Maður getur ekki gert sér í hugarlund hvernig ástandið er á Haiti.
Guardian segir að Port au Prince sé eins og grafhýsi. Vonin um að finna fólk á lífi í rústunum dvínar með hverri klukkustundinni sem líður.
Það eru orð að sönnu að fáir staðir megi verr við svona atburðum en einmitt þessi. Þar er varla neitt heilbrigðiskerfi svo orð sé á gerandi, algjör lögleysa hefur ríkt í stórum hlutum landsins. Innviðir samfélagsins eru mjög veikir.
Fólk hefst við úti á götum. Út um allt eru rotnandi lík. Matur og vatn er af skornum skammti. Hætta er á farsóttum. Vanmátturinn getur snúist upp í andúð á björgunarsveitum. Einnig er hætta á að glæpaöfl gangi á lagið, fari að nærast á ástandinu með ránum og gripdeildum.
Björgunarsmenn eru ekki öfundsverðir að starfa í svona ástandi og það hlýtur að reyna mjög á andlegan styrk þeirra. Líklega er þetta reynsla sem mun marka þá fyrir lífstíð.
Ég held að það sé hárrétt, maður getur ekki náð utan um þessa skelfingu hjá þeim sem eftir lifa.
Var að horfa á CNN í gærkvöldi, en stöðin sjónvarpar frá þessum hörmungum 24 tíma núna. Í þættinum 360 gr. með Andy Cooper (ef ég man rétt) var viðtal við frækna Íslenska liðið ICE-SAR (search and rescue) þar sem þeir voru að búa sig undir að bora sig að stúlku sem hafði hrópað og gert var við sig.
Þeim tókst að bjarga henni, en hún sagði að til að byrja með hefði hún heyrt hróp og köll og angist allt í kringum sig, en síðan höfðu raddirnar þagnað hver af annarri.
Þetta eru ólýsanlegar hörmungar, sem enginn leið er að setja sig inn í þó reynt sé.
Mig hryllir við að sjá svona myndir,
Hérna er myndbandið frá CNN.
http://www.cnn.com/video/?/video/bestoftv/2010/01/15/ac.tuchman.market.rescue.cnn
Ástandið er greinileg skelfilegt, vægast sagt. Björgunarmennirnir eru hetjur.
Hætt er við að í framtíðinni verði stjórnleysi af því tagi sem þarna virðist ríkja verða æ algengara í heiminum. Ekki bara á hamfarasvæðum , heldur í mörgum megaborgum t.d. Afríku og víðar.
Íslenska sveitin stendur í ströngu
Vídeó frá CNN
http://edition.cnn.com/video/#/video/bestoftv/2010/01/15/ac.tuchman.market.rescue.cnn
Björgunarmennirnir eru sannarlega ekki öfundsverðir af hlutskipti sínu. Það er þó konunglegt samanborið við örlög Haitibúa sem nú hafa orðið fyrir hræðilegum hörmungum sem hljóta að setja mark á samfélag þeirra um langa hríð. Fullvíst er að margur Haitibúinn, sem lifir þetta af, verður aldrei samur.
Nú mætti hið svokallaða alþjóðasamfélag, sem helst virðist vera til þegar efnt er til styrjalda, láta til sín taka. Hvar eru tankskip með vatn? Hvar eru flutningavélar hlaðnar matvælum og sjúkragögnum? Hvar er búið að setja upp færanlegar neyðarmóttökur til að liðsinna slösuðum? Eru kúbönsku læknarnir þeir einu sem þutu á staðinn?
Hversu mörgum slösuðum Haitibúum væri hægt að bjóða sjúkrahúsvist og aðhlynningu hér á landi? Hvað ætli landlæknir hafi um það að segja?
Brangelina (Brad og Angie) hafa gefið 1 milljón USD til Lækna án landamæra á svæðinu, auk þess er verið að flytja „upplásin“ sjúkrahús á staðinn. 5000 hermenn frá USA komnir eða á leið, og fraktflugvélar sveima yfir svæðinu með neyðarvistir.
Held að viðbrögð alþjóðasamfélagsins séu all sterk, þó snörpust frá Íslandi.
Infrastruktur á Haiti hefur aldrei verið neinn, sem eykur á erfiðleika við björgun. Nú ganga 5000 hættulegir fangar um svæðið, sem fengu óvænt frelsi þegar fangelsið hrundi.
Hvað er langt frá ströndum Bandaríkjanna til Haiti? Ég segi eins og Kristján Sveinsson vestrænu stórþjóðirnar eru snarari í snúningum þegar þarf að senda herlið til að tryggja hagsmuni stórfyrirtækja en til að bjarga fólki. Og hvað getum við gert meir?
Já, var það ekki! Innan við 10 athugasemdir og einhver búinn að koma Icesave að (gordon kl.15.36). Á bara ekki til orð yfir svona…
Þetta er hræðilegt – En afhverju eru allar fréttir um hvað við erum stolt? Er það aðalmálið?
Pawel spyr sig:
http://www.visir.is/article/20100115/SKODANIR03/696058183/-1
http://www.avaaz.org/en/haiti_drop_the_debt/
Haitimenn eru nýfrjáls þjóð eins og Íslendingar.
Stutt er síðan þeir hröktu arfgengan einræðisherra á burt, og tók alþjóðasamfélagið í Frakklandi við honum.
Hörmungarnar sem dynja á Haítimönnum núna minna okkur á það að „bankanum þínum er sama um þig“.
Við erum öll Haítímenn núna.
http://en.wikipedia.org/wiki/Jean-Claude_Duvalier
[...] komment sem ég sá á blogginu hjá Agli Helga er eitt það sóðalegasta sem ég hef séð í þessu samhengi. Ég er búinn að sjá marg [...]
Þarf ekki að fylla nk. þotur af vatni og senda út? Yrðum enn stoltari ef af því yrði.
ég er nú ekki mjög trúaður en ég mun byðja fyrir Haiti
Pawel fer sjálfur aðeins offari, eins hörmulegt og ástandið á Haiti er þá er smá friðþæging fólgin í því að sjá Ísland í fréttunum sem ANNAÐ en sjóræningja eða útlaga í heiminum.
Þegar landið hefur verið í fréttunum látlaust sem híbýlli þjófahyskis þá er hver sú frétt sem varpar öðru (og betra) ljósi á okkur jákvæð. Pawel að auki klikkar á því að skammast svo yfir því að íslenska liðið sé fyrst á vettvang því það bendi til þess að aðrir standi sig ekki. Þarna er verið að skamma þann sem er fyrstur á vettvang fyrir að vera fyrstur?
Frábært að geta sent björgunarmenn svona fljótt og þeir hafa nú þegar staðið sig vel.
Ég velti því fyrir mér hvort við getum ekki sent þeim tankskip af vatni.
Breyta
Innskráning
Gleymt lykilorð
Nýskráning
Staðfestingarkóði