Sendu Agli póst
silfuregils@eyjan.is
26.05 2009 - 48 ummæli »

Í Frans

Ég er á ferðalagi í Frakklandi – þar sem ég í morgun sat m.a. fund með stórmerkilegum fyrrverandi forsætisráðherra, Michel Rocard – og verð ekki sérlega virkur hér á vefnum næstu daga.

48 ummæli

Rita ummæli

Jens
26.05 2009 kl.16:22

Þetta er allt í lagi, við lifum það örugglega af. Passaðu þig bara að vera ekki of lengi í burtu, þú gætir gleymst – eins og einhver Davíð sem var einhverntíma með einhverja útvarpsþætti.

Roy
26.05 2009 kl.16:23

Agalegur völlur er á mönnum, bara í Frans eins og Bjöggi Thor, varstu ekki í fríi bara fyrir svona 6 vikum? Það er ekkert slegið af í kreppunni!

Rósa
26.05 2009 kl.16:30

Við treystum því að þú fylgist samt með og komir ef allt fer í bál og brand (enn frekar). En farðu vel með þig og njóttu.

SH
26.05 2009 kl.16:43

Gj.m. kaup sala
EUR 176,70 177,90
USD 126,23 127,09
GBP 201,21 202,93
JPY 1,3343 1,3437
DKK 23,7260 23,9060
CHF 116,66 117,54
GVT 229,73 230,38
______________________—

Gættu að veskinu!

Lesandi
26.05 2009 kl.16:47

Þú hefur staðið þig vel í vetur og átt skilið að verðlauna sjálfan þig – t.d. með því að skella þér á þennan veitingastað: http://www.lecambodge.fr/

VV
26.05 2009 kl.16:56

Þegar Rocard vildi að Mitterand hleypti sér að sem formanni flokksins, talaði hann af mikilli fyrirlitningu um ellilífeyrispólitíkusa sem væru bara að flækjast fyrir yngra fólki.

Ætli hann hafi skipt um skoðun?

anna benkovic
26.05 2009 kl.17:21

Góða ferð!!! :-)

Ásta B
26.05 2009 kl.17:22

Es
Í fyrsta sinn sem ég kom til Parísar fór ég einmitt á þennan stað sem þú talar um. Namm, namm en þá var krónan viðráðanleg og við gátum keypt okkur forrétt, aðalrétt og desert án vandkvæða.
Nú skilst mér að kaffibollinn nú eða bjórglasið slagi hátt í 1000 kr.

Njóttu blíðunnar í Frakklandi Egill :)

runa
26.05 2009 kl.17:36

Hafðu það huggulegt, gleymdu okkur samt ekki alveg

HG
26.05 2009 kl.18:07

Ef ég væri þú þá hefði ég vit á því að koma ekki aftur ; )

bið að heilsa Evu Joly !

GHG
26.05 2009 kl.18:13

Hafðu það gott í Frans og kondu svo aftur endurnærður. Ekki veitir af að halda vöku allra.

Arne
26.05 2009 kl.18:44

„Ég er á ferðalagi í Frakklandi – þar sem ég í morgun sat m.a. fund með stórmerkilegum fyrrverandi forsætisráðherra, Michel Rocard…“

… já, og hvað?

Arinbjörn Kúld
26.05 2009 kl.21:15

Góða ferð Egill. Hlökkum til að fá þig aftur.

BORGARI
26.05 2009 kl.21:26

Nú tíðkast in breiðu spjótin þykir mér.
Hvað var á boðstólum? Eiqua croiassandi vona je.

haukur kristinsson
26.05 2009 kl.21:30

held að sumir séu ofaldir á launum, ertu ekki nýlega komin frá greece? sýnist þessi kreppa sem þú tönglast endalaust á sé ekki að bitna á þér, en skemmtu þér vel ríkisstarfsmaður

Jobbarinn
26.05 2009 kl.21:34

Egill þú ert snillingur

Stefán Mörk
26.05 2009 kl.21:49

Megi ljósið lýsa þér og þínum hvar sem þú ferð !

Lovísa
26.05 2009 kl.23:33

bon voyage :) Uppá íslenskuna!

Askur
26.05 2009 kl.23:37

Ágætt að frá frí frá Agli.

Ouroboros
26.05 2009 kl.23:49

Frakkland er áhugavert. Frakkarnir … ekki.

SB
26.05 2009 kl.23:55

Voðalega eru mörg fúl komment hérna og beisk.

Fínt að þú sért í Frakklandi, æðislegt land. Hlustaðu ekki á þessar fýlutruntur hérna, sem eru æði margar.

