægt íslensku viðskiptalífi?
Eru baugsmenn hæfir til að stjórna 60% af íslenskum matvælamarkaði?
Vantar dómgreind í okkur þjóðina þegar við leyfum bankastjóra Arion að treysta þessum mönnum.
Trust er lykilorð.
08.02 2010 kl.12:16
Slóð
Skv. Robert Wade, var hollenski seðlabankastjórinn líka að ljúga að sínu fólki, þegar hann þóttist enga ábyrgð bera á Icesave. Hans var að kanna áhættuna, sem fylgdi því að leyfa Icesave í Hollandi snemma árs 2008, þegar öllum fjármálamönnum í heiminum var orðið ljóst, að íslenska bankakerfið stóð á brauðfótum. Ég tek fram, að ég er ekki að afsaka Davíð. Enn stendur uppá Davíð að svara fyrir þau lán, sem Seðlabankinn veitti út um gluggann, 5 mínútum fyrir hrun og eru jafnþungbær íslensku þjóðinni og Icesave eins og Jóhanna og Steingrímur ætla okkur að kokgleypa þann óráðssamning.
08.02 2010 kl.12:37
Slóð
er ekki kominn tími til að ísl. almenningur standi saman saman gegn þessu rugli í forráðamönnum landsins sbr. Arion Finn og fleiri hvað er til ráða með þetta fólk svari einhver sem vit hefur til
08.02 2010 kl.12:57
Slóð
Sorglegt að uppgötva að fólkið sem þjóðin treysti fyrir málum sínum skuli ekki standa sig betur…
Þvílíkt klúður … frá A til Ö..
08.02 2010 kl.14:10
Slóð
Balzac: Á væntanlega að vera „…að hann hefði þegar fyrir sex mánuðum…“. Burtséð frá málfræði þýðingarinnar kemur efnislegt innihald fréttarinnar lítið á óvart. Auðvitað laug þetta bankagengi að öllum hérlendis sem erlendis og kannski að lokum langmest að sjálfu sér. Nú, þegar öll drullan er að mokast upp á yfirborðið, spyr maður sig hvort menn hafi virkilega trúað því sjálfir að þetta gengi upp án þess að allt landið færi á hvolf eða hvort hugsunin hafi bara verið að keyra þetta áfram meðan stætt væri…. eina tónleika með Elton John í viðbót, einn svínabóg með gullflögum í Hong Kong til og fáum svo reikninginn bara seinna.
08.02 2010 kl.14:33
Slóð
Þeir sem liggja undir feldi , nú 2-veturinn í röð bera s.s. alla ábyrgð á farvegi og endilokum málsins fyrir Bretum og Hollendingum.
Lesið endilega þessa
http://www.dv.is/blogg/johann-hauksson/2010/2/8/hamark-osvifninnar/
Svo verður að fara haga malum þannig að einhvað annað en IceSave komist að á vandræðaeyjunni Íslandi.
08.02 2010 kl.14:33
Slóð
HS – ertu einn þessara réttsýnu og glöggu manna sem tekja að Jóahha forsætisráðherra og Steingrímur J. séu aðal sökudólgarnir? hvað heædur þú að sannleiksskýrslan muni segja um þessa ályktun þína? Hefur þú nokkurntíma heyrt um að þau ´hafi mótmælt einkavæðingu bankanna, slöku fjármálaeftirliti, eftirlaunalögum Davíðs og fleiru og fleiru? Hvernig stjórnuðu Íslandi þegar Icesave varð til og var leyft af fjármálaeftirlitinu og Seðlabankanum?
Ef þú mokar skítinn úr öðrum, ert þú þá sekur um svínaríið eða sá sem skeit?
08.02 2010 kl.14:34
Slóð
Sorri, meinti HF
08.02 2010 kl.14:35
Slóð
Ég var að hlusta á upptökur af yfirheyrslunni og þar segir Wellink að þann 3. september hafi íslenski eftirlitsaðilinn (hann nefnir ekki hver fulltrúi hans hafi verið og er ekki spurður frekar út í það) tekið undir fyrri yfirlýsingar bankanna um trausta stöðu íslensku bankanna. Svo segist hann hafa rætt við íslenska starfsbróður sinn, íslenska seðlabankstjórann, þann 8. september og haft á orði að það væru vissulega góðar fréttir að íslensku bankarnir skuli standa svo traustum fótum. Þá hafi starfsbróðirinn tjáð honum að hann hafi varað við veikri stöðu bankanna fyrir 6 mánuðum síðan. Þá segist Wellink hafa gert sér grein fyrir því að íslenski eftirlitsaðilinn hafi til þessa sagt sér ósatt um stöðu bankanna. Ekki kemur fram hvort íslenski eftirlitsaðilinn sem Wellink vísar til hafi verið Seðlabankinn en þegar nefndin spyr hvort það hafi verið íslenski eftirlitsaðilinn sem hafi varað íslensk stjórnvöld við veikri stöðu bankanna fyrir 6 mánuðum staðfestir hann að svo hafi verið. Blaðamenn De Volkskrant ganga því í grein sinni út frá því að um sama aðila, starfsbróður Wellink, hafi verið að ræða en eftir að hafa hlustað á þessa upptöku hef ég frekar þá tilfinningu að hann sé ekki að tala um sama einstakling. Aðalatriðið er hins vegar það að Wellink tekur undir orð eins undirmanna sinna, sem kom fyrir nefndina nokkru áður, þess efnis að íslenski eftirlitsaðilinn hafi einfaldlega logið að hollenska seðlabankanum. Það er líka 6 dálka fyrirsögn greinarinnar í De Volkskrant. Þó að maður sé að verða hálf ónæmur fyrir þeirri neikvæðu mynd sem dregin er upp af Íslandi eða Íslendingum eftir að þetta Icesave-mál kom upp er svona nokkuð ansi svíðandi.
08.02 2010 kl.14:37
Slóð
Það var platað mig!!!
Hverju var logið að hollenska seðalbankastjóranum? Hann hefur væntanlega spurt um einhverjar hagstærðir, ekki bara spurt “ er ekki allt í lagi með bankana?“ og fengið svarið „jú, jú þeir eru í góðu lagi“.
Um bankana hefur vafalaust bæði mátt segja „þeir standa vel“ og „þeir standa illa“.
Hollenski seðlabankasjórinn verður að segja HVERJU var logið?
08.02 2010 kl.15:35
Slóð
Við lifum í lyginni.
Hvaða bankar græða viðbjóðslega þessa stundina ?
Þessi heimsgræðgisvæðing hefur grafið undan fullveldi og lýðræði þjóða, einnig vitsmunum fólks.
08.02 2010 kl.18:53
Slóð
http://www.dv.is/frettir/2010/2/8/sedlabankastjori-hollands-einfaldlega-logid-ad-okkur/
08.02 2010 kl.21:03
Slóð
Það er athyglisvert að lítill hávær hópur stjórnarliða eru tilbúnir að trúa hverju sem er uppá íslensku embættismennina, og trúa kollegum þeirra í Hollandi eins og nýju neti. Það jú hentar pólitískum spunaverkefnum þessi misserin. Ólíkt íslensku seðlabankastjóranum sem bera enga ábyrgð á FME, þá ber sá hollenski ábyrgð á hollenska fjármálaeftirlitinu. Í yfirheyrslunum virtist hollenski stjórnandi fjármálaeftirlitsins ekki hafa minnstu hugmynd um þessa staðreynd, svo það dugði ekki minna en seðlabankastjórann þeirra að reyna að bjarga því sem bjargað varð. Þeir eru jú ekki í góðum málum fyrir framan rannsóknarnefndina. En ætli seðlabankastjórinn hollenski hafa eitthvað til að sanna sitt mál, eða getur það verið að hann leggist svo lágt að reyna finna blóraböggul vegna sinnar eigin afglapa í starfi sem ábyrgur fyrir eftirlitinu á Icesave þarlendis?
http://altice.blog.is/blog/altice/entry/1008779/
11.02 2010 kl.02:04
Slóð
Only the Facts !:
Minister of Banks, Mr. Bjorgvin G. Sigurdsson wrote in a letter on August 14, 2008 and September 23, 2008: Dear Mr.. Wellink, () DNB, de Nederlandse Bank) the deposits of the Icesave bank are completely guaranteed by the Icelandic bank, ………..
Yours faithfully
Minister Bjorgvin G. Sigurdsson