Nú er McDonald´s að loka á Íslandi.
Spurning hvort ekki megi nota það í landkynningu?
McDonald´s laust land!
Annars rifjast upp hver fékk fyrsta McDonald´s borgarann á sínum tíma.
Væri kannski sniðugt að hann fengi þann síðasta líka?
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
70 ummæli
Rita ummæli26.10 2009 kl.10:08
Slóð
Það er náttúrulega fyndnast í heimi að Davíð Oddson hafi klippt á borðann hjá McDonalds, viss stíll yfir því.
26.10 2009 kl.10:10
Slóð
Með þessu skulum við vona að bölvun Davíðs sé aflétt.
Ég myndi sjá eftir Hvalfjarðargöngunum.
26.10 2009 kl.10:13
Slóð
Útlendingar sem hafa sótt mig hingað heim, hafa gjarnan lýst mikilli hrifningu sinni á því hversu mikið sé af íslenskum vörumerkjum, en lítið af alþjóðlegum.
Finnst bráðsniðugt að sjá eitthvað sem heitir OLÍS eða Hagkaup eða Síminn. Í útlandinu er allt löngu orðið eintómt Tesco, Starbucks, Vodafone…
26.10 2009 kl.10:17
Slóð
Rétt, reyndar finnst mér merkilegt að það er Bretland sem er mest undirlagt af svona keðjum af öllum stöðum sem ég hef komið til, það er til dæmis ekki svona slæmt í sjálfri New York.
26.10 2009 kl.10:19
Slóð
Hvað koma Hvalfjarðargöngin Davíð við? Ef eitthvað er þvældist hann fyrir þeirri framkvæmd sbr. bók Atla Rúnars Halldórssonar um sögu þeirra.
26.10 2009 kl.10:23
Slóð
Já það er allt á niðurleið eftir að sá maður hætti
26.10 2009 kl.10:33
Slóð
Þetta leiðir hugann að öðru, verðlagi á innfluttri matvöru. Hvað er langt síðan Fréttablaðið birti úttekt á samanburði matvæla eða landsbúnaðarvara á Íslandi og í Danmörku? Þetta birtist með reglubundnum hætti í Fréttablaðinu og Stöð 2 en hefur merkilegt nokk ekki sést frá því krónan hrundi.
var þetta m.a. ekki ein ástæða þess að við ættum að ganga í ESB. Er það ástæða í dag?
26.10 2009 kl.10:33
Slóð
Egill tónar.
Og svo kemur kórinn.
26.10 2009 kl.10:33
Slóð
New york er Starbucks borgin og er buin ad rydja mcdonalds til hlidar.
26.10 2009 kl.10:45
Slóð
Þetta væri góð og tímabær endalok á tíma Davíðs.
Verst að það verður ekki þannig.
Hann mun sá fræjum illgresis áfram og öll hans nálega hirð.
26.10 2009 kl.10:45
Slóð
Dálítið fúlt.
Hefði verið fróðlegt að fylgjast með Big Mac Index eftir hrun; sjá breytinguna.
26.10 2009 kl.10:45
Slóð
Og Comon vælir viðlagið.
26.10 2009 kl.10:46
Slóð
Sumt fólk er með Davíð á heilanum. Mc Donalds lokar, og það er tengt Davíð Oddssyni!!!!! Er þetta ekki farið að verða keis fyrir sálfræðinga?
26.10 2009 kl.10:49
Slóð
Getur verið að það hafi verið Davíð sjálfur, sem át hamborgarann?
Það hlítur að hafa verið Steingrímur í gerfi Davíðs, er það ekki Comon?
26.10 2009 kl.10:52
Slóð
Nei það er Frakkland.
Ekkert land í heimi utan Bandaríkjanna hefur fleiri McDonalds staði en Frakkland.
26.10 2009 kl.10:58
Slóð
Spurning hvort við verðum þá með í næstu „Big Mac vísitölu“ !!!
26.10 2009 kl.10:59
Slóð
Ingibjörg.
Davíð byggði ekki göngin.
Davíð klippti á borðann.
26.10 2009 kl.11:02
Slóð
Comon, hefur þú ekki eitthvað að betra að gera en að hanga hérna á eyjunni. afhverju viltu eyða öllum deginu að blaða í hlutum sem fara í taugarnar á þér?
26.10 2009 kl.11:02
Slóð
….dag eftir dag.
26.10 2009 kl.11:12
Slóð
vona að nýjir eigendur bjóði uppá hvalahamborgara, hugsið ykkur hvað það myndi trekkja að mikið af túristum
26.10 2009 kl.11:12
Slóð
Verið alveg róleg, það opnar nýr McDonalds staður aftur innan 18 mánaða, það mun bara einhver annar leigja rekstrarleyfið af McDonalds keðjunni.
Ætli sá sem rak McDonalds þar til nú hafi ekki bara verið með of mikið af erlendum lánum og endað í gjaldþroti? Afskaplega normal, fyrirtæki fara á hausinn á hverjum degi. Einhver annar tekur bara upp kyndilinn.
26.10 2009 kl.11:16
Slóð
Óli, varla er Lyst farin á hausin fyrst þeir halda sömu kennitölu?
26.10 2009 kl.11:36
Slóð
Nú er McDonald´s að loka á Íslandi. Gott mál.
Ég held að það væri hollt fyrir marga að gleyma því alveg að hamborgara-staðir séu til eða skyndibitastaðir yfir höfuð. Einbeita sér þess í stað að borða hæfilega af hollum mat t.d. fisk og grænmeti og skyr. Ekki borða skyndibita, brauð, kartöflur, ekki að nota sósur og ekki að drekka bjór.
Hvað væri hægt að spara mikið í heilbrigiskerfinu ef reikingar væru bannaðar og fólki gert skylt halda sig við plús/mínus 10% af kjörþyngd?
Svar: Alveg helling.
Það er hryggilegt að mæta á biðstofur Heilsugæslunnar og sjá að þær eru fullar af spikfeitu fólki með spikfeit börnin sín til þess að leita sér lækninga við verkjum í fótum eða öðrum sjúkdómum sem eru afleiddir af offitu og reykingum.
26.10 2009 kl.11:42
Slóð
Davíð borðaði fyrsta hamborgarann.
Það kom mynd af honum í Ríkisjónvarpinu þar sem hann var að slarfa í sig.
Framhaldið er öllum ljóst.
26.10 2009 kl.11:43
Slóð
Það sem mér þykir athyglisvert við þetta, er að þeir voru að flytja inn hráefnið sjálfir en ekki kaupa það af innlendum birgjum. Með þessu brotthvarfi þá verða til 10-15 störf eins og talað var í tilkynningunni, sem er bara gott.
Þetta verður því að flokkast undir jákvæðar fréttir, nokkuð sem veitir ekki af. Auk þess voru þetta vondir hamborgarar.
26.10 2009 kl.11:49
Slóð
Hjálpi mér heilagur Nikulás, hvaðan kom kjötið ?
26.10 2009 kl.11:58
Slóð
Ef fólk fer og kaupir einn nún – þá getur það kannski geymt þá til minja eða sem skraut – samkv. því sem sumir segja.
http://www.pressan.is/Vidskipti/Lesavidskiptafrettir/thessi-mcdonalds-hamborgari-er-eins-ars-hvad-er-eiginlega-sett-i-thessa-borgara
„Norskur blaðamaður keypti fyrir ári síðan ostborgara frá McDonalds og skammt af frönskum og hefur haft á skrifborðinu sínu síðan. Nú sléttu ári síðar lítur hann út eins og hann hafi verið keyptur í dag. Blaðamaðurinn spyr: Hvað er eiginlega í borgaranum?
…
Len Foley á 19 ára gamlan hamborgara sem lítur út eins og nýsteiktur og næringarráðgjafinn Julia Havey ferðast um Bandaríkin og sýnir fjögurra ára gamla gleðimáltíð til viðvörunar. Og Trond spurði sig hvort það gæti passað að tíminn og McDonalds héldust ekki í hendur.
26.10 2009 kl.12:03
Slóð
Jákvæðar féttir!
26.10 2009 kl.12:12
Slóð
Ég á eftir að sakna dótsins úr „Happy meal“ fyrir krakkana – einskis annars
26.10 2009 kl.12:19
Slóð
ég fór nú bara að spá hvað Mcdonalds we búið að vera lengi hérna.hef nú bara aldrei farið þangað.og held ég sleppi því bara alveg.
26.10 2009 kl.12:23
Slóð
@Þórarinn:
Kjötið kom frá Bandaríkjunum og raunar allt matarkyns hjá McDonalds á Íslandi.
Staðurinn heldur áfram í nánast óbreyttri mynd (skilst mér) en undir öðru nafni því íslenskt hráefni verður notað. Ætli það megi ekki reikna fastlega með því að McDonalds snúi aftur þegar það er orðið hagkvæmara að flytja inn amerískt — lyfjamengað — beljukjöt en kaupa íslenskt.
26.10 2009 kl.12:39
Slóð
„Good riddance to bad rubbish!“
Mikið eru þetta ánægjulegar fréttir, MacDonald’s laust land!
26.10 2009 kl.12:40
Slóð
Nei Anna. Þetta var flutt inn ólyfjamengað frá Þýskalandi.
26.10 2009 kl.12:43
Slóð
Kjötið var unnið á íslandi úr íslensku kjöti, það var aldrei flutt inn.
Kjötið átti að vera um 38% fitusprengt, en ekki er notuð fita til að steikja það, og því fer mestöll fitan úr við steikingu.
Kjötið á McD er ekki óhollt, það er frekar brauðið sem inniheldur mikinn sykur, og svo sósurnar, að ekki sé talað um kartöflurnar og gosið
26.10 2009 kl.12:45
Slóð
Þórarinn.
HAHAHAHAHAHAHA!!!!!!
Ég ligg á gólfinu í krampakasti úr hlátri !!!
Þetta er eitt al fyndnasta komment sem ég hef séð.
26.10 2009 kl.12:50
Slóð
Góður Egill – legg til að Davíð éti þann síðasta líka. Það fer vel á því.
26.10 2009 kl.13:03
Slóð
Við missum Big Mac Index .Eina áhrifaríkustu hagfræðikennitöluna.
26.10 2009 kl.13:08
Slóð
„Kjötið var unnið á íslandi úr íslensku kjöti, það var aldrei flutt inn.“
Þá er Lyst hf ekki að fara rétt með í yfirlýsingunni:
„Lyst ehf. hefur undanfarin ár keypt flest hráefni í McDonald’s réttina, kjöt, ost, grænmeti og önnur aðföng af erlendum birgjum, samkvæmt kröfum og stöðlum McDonald’s. Gengishrunið, ásamt háum tollum á innfluttar búvörur, hefur tvöfaldað hráefniskostnað fyrirtækisins og gert afkomuna erfiða.“
26.10 2009 kl.13:15
Slóð
Getum við ekki fengið McDowell´s í staðinn?
I mean they have the Big Mick!
26.10 2009 kl.13:23
Slóð
Sammála Agli
Kóngurinn fékk fyrsta og hann á að fá síðasta líka
26.10 2009 kl.13:29
Slóð
Je minn. Enginn McDonald’s á Íslandi!! Herregud!!!
Eitthvað hefur Burger King látið sig vanta upp á síðkastið líka.
26.10 2009 kl.13:32
Slóð
Við fyrstu sýn virðast þetta nokku góðar fréttir. Meiri áhersla í íslenskt hráefni er bara gott, og þetta er frábær landkynning.
Hins vegar er missir af Big Mac indexnum. Svo er við hæfi að vitna í hagfræðinginn Thomas Friedman…
„No two countries that both had McDonald’s had fought a war against each other since each got its McDonald’s“
26.10 2009 kl.13:49
Slóð
Það verður alíslenskt „hroka“-hráefni í nýju borgurunum sem munu bera nafnið McDavíð, McHannes, McGeir, McIllugi, McÞorgerður og barnamáltíðin mun heita McSigurðurKári og svo í lokin, þá mun ísinn heita IceSave … svona til að ná að kæla sig vel niður eftir átið.
Sú nýjung verður notuð að hráefninu verður hreinlega troðið í neytendur með með góðu eða illu og séð verður til þess að það verði ekki neinir aurar eftir þegar viðskipavinurinn gengur út af staðnum.
26.10 2009 kl.14:07
Slóð
Var dótið í Happy Meal fyrir krakkana?!?!?
Æ, æ. Ég skulda víst útskýringar heima hjá mér.
26.10 2009 kl.14:16
Slóð
Ekki það að það komi málinu við en ég man þegar Pizza 67 opnaði í Köben. Danskir fjölmiðlar gerðu mikið grín af því að forseti Íslands væri viðstaddur opnunina en pizzastaðir eru mjög algengir þarna, ódýrasti skyndibitinn.
Ólafur Ragnar var ekki bara að greiða götu fjármálafyrirtækja erlendis
26.10 2009 kl.14:18
Slóð
Mikið lýst mér vel á þennan Mac Doddson. Trúlega orðin heldur seigur en það má krydda þetta eitthvað til. Hvar nálgast maður herleg heitin? Úr því að Maggi frændi andaðist í beinni þá þarf að færa þetta eitthvað til.
Hjá Tomma, byðja um Mac Doddson? Með súrsuðum og blákáli?
Einfaldur Mac Doddson er við hæfi. Ætla að steðja niður á Geirsgötu og byðja um einn dökk bláann. Einfaldann.
26.10 2009 kl.14:22
Slóð
Já það væri vel á því að Davíð æti þann síðasta líka – svona einhverskonar samhverfa. Mcdonalds búinn – Davíð búinn.
26.10 2009 kl.14:42
Slóð
Ástæðan fyrir því að McDonalds fór á hausinn er einfaldlega sú að íslenskir hamborgarar rúla!
26.10 2009 kl.14:56
Slóð
Landhreinsun !!
26.10 2009 kl.14:57
Slóð
Ómar ofl.
“Kjötið var unnið á íslandi úr íslensku kjöti, það var aldrei flutt inn.”
„Þá er Lyst hf ekki að fara rétt með í yfirlýsingunni:
“Lyst ehf. hefur undanfarin ár keypt flest hráefni í McDonald’s réttina, kjöt, ost, grænmeti og önnur aðföng af erlendum birgjum, samkvæmt kröfum og stöðlum McDonald’s. Gengishrunið, ásamt háum tollum á innfluttar búvörur, hefur tvöfaldað hráefniskostnað fyrirtækisins og gert afkomuna erfiða.”“
Kjötið í McDonalds á Íslandi kemur frá Þýskalandi
26.10 2009 kl.15:04
Slóð
Gott!
Núna maetti Kentucky Fried Chicken fara lika! Eina vitid núna er íslenskt hráefni og allskonar almennilegir veitingastadir!
26.10 2009 kl.15:21
Slóð
Hvernig er það Egill á ekkert að fjalla um frumvarpið umdeilda um skuldaniðurfellinguna ??
bara eitthvað hamborgarabull??????
26.10 2009 kl.15:22
Slóð
Ég vann hjá Kjöthúsinu í Kópavogi við að pakka kjöti fyrir McDonalds fyrir um 5 árum. Kannski hefur kjötið á einhverjum ákveðnum tíma komið frá Þýskalandi, en stundum var það Íslenskt.
Hvernig sem það var, þá er McD ágætt á bragðið….
26.10 2009 kl.15:22
Slóð
LOL!
26.10 2009 kl.15:29
Slóð
Athyglisverðasta í þessari frétt er að það er hægt að búa til yfir 10 störf með þ´vi að loka staðnum, eða jafnmörg störf og stækkun álversins í Straumsvík kemur til með að skaffa.
26.10 2009 kl.15:32
Slóð
Ég hef nú aldrei tengt davíð við McD og finnst hálfsorglegt að það þurfi að koma kallinum inn í alla pistla…kv
26.10 2009 kl.15:40
Slóð
Gleðitíðindi
26.10 2009 kl.16:54
Slóð
Þú segir fyrsta og síðasta um……… það er alveg greinilegt hver borðaði alla þess á milli Egill minn !!!!!!!!!!!!
26.10 2009 kl.17:15
Slóð
Munið þið eftir bókinni „Ganz unten“? þar sem rithöfundurinn þóttist vera tyrkneskur innflytjandi sem fékk vinnu á Mc Donald´s í Þýskalandi? Sama tuskan á borðin og klósettin. Nei takk, ekki fyrir mig… ekki núna, ekki þá, og – aldrei!
26.10 2009 kl.17:29
Slóð
Hmmm…. Þetta hélst í hendur við uppgang og hrun Frjálshyggju xD hér á landi
Good riddens crappy food!
p.s. við óskum frökkum til hamingju með Maccann í Louvre
26.10 2009 kl.17:32
Slóð
Gott mál! Og þá hverfur með því draslið hans Disney´s sem smábörn í Kína mega una sársvöng við að púsla saman fyrir ofalda vesturlandagrísina.
Framvegis verður boðið upp á úrvalskjöt af íslenskum kúm og krakkarnir okkar fá í staðinn Leggja og skeljakittið, sem má breyta í lúgerskammbyssur eða hvað annað sem þau láta sér detta í hug með smá hugkvæmni. Því veitingahúsið er ekki að loka skilst manni. Bara að hagræða.
Svooo verður að fá Do til að taka þarna síðustu kvöldmáltíðina áður en McDonald lokar og slekkur Hann má bjóða með sér 12 lærisveinum og hringja í einn vin. Annað er off beat í sirkusnum.
En grínlaust. Þeir á Mc eru að losa sig undan dýru francaise grunar mig og einhverjum fastakostnaði sem því að fylgir að halda „Dónaldsgæðastöðlum“ í hráefni og þess háttar.
Svo er það frábært eins og fram hefur komið, ef þetta er gjaldeyrissparandi og atvinnuskapandi. Og fín ímynd í anda Nýja íslands að vera McDonaldfree Nation. Við höfum nóg með að vera IMFownedNation næstu árin. Segi ekki tugina.
Búkolla er látin – lengi lifi Búkolla.
26.10 2009 kl.17:46
Slóð
Það voru fögur fyrirheit um íslenskt hráefni sem McDonalds gaf þegar staðurinn opnaði í september 1993. Þá stóð þetta í Mogganum:
„Íslenskt hráefni
McDonald’s á Íslandi notar eingöngu sérvalið nautgripakjöt frá Kjötbankanum hf. í Hafnarfirði og í það fara engin aukaefni eða krydd. Í fiskréttum er eingöngu íslenskur fiskur frá IFPL, dótturfyrirtæki Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna í Grimsby, en IFPL framleiðir á annað þúsund tonn af fiskréttum á ári fyrir alla veitingastaði McDonald’s á Bretlandseyjum. Kjúklingarnir koma frá Reykjagarði í Rangárvallasýslu. Öll mjólkurvara kemur frá Mjólkursamsölunni, gosið frá Vífilfelli og grænmetið frá Ágæti. Hamborgarabrauðin og allar umbúðir koma frá Bretlandi vegna þess að viðeigandi tækjakostur er ekki fyrir hendi á Íslandi.“
26.10 2009 kl.18:09
Slóð
Þau hljóta að vera merkileg leyndarmálin að baki uppskrift, sem gerir það „arðbært“ að flytja hvítt ómyglandi brauð frá Ameríku, nautahakk og ost.
Ótrúlega sterkt vörumerki miðað við hvað það er lítið sérstakt við matinn þar.
26.10 2009 kl.18:12
Slóð
Hvers vegna er Davíð O. yfir undir og inni í allri umræðu þegar sumt fólk tjáir sig? Vildi Davíð ekki að kljúfa Baugs/Hagkaupsveldið? Hélt hann ekki að Össur yrði bandamaður í því máli? Baðst Össur ekki afsökunar á að hafa móðgað Baugs/Hagkaupsveldið?(Var Baugs/Hagkaupveldið búið að kaupa Samfylkinguna þá?) Hefur Davíð ekki verið erki- og aðalskotmark Baugs/Hagkaups/Fréttablaðsveldisins og strengjabrúðna þess síðan?
26.10 2009 kl.18:15
Slóð
@ Einar E.
Ég hef greinilega eitthvað misskilið Moggafréttina enda er þetta ekki frétt heldur texti sem unninn er upp úr fréttatilkynningu frá Lyst.
Af þeim texta er að skilja að Lyst hafi misst sérleyfið frá McDonalds en af hverju er ekki fyllilega ljóst.
Þessi fréttatilkynning er í rauninni æði ruglingsleg og mótsagnakennd og ég gefst upp við að reyna að skilja hana.
26.10 2009 kl.21:29
Slóð
Einkennilegt af fréttamanni RÚV að leggja til, að fyrst fv. forsætisráðherra opnaði staðinn þá væri eðlilegt að nv. forsætisráðherra lokaði honum!!!
Eru fréttamenn nú komnir í samkeppni við Spaugstofuna?
26.10 2009 kl.21:50
Slóð
Aðalsteinn.
Baugs/Hagkaupsveldið er allt í eigu og undir stjórn Sjálfstæðismanna.
Líka Baugsmiðlarnir sem náhirðin kallar svo.
Hvað ertu að blanda Samfylkingunni í þessa sálfræði hjá þér?!
26.10 2009 kl.22:12
Slóð
Fyrirgefðu Pétur Karl @ 21:50, en: hahahahahahahahaha……
Þú ert ekki bara veruleikafyrrtur, þú ert líka fyndinn.
26.10 2009 kl.23:43
Slóð
Frábært sjónvarpsefni er DO tæki banabita Mc,Donald í beinni á RUV.
27.10 2009 kl.02:25
Slóð
Maggi dóni farinn. ÆÆ. og þar með alþjóðavæðingin og frelsið. Landið að lokast og ég sé torfkofana í hillingum. Manni fannst það frekar flott þegar Maggi dóni kom, að Ísland væri nú loksins í hóp þjóðanna ! Nú er það sem sé bakk tú beisiks og í kjammana,.
Fór þarna stundum með krakkana sem höfðu mestan áhuga á dótinu (Happy meal) og leiksvæðinu. Staðurinn má eiga það (í Skeifunni) að hann var barnvænn, einn sá fyrsti á landinu. Verður kannski þannnig áfram.