Mæli með að þú reynir bara að finna þér vinnu þarna og flytja út. Hérna er allt að fara til helvítis held ég endanlega.

Au revoir.

Strandaglópur
27.05 2009 kl.00:36

Já SB – þú hefur rétt fyrir þér – þetta er endanlega á leið til helvítis:

Nú berast fréttir af því að Icesavenefndin ætlar að loka málinu í fundarispu 2-4 júní. Þeir ætla sér að treysta á mat einhvers bresks endurskoðunarfyrirtækis sem metur eignirnar í Bretlandi þannig að ekki standi eftir nema max 150 milljarðar! En það er ekki meiningin að afhenda bretum þessar eignir upp í skuldina heldur ætlar ríkið að forvalta þetta og selja á næstu 7 árum!!

Ég spyr; ef eignirnar á móti skuldinni eru svona mikils virði, hvers vegna taka bretar þær ekki uppí nú þegar? Ætlum við að taka sjensinn á að þær haldi verðgildi sínu? Er hægt að treysta á það? Þýðir þetta ekki að Bretar eru með óútfyllta ávísun frá okkur?
Hvernig má það vera að þetta mál er ekki rætt í þinginu og í fjölmiðlum? Getur verið að stjórnvöld séu að láta undan þrýstingi ESB (sem neiti að ræða við okkur nema þetta mál verði gert upp – að kröfu Breta) og IMF (sem vilji ekki borga út lánið nema þetta verði gert upp – að kröfu Breta)?

JP
27.05 2009 kl.01:18

Var í París fyrir tveimur árum og þurfti að borga 12 evrur fyrir bjórglas sem var afgreit með fýlu og snúðugheitum, á la París.
Þannig að ég öfunda þig ekki af því að vera þar núna þegar evran kostar talsvert meira.
Þá held ég sé betra að sitja bara hér heima í sólinni, panta sér öllara, reikna svo verðið yfir í evrur og sjá hvað maður er að stórgræða…

Jenný Stefanía
27.05 2009 kl.01:26

Sendi Agli og fjölskyldu góðar batteríshleðslukveðjur, með ósk um að hleðslan verði ánægjuleg orkurík og gefandi.

Þakka „vaktstöðuna“ á fyrra hausti, vetri og fram á vor.

Au Revoire

Haukur Kristinsson
27.05 2009 kl.03:08

Kali mera Egill.
Ummælin fyrir neðan eru ekki frá mér. Einhver hefur viljað vera sniðugur og skal hann hafa skömm fyrir.

“held að sumir séu ofaldir á launum, ertu ekki nýlega komin frá greece? sýnist þessi kreppa sem þú tönglast endalaust á sé ekki að bitna á þér, en skemmtu þér vel ríkisstarfsmaður”

Jón Ágúst
27.05 2009 kl.04:04

Kali mera Egill og góða ferð í Frans…

við rekumst kannski á hvern annan ef þú átt leið um Iraklion, en hafið þið fjölskyldan það annars sem best í sumar og við sjáumst vonandi endurnærð og fín í haust.

Lúðvík Friðriksson
27.05 2009 kl.04:10

Egill njóttu sumarfrísins og vonandi kemur þú aftur með batteríin full hlaðin!

Jenný Stefanía
27.05 2009 kl.05:16

Ummæli um ekki skammarummæli Hauks Kristinssonar:

… og sjá hvítt verður svart og svart verður hvítt.

Hvert er umræðan komin… nema til helvítis, þegar venjulegt fólk sem fæddist, lifði, og síðar deyr í þessum heimi breytist, á í ofurlaunamenn og óvini byltingar ….. fyrir það eitt …. að hafa atvinnu og lund til að slaka á og njóta lífsins, sem þegar allt kemur til alls eru SJÁLFSÖGÐ RÉTTINDI og skylda alls lifandi fólks, sem í þessum mannheimum býr.

Gleðilegt sumar!

Björg Sveinsdóttir
27.05 2009 kl.06:50

Kíkti á tengilinn um Rocard.
Rak augun sérstaklega í hugmyndir hans um „minimum welfare“.
Er það ekk einmitt það sem stjórnvöld á Íslandi -og almenningur- þurfa að gera sér grein fyrir. Hvað er lágmarksvelferð?? það þarf að skera, en hvað verður abslút að varðveita af velferðarkerfinu?

Olli
27.05 2009 kl.07:44

Frábært að vera í Frakklandi og um að gera að taka sér mjög langan og góðan tíma til að drekka í sig Frakkland og franska menningu.
Þá er er langbest að hugsa ekki um annað á meðan.

Katur
27.05 2009 kl.08:52

Viva France

Comon
27.05 2009 kl.10:27

Egill,

Það er erfitt að leiðast í Frakklandi. Matur, vín og fagrar meyjar..!

En. Fyrst þú ert nú kominn á staðinn og ert að funda með ráðamönnum.

Endilega spurðu þá hvernig þeir hafa úthlutað fiskveiðikvótum – þ.e. hverjir fá að veiða fiskinn sem Frakkar fá úthutað frá ESB, bæði í kringum Frakkland og annars staðar.

Einnig um nýliðun í franskri útgerð.

Já – og rétt þjóðarinnar til að vera í útgerð.

Þetta fyrirmyndarríki sósíalista hlýtur að hafa leyst þetta á afar sanngjarnan hátt.

Svo væri gaman að heyra sannleikann – þegar þú kemur til baka!

EHM
27.05 2009 kl.12:16

Gott að vita að elítan hefur ekki farið illa út úr hruninu.

logi
27.05 2009 kl.12:29

Þú skýtur föstum skotum á mann sem var líka í Frakklandi fyrir nokkrum dögum en auglýsir svo veru þína þar. Gefðu þér smá tíma í að útskýra fyrir mér hvað réttlætir frekar að þú sért þar en hann.

GS
27.05 2009 kl.12:37

Njóttu vel Egill. Það getur verið gaman að vera evrópubúi í frans.

Hitt er að ég sakna þín núna þegar þingið var að fullgilda þjónustutilskipun ESB með undantekningum fyrir velferðarþjónustuna.

Svíar samþykktu sömu tilskipun fyrir nokkrum árum með undantekningum fyrir velferðasviðið og atvinnumálin.

Það er búið að dæma þessar undantekningar af þeim að mestu leyti.
Þeim þykir ekki öllum varið í að vera evrópubúar í dag.

Upplýst umræða um evrópumálin gæti verið að greina þær undanþágur sem aðildalönd hafa samið um eða áskilið sér með tilliti til hvað svo varð um undanþágurnar á 10 ára tímabili í réttarkerfi ESB.

hauuuukur kristinsson
27.05 2009 kl.13:16

ég ætla nú ekkert að skammast mín fyrir að heita Haukur og vera Kristinsson, en ég skal þín vegna Haukur lengja mitt

Valdimar Vilhjálmsson
27.05 2009 kl.14:52

Njótið frísins Egill og fjölskylda og komið svo margefld til baka að taka þátt í að reisa þetta frábæra land sem við eigum upp úr erfiðleikunum.

Hér hafa komið nær eingöngu neikvæð komment og það flest frá fólki sem ekki kemur undir eigin nafni og er í því að rakka land sitt og þjóð í svaðið.

En ég segi: „Lifi Ísland“.

Uni Gíslason
27.05 2009 kl.21:54

Mæli með croissant og kaffi í morgunmat. Það er án efa besta klysja Frakka.

Eitt sinn var ég að fara í 06:30 morgunflug frá Charles de Gaulle til Barcelona með Air France, mætti eldhress á völlinn, renndi mér í gegnum öryggishliðið og kom að brottfararhliðinu rétt upp úr sex.

Það var hópur bisnessmanna að bíða á sófum hjá hliðinu, flugvöllurinn rétt að vakna, skúringarfólkið að ryksuga og sópa gólfin fyrir daginn og ekki alveg búið að opna sjoppuna ennþá.

Ég settist niður og tók að bíða eftir því að við yrðum kölluð um borð. Skömmu síðar byrjar bisnessfólkið að standa upp úr sófunum og streyma burt, ég hélt í smá stund að það væri komin tími til að fara um borð – en þá hafði bara sjoppan opnað.

Jakkafatamergðin stormaði inn í sjoppuna og ég ákvað að fylgja þeim og kaupa mér vatnsflösku. Í sjoppunni var voða lítið búið að taka fram, en fólkið þyrptist um hana miðja þar sem sver skál full af nýbökuðum croissant var í boði.

Það fór hver einasti maður burt með croissant og kaffi, ekkert annað, borðaði þetta og stormaði svo um borð í vélina. Það var ekkert annað í sjoppunni sem vakti áhuga innfæddra en þetta.

Enda croissant og kaffi bara nokkuð góður dögurður. Þó ég sé meira fyrir spánskan, ristað brauð með olíu og kaffi.

Saxi
28.05 2009 kl.00:46

Egill, haltu bara áfram til Grikklands og lif vel. Og gleymdu skerjafjóðsmóranum hér á Íslandi um stund með þínum.

Eftir frábæran fótboltaleik þar sem Börsungar urðu meistarar í kvöld
og Ferguson og félagar urðu að lúta í gras, fengum við vandaða mynd um IMF-AGS. Og einkavæðingu á TV stöðunni þinni. Sá vágestur er
mættur til Íslands eins og þú veist, hefði mátt sýna myndina fyrir tveim árum.

Minnti mig óhugnalega á bómynd sem ég sá fyrir mörgum árum.

Ísland í hlutverki fangans (saklausa) sem lendir inní STÓR krimma fangelsi.
Á fyrstadegi í sturtunum ( baðklefum) veitis að honum hópur sem langar í nýmeti. Foringinn td. Mr. Brown mælir. Wellkome to Drummenburg lover boy.

Hafðu það sem best í sumar Egill minn. Þegar þú snýrð aftur mætir þér
annað Ísland en þú kvaddir í sumarbyrjun.

IMF. Klærnar eru þegar farnar að bíta hressilega hér, burt séð hvort fólk
er í efri millistétt eða neðri eða bara með 160 þús á mánuði.
Þessir gráðugu krókudílar í IMF, vilja veð í landi ,orku, vatni,auðlindinni
kringum landið,fiskur botn og yfirborð.

VARÚÐ!!! IMF-AGS. Er Dauðinn á SKRIÐBELTUM.

GUTTI
28.05 2009 kl.00:58

Far vel Egill, Frans. Lestu bara gamla meistarann í fíinu.

Og helst í góði þjálun og missir ekki af neinu. Plús hlaða batteríin
og eiga góða daga með fjölskyldunni. Það er nauðsinlegt segir Dali Lama sem mætir á skerið í Júni.

Hvíla sig á tölvubloggi nóg að kíkja á. http://www.jonas.is
Þar er vakti allta virk eins og undangenda áratugi.

Undanrenna
28.05 2009 kl.01:02

Hvaða bull er þetta, ok það er kreppa en menn fara amk. 4. til útlanda á ári, sleppa kannski ferð no. 5

Björg F.
28.05 2009 kl.01:03

Sauver voyage de mon ami :o )

sigurður jónsson
28.05 2009 kl.01:20

Egill hefur staðið vaktina vel í vetur ekki gleyma því.

Já ég vildi ég væri sá soldáti að ég gæti tekið frí.

eða var það bara business að heyja þetta stríð.

Halldór
28.05 2009 kl.01:34

Egill hlýtur að vera snobbaðasta alþýðuhetja sem sögur fara af.

Saxi
28.05 2009 kl.02:19

Veitztu það „Egill, að ég fór út í Bakarí, um daginn og bað um Fransbrauð það var gónt á mig, líkt og ég væri að koma eða sloppinn af Kleppi eða Apaplánetu.

Allt heilhveiti eða rúgmjöl, meira að segja vínarbrauðin.

Slapp sammt út með eitt Snittubrauð mjótt og langt, það síðasta í Bakaríinu. Það reyndist svo þurrt og hart, að það var ákeðið að gefa
Bra Bra og gleðja börnin og endurnar í Laugardalnum.

Þar flutu molarnir eins og korktappar á tjörninni, og Endurnar Ulluðu á okkur að henda þessum hroða í þaug.

Gerðu okkur smá greiða meðan þú ert í Frans kondu eitthað af brauðum
hingað heim, þó að Jóhanna og Skallagrímur séu með innflutningshöft.

Við vesælir og mjóir erum líka til. Og ekki hægt að reka okkur í Pulsu
brauð á okri í BÓNUS.
Við þurfum okkar FRANSBRAUÐ með mæjonesi og Rækjum.

Mér gengur ekkert að vera feitur og pattarlegur eins og þú, meðan það
eru bora í boði Móköglar og arfi hér á skerinu.

Blöðruselur
28.05 2009 kl.02:35

Mér er illt í fésinu. Blaðran sprungin eftir að eitthver svaka,Rostungur
goggaði mig sem kallar sig IMF.

Vildi að að ég væri hjá þér í Frans þar sem mikið og gott er að eta.

Ekkert síli, loðna, eða síld komin. Er orðinn grindhoraður, þetta reddast
vonandi á næstu dögum. Enda komið sumar.

Hafðu það sem best í fríinu vinur og þitt fólk.

Kveðja, Seli

Helgi
28.05 2009 kl.12:50

Ég hef heyrt að dagarnir séu langir í Frans og næturnar jafnvel enn lengri.
Treysti á að það sé eitthvað til í því.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

 


Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar