Sendu Agli póst
silfuregils@eyjan.is
07.10 2009 - 52 ummæli »

Björn og mannréttindin

„Nafni dóms- og kirkjumálaráðuneytisins hefur verið breytt í dóms- og mannréttindaráðuneyti. Þessi breyting er ekki til bóta. Orðið mannréttindi er of gildishlaðið til að vera í ráðuneytisheiti.“

Björn Bjarnason á heimasíðu sinni, 6.10. 2009.

52 ummæli

Rita ummæli

Hreggviður
07.10 2009 kl.13:01

Þetta er rétt hjá Birni.

Tomas
07.10 2009 kl.13:05

og þú ert þá væntanlega, með þessari færslu þinni, að vísa til þessa að BB sé nákvæmlega sama um mannréttindi?

Drengur Óla Þorsteinsson
07.10 2009 kl.13:12

Hahaha! Snilld. Þetta er gullmoli. Það verður ekki af Birni tekið að hann er stundum skemmtilegur.

ceasar
07.10 2009 kl.13:13

Bíbí veit ekkert um hvað mannréttindi snúast.

Jóhann
07.10 2009 kl.13:17

Björn er barns síns tíma.

Jóhann
07.10 2009 kl.13:17

Barn síns tíma átti það að vera.

Heiður
07.10 2009 kl.13:19

Tími B.B. er liðinn.

Lauk reyndar þegar að múrinn féll :)

sr
07.10 2009 kl.13:22

Mannréttindi of gildishlaðið, þá liggur beinast við að spyrja, hvað með gildishleðsluna á orðinu kirkju? Er td. það húsbygging í viðhaldi hjá ríkinu? *Kræst!*

joi
07.10 2009 kl.13:25

Munurinn á BB King og þeim sem á eftir honum komu í Sjálfstæðisflokknum er sá að það er enn hlustað á Björn. Hvort sem fólk er honum sammála eða ekki, þá sperrir fólk við eyrun þegar hann talar.

Björn var mjög vel liðinn sem menntamálaráðherra. Jafnvel hörðustu vinstrimenn sem voru innan menntakerfisins báru virðingu fyrir Birni.

Sama gerðist í dómsmálunum. Lögreglumenn tala vel um Björn. Hann passaði upp á sitt fólk.

Karlinn er nettur húmoristi. Mörgum finnst hann ekki skemmtilegur. Held að þetta fólk hafi bara ekki nógu djúpan húmor til að skilja Björn. Það vill frekar eitthvað hraðsoðið samfylkingar grín þar sem andstæðingar eru uppnefndir og lítillækkaðir sbr. hvernig farið hefur verið með Jón Bjarnason, sem þó situr í ríkisstjórn með Samfylkingarfólki.

Klifað er á að tími Björns sé liðinn. Held að það sé ekki rétt. Hann gæti komið til baka, kærði hann sig um það.

elli
07.10 2009 kl.13:40

Það eru engin mannréttindi í íslensku samfélagi og Björn þekkir bara silfurskeiðina í munni sínum alla sína hundstíð.

Benedikt
07.10 2009 kl.13:40

Egill, hvað ertu að segja með þessu? ertu að segja að hugtakið mannréttindi sé ekki gildishlaðið hugtak og sé sífellt í þróun? ertu að gefa í skyn að Björn sé í mein við mannréttindi afþví hann er ekki fastur í pólitískri rétthugsun og popúlisma?

Vindurinn
07.10 2009 kl.13:41

Er ekki heitið -Fjármálaráðuneyti- of gildishlaðið hjá þjóð sem er krúnk?

hlín
07.10 2009 kl.13:46

Menning er líka gildishlaðið orð og það sama má segja um umhverfismál. Íslendingar geta ekki komið sér saman um neitt án þess að fara að rífast. Mér finnst þessi breyting til batnaðar og það er gott að það á loks að gera skurk í verkaskiptingu ráðuneyta. Ríkið hefur hingað til ekki hikað við að skikka aðrar stofnanir til að skera niður og endurskipuleggja starfsemi sína og stjórnmálamenn ættu að gleðjast yfir því að þeir fái nú loksins tækifæri til að sýna okkur hinum hvernig á að gera þetta.

Balzac
07.10 2009 kl.13:46

Mannréttindaráðuneytið?

Hmm.

Kafka?

Nei.

Orville?

Nei.

Félagslegur réttrúnaður vinstri geita.

hlín
07.10 2009 kl.13:51

Kirkjumálaráðuneyti?
Hmmm

Dan Brown?

Nei.

Stephen King?

Nei.

Trúarleg stjórnsemi hægri bavíana?

Bjarni
07.10 2009 kl.13:54

Var það ekki Björn sem lét loka Mannréttindastofu Íslands – veit ekki betur. Tel hann ekki hafa hugmynd um hvað mannréttindi eru svo best væri fyrir hann að vera ekki að tjá sig. Dómsmál og mannréttindi voru aldrei neitt sem honum var hgleikið – bara sérsveit löggunar.
Hafi hann skömm fyrir léleg ráðherrastörf sín.

bori-gor
07.10 2009 kl.14:02

Ég er ekki alveg að skilja þessa tilvísun á heimasíðu Björns? Ertu að visa í eitthvað undir rós?

Halldór Á
07.10 2009 kl.14:03

Þetta er alveg rétt hjá Birni – orðið mannréttindi er of gildishlaðið. Nöfn á ráðuneytum eiga að vera almenn um starfsemina sem heyrrir undir þau, en ekki um markmið starfsins eða einhver háleit sjónarmið.

Ef fólki finnst í lagi að tala um mannréttindaráðuneyti, þá má alveg eins tala um:

Frelsisráðuneytið.

Sanngirnisráðuneytið.

Verðmætaráðuneytið.

Óspilltrar-náttúru-ráðuneytið.

Göfuglyndisráðuneytið.

En kannski er tími kominn til að gefa sumum ráðuneytum sterkari vísbendingar um hver markmið þeirra eru. Það á nú fyrst og fremst við um ráðuneytin sem Jón Bjarnason stýrir. Þau eru:

Bændaverndarráðuneytið og Sægreifaþjónkunarráðuneytið.

Sigmundur Guðmundsson stærðfræðingur
07.10 2009 kl.14:04

Frami Björns Bjarnasonar er eitthvert besta dæmið um spillingarkerfið íslenska.

Hefði hann ekki verið sonur fyrrverandi forystumanns Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra hefði hann aldrei sjálfur orðið ráðherra.

Björn var einn helsti skósveinn Davíðs Oddssonar. Davíð misnotaði Björn til þess að koma að sér hagstæðum einstaklingum innan dómskerfisins.

Náfrændinn, bridsfélaginn og einkasonurinn !!!!

Þetta er ein helsta ástæða þess að almenningur ber ekki traust til dómskerfisins.

Rósa
07.10 2009 kl.14:08

Þetta er alveg rétt hjá Birni.

Prófið að googla department of human rights eða ministry of human rights.

Slíkt ráðuneyti er að vísu til í Pakistan. Það fer vel á því að öfgamenn hér fetji í fótspor Pakistana.

Sem stjórnardeildir eða departments er þetta einkum notað um undirdeildir í ríkjum Bandaríkjanna.

Það fer líka vel á því að íslenskir kommúnistar sæki fyrirmynd sína til Bandaríkjanna þegar mannrétindi eru annars vegar.

Ótrúlega er það annars hallærislegt þetta rétthugsandi lið sem nú veður uppi hér á landi.

Ekki þar fyrir. Það er sjálfsagt að henda ríkiskirkjunni út úr þessu ráðuneyti og helst stjórnkerfinu öllu.

Héðinn Björnsson
07.10 2009 kl.14:16

Eðlilegast að sameina öll ráðuneyti stjórnsýslunnar, þ.e. forsætis-, dómsmála-, umhverfismála- og utanríkisráðuneyti.

GH
07.10 2009 kl.14:20

Og er ‘Dómsmálaráðuneyti’ ekki gildishlaðið, þar sem við erum með 63 manneskjur í vinnu við að breyta því hvað telst til dómsmála eftir behag?

Svo ekki sé talað um kirkjuna, hví er sérstakt ráðuneyti um tilbeiðslu ímyndaðs vins (3=1!) sumra í þjóðfélaginu? Það hefur sannarlega gildi. Ætti kannski að heita trúmálaráðuneyti, en við þurfum ekki að hugsa um það þar sem miklu merkari gildi (!) eru komin í nafn ráðuneytisins en sjálfsvorkunn á sunnudögum.

Balzac
07.10 2009 kl.14:22

@Hlín: ,,Trúarleg stjórnsemi hægri bavíana?“

Það er spurning ;)

En kirkjan er engu að síður mikilfengleg og mikilvæg arfleifð margra þjóða – þar á meðal okkar – og óþarfi að hrófla við vallgrónum nafngiftum þótt áttin standi svona og hinsegin á vindhanann þennan daginn.

Ugglaust má segja það sama um mannréttindin.

Þá er að stofna um þau ráðuneyti.

LogicSociety
07.10 2009 kl.14:24

Þú kvartar yfir Birni Egill,

en vilt ekki ræða hvernig vinstriflokkarnir eru smá saman að höggva á samskipti ríkis og kirkju.. enda væri það ekki það ekki pólítísk rétthugsandi og væri ekki hefðbundið fyrir þig..

LS.

le_magnifique
07.10 2009 kl.14:30

@ LS

Hvað er að því að „höggva á samskipti ríkis og kirkju“. Viltu útskýra það nánar ?

Hilmar
07.10 2009 kl.14:31

Hmm, mannréttindaráðuneyti????

Ég geri þá ráð fyrir að það ráðuneyti gæti mannréttinda. Og þannig ráðuneyti hlýtur að hafa forgöngu um að vinna gegn mannréttindabrotum. Ætlar mannréttindaráðherra þá sérstaklega að fylgjast með að önnur ráðuneyti gæti mannréttinda?

Ég bíð spenntur eftir því hvernig hlutverki þess verður háttað í íslensku þjóðfélagi. Ríkisstjórnin hlýtur væntanlega að þurfa að skilgreina mannréttindi út í þaula, t.d. hvort fiskveiðistjórnunarkerfið brýtur mannréttindi. Eða verður það undir ráðherranum sjálfum komið hvort hann skilgreini það sem mannréttindabrot?

Og ef ráðherra/ríkisstjórn skilgreinir að fiskveiðistjórnunarkerfið standist mannréttindi, hvað gerist þá ef t.d. mannréttindanefnd SÞ skilgreinir það sem mannréttindabrot? Gerist mannréttindaráðherra þá brotlegur við eigið álit? Hver á að rannsaka mannréttindabrot mannréttindaráðherra?

Auðvitað er þetta fyrst og fremst fíflagangur, ef ekki hrein og tær heimska.

Balzac
07.10 2009 kl.14:32

Annars væri ég sæll ef Kirkjumálaráðuneytið hefði fengið að heita Fyrirgefningar- og upprisuráðuneytið frekar en Mannréttindaráðuneytið.

Og úr því að við erum byrjuð á þessum breytingum þá mætti Forsætisráðuneytið framvegis heita Sannleiksráðuneytið.

Oft var þörf

Rósa
07.10 2009 kl.14:34

Forsætisráðuneytið ætti frekar að heita Þaulsætisráðuneytið.

Þaðan vill enginn hverfa, sama hversu óhæfur viðkoamndi hefur reynst og skaðlegur þjóð sinni.

Friðrik Tryggvason
07.10 2009 kl.14:36

Jói kl 13 25 segir
„Sama gerðist í dómsmálunum. Lögreglumenn tala vel um Björn. Hann passaði upp á sitt fólk“.

OK það var semsagt ímyndun að lögreglan hefði verið svo svelt af fjármunum árin sem Björn var dómsmálaráðherra, að þeir geta ekki mannað vaktir lengur.

Hann passar reyndar upp á sitt fólk, enda þektur fyrir að ráða syni, frændur og bridsfélaga.

Arnar H
07.10 2009 kl.14:40

Einkavæðum Dómsmálaráðaneytið……

Ahh, – búið að því.

Balzac
07.10 2009 kl.14:49

@Hilmar: ,,Auðvitað er þetta fyrst og fremst fíflagangur, ef ekki hrein og tær heimska.“

Minnir á þær sem vildu afnema orðið ráðherra vegna þess að kona gæti ekki verið herra.

En þá getur kona af sömu ástæðum ekki heldur verið séra.

Eigum við þá að afnema það orð líka?

Eða eigum við kannski að hætta þessum fíflagangi?

Nói Nóason
07.10 2009 kl.14:52

Af hverju var þá ekki farið alla leið og dómsmálaráðuneytið nefnt réttlætismálaráðuneytið? Eða sjá þá kannski allir hvers kyns er?

erasmus
07.10 2009 kl.14:53

Það er íhugunarefni að á flestum tungumálum eru systurstofnanir „dómsmálaráðuneytisins kallaðar ráðuneyti réttlætis!! – Ministry of Justice t.d. á ensku.

Ráðuneyti RÉTTLÆTIS- OG MANNRÉTTINDA er ráðuneyti sem við höfum brýna þörf fyrir.

Balzac
07.10 2009 kl.14:58

Ministry of Justice merkir

Ráðuneyti réttvísinnar.

Ekki réttlætisins.

Guðrún
07.10 2009 kl.15:05

Segir allt um tiltrú hans á dómskerfi og tilgangi íslenska dómskerfisins.
Ráðningar í stöður þar hafa ekki farið fram hjá þjóðinni. Héraðsdómur Reykjavíkur hefur margsinnis dæmt undarlega í alvarlegum mannréttinda málum og hæstiréttur þurft að lagfæra skömmina .

Telemakkos
07.10 2009 kl.15:24

Réttvísi er alls ekki samsvörun „justice“, til þess hefur orðið réttvísi of þrönga lagatæknilega eða „lagaframkvæmdalega“ merkingu..

„Réttlætis- og mannréttindaráðuneytið“ hljómar eins níunda Beethovens í eyrum okkar pólitískt réttþenkjandi Evrópusinna…

erasmus
07.10 2009 kl.15:38

Já, réttlæti er sennilega of hátt gripið fyrir okkur aumingjana hér á skerinu – enda sýnir saga dómsmálaráðuneytisins að það ráðuneyti hefur, hingað til, borið nafn með rentu – og dyggilega þjónað valdstjórninni gegn borgurum þessa lands.

kristján þórðarson
07.10 2009 kl.15:50

útlendingastofa fer kanski að taka sig á

Hörður Ágústsson
07.10 2009 kl.15:55

arrrrrrg…… trúmál eru svo last year

trú á að vera val einstakling, ekki troðið ofan í kok þeirr af hálfu ríkisins

hversu margir hugsið þið að séu skráðir í þjóðkirkjuna en hafa ekki hugmynd um að þeir geta látið peninginn frekar renna til Háskóla Íslands?

gp
07.10 2009 kl.16:53

Björn hefur rétt fyrir sér: Mannréttindaheitið er ofnotað í alls konar samhengi til þess að slá á skynsamlegar umræður. Þannig er þetta orðið og stundum virðist manni þetta orð vera eins konar endastöð í kröfusamfélginu. Vinstri menn og villuráfandi feministar eru auðvitað duglegastir við þetta og misnota hugtakið oftast sjálfum sér til framdráttar.

Balzac
07.10 2009 kl.17:46

(Telemakkos) ,,Réttvísi er alls ekki samsvörun “justice”, til þess hefur orðið réttvísi of þrönga lagatæknilega eða “lagaframkvæmdalega” merkingu.“

Í samhenginu „Ministry of Justice“ hefur orðið „justice“ einmitt þá ,,lagaframkvæmdalegu“ merkingu sem orðið ,,réttvísi“ felur í sér.

Samanber ráðuneyti ,,Dómsmála.“

En í öðru samhengi hefur orðið „justice“ bersýnilega talsvert víðtækari merkingu.

Samanber:

„And the word of the LORD came again to Zechariah: ‘This is what the LORD Almighty says: ‘Administer true justice; show mercy and compassion to one another.’ “

Hún er jafnvel of víðtæk fyrir ,,Dóms- og kirkjumálaráðuneytið.“

hjh
07.10 2009 kl.18:24

Það hefur lengi verið ljóst að Björn Bjarnason hefur stækan ýmigust á hugtakinu „mannréttindi“ og öllu sem það stendur fyrir.

Theódór Norðkvist
07.10 2009 kl.18:30

Það kemur mér mest á óvart að fólk lesi heimasíðu Björns Bjarnasonar. Hættum að gefa hrunhönnuðunum athygli. Þá hætta þeir að fitna.

Dr. Hnífur
07.10 2009 kl.18:52

Já, hver veit nema einhver fari að túlka orðið „mannréttindi“ sem …. mannréttindi. Ekki viljum við það.

Gagarýnir
07.10 2009 kl.19:15

Nú verð ég að vera pínu sammála BB. Nafnbreyting er pópulismi. Getur ekki ráðuneytið séð um málaflokkinn mannréttindi og heitð samt Dóms og kirkjumálaráðuneyti. Það breytist fyrst við aðskilnað ríkis og kirkju. þá getur það bara heitið Dómsmálaráðuneyti. Er ekki Réttlæti annars ansi gildishlaðið sbr.:
http://www.usdoj.gov/

Tóta
07.10 2009 kl.19:18

mannréttindi , ?????

Vignir
07.10 2009 kl.20:02

Gildishlaðin ?

http://www.bb.is/Pages/82?NewsID=21329
Frambjóðandi Vinstri Grænna telur frían leikskóla „sjálfsögð mannréttindi“.

http://www.valdimar.is/?i=3&b=23,55&offset=&offsetplace=&expand=
Frambjóðandi framsóknarflokksins telur háhraðatengingu „sjálfsögð mannréttindi“

http://www.evropa.is/2009/05/11/me%C3%B0-hr%C3%A6%C3%B0sluna-a%C3%B0-vopni/
Stjórnarmaður Evrópusamtakanna telur stöðugur gjaldmiðill „sjálfsögð mannréttindi“

Elfa Jóns
07.10 2009 kl.20:47

Ég er sammála Birni um að orðið mannréttindi er gildishlaðið … en mig undrar stórum að honum finnist orðið dómur ekki að sama skapi gildishlaðið … og þar af leiðandi afar óheppilegt sem ráðuneytisheiti.

Við ættum því fyrst og fremst að vera að hugsa um að endurskýra Dómsmálaráðuneytið … það heiti gengur auðvitað ekki í nútímasamfélagi.

Snæbjörn
08.10 2009 kl.00:01

Alveg rétt hjá BB.

Þetta er ekkert annað en asnalegur gallopismi sem vinstri menn eru svo hrifnir af..þvílíkt rugl og vitleysa.
Mannréttindi eru vernduð í stjórnarskrá lýðveldisins og með aðild að mennréttindasáttmála evrópu sem tók lagalegt gildi 1994 í tíð Foringjans.
Í tíð foringjans voru mannréttindarákvæði lögfest en frekar í stjórnarskránni sjálfri.

Flestir hafa ekki skilning á þessu hugtaki frá lagalegu sjónarhorni, sérstaklega ekki vinstri menn sem finnst allt vera mannréttindi sama hvað það kostar þjóðfélagið til langs tíma.

Móvinda
08.10 2009 kl.01:17

Síðan hvenær hefur BB talað fyrir „Mannréttindum“ ???

Hann myndi ekki einu sinni skilja hvað væri verið að segja við hann um þann málaflokk, þó efnið væri matað ofan í hann eins og hann hefði skilið heilann eftir heima…

Baldur
08.10 2009 kl.14:53

Hvað á þá að kalla mannréttindadómstólinn?

Eigum við kannski að hætt að dæma í málum þar sem mannréttindi eru brotin, vegna þess að mannréttindi eru huglæg, hugtakið gildishlaðið?

Eru mannréttindi ekki frekar vel skilgreind í mannréttindasáttmálanum, og í stjórnarskránni?

Hvað er þá gildishlaðið við það hugtak?

Og fyrirgefið, en smá tilvitnun í komment hérna tekin af handahófi, alveg ótengt mannréttindum.

„Þetta er ekkert annað en asnalegur gallopismi sem vinstri menn eru svo hrifnir af..þvílíkt rugl og vitleysa.“

og aftur

„Flestir hafa ekki skilning á þessu hugtaki frá lagalegu sjónarhorni, sérstaklega ekki vinstri menn sem finnst allt vera mannréttindi sama hvað það kostar þjóðfélagið til langs tíma.“

Eru þá allir vinstri menn eins glataðir hvað þetta varðar, og allir hægri menn frábærir öðlingar, viskan uppmáluð? Getur ekki sumt verið talið til mannréttinda þó það sé þjóðfélaginu dýrt til langs tíma? Á í alvöru að setja verðmiða á mannréttindi?

Þar fyrir utan er ég sammála um að oft sé farið frjálslega með hugtakið, en efast um að snæbirni sé stætt á því að fullyrða nokkuð um að vinstrimenn séu gjarnari á það en aðrir.

Síðasti eftirlifandi Kaldastríðsmaðurinn fundinn « Það jafnast ekkert tan á við Kjar-Tan
27.10 2009 kl.16:56

[...] Björn Bjarnason, manninum sem finnst orðið “mannréttindi” of gildishlaðið, er lifandi sönnun þess að eplið fellur sjaldan langt frá eikinni. Faðir hans var duglegur [...]

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

 


Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar