Sendu Agli póst
silfuregils@eyjan.is
26.10 2009 - 110 ummæli »

McKjammi

Það er dásamlegt frelsi að hafa ekki McDonald´s á Íslandi.

Það er ekki furða að þessu sé fagnað í frétt frönsku fréttastofunnar AFP.

Frakkar hafa mikla komplexa gagnvart McDonald’s. Það er fullt af svoleiðis stöðum í landinu, en um leið er ein þjóðhetja Frakka bóndinn José Bové sem stóð fyrir frægri árás á McDonald´s veitingahús í borginni Millau.

Hér höfum við hina ágætu Hamborgarabúllu Tomma, miklu betri borgara en á McDonald´s.

Við höfum sem betur fer sloppið við Starbuck´s, í staðinn höfum við kaffikeðjurnar Te & Kaffi og Kaffitár.

Og svo höfum við Umferðarmiðstöðina með sínum sviðakjömmum.

Kannski gæti það orðið fyrirmynd þess sem eftir er af McDonald´s á Íslandi, fyrst staðirnir fara nú að nota íslenskt hráefni.

Eins konar McKjammi.

110 ummæli

Rita ummæli

Svanborg
26.10 2009 kl.18:35

Hmm,

Var ég að fagna þessu? Var ég ekki bara að skrifa frétt, þar sem það þykir fréttnæmt að vestur-evrópskt ríki muni ekki hafa McDonalds stað – táknmynd alþjóðavæðingar og kapítalisma?

kv, fréttaritari AFP á Íslandi

Vignir
26.10 2009 kl.18:35

„Það er dásamlegt frelsi að hafa ekki McDonald´s á Íslandi.“

Þessi setning er instant klassík. Val fólks á hamborgarategund er að sjálfsögðu mjög hamlandi.

Árni Einar Birgisson
26.10 2009 kl.18:39

Furðuleg skilgreining á frelsi. Talandi ekki um dásemd.

Bessi
26.10 2009 kl.18:39

Frábært, þá þurfa neytendur ekki að greiða skatta til McDonalds, aukið frelsi, bara góðar fréttir.

Egill Helgason
26.10 2009 kl.18:42

Í London til dæmis er þetta skelfilegt helsi, sömu staðirnir alls staðar, allar verslunargötur eins, alls staðar sömu merkin, sömu búðirnar, sömu veitingahúsin.

Mæli með No Logo eftir Naomi Klein.

k ben
26.10 2009 kl.18:46

Bestu borgararnir eru á Vitabar. Þið þurfið að prófa Gleymérey

Einar
26.10 2009 kl.18:47

Hvað er svona mikið betra við íslensku keðjurnar en Starbucks?

Halldór Berg Harðarson
26.10 2009 kl.18:47

Ég hef aldrei verið neitt sérlega hrifinn af McDonalds sem mat en ég skil heldur ekki það hatur sem margir hafa á henni sem fyrirbæri.

Reyndin hefur hvergi verið sú að McDonalds hafi drepið niður fjölbreytni. Það er enn nóg af kínverskum mat í Kína og frönskum mat í frakklandi og af allskyns hamborgarabúllum í Bandaríkjunum, McDonalds er bara viðbót, og að mínu mati notalegt tákn þess að við búum á sömu plánetu.

Það er að mínu mati dásamlegt frelsi að geta valið að fara ekki á McDonalds þegar mér langar í hamborgara. Nú kemst ég ekki hjá því að fara ekki á McDonalds þegar mér langar í hamborgara og þótt það komi í sama stað niður þá finnst mér það einhverra hluta vegna pínulítið sorglegt.

Vignir
26.10 2009 kl.18:48

Þetta hefur hamlað þér mikið í Kringlunni og þegar þú hefur gert þér bæjarferð í skeifuna trúi ég.

erlendur
26.10 2009 kl.18:51

Hefur eitthvert ykkar séð Mcdonalds hamborgara þetta ársgamlan sem geymdur hefur verið við stofuhita??

sjá Youtube

Þórður Þ.
26.10 2009 kl.18:51

Við losnuðum við McDonalds, tákn kapitalismans segja sumir. Nú er bara að losna við Alcan og Alcoa, þá er þetta fullkomin þrenning.

Örn Johnson ´67
26.10 2009 kl.18:55

Þvílíkt rugl. Man ekki eftir að hafa verið neyddur til að borða á McDonalds. Þú ert bara alveg átakanlega og hallærislega snobbaður Egill. Og ekki hefur þú skoðað þig mikið um í Bandaríkjunum ef þú heldur að ekki sé annað í boði.
Hvernig hefur þetta fyrirtæki verið fyrir þér?

Ólinn
26.10 2009 kl.18:55

Ég hélt að það hefði verið svalt að hata McDonalds á síðasta áratug…

hversu röng var sú ályktun…

Teitur
26.10 2009 kl.18:57

McDonalds fremur þann skelfilega glæp að bjóða hamborgara á lágu verði. Ekket sterkbragðkjaftæði sem veldur því að börnum finnst McDonalds góður.Jose Bove er bjáni sem beitti sér gegn einum stærsta viðskiptavini bænda í Frakklandi. Hvers konar framleiðandi er það sem skemmir fyrir viðskiptavinum sínum? Það er ekkert að McDonalds og enginn er neyddur að fara þangað. Nýji staðurinn Metro mun bjóða McDonalds hamborgara undir nýju nafni þannig að ekkert breytist í matarmenningu Íslands. Mér er slétt sama hvað borgararnir heita – ekkert mun breytast sem skiptir máli.

Egill Helgason
26.10 2009 kl.18:58

Ég segi ekki orð um að ekki sé annað í boði í Bandaríkjunum. Var reyndar ekkert búinn að minnast á Bandaríkin. En sú einsleitni og sá matarkúltúr sem McDonalds´s er tákn fyrir er sorgarsaga. Ég hef fullkomna fyrirlitningu á svona drasli.

Haukur Kristinsson
26.10 2009 kl.19:02

Næ þessu ekki alveg. Hef alltaf kunnað að meta góðan Mac, svona af og til og hvergi er pomme frites betra. Fer þangað af frjálsum vilja, enginn sparkar mér inn. Hjá McDonald veit maður líka hvað kemur á diskinn, ekkert kemur á óvart, heldur engin spenna. Er of oft búinn að fá vondan mat á frönskum veitingastöðum + leiðinlega þjónustu + hátt verð.
José Bové, með sitt ljóta skegg, er arrogant sauður, sem enginn ber virðingu fyrir. Hann hamaðist gegn GM food, án þess að hafa hið minnsta vit á málinu.
Cheese-eating surrender monkey

Comon
26.10 2009 kl.19:02

Sammála því að það er viss hreinsun af því að losna við McDonalds merkimiðann.

Ætlaði einhver tímann að kaupa þarna hamborgara – og kom þá að skilti sem stóð á „Drive through“.

Þá var mér öllum lokið og snéri við – og hef því aldrei keypt þar hamborgara.

„American Style“ og „Fridays“ mættu heita Amerískt og Föstudagur.

Hvað er að því?

Að flestir veitingastaðir á landinu þurfi að heita einhverjum amerískum nöfnum er eitthvað svo hallærislegt.

Tommi rokkar feitt..!

anti McDonald
26.10 2009 kl.19:04

Prufiði að googla þennan. „antimcdonald“

Áhugavert

Andri Sigurðsson
26.10 2009 kl.19:11

Einar, Starbucks er varla kaffi, meira hituð mjólk með óhemju af sykri og bragðefnum. Kaninn drekkur vont kaffi.

Andri Sigurðsson
26.10 2009 kl.19:12

Vitabarinn og Tommi eru bestir :)

Halldór Berg Harðarson
26.10 2009 kl.19:19

@Comon

Furðuleg önugheit út í erlend heiti.

Finnst þér þá líka hallærislegt að ekki sé fundið amerískt nafn á skyr þegar það er markaðsett í Bandaríkjunum? Eða ætti kannski að íslenska öll heiti á þeim aragrúa tælenskra rétta sem hægt er að fá á tælenskum veitingastöðum hér á landi svo ekki sé minnst á tælensk heiti þessara sömu staða svo sem Nings og Krua Thai?

Eða er það bara hallærislegt ef það er á amerísku?

Það er fátt rembingslegra en íslenskun bara íslenskunar vegna. Leyfum þessu bara að flæða vel og eðlilega og þá líður fólki vel:-)

skattmann
26.10 2009 kl.19:23

McKjammi er málið!

mér finnst fínnt að hafa þetta með íslenskum blæ.
Hef ekki smekk fyrir mat sem að er t.l. bragðlaus og bragðast alltaf nákvæmlega eins.

Br.
26.10 2009 kl.19:24

McKjammi og hvalborgari er málið.

Jóhann F. Kristjánsson
26.10 2009 kl.19:27

Vita og Búlluborgar eru klárlega bestu hamborgararnir á höfuðborgarsvæðinu.
Fyrir þá sem vilja eitthvað annað þá er verðlauna borgararinn Dimmuborgari í Mývatnssveit toppurinn.
Gróft brauð, mikið sallat, og piparsósa slá allt annað út.
Nokkuð öruggt að hráefnið er Íslenskt.
Kannski er líka hægt að fá sviðaborgara í hverabrauði eða Fillet-O-Silungur?

Haraldur
26.10 2009 kl.19:27

það er greinilega voða vinsælt hjá ykkur bloggurum að fordæma mcdonalds. Frjálst val um skyndibita er hverjum manni hollt og að tengja tilveru mcdonalds hér á okkar litla skeri við einhvern alheimskapítalista sýnir hversu súr umræðan er orðin.

hættið nú að vera gamaldags og leiðinleg…..

W.
26.10 2009 kl.19:30

Hef þvælst mikið um bandaríkin og McDonalds er herfilegur fulltrúi þarlendrar matargerðar. Last resort.

Landhreinsun af því að losna við þetta helv.

Rúin Trausti
26.10 2009 kl.19:36

Rétt ! Aðild okkar að ESB ryður Mckjammanum braut. Það verður Mckjammastaðir í öllum löndum ESB. Þeir selja sviðakjamma og sviða-
lappir með rófustöppu.

ceasar
26.10 2009 kl.19:36

Flott væri ef upphafsmaður og höfundur hrunstefnu náhirðardeildar FLokksins snæddi síðasta McDonalds borgarann hérlendis.

Það yrði vonandi upphaf betri tíma.

Toggi
26.10 2009 kl.19:37

Að því ógleymdu að sú krafa að allt hráefni sé flutt inn hingað er eins glórulaust frá sjónarhóli umhverfisverndar sem hugsast getur. Eða réttara sagt: frá sjónarmiði heilbrigðrar skynsemi.

Að þvælast með ost og nautahakk milli heimsálfa til að búa til bragð- og andlausan draslmat.

Hvílík geggjun.

Good riddance to bad rubbish.

Anna R
26.10 2009 kl.19:39

Þýðir Mac eða Mc ekki ’son’ á skosku? Eða einhverri fornskosku/gelísku?

Af þjóðernisástæðum ættum við e.t.v. að koma okkur upp Kjammson skyndibitakeðju.

Þórarinn Einarsson
26.10 2009 kl.19:39

Dásamlegt að við skulum vera laus við þennan McDonalds viðbjóð. Megi Kentucky Fried, Dominos, Pizza Hut og allt þetta drasl fara sömu leið. Já, og Coca Cola líka. Það er mikil gjaldeyrissóun að borga þessum glæpafyrirtækjum fyrir að nota þeirra vörumerki.

Íslenskt, já takk.

brj
26.10 2009 kl.19:45

Hamborgarabúllur selja ekki heilsufæði; einn hamborgari með tilheyrandi sker líklega einhverja klukkutíma af lífi þess sem neytir. Brösuð fita er krabbameinsvaldandi æðaþrengjandi eitur. Maður skyldi fagna í hvert sinn sem skyndabitastaðir á sömu nótum og MacDónalds fara á hausinn.

Teitur
26.10 2009 kl.19:47

McDonalds verður áfram til sölu hér. Hann mun bara heita Metro. Ekkert breytist. Davíð Oddsson mundi ekkert breytast þó hann mundi heita Daníe Ormsson á morgun

Loori
26.10 2009 kl.19:48

Þar er ég Sammála ér Egill!

Rúin Trausti
26.10 2009 kl.19:48

Af hverju eru stofna Íslendingar nigeríska þorskhausastaði í Bretlandi í
samvinnu við nigeríkska kokka? Það búa margir Nígeríumenn í Bretlandi,
sem myndu eta á þessum stöðum. Aðrir íbúar Bretlands myndu örugglega
sækja þessa staði. Líka vantar staði hér á Íslandi, sem bjóða upp á rétti
úr skreið og þorskhausum.

annag
26.10 2009 kl.19:48

Því færri fitu og kaloríu búllur því betra. Mér er nauðilla við þessar alþjóðakeðjur sem tröllríða heiminum. Þeir nota margar hverjar ekki innlennt hráefni. Hversvegna? Getur einhver svarað því? Veit einhver um innihaldið?

Guðrún
26.10 2009 kl.19:51

Vil ekki Mc neitt bara íslensk og góð nöfn á hollu fæði helst. Svo gamaldags ennþá .

kona
26.10 2009 kl.19:51

Loksins jákvæðar fréttir!

Það er svo margt rangt við McDonalds að ég veit ekki hvar á að byrja.

Fyndið að sjá fólk hlaupa upp til handa og fóta og vilja verja þetta „val“ sem það telur nú hafa verið frá okkur tekið. í raun eru keðjur sem þessar til þess hannaðar að útiloka allt val og samkeppni.

Þær eru ekki vinir litla mannsins frekar en Jóhannes í Bónus.

Sem betur fer hefur þetta ekki sprottið upp hér.

Finnst fólki í alvöru talað jákvætt að versla við keðju sem í krafti stærðar sinnar hefur til neitað fólki um yfirvinnukaup og bannað starfsmönnum sínum að vera í stéttarfélagi?

Hefur verið stærsti kjötkaupandi USA og lætur dýraverndarlög lönd og leið.

Notar ekki einu sinni kartöflur í frönsku kartöflurnar sínar,heldur duft með kartöflubragði sem er hrært út og þarf svo að tvísteikja(þar af leiðandi helmingi meiri fita) til að nálgast það að líkjast kartöflum?
(Fyrir utan að hafa steikt þær árum saman úr dýrafitu og kallað þær „vegetarian“)

Notar jafnmikinn sykur í „hollu“ salötin sín og er í lítilli kókflösku.

Leggur sitt ríflega af mörkum í eyðingu regnskóga með gífurlegri umbúðanotkun.

Og við erum ekki einu sinni farin að tala um börnin….

Leigubílstjórinn
26.10 2009 kl.19:54

Mikið er ég feginn,loksins,loksins er búið að loka þessum búllum,þetta er ekki manna matur,alveg skraufa þurrt,og einhver pólsk gúrka í þessum skrattans MacDonalds.Mér er þessi matur hulinn ráðgátta,nafnið MacDonalds,er það ekki skoskt nafn?,það hlýtur að vera nafn á þeim sem samdi þessa ömulegu uppskrift,en það furulegasta er að þessi MacDonals skuli nota Pólska gúrku á borgarann,kannski átti Skotinn MacDonalds Pólska eiginkonu?.Ég hef étið þetta hamborgararusl einu sinni,og aldrei aftur,enda er ég með vöxt á við fertugann ungling,fyrir neðna mitti.Minn staður er hjá honum Bjarna Snæðing á BSÍ.En Egill,!! er það rétt sem þú ert að segja,ætlar snæðingurinn að fara að framleiða MacDonalds kjemma,þá er ég hættur að versla við Snæðinginn,og fer umhugsunarlaust á múlakaffi,þar fæ ég allvöru Kjamma með miklu hnakkaspiki.

Teitur
26.10 2009 kl.19:55

Ha – matreiðir McDonalds börn – það vissi ég ekki

SS
26.10 2009 kl.19:55

McDonalds er lítið blóm í fjölmenningarflórunni.

http://www.youtube.com/watch?v=-eREiQhBDIk&feature=related

Berglind B.
26.10 2009 kl.19:56

Ég mun sakna McDonalds.

Byrjaði að fara þangað þegar stelpan mín var lítil – þetta var svo barnvænn staður, borð og stólar í barnastærð, leiktæki og teiknimyndir og hagstætt verð.

Þetta er eini staðurinn sem ég og mín stelpa höfum getað farið inná og fengið okkur barnabox og desert fyrir skikkanlegan pening og gengið saddar og sælar út.
Þarna hefur maður gengið að sömu gæðum, alltaf – - – og bestu franskar í bænum þegar skyndibiti er annars vegar.

Dóttir mín vann hjá McDonalds á tímabili og hún stundi mikið og barmaði sér yfir ströngum hreinlætis kröfum staðarins – „mamma, það er allt þrifið á HVERJUM degi“. Ég sem kúnni var hins vegar voðalega lukkuleg.

Epplapie og ís – - æ, æ.

Helvítis fokking, fokk.

Sigurrafn
26.10 2009 kl.19:58

Gleymi því aldrei hve Morgunblaðið var hrifið þegar McDonald opnaði inn við Suðurlandsbraut. Klárlega næst falli Berlínarmúrsins. Á árunum áður höfðu ensk heiti á verslunum farið sérlega illa í ritstjóra blaðsins.

Davíð var ólatur við að opna nýja staði einkaframtaksins og ýta undir nýja viðskiptahætti. Þó helst til rausnarlegur þegar átti að rjúfa einangrunina til fulls.
Engin aðlögun heldur stór stökk og skyndifall. Sauðafall.

Amerískir brauðhleifastaðir ákaflega leiðitamur matur. Hér er lítið um hefð, en þó blífur hið íslenska skyr og lambakjöt. Íslenskt bláberjaskyr, kjötsúpa og harðfiskur. McDonald braut blað með sætum skyndibita. Á laugardaginn er tímamótadagur. Viðsnúningur?

peacemaker
26.10 2009 kl.19:59

Keyptu bara nokkur hundruð stk. og geymdu þá. Þola stofuhita.

KVERÚLANTINN
26.10 2009 kl.20:01

Amerískur auðhringamatur er ógeð.
Pössum okkur að hleypa þeim ekki inn aftur þegar rykið sest, ekki frekar en hernum.

Hank
26.10 2009 kl.20:04

„Egill Helgason
26.10 2009 kl.18:42

Slóð Í London til dæmis er þetta skelfilegt helsi, sömu staðirnir alls staðar, allar verslunargötur eins, alls staðar sömu merkin, sömu búðirnar, sömu veitingahúsin.“

Einhver sem neyðir þig að vera eða fara til Tjallalands, nei Egill þú hefur val!
Vá Egil þú hefur val, hugsaðu þér.

Óskar P. Einarsson
26.10 2009 kl.20:07

„Frakkar hafa mikla komplexa gagnvart McDonald’s“.

Nákvæmlega, kalla það „MacDó“. Eru sjálfir með alveg geðveika börgerakeðju (ásamt nálægum Evrópulöndum), sem heitir ‘Quick’. Alltaf troðið út úr dyrum, að sjálfsögðu majónes yfir öllu.

Sömuleiðis í Barcelona: Þar voru lengstu raðirnar sem ég sá inn á Mac niðri við höfnina.

Þetta er mikið love/hate hjá þessum ágætu þjóðum.

jonas
26.10 2009 kl.20:13

Það er eitthvað gott við að hafa ekki McDonalds hér á landi.

Ég vona að nýji staðurinn verði góður. það er hægt að skýra hann McDavíð eða

Best að skella sér á McDavíð og fá sér einn kreppukladda með frönskum og auðvitað alíslenskri kokteilsósu..

Comon
26.10 2009 kl.20:22

Myndi styðja að öll íslensk fyrirtæki ættu að heita einhverjum þeim nöfnum sem fallbeyjast. Bara sú krafa mundi bæta ástandið töluvert.

Nauðsynlegt að horfa til meðferðar dýranna sem eru étinn.

Jón Múli, heitinn, fór að borða kartöflur – eingöngu – eftir að hann horfði á þátt um kjúklingaeldi í Bandaríkjunum.

Það er hreinn viðbjóður.

Líka bandarísk kjötframleiðsla. Uppt til hópa hreinn viðbjóður.

Kjötframleiðsla Íslendinga á lambakjöti er til fyrirmyndar og fer langleiðina í að réttlæta hæsta verði í heimi!

Guðrún
26.10 2009 kl.20:23

Loka McDonalds í dag
Ekkert kjöt á mánudögum
Enga facebook á þriðjudögum
Enga vínsölu á miðvikudögum
Ekkert sjónvarp á fimmtudögum.
Enga eftirvinnu á föstudögum.
Enga líkamsrækt í stöðvum á laugardögum
Engar búðir opnar á sunnudögum.

Einar E.
26.10 2009 kl.20:24

Ríki án Macdonalds er barasta brandari. Og Starbucks er miklu mun betra en Kaffitár. Auðvitað á að hafa sem flest og hafa valið sem mest.

Dada
26.10 2009 kl.20:28

Einn eftirsóttasti matfiskur í veröldinni heitir sandhverfa. Turbot á erlendum málum. Hnossgætið má finna á eðlustu veitingahúsum veraldarinnar. Þessi fiskur er sárasjaldgæfur við Íslandsstrendur og veiðast aðeins fáein kvikindi á hverju ári. Síðdegis í dag mátti finna þennan ofursjaldgæfa fisk í fiskbúð í ca. 200 metra fjarlægð frá Mc Donalds í Skeifunni. Verðið var sanngjarnt 1990 kr/kg.

En frétta og bloggheimar tala um hamborgara…

Íslenskir fréttamiðlar munu líklega fjalla um flugeldasýningu í Grafarvogi daginn sem Messías mun heimsækja Ísland…

Orðlaus
26.10 2009 kl.20:36

Myndin „Supersize me“ var mjög sláandi. Tilraun sem fólst í því að maður át á Macdonalds í 1 mánuð og hvergi annarstaðar.
Fór í læknisskoðun á undan og þar spáðu þeir að hann myndi „fitna eitthvað“ en áttu ekki von á öðru.
Eftir ca 2 vikur fór hann svo aftur i skoðun og þá voru niðurstöðurnar þær að hann væri nánast í lífshættu…
Ef þjóðin tæki upp hollari matarvenjur væri hægt að halda uppi frábæru heilbrigðiskerfi fyrir minni pening.
Hugsum um það!

Egill Helgason
26.10 2009 kl.20:36

Ég hef val um að loka mig inni og lika val um að ganga úti á götu, en ég þarf ekki að láta mér líka allt sem ég sé þar. Ég veit meira að segja að sumt er beinlínis skaðlegt. Eins og til dæmis að bensínmökkurinn sem ég anda að mér er hræðilegur fyrir umhverfið. Og að aðferðirnar sem notaðar eru til að framleiða mat ofan í keðjur eins og McDonald´s eru það líka. Og að það er sorglegt að sjá götur í borgum verða allar eins með röðum af sömu versluna og veitingahúsakeðjunum alls staðar. Því fjölbreytni er skemmtilegri en einsleitni, lýðræði betra en einræði.

Stefán Mörk
26.10 2009 kl.20:37

Guði sé lof , við erum laus við stressað sterakjöt, íslenskt já takk !

Guðbjörg
26.10 2009 kl.20:38

JFK: Ich bin ein Berliner
DO: Ich bin ein Hamburger

helgi
26.10 2009 kl.20:43

Dada,Ég sem gamall fisksali þá hef ég smakkað þennan góða fisk,hann er af kolaætt,og lítur eins út nema heldur þykkari og stærri.Það er mjög gott að setja hann í ofnskúffu með grænmeti,eins og gulrætur kartöflur og lauk,krydda með sjávarsalti og svörtum pipar og eina grein af fáknisgrasi klípu af smjöri og dass af hvítvíni eða mysu,hún gerir sama gagn,baka fiskinn í 15 til 20 mín,fiskrétturinn tilbúinn,og meðlæti nýtt langbrauð og ferkst salat og ískalt gott hvítvín.OG það er lykilatriði að hafa fiskinn með beinunum eða með haus og öllu,ekta frönsk máltíð sem tekur ekki meiri tíma.

Dada
26.10 2009 kl.20:50

Helgi,

Þetta hljómar dásamlega. Mér finnst ég finn ilminn úr ofninum hjá þér. Þessi aðferð mun eiga við flesta hina gómsætu flatfiska. Það er hressandi að komast úr hamborgarabrælunni og inn í alvöru eldhús.

Taktu eftir að eldunartíminn er svona svipaður og að brasa hamborgara og djúpsteikja kartöflur.

olaf
26.10 2009 kl.20:53

Vinir okkar í Greenpeace benda á að McDonalds stuðli að ólöglegri eyðingu regnskógarins í Amazon, því þar er sífellt verið að ryðja meira af skóginum til þess að framleiða sojabaunir sem eru notaðar í dýrafóður á Vesturlöndum.
Ætli svínin og kjúklingarnir okkar séu ekki fóðraðir á soja frá S-Ameríku líka.

„Much of the high protein soya, which is used as animal feed, goes to Hereford-based Sun Valley, a wholly owned Cargill subsidiary that rears chickens. The company provides McDonald’s, the largest fast food company in the world, with up to 50% of all the chicken it serves across Europe.

According to Greenpeace, public and indigenous land is being seized by farmers using bulldozers and even slave labour. Last year more than 25,000 sq kilometres (10,000 sq miles) of Amazon forest were felled, largely for soya farming.

The scale of Amazon deforestation due to soya expansion driven in part by demand from European firms (or shall I say consumers) and is unprecedented, says Greenpeace. “

http://fading-hope.blog-city.com/mcdonalds_eating_up_the_amazon_rainforest.htm

helgi
26.10 2009 kl.20:54

Dada,Það er málið að elda fiskrétt tekur mun minni tíma,en margur heldur,og hollustan er þá eftir,sem allir græða á.

Dada
26.10 2009 kl.20:59

Mæltu manna heilastur, Helgi. Það er tvennt á Íslandi sem á að vera aðgengilegt öllum á vægu verði. Það er heitt vatn og fiskur.

Hank
26.10 2009 kl.21:02

Já takk, íslenskt, helst vatnsblandað nautahakk 50 á móti 50, þá fer maður að kannast við kjamman.

Jth
26.10 2009 kl.21:14

Miðað við síðustu athugasemd Egils er hægt að gera ráð fyrir að hann sé grænmetisæta.

Sigurrafn
26.10 2009 kl.21:16

Bar upp Mckjammi sem nafn á staðnum, en unglingurinn í fjölskyldunni fúlsaði. Ógeðslegt orðskrípi. Ýsa skárra. Pínulítið af gúrku og grænmeti. Einfalt: Fish and chips.
Ekki bara í Tryggvagötu.

KBF
26.10 2009 kl.21:20

Ha ha…..

Ég var í Tyrklandi fyrir 12 árum. Fór með breskri ferðaskrifstofu til Rhodos og fór í dagsferð til Marmaris. Þar var þessi ferðaskrifstofa búin að bóka mat á einhverjum ali baba veitingastað. Ég og félaginn minn gáfum skít í þetta og fórum að leita að einhverju öðru. Vorum að drepast úr svengd og svolítið þunnir líka og sáum þá hina gullnu boga.

Fengum okkur Big Mac máltíð fyrir 2 , kostaði 14.000.000 lírur og við alveg stálslegnir.

Restin af hópnum fékk síðan steinsmugu í nokkra daga á eftir.

Þarna gátum við gengið að (gæðunum) vísum. Borgarinn og franskarnar þarna voru alveg eins og allsstaðar annarsstaðar. En lambakjötið sem hópurinn fékk var ekki frá SS.

Held að pointið með þessu bloggi hjá þér sé að það er svo heimsborgaralegt að finnast Mcdonalds vondur.

Tómas
26.10 2009 kl.21:24

ég finn fyrir gríðarmikilli frelsisskerðingu hérna í Köben. Það er svo mikið af McDonalds-stöðum hérna að ég er gersamlega niðurhlekkjaður…það er reyndar alveg stórkostlegt að fylgjast með þessari umræðu. Það er eins og fólk hafi verið sett í skrúfstykki og verið neytt til að borða McDonalds í öll mál og sé nú loksins laust undan oki einhvers kúgara. Þið eruð nú meiri bjánarnir…

Rúnar
26.10 2009 kl.21:29

Það er ekki Agli samboðið að vera með barnaleg hróp á einstaka vörumerki. Alveg merkilegt hvað jafn vandaður og flottur maður getur misst sig í ruglinu, kannski verið of lengi í Frakklandi, gæti skýrt þetta að hluta.

Arnar H
26.10 2009 kl.21:42

Býst við að næsta skref sé innrás.

Samkvæmt Golden Arches theory.

http://en.wikipedia.org/wiki/Golden_Arches#The_Golden_Arches_theory

baldur mcqueen
26.10 2009 kl.21:45

Hvernig er það Egill, þegar þú ferð úr miðborgarkjarnanum í London? Er ekki blómleg (vörumerkjalaus) verslun utan miðvæðisins?

Ég þekki London illa, svo ég veit þetta ekki.

En þær borgir sem ég hef búið í – eða komið til – eiga það sameiginlegt að stórgóðir markaðir og óháðar búðir blómstra utan miðborgarinnar.

Keðjurnar eru vissulega margar – og að sumu leyti hamlandi, líkt og þú segir. En þær hafa síður en svo eyðilagt alla verslun minni aðila.
Margir sækja einmitt í minni kjarna, því þar má gera góð kaup. Versla við slátrara sem bjóða betur, grænmetissala með gríðarlegt úrval og fatabúðir sem láta Primark líta út fyrir að vera okurbúllu :-)

Jósep
26.10 2009 kl.21:47

Ég skil ekki að fólk sé mikið á móti Mc donalds í mínum huga er KFC mesti vibbinn.

Ágúst
26.10 2009 kl.21:53

Mest allt hráefnið er nú þegar íslenskt! Reyndar fiskurinn unnin í Bretlandi en Íslenskur. Umbúðir og brauð koma að utan + eitthvað annað smotterí.
En svo eru leyfisgjöldin kannski íþyngjandi.

Guðný Hildur Magnúsdóttir
26.10 2009 kl.21:54

Ég mæli með magnaðri bók sem ég las fyrir áratug eða svo. Hún heitir The McDonaldization of Society og eftir bandarískan félagsfræðing. Hér er umfjöllun um hana af wikipediu:

The McDonaldization of Society is a 1993 book by sociologist George Ritzer.
In the book, Ritzer took central elements of the work of Max Weber, expanded and updated them, and produced a critical analysis of the impact of social structural change on human interaction and identity. The central theme in Weber’s analysis of modern society was the process of rationalization; a far reaching process whereby traditional modes of thinking were being replaced by an ends/means analysis concerned with efficiency and formalized social control. For Weber, the archetypal manifestation of this process was the bureaucracy; a large, formal organization characterized by a hierarchical authority structure, well-established division of labor, written rules and regulations, impersonality and a concern for technical competence.

Bureaucratic organizations not only represent the process of rationalization, the structure they impose on human interaction and thinking furthers the process, leading to an increasingly rationalized world. The process affects all aspects of our everyday life. Ritzer suggests that in the later part of the 20th century the socially structured form of the fast-food restaurant has become the organizational force representing and extending the process of rationalization further into the realm of everyday interaction and individual identity. McDonald’s serves as the case model of this process in the 1990s. The book introduced the term McDonaldization into learned discourse to describe mind-numbing sameness.

O tempora O mores
26.10 2009 kl.22:16

Ekki McKjammi, heldur MeeKjammi

Borghildur
26.10 2009 kl.22:41

Hætt þú bara alltaf að rífa þig þarna
miðað við hvernig þú lítur úr mætti halda að þú hafir búið á McDonalds seinustu árin!

V
26.10 2009 kl.22:59

Ætlaði að æsa mig yfir þessu rugli, en nenni því ekki

Hreggviður
26.10 2009 kl.23:03

Ekki oft sem ég er sammála honum Comon blessuðum, en núna er ég það.

Nonni Ka.
26.10 2009 kl.23:05

Ég veit fyrir víst að Mcdonalds er bannaður á mörgum stöðum í Bandaríkjunum. Þetta er val og hafa margar borgarstjornir vestra bannað þessar keðjur, meðal annars í Colarado. Aðeins til að vernda fólk fyrir drasli og óhollustu. Hægri menn á Íslandi mundu öskra úr sér lungun NEYSLUSTÝRING ef þetta hefði verið gert hérna.

Steini
26.10 2009 kl.23:07

það er hreint og klárt fáránlegt að menn skuli ekki sjá muninn á vali og frelsi.

Jú, ég hef í 16 ár eða svo átt val um það að kaupa EKKI McDonalds borgara á Íslandi og ég hef vissulega nýtt mér það val – ég hef aldrei nokkurn tíma stigið fæti inn á McDonalds á Íslandi (ég hef gert það nokkrum sinnum erlendis á þessum tíma – kannski vegna þess að ég hafði ekki val um það að fara á Hlölla að loknu góðu fyllerí, en leit aldrei á það sem aukið frelsi – eða skort á frelsi að fá ekki að fara á Hlölla í Köben)

Og nú mun þetta val mitt minnka – nei, breytast, því í stað McDonalds borgara mun ég geta valið Metróborgara. Og þar sem var þegar búinn að velja að kaupa ekki Mcdonalds mun val mitt aukast – og samkvæmt hinni fáránelegu skilgreiningu að val sé jafnt og frelsi mun heildarfrelsi Íslendinga aukast!

Jeij, jeij, Jeij!!!!

Æjji fyrir þá sem töldu sig hafa frelsi á því að borða Alíslenska McDonaldsborgara á Íslandi – eða… úbbss… nei, þeir voru ekki einu sinni hálfíslenskir… þeir sem borðuðu McDonalds vegna þess að „þeir vissu að hverju þeir gengu“ töldu sig vita það að þeir væru að borða íslenskt nautakjöt* en meira að segja það var lygi!!!

Þannig að eina frelsið við að borða McDonalds á Íslandi reyndist vera lygi!

Hvaða frelsi var þá eftir til að tapast?

Og ég er frjáls undan því að horfa á samborgara mína borða þetta ógeð og ég er frjáls undan því þurfa að horfa á þetta leiðindarmerki þegar ég keyri Suðurlandsbrautina. Ég er frjáls undan því að vera beðin um að borða þetta – en ég var svo sem laus undan því fyrir löngu þegar fólk áttaði sig á afstöðu minni …

Svo ég alhæfi skoðanir mínar lítillega á samborgara mína, hlýtur þá það ekki að vera aukið frelsi á Íslandi að losna við McDonalds þó að val mann hafi breyst eittvað?

*þeir stærstu McDonaldsætur sem ég hef talað við töldu að þó að ýmislegt hjá McDonalds væri innflutt þá væri kjötið íslenskt….

Arnþór Sigurðsson
26.10 2009 kl.23:13

Flest sem Davíð kemur nærri hrynur. Það er augljóst ef litið er til baka. Meirihlutinn D lista í Reykjavík hrundi, Seðlabankinn hrundi. Nú er mac horfið og bíðum bara eftir því að moggin hverfi. Sannkölluð dauðahönd má segja.

Renegade
26.10 2009 kl.23:35

Já…

Muna menn ekki eftir því þegar Davíð Oddsson vígiði fyrsta Macdonald´s staðinn á Íslandi og fékk sér einn feitan í beinni útsendingu sjónvarpsstöðvanna?

Það er rétt sem haft er eftir Jónasi Kristjánssyni (og nýliðinni Íslandssögu) að allt sem Davíð Oddsson hefur komið nálægt hefur og átt þátt í að innleiða á Íslandi er orðið að engu…eða réttara sagt farið á hausinn, horfið og búið að vera.

Davíðstíminn var tími skyndibita, innihalds-og næringarlaus með öllu og skilur ekkert eftir sig.

Davíð var einn stór Big Mac með öllu!

Renegade
26.10 2009 kl.23:37

Ps. Skilur ekkert eftir sig nema þjáningu og skuldir…

Ólafur Teitur
27.10 2009 kl.00:08

* Andúðin á smáborgaranum *

Merkilegt fyrirbæri þessi megna andúð sem margir hafa á veitingastaðnum McDonald’s.

Sumum finnst gula m-ið beinlínis eyðileggja heilu landsvæðin og borgirnar – aðallega þó kannski fyrir þeim sjálfum sem túristum.

Skýringin er ekki fyrst og fremst að McDonald’s sé tákn fyrir alþjóðavæðingu. Coca Cola er það líka, samt er engum sérlega illa við kók. Af því að kók er gott. McDonald’s er ekki sérlega góður. Það er meginskýringin. Hann er tákn fyrir alþjóðavæðingu á frekar óspennandi mat.

Andúðin er með öðrum orðum ekki grundvölluð á því að dregið sé úr fjölbreytni, þótt sumir telji sjálfum sér kannski trú um það. Því ef svo væri myndi þetta sama fólk býsnast yfir því að hvarvetna sé töluð enska, hvarvetna sé hægt að kaupa Tuborg-bjór, hvarvetna séu sömu vestrænu lögin sungin á karókí-börum, hvarvetna séu Hilton-hótel, hvarvetna séu Toyota-bílar, hvarvetna sé Coca Cola.

En það er nánast aldrei kveinað undan þessu. Í það minnsta ekki að sama marki og kveinað er undan hamborgarastaðnum.

Raunveruleg ástæða þess er, eins og fyrr segir, að þetta er frekar óspennandi matur (að mínu mati og margra annarra).

Þannig að þegar allt kemur til alls er þetta ekkert annað en snobb. Matarmenningarsnobb.

Það er svo sem skiljanlegt að fólki finnist lakara að óspennandi matur skuli vera svona vinsæll. En af hverju að pirra sig svona svakalega á því?

Af hverju getur þetta fólk ekki bara hundsað þennan hamborgarastað og farið á sína ástsælu lókal staði glatt í bragði? Því aldrei hef ég heyrt um að McDonald’s hafi rutt úr vegi klassískum staðbundnum stöðum.

Nei, það einmitt þegar fólk er komið með vatn í munninn á leiðinni á 100 ára gamla swarma-staðinn í Kaíró að McDonald’s merkið stingur mest í augu og veldur allt að því líkamlegum þjáningum.

Þetta er ósköp skiljanleg en algjörlega órökrétt tilfinning sem byggist ekki á umhyggju fyrir menningarlegri fjölbreytni og staðbundnum sérkennum heldur ósköp einfaldlega á fyrirlitningu á því sem þessu fólki finnst vera vondur matur – og á plebbalegum smáborgarasmekk þeirra sem finnst hann góður.

Nákvæmlega eins og þegar fólk á leið í óperuna ræður sér varla af fyrirlitningu yfir biðröðinni sem er inn á Grease í næsta húsi.

Með öðrum orðum: Andúðin á „góðborgaranum“ er í raun andúð á smáborgaranum; góðborgaralegt snobb.

Heiður
27.10 2009 kl.00:12

McDo…..ddsson ?

Get ekki dæmt þetta hef aldrei smakkað þessa McDonalds
hamborgara, hef einhvern veginn aldrei haft lyst á þessum osti sem þeir nota í hann.

Enn Tomma – Búlluborgarnir er fínir

Egill Helgason
27.10 2009 kl.00:15

Við höfum lifað nokkuð lengi í póstmódernískum veruleika þar sem helst má ekki segja að sumt sé drasl. Af því elítismi þykir mjög ófínn. Þetta fór að þróast í þessa átt á níunda áratugnum, því þetta var sannarlega ekki svona fyrstu tuttugu æviár mín. Viðmiðið fór að vera: ef fólki þykir það gott, þá hlýtur það að vera gott. Þessi afstæðishyggja er kannski ekkert á undanhaldi. En ég ætla að leyfa mér að þykja sá heimur leiðinlegur þar sem sömu keðjurnar og sömu vörumerkin eru hvert sem maður snýr sér.

Af þessari ástæðu er til dæmis miklu skemmtilegra að vera í Austur-Berlín en í Vestur-Berlín. Keðjurnar hafa enn ekki lagt undir sig Austur-Berlín, þar er meira að segja talsvert af búðum og veitingastöðum sem maður sér varla að eigi nokkurn viðskiptalegan tilgang. Bara eru þarna af því fólk langar að hafa þær.

Reyndar gladdist ég mikið þegar ég kom til New York í fyrra. Þar var miklu minna af Starbuck´s og McDonalds og svona drasli en ég hélt, meira af skemmtilegum litlum „dinerum“.

Solla
27.10 2009 kl.00:40

Aldrei fengið mér Mc´Donalds á Íslandi og veit því ekki hver eftirsjáin er. Ég var aldrei sátt við þau skilyrði að allt yrði að vera innflutt: brauð, kjöt, ostur t.d.

Haraldur Sigmundsson
27.10 2009 kl.00:44

Vá hvað margir hafa sterkar skoðanir á hamborgarastað.

Axel
27.10 2009 kl.00:47

Guð blessi MacDonalds búlluna.

Einar E.
27.10 2009 kl.00:49

Ég ætla að leyfa mér að halda því fram að V vs. A-Berlínar kenningin þín standist ekki alveg. Friedrichsstrasse er t.d stútfull af „keðjum“, Karl-Liebknecht strasse einnig. Á mörkum Karl-Marx Allee og Frankfurter Allee eru Burger King og McDonalds staðir sem báðir eru opnir allan sólahringinn og meira að segja „Plattenbau“ hverfið sem ég bjó í, rétt hjá Tierpark í Lichtenberg, var með sinn eigin McDonalds í litlu, lókal verslunarmiðstöðinni. Vestrið þjáist aftur á móti meira af fatabúðakeðjuflóði.

Jón Ágúst
27.10 2009 kl.06:32

Það er allt gott og blessað að hafa val um hvað og hvar maður borðar.
En ég held að fólk ætti að opna augun aðeins og lesa No Logo eftir Naomi Klein.
Hvernig þessar alþjóðakeðjur níðast á starfsfólki, nota svokallaðan cannibalisma til að eyða samkeppni.
Sem dæmi má nefna hvernig Starbucks finnur sér ákveðið svæði og dritar niður stöðum til að bola út samkeppninni og þegar hún er farin þá eru þeir staðir sem ekki eru arðbærir látnir rúlla.

Eða hvernig skólar í BNA voru komnir undir hælin á Taco Bell, Pizza Hut etc etc sem sáu um að selja mat þar sem gagnaðist eingöngu þeim sem höfðu ráð á því, á meðan að fátækari börnin þurftu að borða eitthvað ógeð frá Doris the lunch lady.

Ég hef einu sinni farið á Maccan heima á klakanum og það er hálftími af lífi mínu og 1300 krónur sem ég fæ aldrei aftur.

Þegar ég bjó í Bretlandi ferðaðist ég mikið bæði í London og um flest allt suðaustur og suðvestur hlutann og þar eru allir bæir eins.
Weatherspoons fyrir bjórinn, Top Shop, Primark, M&S , Virgin etc etc, það var einna helst í smærri þorpunum sem þessar sjoppur voru ekki.
Það er einna helst í miðborg London, í West End og Soho sem maður getur fundið skemmtilega og góða veitingstaði, en þegar maður þarf að gera sér ferð í lengri tíma til að komast frá þessum keðjum þá er auðvitað ekki um neitt val að ræða.

Brynjar
27.10 2009 kl.09:05

Það er greinilega ekki alsæmt að vera með Alþjóðagjaldeyrissjóðinn ef afleiðingarnar eru þær að við losnum við erkikapítalista eins og Mcdonalds..

Eva
27.10 2009 kl.10:46

http://hnakkus.blogspot.com/

Það er dásamlegt að hafa Hnakkus á internetinu

Kaldi
27.10 2009 kl.10:52

Í sama dúr, verður því ekki fagnað ef við losnum við…

- Coca cola (Gvendarbrunnar koma í staðinn)
- KFC (súrsaðir sviðakjammar gera sama gagn)
- Microsoft (notum í staðinn Linux)
- Anders And (ryðjum hillurnar með hinum íslenska Andrési Önd)
- VISA (viðskipti í vaðmáli dugðu okkur vel um aldir)
- Alþingi (Brussel er flottara)

Ekkert jafnast á við umhyggjuna í skjaldborg hinnar norrænu velferðarstjórnar!

Egill Helgason
27.10 2009 kl.10:54

Þetta er það sem heitir á frönsku nostalgie de la boue.

Þráin eftir að vera í drullunni.

Við höfum lifað og hrærst nokkuð mörg ár í gengdarlausu snobbi niðurávið, fer að verða mál að linni.

Hörður
27.10 2009 kl.11:26

Mér finnast McDonalds hamborgarar nánast óætir enda sæki ég þá staði aldrei. Ég er heldur ekki með neinar ranghugmyndir um að alþjóðlegar vetingahúsakeðjur á borð við MD, KFC og fleiri séu einhverjir sérstakir mannvinir. Þetta eru einfaldlega fyrirtæki í viðskiptum sem gera það sem þau geta innan þess ramma sem lög, reglur og siðvenjur skapa þeim.
Það setur hinsvegar að manni hroll að sjá skrifin hjá öllum þeim Georgum Bjarnfreðarsonum sem hér ríða röftum. Það kemur líka á óvart að þú sjálfur Egill sem alla jafna hefur verið tiltölulega edrú í pólitík ert að breytast í gamaldags úlpukomma sem ekkert Bandarískt má sjá án þess að þrútna af póitísku ofstæki.
Bölið sem útrásarvíkingarnir og vanhæfir stjórnmála- og embættismenn ollu hér verður ekki bætt með Vinstri-grænni forræðishyggju.

Egill Helgason
27.10 2009 kl.11:33

Bandarískt, ég sem er svo hrifinn af Bandaríkjunum og er einmitt á leiðinni þangað eftir nokkra daga.

Dagur
27.10 2009 kl.19:15

Þetta er nú algert kjaftæði. Mér finnst nú McDonalds ekkert það gott en ég myndi nú samt frekar velja BigMac yfir sviðakjamma, mér finnst nú svið mesta rusl sem ég veit um. Það er kannski hollt en það er hinsvegar viðbjóðslegt á bragðið. En afhverju ætti Ísland að losa sig við alla skyndibitastaðina því að gamlir leiðinlegir karlar vilja bara borða íslenskt. Það eru 3 McDonalds staðir hérna í bænum mínum í Noregi og ég fer næstum aldrei á þá. En mér finnst samt gott að hafa þá, því ef mig vantar tilbúinn mat á lágu verði þá get ég farið þangað, og það eina sem ég hef að segja um frakka….djöfullinn ef þeir eru ekki leiðinlegasta þjóð í heimi.

sveppi sveppason
27.10 2009 kl.19:38

er dásamlegt frelsi að hafa ekki Mcd á íslandi ?
hljómar eins og rödd inní þér hafi stanslaust verið að segja þér
að borða á Mcd og þú ekki getað neitað henni :)
og ert eflaust ánægður að getað farið á tomma núna,
og elaust hollari borgari á Tomma,og þú fittnar hægar fyrir vikið :)

SiggiSv1
27.10 2009 kl.20:12

Einhver hér að ofan spurði hvað væri athugavert við Starbucks.? Í mínum huga er Starbucks birtingarmynd bandarísks sjálfbirginsháttar sem lýtur að því að finna upp kaffi upp á nýtt — skyndibitavæða og gera amerískt og leggja undir bandaríska skyndibitakeðju. Margt fátækt fólk heldur að það sé eftirsóknarvert (eða kannski getur ekki annað). McDonalds og fleiri bandarískar skyndibitakeðjur hafa unnið menningarleg skemmdarverk í mörgum löndum heims, rúið heilu þjóðirnar sinni matarmenningu og innleitt kolvetnaríkt feitabollufæði. Pöpullinn étur rusl — og eins og Jóhannes í Bónus sagði — Íslendingar borga ekki fyrir gæði, þeir vilja bara eitthvað nógu ódýrt.
Aldrei Starbucks til Íslands, með pappaglasamenningu skyndibitans og til hamingju með að vera laus við McDónann.

Svenni
27.10 2009 kl.21:21

Hafiði prófað að bjóða fjölskyldunni uppá sjeik á suunudagsrúntinum, ööhhh er kægt að fá þetta á raðgreiðslum, besti sjeikinn var á Mcdonalds og hræódýr

Hrannar
27.10 2009 kl.21:35

Þeir sem velja mc’s sko hafa ekki skoðun á því..
bara svogna einsvog heroin fíklar… nei djok
en ég hef alltaf hatað mcdonalds því
fjolskyldan velur Mc alltaf, væri bara yndislegt
ef kentucky fried chicken og perlan mundu
drulla sér burt þá vri kannské meira af burger king
stapir ég veit það ekki sko en Mc hefði bara átt að
breyta sínum heimsku reglum og kaupa meira Íslenskt

Hrannar
27.10 2009 kl.21:38

hefði kannski átt að horfa á lyklaborðið og taka eftir í tímum áður en ég kom með comment en sko.. jam

RtarD
27.10 2009 kl.21:55

amm hamborgari a búllunni kostar svona 1000 kall borgari a mc bara 200 :O:O:O:O:O:O:

Friðgeir Einar
27.10 2009 kl.23:25

mikið voðalega er fólk að tuða yfir þessu… þetta var orðið of dýrt fyrir félagið sem er með leyfið á Íslandi.. og sama framboð og hugsanlega á lægra verði verður áfram.. með íslensku hráefni..
Egill… er þetta virkilega svona merkilegt að það þurfi að dásama það??
og McDonald’s er „næstum“ allstaðar í þessum heimi… get over it.. þú hefur val..

Stebbi
28.10 2009 kl.01:45

sammála síðasta ræðumanni, hverjum er ekki (hans í koti) sama þó einhver staður sé til , manni kemur það ekkert við , hver og einn má opna þann rekstur sem hann langar til. Ef mér finnst það sem hann hefur uppá að bjóða ekki mér samboðið þá bara tek ég sveig þar framhjá en ég bölva honum ekki og vil láta loka staðnum hans….. aðeins að slaka á með þessa fordóma , Egill þú bara étur kjamma á BSÍ með leigubílstjóranum þínum …. leyfum fólki bara að borða þar sem það vil borða og þó að mörgum finnist Mc Donalds vera rusl þá er tilvist hans algjörlega réttlætanleg PUNKTUR

Siggi Jóns
28.10 2009 kl.02:21

Mæli með því að þið horfið á „Food Inc.“
…og síðan getið þið kvartað yfir því að ódýri skyndbitinn sé farinn ef þið eruð enn þá þeirrar skoðunnar.

Gunnlaugur Snær Ólafsson
28.10 2009 kl.08:38

Mér finnst nú helst athyglisvert að Egill og aðrir fagna þess að fólk missir vinnuna, vegna þess að þeir séu svo sáttir við að McDonalds yfirgefur klakan.

Spurning hvort að menn mundu tala eins ef rætt væri um að skrifstofur eða fiskvinnslur væru að loka.

Hrannar
29.10 2009 kl.00:44

Gunnlaugur Snær Ólafsson , ég held að Metro gefur þá sem vinna
i mac’d starf

Gunnar
29.10 2009 kl.23:05

„Frakkar hafa mikla komplexa gagnvart McDonald’s.“

Nei, þeir gera það ekki. Þeir fíla McDo. Ég hef búið hérna í tvö ár, og ég hef sjaldan sem aldrei heyrt þá segja slæma hluti um staðinn.

Ofan á svona „anecdotal“ staðhæfingar má benda á að í Frakklandi eru flestir MD staðir í heiminum á eftir Bandaríkjunum.

Eftir situr samt að hvað sem má segja um José Bové, þá er varla hægt að fullyrða að hann standi í forsvari fyrir hinn almenna franska borgara þegar kemur að aðþjóðlegum skyndibitabúllum.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

 


Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar