Það sem allir spyrja:
Var ekki líka gerð húsleit á Bessastöðum vegna Al Thani málsins?
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
164 ummæli
Rita ummæli24.05 2009 kl.20:24
Slóð
Hver er staða forsetaembættisins í raun þegar svona er talað um það í samfélaginu.
Sameiningartákn þjóðarinnar?
Eða orsök sundrunar!
24.05 2009 kl.20:24
Slóð
Vinstri menn eru rasandi yfir mótmælendum á Austurvelli – kalla þá ríkar frekjur.
Vinstri menn eru rasandi yfir nafnleysi á netinu – en viðhalda bankaleyndinni.
24.05 2009 kl.20:24
Slóð
nei það er svínaflensa þar:-)
24.05 2009 kl.20:25
Slóð
Af hverju ekki ? Hver eru fjárhagsleg tengsl Ólafs Ragnars og Doritt við
vinina sem þau hafa unnið svo ötulega fyrir, ræningjana frá TORTULA
sem steiptu fjárhag ÍSLANDS í glötun. Svar óskast.
24.05 2009 kl.20:35
Slóð
Hvaða rullu lék Ólafur Ragnar í leikritinu um íslenskar orkuauðlindir og íslenskt vatn sem Össur stjórnaði í Austurlöndum nær?
Skrifuðu þeir handritið saman?
Fréttamenn vaknið og rekið úr þeim garnirnar!
24.05 2009 kl.20:36
Slóð
„Vinstri menn eru rasandi yfir nafnleysi á netinu“
Hvaða vinstri menn eru það? Ráðandi öfl?
Held að það séu aðallega ráðandi öfl hverju sinni sem er illa við nafnleysi í umræðunni – það hefur minnst með einhverja hugmyndafræði að gera.
24.05 2009 kl.20:37
Slóð
Spurning hverju fólk er bættara með svona umræðu? Hjálpar það okkur að byggja upp Ísland að eyða kröftum og kílóbætum á netinu í svona umræður. Ólafur hegðað sér eins og við vildum fram til 2008. Hann fékk fína dóma einmitt fyrir að styðja útrásina. Það bauð sig engin á móti honum nú síðast og þar sem að það er lýðræði og lög hér á landi þá er hann forseti næstu árin.
Væri nú meira vit í að menn færu að koma með lausnir og koma þeim í framkvæmd. Það eina sem heyrist nú er ESB og skuldaniðurfellingar. En umræður eins og hjá hugmyndaráðuneytinu þar sem menn eru að leita að tækifærum, þær kafna allar í umræðu þar sem fólk vill að ríkið felli niður skuldir. Það er ekki verið að hugsa um hvernig við komumst út úr 70 milljarða halla á fjárlögum eða sköffum ný atvinnutækifæri. Helst vil fólk eyða orkunni í að taka einhverja af lífi næstu mánuði.
24.05 2009 kl.20:37
Slóð
Það eru einhvern veginn öll vígi að falla. Að sjálfsögðu á Forseti þjóðarinnar að gera skil á sínum málum.
24.05 2009 kl.20:38
Slóð
Húsleit á Bessastöðum?
Leita að hverju?
Fjölmiðlafrumvarpinu?
Skítlegu eðli?
Hvað er að finna á Bessastöðum?
24.05 2009 kl.20:41
Slóð
Egill enn og aftur fyrir neðan belti.
LS.
24.05 2009 kl.20:42
Slóð
Þetta er FOX taktík.
24.05 2009 kl.20:42
Slóð
Fréttamenn 365 og annara miðla í eigu JÁJ eru ekki sofandi.
Þeir eru með bundið fyrir hendur og augu.
Var það ekki Dorrit sem sat með JÁJ í þotunni forðum.
Gleymi aldrei myndinni sem mbl birti. Þotann fullbúinn til ferðar.
Allt var að hrynja hér heim og JÁJ var á leiðinni til útlanda.
Kom reyndar aftur með Philp Greed .til að reyna að kaupa Baug á slikk.
Kannaðist ekkert við Tortola hjá Agli.
Mikið vatn runnið til sjávar síðan.
24.05 2009 kl.20:44
Slóð
Verndari útrásarinnar gerðist verndari vinstri stjórnarinnar og tryggði sér þar með friðhelgi.
Mér skilst að næsta forsetabifreið verði mórauð Volvo Amazon ‘69 árgerð með blæju.
Tækifærissinni dauðans!
24.05 2009 kl.20:49
Slóð
Allir? Nei ekki ég.
Ég skil ekki tenginguna… einhver?
24.05 2009 kl.20:52
Slóð
Eini maðurinn hér sem ver þetta er samfylkingarmaðurin Magnús. Segir allt sem segja þarf. Útrásarvíkingarnir eru bestu vinir samfylkingarinnar. Alveg eins og forsetinn. Núna má ekki anda á þetta lið.
24.05 2009 kl.20:52
Slóð
http://english.forseti.is/Index/Pictures/Katar08/
24.05 2009 kl.20:52
Slóð
Þessi eitraði vinstri sveppur á baugssatöðum mun aldrei svara
til um sinn þátt í hruninu, sem er þó eftir allt saman talsverður.
En það gætu fundist leifar af fjölmiðlafrumvarpinu sem hann að kröfu
baugs neitaði að skrifa undir…..
24.05 2009 kl.20:57
Slóð
EGILL
Þó ég sé ekki í aðdáendahópi Ólafs Ragnars og vil reyndar losna við mannkertið, þá verðurðu að gera hreint fyrir þínum eigin dyrum þegar þú setur svona færslu inn.
Hvað ertu með í bakhöndinni? Ekkert? Þá ertu ekki mikill bógur.
Annars verðurðu að leggja spilin á borðið…
24.05 2009 kl.20:57
Slóð
Að sjálfsögðu á að draga Ólaf Ragnar Grímsson fyrir alþýðudómstólinn sem verður settur á laggirnar til að tryggja að réttlætinu verði fullnægt.
Reyndar er búið að breyta lögunum sem helst hefði verið hægt að dæma hann eftir.
Vændi er orðið löglegt.
24.05 2009 kl.21:06
Slóð
Án þess að ég ætli að svara fyrir Egill, erlendur. En er þetta http://english.forseti.is/Index/Pictures/Katar08/
ekki nóg til að fólk megi varpa fram spurningu um hvort ekki sé ástæða til að leita á Bessastöðum líka?
Hvað voru Össur og Ólafur Ragnar að þvælast með bankamönnum í „viðskiptaerindum“ í Austurlöndum nær án þess að fram færi upplýst umræða á Íslandi um að þeir væru að „selja“ íslenskar auðlindir eða „selja aðgang að þeim“ eða „selja nýtingarrétinn á þeim“. Hvað voru þeir Össur og Ólafur Ragnar að þvælast þarna og hverra erinda gengu þeir?
Bankinn og einkaskuldir eigendann steyptust síðan yfir þjóðina. Ég hefði nú haldið að þetta nægði fyrir húsleit.
24.05 2009 kl.21:09
Slóð
„Það sem allir spyrja“?
Ég hef ekki heyrt neinn spyrja að þessu nema Egil nokkurn Helgason.
24.05 2009 kl.21:13
Slóð
Egill, mér fannst þetta vera frekar ósmekklegt hjá þér, og kalla ég nú ekki allt ömmu mína. Ég hef hvergi heyrt þetta nema hjá þér.
24.05 2009 kl.21:20
Slóð
Er til memo eða samningur í Iðnaðarráðuneyti um það sem fram fór á fundinum fræga? Um hvað átti samvinna landana að fjalla?
24.05 2009 kl.21:22
Slóð
Egill, skammastu þín fyrir að vera að hræra í þeim forarpytti sem þú veist að hlutar af blogginu eru. Hefur greinilega hitt fyrir allmarga sveitarhálfvita, sbr. athugasemdir hérna fyrir ofan.
Dylgjað geturðu um einstaklinga. En það er betra að hafa eitthvað haldgott fyrir athugasemdum sem þú gerir um æðsta embætti þjóðarinnar.
Ég vona að þú gerir annað tveggja, að rökstyðja þessar dylgjur þínar eða biðjast afsökunar á að hafa móbíliserað skríl gegn embæti forsetans með athugasemd þinni.
24.05 2009 kl.21:23
Slóð
Um Egil verður sagt þegar frá líður, að enginn frýr honum vits en meir er hann grunaður em græsku. Kemur oft fram með ótrúlegustu fullyrðingar og menn hljóta að spyrja um hvað búi að baki.
Er þetta liður í markaðssetningu Eyjunnar eða einfaldlega prakkaraskapur þess sem nýtur þess að æsa lýðinn?
Hvort heldur er þá tekst ætlunarverkið prýðilega. Eyjan nýtur vinsælda og reynslan hefur sýnt að auðvelt er að draga fram allt það versta í þjóðarsálinni og sést það best af ómálefnalegum og rætnum athugasemdunum. En kannski liggja mannúðarástæður að baki því að einhvers staðar verða ritsóðar að fá útrás og tappa af sér geðvonskunni.
24.05 2009 kl.21:24
Slóð
Magnús, hugmyndaráðuneytið er góðra gjalda vert … það þýðir ekki að það eigi ekki að fella niður skuldir … það þarf að leiðrétta lánin! Það þarf að gefa fólki tækifæri svo það geti staðið í skilum! Fólk er reitt og það er eðlilegt að fólk sem lendir í áföllum finni fyrir reiði. Reiði er í raun sama tilfinning og ótti! Kannski vantar þig smá samkennd Magnús! Samkennd er ekki þannig að hún beinist að fáum eins og t.d. einum forseta nei … samkennd beinist að öllu!
24.05 2009 kl.21:27
Slóð
það virðist vera skipulagður hópur sem mætir á öll blogg og alla vefi
og byrjar að verja glæpamennina, og reyndar líka fosssetan á
baugsstöðum….ef einhver óþægileg comment eða spurningar
vakna…… skrýtið.
24.05 2009 kl.21:29
Slóð
Mér finnst gleymast nokkuð mikilvægt í þessu öllu saman. Það er þáttur samfylkingarfólks. Við vitum hverjir einkavæddu bankanna og létu fólk úr sínum röðum hafa þá. Af hverju er ekki talað um í þessu samhengi um hverjir fóru með útrásarvíkingunum og bankaliðinu í ímyndarherferðirnar?
Hvernig stendur á því að einn flokkur sleppur frá fjölmiðlunum vegna mjög lélegrar frammistöðu í ráðuneytum viðskipta- , iðnaðar- og utanríkis? Við vitum að forsetinn var í fararbroddi og þessir ráðherrar ferðuðust með einkaþotum þessa liðs. Það eru til myndir af þessu sem sanna þetta.
Af hverju gat JÁJ kallað ráðherra viðskipta inn á teppið til sín um miðja nótt? Hversu miklu stjórnaði forsetinn raunverulega í framvarðasveit Samfylkingarinnar? Allt þetta lið í ráðherrastólunum er hvítþvegið við það eitt að heilög Jóhanna settist í forsætið og hinir allir halda áfram fyrir utan einn ráðherra sem hætti af heilsufarsástæðum.
24.05 2009 kl.21:30
Slóð
Egill,
Ólafur Ragnar hefur aldrei á ævinni verið sameiningartákn. Hann byrjar ekki á því úr þessu.
Hann var að gera vinnuna sína eins og hann trúði að hún væri. Að styðja við útrás íslenskra fyrirtækja.
Ekkert ljótt við það.
Að neita að staðfesta fjölmiðlafrumvarpið – mun í fyllingu tímans vera álitin mestu mistök íslensks forseta.
24.05 2009 kl.21:34
Slóð
Höskuldur !
Þó að ég hafi viðurkennt að hafa kosið Samfylkingu þá frábið ég mér að orð mín séu ávallt tengd við skoðun flokksins. Ég tala fyrir mína hönd og ekki annarra enda held ég að Samfylkingn sækist ekki sérstaklega eftir minni skoðun.
Ég minni líka á að Ólafur var í Alþýðubandalaginu!
Ég er aftur á því að við græðum ekkert á því að láta eins og við látum í dag. Í dag heyrði ég í útvarpi að meira að segja alþingismenn eru að tala um óhæfa embættismenn, menn gera lítið úr forsetanum, menn keppast við að gera alla bankastarfsmenn að glæpamönnum og sem sagt allt til þess að enginn hafi trú á að neinn hér á landi sé hæfur til þess að vinna að því að koma okkur út úr þessari kreppu.
Menn grípa helst til þess að trúa mönnum sem boða að útlendingar fangni því að við afskrifum hluta af eignum þeirra og það sé ekkert mál. Minni hinsvegar á að þeir messíasar sem það boða hafa aldrei sjálfir samið vð þessar risa banka sjálfir. Skv. því sem ég heyrði í dag eru kröfuhafar bankana 20 risa bankar sem eru með þeim stærstu í heiminum.
En hér á landi eru allir í því að hér verði bara allt í lagi ef við rekum nógu marga og helst forsetan líka. Við losum okkur við alla sem eitthvað kunna og setjum hverja í staðinn?
Og svo helst að ruppa bara rannsóknum af varðandi þá sem hugsanlega eru sekir jafnvel þó að flýtirinn verði til þess að engin verði dæmdur skv. lögum.
En ég sé ekki hvernig þetta kemur okkur út úr kreppunni.
24.05 2009 kl.21:48
Slóð
Eða á heimilum hans erlendis????
24.05 2009 kl.21:48
Slóð
Rólegur Egill. Mæli einnig með að það sé gerð húsleit hjá Agli, til að kanna hvað liggur að baki hans máli og misglannalegum yfirlýsingum. Er ekki viss um að þær séu allir uppbyggilegar og það besta sem þjóðin þarf núna.
24.05 2009 kl.21:49
Slóð
Þetta er mjög ómálefnalegt hjá Agli, ótrúlega ómerkilegt…
Eða er Hólmsteinn farinn að skrifa undir nafni Egils?
24.05 2009 kl.21:51
Slóð
Það þarf ekkert að biðja Egil um að vera rólegan. Við erum mjög mörg í þessu landi sem erum mjög, mjög pirruð og reið yfir þessu öllu saman. Þessir flokkar eru ekki að standa sig gagnvart almenningi, það er verið að verja þetta fólk og fjármagnseigendur.
24.05 2009 kl.21:52
Slóð
Best að slaka soldið á held eg. Fólk má nú ekki alveg missa sig. Er það ekki þetta sem sumt fólk á íslandi vill. Samningar hingað og þangað – jafnvel fríverslun við Kína. Þeir voru að skrifa undir þetta þeir össur:
After the meeting HH the Emir and the Iceland president attended the signing of an economic, trade and technical co-operation agreement between the State of Qatar and the Republic of Iceland and a memorandum of understanding providing for co-operation between the two countries in the tourism sector. The agreement and memorandum of understanding were signed by HE Yousef Hussein Kamal and Iceland Industry Minister Ossur Skarphedinsson. Later, HH the Emir hosted a luncheon banquet in honour of the visiting president and the accompanying delegation. Grimsson and his wife Dorrit Moussaief visited Education City yesterday morning.
http://www.qatarembassy.or.th/news/inter_content_0015.htm
24.05 2009 kl.21:55
Slóð
Jæja Ingi,
ert þú kannski tilbúinn til að ritskoða Egil.
Hljómar svollítið „gúlag“ legt.
Höfum fengið nóg af „fallegum“ ummælum um
hina og þessa.
Ritskoðun er ekki leiðin út úr þessu.
24.05 2009 kl.21:58
Slóð
Hvað er óeðlilegt að spurt sé um. Forsetinn fylgdi ´þessum pótentátum til Katar og víðar !
Forseti þjóðar þarf að vera hafinn yfir allar getgátur !
24.05 2009 kl.21:59
Slóð
Olafur er ekki heilagur og madurinn er buin mæra thetta utrasarrugl og verdlauna menn ( eg veit nu eiginlega ekki fyrir hvad) fyrir ad ræna landann. Domgreindarleysi hans var algjort , en hann a vera sameignartakn landsins en ekki einhvur gruppy fyrir einhvurra stormskergarga….
24.05 2009 kl.22:05
Slóð
JÓHANNES gunga sem þorir eki að skrifa undir fullu nafni.
Ég er þessi skríll sem spyr vafasamra spurninga um Össur og Óla grís´.
Hann kallaði mig reyndar heiðarlegan og einlægan vinstrimann í sjónvarpi
þegar það hentaði honum sem formanni Alþýðubandamurlagsins, að
sjómaður sem ég var hjálpaði flokksræskninu hanns. Þú hefur ekki
hundsvit né gáfur til að skilja hvernig Össur og Óli grís hafa leikið tveimur
skjöldum til að koma sér þar sem þeir eru nú um stundir. En það styttist
í það að augu fólks opnist og breytingar verði.
24.05 2009 kl.22:06
Slóð
Ég vísa í ummæli Ólafs Ragnars í nýjársræðunni þegar hann sagði að það gæti verið að hann hefði gengið of langt í að greiða götu þessara aula. Datt engum í hug að spyrja hann hvað hann ætti við? Var hann að vísa til þess hvað hann hefði oft flogið með þeim í einkaflugvélum? Var hann að vísa til þess að Dorrit hefði fjárfest í fyrirtækjum með þeim? Var hann að vísa til þess hvað hann hefði sagt á fundum með þeim sem við vitum ekki hvað er? Er eitthvað að því að kanna hver er hlutur hans í þessu hruni? Ef hann hefur ekkert að fela þá vitum við það. En hann er ekki hafinn yfir vafa.
24.05 2009 kl.22:08
Slóð
ÓRG hefur aldrei verið sameiningartákn Íslendinga og verður aldrei að kjósa eins umdeildan mann eins og hann sem forseta var skandall.Maður sem verðlaunaði og mærði útrásarvíkinga.
24.05 2009 kl.22:09
Slóð
Samfylkingin er ekki sá jafnaðarmannaflokkur sem hún áður var … í næstu kosningum sjáum við hvað er eftir af henni! Í dag hefur hún að geyma ASÍ mafíuna og þá Sjálfstæðismenn sem vildu komast sem fyrst inn í ESB! Í næstu kosningum þegar Sjálfstæðismennirnir snúa heim aftur og ekkert er eftir nema ASÍ því hinir sönnu jafnaðarmenn hafa snúið baki við flokknum þá fyrst er von til að hún verði aftur heil og höfði til heiðarlegs fólks. Núna er leikurinn að forræðishyggjunni hræðsla við hótanir ASÍ það sem stjórnar ferðinni. Tímaglasið er að klárast en því miður fattar Samfylkingin það ekki og næst er það ekki Sjálfstæðisflokkurinn sem fær reiðan almúgann í andlitið … nei það verður Samfylkingin!
24.05 2009 kl.22:10
Slóð
„Peter Schiff, der allerede i 2007 skrev en bog om, hvordan man kunne tjene penge på den kommende finanskrise, frygter, at den amerikanske nedtur kun lige er begyndt.
I et tv-interview på CNBC råder Peter Schiff investorere til at kaste alle amerikanske investeringer fra sig.
Både amerikanske aktier, obligationer og dollaren er på vej ned, mener Peter Schiff, der driver og ejer investeringselskabet Euro Pacific Capital.
Et af de væsentligste diskussionsemner i finansmedierne har de seneste dage været, om USA risikerer at miste sin AAA-kreditvurdering, som gives til de mest kreditværdige lande og virksomheder.
I Peter Schiffs objektiv har USA reelt set allerede mistet den.
Han anfører, at det i kraft af økonomiske udvikling i USA – herunder den kraftige gældssætning via massive udstedelser af statsobligationer – blot er et spørgsmål om tid, inden den amerikanske dollar mister sin status som verdens foretrukne reservevaluta.
Og når det sker, så vil dollarkursen falde ganske kraftigt, hvilket følgeligt vil sænke værdien af alle aktiver opgjort i dollars i forhold til aktiver opgjort i andre valutaer.
Peter Schiff er notorisk kendt for at være pessimistisk på vegne af den amerikanske økonomi.
Han er i visse kredse blevet ophøjet til guru-status for sin bog „Crash Proof: How to Profit From the Coming Economic Collapse“, som blev udgivet i 2007 – vel at mærke på et tidspunkt, da de færreste endnu havde en fornemmelse af, hvor galt det kunne gå i den finansielle sektor.“
http://epn.dk/investor/investering/article1702137.ece
__________________________________________
Þessi Peter Schiff skrifaði bók árið 2007 um væntanlega fjármálakrísu og hvernig hægt væri að græða á henni. Núna varar hann við að botninum sé ekki náð í USA og eigi heldur betur eftir að falla gengi dollarans. Þau fyrirtæki sem gera upp í dollar eigi að gá að sér. En þessi Peter er sagður svarsýnisgaur, en virðist hafa haft rétt fyrir sér með hrunið.
Hvað með Landsvirkjun ef dollarinn fellur? Hvernig var það með uppgjörin þar og dollarinn? Man það einhver?
24.05 2009 kl.22:14
Slóð
Því miður þá hefur Ólafur Ragnar Grímsson fyrirgert rétti sínum til að bera titilinn forseti Íslands. Harkalega orðað en satt. Hann ætti að vera maður í að segja af sér og það strax.
24.05 2009 kl.22:18
Slóð
Óli Ólafs er Framsóknarmaður þarf eitthvað að nota hinn Óla til að draga þann fyrrnefnda frá umræðunni, bara að pæla.
24.05 2009 kl.22:19
Slóð
Dóttir Ólafs Ragnars situr í stjórn Haga með bónusfjölskyldunni. Fyrir hönd hvers situr hún í stjórn hjá þeim? Á hún eða pabbi hennar eða Dorrit hlut?
24.05 2009 kl.22:21
Slóð
HG: Ég vil umfram allt draga alla þá inní þetta sem kunna að varpa ljósi á hvað gerðist hérna? Skiptir ekki máli hvaða stöðu viðkomandi gegnir. Er þér mikið í mun að passa upp á Ólaf? Getur málstaður hans ekki passað hann?
24.05 2009 kl.22:30
Slóð
HG: Ætli sá maður sé til sem vilji verja þetta fólk sem hefur farið svona að ráði sínu, þá hvorki Ólaf Ólafsson eða einhvern annan Ólaf. Við viljum réttlæti og því þarf að halda þessum málum vakandi. Það sem mér finnst hafa gerst við það að heilög Jóhanna settist í forsætið er, að allur flokkurinn varð hvítþveginn og þá aðallega hjá fjölmiðlum, þó svo að á vinnustöðum sé þetta rætt.
Fólk er ekki búið að gleyma tengingu SF við Baug, Bessastaði og flesta fjölmiðla. En ákveðin þöggun á sér stað og það sem maður óttast er, að sömu aðilar fái sömu fyrrverandi eignir, einungis búið að skera skuldirnar frá.
En með pælingu minni varðandi dollarann og Landsvirkjun, snýst það um auðlindir okkar sem við þó enn eigum á pappírum, megum ekki missa meira í hendurnar á óráðsíumönnum.
24.05 2009 kl.22:32
Slóð
Anna María;
Mér finnst alveg óþarfi að draga ÓRG ínní þetta svona fyrirfram það kemur þá bara í ljós, mér er akkúrat enginn akkur í að passa uppá ÓRG, athugaðu það að rannsóknin er rétt að BYRJA og hvorki ég, þú né nokkur annar á götunni erum til þess fallin til að dæma hann fyrirfram.
24.05 2009 kl.22:34
Slóð
Þeir srm komu að öllum samskiptum er þessa stórkostlegu svikamyllu varðar eiga strax að fá réttarstöðu sakborninga.
Svikamyllan samanstendur af nánast öllum félögum sem þessir 200 manna hópur kom að og eru nánast öll félög á Íslandi sem hægt var að draga fé útúr.
Þar með talið Ólafur og Dorrit, Sigurður Einars og ALLIR Kauðþingtsmennirnir sem komu að málinu, ásamt ‘ola í saskip ofl. ofl.
Einnig: Össur Skarphéðinsson sem tök virkann þátt í öllum miðausturlandasamningunum sem snerust um sölu á orkulindunum t.d. svo ogannars sem furstar, Sheikar, Emírar og forsetar spylltra adríkuríkja vildu kaup / stela ad alemnningi á Íslandi.
Össur situr enn í ríkistjórn og ráðherrastól ?? Er það mjög trúverðugt fyrir stjórnkerfi landsins ????
24.05 2009 kl.22:39
Slóð
Það er full ástæða til þess að spyrja um hlut samfylkingar og forsetans í útrásinni svokölluðu. Hvers vegna fara fosetinn og Össur Skarphéðinnson með 25 manna sendinefnd til Katar. Hverjir voru í þessari sendinefnd.
Hvaða umboð hafa þessir aðilar til þess að ráðskast með þjóðarauðlindir hinum megin á hnettinum?
Fjalla um þetta hér:
http://kreppan.blog.is/blog/kreppan/entry/883660/#comments
Það verður því varla sagt að Egill fjalli einn um þessar spurningar.
Það er full ástæða fyrir almenning að spyrja spurninga.
Það er jú búið að setja þjóðarbúið á hausinn.
Þeir sem settu þjóðarbúið á hausinn telja sig ekki hafa farið út fyrir velsæmismörk með því að gera það en telja hins vegar að þeir sem hafa orðið fyrir barðinu á þessari spillingu fari út fyrir velsæmismörk með því að spyrja áleitinna spurninga.
Er það lögmætt?
24.05 2009 kl.22:44
Slóð
HG: Hann er búinn að dæma sig sjálfur svo marg oft.
Ég get alveg beðið eftir niðurstöðu rannsóknarinnar. Vandamálið er að ég hef ekki hingað til séð að af rannsókn verði.
24.05 2009 kl.22:44
Slóð
PS
Tek undir með SH:
En ákveðin þöggun á sér stað og það sem maður óttast er, að sömu aðilar fái sömu fyrrverandi eignir, einungis búið að skera skuldirnar frá.
og
megum ekki missa meira í hendurnar á óráðsíumönnum.
24.05 2009 kl.22:46
Slóð
HG. Hér er enginn að dæma neinn fyrirfram. Fyrst þú notar orðalagið „að draga einhvern inn í þetta svona fyrirfram“ þá er rétt að minna á að Eva Joly sagði nauðsynlegt að kanna fjölskyldutengsl í rannsókninni.
24.05 2009 kl.22:47
Slóð
Ég vil einnig benda á að skipting einstaklinga í stjórnmálaflokka er villandi.
Það er rottugangur í öllum stjórnmálaflokkum og það þarf að hreinsa þessar afætur úr íslenskum stjórnmálum ef við eigum að eiga von á eindurreisn.
24.05 2009 kl.22:47
Slóð
Jakobína þú sérð samsæri allstaðar. Held að Ólafur Ragnar hafi ekki sett þjóðina á hausinn. Hann hefur engin völd til þess! Og það var búið að svara þessu með Katar. Hann fylgdi Össuri og hópi fjárfesta eins og tíðkast þegar verið er að skrifa undir tvíhliða viðskiptasamninga. Sbr.
„After the meeting HH the Emir and the Iceland president attended the signing of an economic, trade and technical co-operation agreement between the State of Qatar and the Republic of Iceland and a memorandum of understanding providing for co-operation between the two countries in the tourism sector. The agreement and memorandum of understanding were signed by HE Yousef Hussein Kamal and Iceland Industry Minister Ossur Skarphedinsson. Later, HH the Emir hosted a luncheon banquet in honour of the visiting president and the accompanying delegation. Grimsson and his wife Dorrit Moussaief visited Education City yesterday morning.“
24.05 2009 kl.22:48
Slóð
Miðað við umræðuna í fréttum í kvöld, kæmi mér ekkert á óvart að Samfylking sé að reyna að loka fyrir umræðuna hér á Eyjunni. Skoðanir manna hér eru víst ekki henni þóknanlegar.
Þótt sumir fara stundum yfir strikið (ég meðtalnn) þá er umræðan hér alger nauðsyn, sérstaklega þegar haft er í huga að fjölmiðlar landsins njóta fæstir nokkurs trausts meðal almennings. Sem er algerlega eðlilegt í ljósi eignarhalds og hversu algerlega þeir hafa og eru að bregðast.
Að það skuli í sumum tilfellum á annað hundrað manns tjá skoðanir sýnar hér er frábært og skipir engu þótt þær skoðanir falli ekki í kramið hjá stjórnvöldum eða menn eru stundum hvassir í gagnrýninni.
Spurning Egils á fullan rétt á sér í ljósi tengsla forsetans við þá aðila sem tengjast fréttum um Katar og í raun mætti líka velta fyrir sér tengslum aðila innan Samfylkingarinnar við þessi kaup. Samfylkingin vann ötullega að auknum samskiptum við löndin fyrir botn Persaflóa virðist ekki hafa gert miklar kröfur um viðskiptasiðferði umbjóðenda sinna frekar en fyrri daginn.
24.05 2009 kl.22:54
Slóð
Við þurfum að fá svör við svo mörgu. Hver var kostnaður þjóðarinn við framboð Ingibjargar Sólrúnar til öryggisráðsins beinn og óbeinn?
24.05 2009 kl.22:57
Slóð
Magnús Björgvinson hvernig var hægt að koma heilu þjóðarbúi á hausinn? Ég held að það hafi þurft ansi mikla samvinnu til þess.
Ég hef reyndar gaman af því að pæla í gegn um plott en sé þau alls ekki allsstaðar. Ég tel mjög líklegt að yfir 95% þjóðarinnar sé saklaus af öllu plotti en það þýðir þó ekki að plott séu ekki til.
Þeir sem taka sig saman um að svíkja auðlindir út úr þjóðinni í krafti valds síns og leyndarhyggju vilja auðvitað að orðið „samsæri“ sé bannorð (tabú) og þeir sem vísi til þess séu ekki teknir trúanlegir.
Ég held að það þurfi þó mikla grunnhyggni til þess að trúa ekki á tilvist „plotta“ eftir allt sem á undan er gengið.
Ég vil líka benda á að Eva Joly trúir líka á plott. Það að trúa á plott er auðvitað grunnforsenda fyrir því að geta varist þeim. Það er því ekki undarlegt að þeir sem taka stöðu með „plottinu“ skuli vilja þagga niður slíka umræðu.
24.05 2009 kl.22:59
Slóð
Anna María, ég hef heyrt tölur frá 600 til 1000 milljónir.
24.05 2009 kl.23:00
Slóð
Það er búin að vera svínaflensa mjög lengi á íslandi.
Skrýtið að Egill skuli núna fyrst velta uppi þætti ORG í þessum málum öllum saman?
Allir vita að hann er súkkulaðikleina á Fréttablaðinu og stöð2, þar er hann aldrei gagnrýndur, enda á hann líka eigendur miðlanna að persónulegum vinum. Búinn að hengja í þá alls kyns medalíur.
Fer ekki að verða kominn tími á að þjóðin standi upp og segi álit sitt á ORG? Er ekki að verða komið nóg af þeim manni í bili á bessa stöðum?
24.05 2009 kl.23:00
Slóð
Ég er félagshyggjusinnaður og líberal í öllu nema peningamálum (velferðarkerfið skiptir fyrst og fremst máli)
Og sem slíkur finnst mér fjarstæða að verja ÓRG. Baugsfyrirtækið Hagar hefur dóttur hans þar í stjórn, sjálfur klappaði hann öllum landráðamönnunum á bakið og tók kerlu sína með í öll þau photo op sem hann komst í og er sannkölluð klappstýra útrásarinnar.
Ég vil nýjan forseta, einhvern sem er í tengslum við fólkið í landinu, einhvern sem lítur ekki á Bessastaði sem konungshöll, einhvern sem er gæddur mun meira siðferðisþreki en fólkið á alþingi og í stjórnum fyrirtækjanna og og og…
Einhverjar hugmyndir?
24.05 2009 kl.23:04
Slóð
Jakobína.
Flott skrifað. Get ekki verið meira sammála.
Tel engann vafa leika á að hér var plottað og það af alvarlega taginu.
24.05 2009 kl.23:04
Slóð
Ólafur Ragnar Grímsson fór með embætti forseta Íslands í vafasama vegferð. Það kaus hann enginn til þess sérstaklega.
Rannsóknaraðilar hljóta að yfirheyra alla málsaðila án undantekninga – líka sölumennina.
24.05 2009 kl.23:09
Slóð
GORMUR
Get ekki verið meira sammála síðustu ummælum þínum.
24.05 2009 kl.23:09
Slóð
Jakobína: Ertu með tölur um beinan kostnað þe. 600 milljónir?
Ég myndi gjarnan vita hvort það var óbeinn kostnaður þ.e. var einhverjum lofað stuðningi eða samningi eða? Hver var heildarverðmiðinn á þessu egóflippi Ingibjargar?
24.05 2009 kl.23:10
Slóð
Það er algjörlega nauðsynlegt að fjölmiðlar eflist ef við eigum að komast út úr þessum vanda. Þar ert mikið verk óunnið.
Skera þarf á tengsl fyrirtækja og sterkra hagsmunahópa við þá.
Það að geta ekki treyst leiðandi fjölmiðlum hér á landi til að vera með eðlilega umfjöllun er afskaplega slæmt fyrir okkur öll.
Þ.e.a.s okkur sem erum hér enn á Íslandi.
Fyrir fámennan hóp sem missir við það gríðarleg ítök
í samfélaginu má líkja því við að missa
konungdæmi.
24.05 2009 kl.23:12
Slóð
Ég verð seint sögð aðdáandi núverandi Forseta Íslands.
En ég tel aðferðafræði Egils vera í anda Fox News eins og fleiri hér.
Let them deny it…
Hver ert tilgangurinn?
Meiri lestur bloggsins?
Æra óstöðuga einstaklinga og hleypa hér öllu í enn meira uppnám?
Slá sér til riddara?
Koma að gagni?
24.05 2009 kl.23:12
Slóð
Tel verulega ólíklegt að böndin berist að ÓRG meðan samfylkingin er við völd.
Þar eru fjölskylduböndin óslítanleg.
24.05 2009 kl.23:14
Slóð
ó…hvað þetta er sorglegt!…og óendanlega SPILLT!
24.05 2009 kl.23:20
Slóð
Spillti og vanhæfi forsetinn situr í boði VG og S. Ég veit ekki með ykkur en hvar sem ég kem heyri ég talað ílla um þessa ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms. Væri fróðlegt að sjá skoðanakönnun hvað fólk myndi kjósa í dag ef það væri gerð könnun.
24.05 2009 kl.23:21
Slóð
Anna.
Sorgin á sér engin takmörk í Íslensku samfélagi í dag.
Því miður.
24.05 2009 kl.23:23
Slóð
Skil ekki eitt…
….. af hverju finn ég ekki fleiri myndir af Guðrúnu Katrínu, sem var þó eina ástæða fyrir að Ólafur komst yfir höfuð að á Bessastöðum ..
Hefði hennar ekki notið við … þá sætum við ekki uppi með DM og OLG…
Ég bara spyr…
24.05 2009 kl.23:25
Slóð
Ó.. hvað þetta er óendanlegt sorglegt hvernig fólk hegðar sér hér. Skammastu þín Egill.
24.05 2009 kl.23:29
Slóð
Traustið er farið :
- á íslenskum stjórnmálum sem reyndust bara klíkustarfsemi
- á réttarkerfinu og að lögum verði komið yfir stærstu glæpamenn Íslandssögunnar
- á Ólafi Ragnari Grímssyni – þetta litla sem var
- á embættismönnum eins og Davíð Oddssyni, Baldri Guðlaugssyni og Jónasi Fr. Jónssyni
- á að nokkuð lagist hér á skerinu
Hvað er til ráða gott fólk ?
Mér er alveg hætt að lítast á stöðuna hérna.
24.05 2009 kl.23:29
Slóð
Gott hjá þér Egill…..
Ég held að aldrei fyrr höfum við átt annan eins forseta og þann sem nú situr í skjóli vinstrimanna á Bessastöðum, ef einhver einn opnaði dyr og undirbyggði þá hugmynd útlendinga að við bærum ábyrgð á hringrásarvíkingunum þá er það sú auma klappstýra þotuliðsins ÓRG.
samt held ég að fátt mundi finnast annað en minnisblöð hans úr stjórnarmyndunarviðræðunum síðustu sex mánaða……og svo einhver hundruð eintaka af bókinni sem hann lét semja um sig, með styrk hringrásar víkinga.
Ísland stórasta land í heimi……….skoooo í gjaldþrotum og hringrásarviðskiptum.
24.05 2009 kl.23:38
Slóð
Tabúin eru að brotna eitt af öðru. Í fjölmiðlamálinu voru allir svo blindir að það var talinn argasti dónaskapur að minnast á stelpuna hans Óla grís sem var toppstöðu hjá Baugi. Nú sjá allir að hagsmunatengslin voru svakaleg og forsetinn gekk erinda útrásargosanna. Rétt upp hendi sem finnst þetta í lagi?
24.05 2009 kl.23:39
Slóð
Egill hlýur að vera dottinn í það…
Hvað er í gangi hérna eiginlega?
Við þurfum ekki lengur neitt dómskerfi, lögreglu eða Hæstarétthér á meðan við höfum Egil Helgason.
Bara í kvöld er hann búinn að dæma eftirfarandi aðila: Jón Ásgeir, Björgólf Thor og nú Foresta lýðveldisins, og gefa í skyn að þeir séu ekki bara óalandi og óferjandi, heldur örugglega sekir og nánast réttdræpir af fylgjendum hans.
Spennan magnast…. hver verður næst fyrir barðinu á Agli og Culti hans?
Egil er lýðskrumari og populisti dauðans. Hefði átt að drullast í pólitík í stað þess að skjóta manna og annan af sínum verndaða vinnustað hjá RÚV
Skömm hans verður skráð í sögubækur
24.05 2009 kl.23:44
Slóð
Friðrik: Missti ég af einhverju? Af hverju sérðu hag íþví að gera Agli upp skoðanir? Ég rétti upp hönd ég er ein þeirra sem velti vöngum um hvort það hefði verið gerð húsleit á Bessastöðum. Ég krefst þess að forsetinn geri betur grein fyrir sínum þætti. Þar með er ég ekki að segja að hann sé sekur.
24.05 2009 kl.23:45
Slóð
Friðrik.
Hvaðan kemur þú eiginlega ?
Er ekki í lagi hjá þér vinur ?
Væntanlega ekki, frekar en hjá öðrum.
24.05 2009 kl.23:45
Slóð
Ólafur Ragnar hefur í mörg ár verið að reyna á þolrifin í mjög mörgum, sbr. hér að ofan. Þetta veit hann örugglega, enda maðurinn ljómandi vel gefinn, en hann þekkti ekki sinn vitjunartíma og gekk eins langt og hann gat og eins lengi og hann gat.
Það er rangt sem segir hér að ofan að forsetinn fari með þegar tvíhliðasamningur er undirritaður. Forsetinn hefur ekkert hlutverk í undirritun samninga. Hann staðfestir hins vegar lög, og það er venja að það geri hann á Bessastöðum en ekki í Katar.
24.05 2009 kl.23:49
Slóð
Anna María
Ég er sammála þér. Gerum húsleit hjá Forsetanum og bara öllum þeim sem Egill nefnir og dæmir seka fyrirfram.
En til að njóta jafnræðis þá legg ég til að einnig verði gerð húsleit hjá Agli Helgasyni og legið yfir þáttum hans undanfarin ár (og bloggi hér) fyrir hrunið og þáttur hans í óförum þjóðarinnar skoðaður. Ekki síst áhrif skrifa hans á saklaust fólk og fyrirtæki sem „óvart“ urðu fyrir rætnum athugasemdum hans og skrifum.
Það er frábært að tilheyra svona þroskaðri og vel menntaðri þjóð.
Maður fyllist bara einhvern vegin þjóðrembingi alveg….
24.05 2009 kl.23:49
Slóð
Friðrik ert þú dottin í það?
Ég get hvergi fundið staf um að hann hafi dæmt eftirfarandi: Jón Ásgeir, Björgólf Thor og nú Foresta lýðveldisins, og gefa í skyn að þeir séu ekki bara óalandi og óferjandi, heldur örugglega sekir og nánast réttdræpir af fylgjendum hans.
Friðrik: Hvers vegna vilt þú þagga niður í fólki sem spyr eðlilegra spurninga miðað við þá atburðarrás sem við höfum horft upp á?
24.05 2009 kl.23:50
Slóð
haha skömm hans skráð í sögubækur? ertu að grínast, hann er engin fyrirmynd fyrir mig, en ég þakka fyrir að allavega einn fjölmiðlamaður hér lætur sig varða þau mál sem skipta máli hér, óháð því hverjir þar koma við sögu
ef fjölmiðlar hér veittu meira aðhald væri krafan um lágmarks siðgæði nær því að vera virt…
Það sem verður skráð í sögubækur verður spilling þessa lands fram til dagsins í dag og örugglega lengur, þá verða einstaklingar úr pólitíkinni brennimerktir langt inn í framtíð þessa þjóðfélags sem landráðamenn og sömuleiðis margir úr helstu fyrirtækjum landsins, lífeyrissjóðum og ýmsum stofnunum samfélagsins
ég held að við þurfum í reynd, þegar við höfum náð lágmarks siðgæði, ef það gerist nokkurn tímann, að stofna hér nýtt lýðveldi, byggt á mennskari gildum..
24.05 2009 kl.23:50
Slóð
Ætli draumur einhverra sé að embætti íslenska forsetans verði eins valdamikið (í eigin landi) og í USA eða Rússlandi. Þá hefur möguleika á að breyta því með þessari ríkisstjórn sem nú situr í stað þess að leggja embættið niður eins og einhverjir hafa lagt fram. Maður hreinlega spyr sig, þegar fólki grunar að íslenski forsetinn sé svona valdamikill á-bak-við-tjöldin. Fólk verður að velta fyrir sér stöðu og framtíð þessa embættis þegar traust á það hefur minnkað svona.
24.05 2009 kl.23:53
Slóð
Friðrik það þarf ekki að gera húsleit hjá þeim sem dæmdir eru sekir fyrirfram.
Það er ekki venjan að gera húsleit hjá mönnum sem þegar hafa verið dæmdir heldur einungis hjá grunuðum.
Það er ekkert ósiðlegt við að gruna fólk. Sérstaklega ekki þegar teikn eru á lofti um sekt sem vart verður afneitað í þessu tilfelli.
24.05 2009 kl.23:54
Slóð
Friðrik: Ég ætla að halla mér og býð hér með góða nótt. Ég þakka guði fyrir að ‘ORG gat ekki sett fjölmiðlalög á Egil
24.05 2009 kl.23:55
Slóð
McCarthyism is the politically motivated practice of making accusations of disloyalty, subversion, or treason without proper regard for evidence. The term specifically describes activities associated with the period in the United States known as the Second Red Scare, lasting roughly from the late 1940s to the late 1950s and characterized by heightened fears of Communist influence on American institutions and espionage by Soviet agents. Originally coined to criticize the anti-communist pursuits of U.S. Senator Joseph McCarthy, „McCarthyism“ soon took on a broader meaning, describing the excesses of similar efforts. The term is also now used more generally to describe reckless, unsubstantiated accusations, as well as demagogic attacks on the character or patriotism of political adversaries.
During the post–World War II era of McCarthyism, many thousands of Americans were accused of being Communists or communist sympathizers and became the subject of aggressive investigations and questioning before government or private-industry panels, committees and agencies. The primary targets of such suspicions were government employees, those in the entertainment industry, educators and union activists. Suspicions were often given credence despite inconclusive or questionable evidence, and the level of threat posed by a person’s real or supposed leftist associations or beliefs was often greatly exaggerated. Many people suffered loss of employment, destruction of their careers, and even imprisonment. Most of these punishments came about through trial verdicts later overturned,[1] laws that would be declared unconstitutional,[2] dismissals for reasons later declared illegal[3] or actionable,[4] or extra-legal procedures that would come into general disrepute.
The most famous examples of McCarthyism include the speeches, investigations, and hearings of Senator McCarthy himself; the Hollywood blacklist, associated with hearings conducted by the House Committee on Un-American Activities; and the various anti-communist activities of the Federal Bureau of Investigation (FBI) under Director J. Edgar Hoover. McCarthyism was a widespread social and cultural phenomenon that affected all levels of society and was the source of a great deal of debate and conflict in the United States.
24.05 2009 kl.23:55
Slóð
Því miður er forsetinn sekur um það að hafa verið í slagtogi með þessum mönnum, ásamt og að hafa þjónað þeim á alla þá lund sem við sjáum nú að var ekki eðlileg. Jafnvel þó einhver Friðrik telji að allir þessir menn séu og hafi verið frábærir og okkur öllum til gagns.
Sú þjónkun sem forsetinn og ráðherrar þjóðarinnar ástunduði á stórann þátt í því hvernig komið er, það er ekkert smá mál að mæta á fundi erlendis með forsetann með sér eða ráðherra. þessháttar viðvera er engin léttavara, enda nýtt til þess hugsuð að koma því inn að íslenska þjóðin beri ábyrgð á viðskiptunum og því fólki sem um höndlar.
Ætli það sé mikið um að forsetar þjóða fljúgi um heiminn með áhættufjárfestum þeim til hjálpar og samlætis?
24.05 2009 kl.23:55
Slóð
Og hvað?
24.05 2009 kl.23:56
Slóð
Jakobína og Anna Margrét
Hér er það:
http://eyjan.is/silfuregils/2009/05/24/their-felagarnir/
24.05 2009 kl.23:56
Slóð
Friðrik, þú ert nú bara býsna fyndinn. Leggur til að farið verði heim til Egils vegna þáttar hans sem er sýndur OPINBERLEGA og vegna bloggsins hans sem er OPINBERT.
Þetta eru þín orð, Friðrik:
„En til að njóta jafnræðis þá legg ég til að einnig verði gerð húsleit hjá Agli Helgasyni og legið yfir þáttum hans undanfarin ár (og bloggi hér) fyrir hrunið og þáttur hans í óförum þjóðarinnar skoðaður. Ekki síst áhrif skrifa hans á saklaust fólk og fyrirtæki sem “óvart” urðu fyrir rætnum athugasemdum hans og skrifum.“
Þarftu ekki að leggja þig, maður?
24.05 2009 kl.23:58
Slóð
McCarthyism:
The term is also now used more generally to describe reckless, unsubstantiated accusations, as well as demagogic attacks on the character or patriotism of political adversaries.
24.05 2009 kl.23:59
Slóð
…og hvað?
24.05 2009 kl.23:59
Slóð
Það vantar reyndar hjá Friðrik varðmanni sannleykanns, hringrásarinnar og forsetaans að nefna dæmi um árásir Egils á saklaus fyrirtæki og menn…
25.05 2009 kl.00:00
Slóð
Jú, Skotta hann þarf að leggja sig og ég líka. Góða nótt
25.05 2009 kl.00:01
Slóð
Góða nótt, SH
25.05 2009 kl.00:02
Slóð
Ég tek fullkomlega undir það sem Elías segir.
Þegar forsetinn og utanríkis/iðnaðarráðherra mæta með liði útrásarvíkinga inn á stofugólf hjá al Thaini fjölskyldunni og fara að véla með málefni sem eru málefni þjóðarinnar en ekki þessara fjárglæframanna eru þeir komnir langt út fyrir umboðssvið sitt.
Þetta lyktar af landráðum. Hrokinn og óskammfeilni valdhafa á Íslandi er kominn á það stig að þeir telja sig óbundna af landslögum og þeim ramma sem á að gilda um vald þeirra.
25.05 2009 kl.00:03
Slóð
Egill minn …. eitt Cöltið… eða Cultið þitt er að fara að sofa…. over and out …
25.05 2009 kl.00:03
Slóð
Tek undir með Agli, þessir menn kunna ekki að skammast sýn
http://eyjan.is/silfuregils/2009/05/24/their-felagarnir/
og breytir þar engu þó Friðrik finnist þeir frábærir
25.05 2009 kl.00:03
Slóð
Góða nótt, elskurnar, og takk fyrir upplýsandi skoðanaskipti.
Þetta er orðið ljómandi gott alveg…. og niðurlægjandi.
Sweet dreams
25.05 2009 kl.00:04
Slóð
Þegar sannleikurinn blasir við þeim sem vilja sjá.
Þegar aðrir neita honum vegna þess að hann passar ekki við þeirra
pólitíska heim.
Og vilja helst hefta tjáningarfrelsi þeirra.
Þá höfum við stigið eitt skref í átt að Gúlaginu.
25.05 2009 kl.00:07
Slóð
http://pressan.is/Kaffistofan/Lesakaffistofu/spenna-vegna-forsetavidtals/
Óli grís í drottningaviðtali í Baugslífi u nei meinti Mannlífi hjá Jóhanni Hauks.
Kæru landsmenn: EKKI KAUPA ÞETTA BLAÐ!!!! Látum ekki bjóða okkur þennan kjaftavaðall frá Bessastöðum í boði Baugs.
25.05 2009 kl.00:07
Slóð
Friðrik.
Þú ert greinilega blindfullur.
Farðu og leggðu þig gæskur.
25.05 2009 kl.00:19
Slóð
Get ekki verið meira sammála Eliasi Péturssyni.Get samt sem áður ekki
flokkað Óla grís til vinstri,málið snýst ekki um það þegar fjalla á um peninga
rán nokkurra manna með hans hjálp sem kemur okkur Íslendingum á
kaldan klakann.Hér verður engin uppbygging, endurreisn fyrr en við losum
okkur við svona spillingarpésa og lýðskrumara. Þetta uppgjör verður að
fara fram, trúverðuleiki okkar sem þjóðar innanlands sem utan er í húfi.
25.05 2009 kl.00:35
Slóð
Almenningur á Íslandi þarf að leita ásjár Sameinuðu þjóðanna. Samfélagið er maðksmogið og fullkomlega ófært um að koma sér af sjálfsdáðum út úr spillingarfeninu og efnahagsógöngunum. Hið fyrrnefnda er forsenda þess síðarnefnda.
Hér hafa landráðamenn verið við völd og sumir þeirra blífa enn.
Rannaska þarf hrunið – þjóðarránið – með aðstoð alþjóðlegra stofnana.
25.05 2009 kl.01:34
Slóð
Get ekki stillt mig um að commentera þennan þráð lítillega.
ÓRG var talinn standa sig vel og hafði yfir 60% fylgi þjóðarinnar fram að hruni. Ég hlustaði á konsningu á rás 2 um þetta fyrir u.þ.b. ári síðan. Síðan kom hrunið og þá urðu öll hans störf ónothæf.
Undir það get ég tekið. þ.v.s. söluferðir fyrir auðróna um allar tryssur og síðan er heim var komið, heingdi hann á þá alla heiðurskrossa enbættisins, fyrir ÚTRÁS!
Auðvitað var hann vinsæll meðal þessara auðróna, en datt manninum aldrei í hug á meðan á þessu stóð, að hann væri kominn með enbætti forseta lýðveldisins í sölumennsku fyrir þessa hýju vini hans?
Hafi hann aldrei hugsað þann veginn þá er maðurinn algerlega óhæfur í embætti forseta. Ef hann hefur í sér kraft til að verja sinn sem og heiður embættisins, stigi hann til hliðar hið fyrsta og skýrði frá af hverju hann gerði slíkt.
Með því væri hann að sína í verki yðrun og taka ábyrgð á vanhugsuðu atferli í nafni embættisins.
Þetta ætti hann að gera hið fyrsta.
25.05 2009 kl.02:38
Slóð
Frekar plebbalegt innlegg hjá Agli verð ég nú að segja.
25.05 2009 kl.07:10
Slóð
Af hverju ætti EKKI að velta við öllum steinum í þessu máli?
25.05 2009 kl.08:02
Slóð
Þegar maður les þessar 109 athugasemdir hér á undan þá virkilega skammast maður sín fyrir að vera Íslendingur.
Það er verra að fólkið sé hyski en að hafa vondan forseta.
25.05 2009 kl.08:06
Slóð
Fyrir hvaða gildum stendur forseti Íslands? Er hann hugmyndafræðilegur vingull sem hallar sér ætíð að þeim sem sýnast hafa mestu efnahagslegu völdin á Íslandi? Ég held að hann vanti sýn á andleg verðmæti og skoppi eins og korktappi á öldum efnishyggjunnar. Hvort það myndi hjálpa að stinga honum í tugthúsið veit ég ekki. Voru ekki allir hans „glæpir“ lögvarðir?
25.05 2009 kl.08:21
Slóð
Forsetinn gekk í lið með glæpamönnum.
Mönnum sem felldu gengið og settu þjóðina á hausinn.
Auðvitað er forkastanlegt að þessi maður skuli enn vera í þessu embætti.
Merkilegt að sjá hér að enn verja einhverjir siðlaust framferði hans og svik við þjóðina.
25.05 2009 kl.08:49
Slóð
Tek undir að þetta er allt farið að lykta af populisma og múgæsingi:
McCarthyism:
The term is also now used more generally to describe reckless, unsubstantiated accusations, as well as demagogic attacks on the character or patriotism of political adversaries.
25.05 2009 kl.09:08
Slóð
Mér finnst að forsetinn eigi að segja af sér.
Hann er mjög lítilfjörlegt sameiningartákn á þessum tímum og því miður fyrir hann er ekki hægt að breyta sögunni.
Embættið er ekki peninganna virði.
25.05 2009 kl.09:23
Slóð
Forsetinn vann ekki heimavinnuna sína. Hengdi útrásarorður á mennina sem komu okkur á hausinn, fálkaorður á menn sem komu okkur á hausinn, sagði á virtum fundum erlendis að menn hefðu aldrei séð annað eins og þessa menn sem væru snöggir til í viðskiptum (hafði reýndar punkt fyrir sér þar) og hefur á allan hátt hlaðið undir þessa kalla.
ORG vann einfaldlega ekki sína heimavinnu. Þeir plötuðu hann upp úr skónum.
Hvert bjánalega athæfið á fætur öðru hefur rekið á fjörur bessasataða. ORG er búinn að fara illa með forsetaembættið.
Það er ekki rétt að ORG hafi á einhverjum tímapunkti verið kosinn af 60% af þjóðinni, hið rétta er að hann hefur aldrei verið kosinn af yfir 50% af þjóðinni, jafnvel þó menn í jólasveinabúningum hafi verið í mótframboði. Í síðustu forsetakosningum sat stór hluti þjóðarinnar heima, og þeir sem mættu á kjörstað sáu sig knúna til að skila auðu í stórum stíl. ORG var kosinn forseti fólksins en ekki þjóðarinnar.
25.05 2009 kl.09:27
Slóð
Forsetinn brást almenningi í landinu.
Hann er rúinn trausti.
Burt með hann!
25.05 2009 kl.09:36
Slóð
Vanhæfur forseti
25.05 2009 kl.09:46
Slóð
Jakobína!
Ef þú hefur ekki tekið eftir því þá er nú heimurinn í kreppu eins og hann leggur sig. Stærstu ríki eiga í eftiiðleikum að halda bankakerfinu gangandi. Allir bankar heims eru í vandræðum. En hjá okkur var það eftirlitskerfið sem klikkaði. Í bandaríkjunum hafa margir bankar farið á hausinn, Írland er á fullu að halda þeim gangandi, Bretar og í raun öll lönd.
Við lentum í því að ákveðnir flokkar gáfu mönnum bankana og þeir menn kunnu ekkert með banka að fara. Síðan til að kóróna þetta var Davíð úthlutað Seðlabankanum sem setti þetta allt endanlega á hausinn..
Minni fólk á að Ólafur Ragnar hefur ekki völd til að skrifa undir eitt eða neitt. Og ég spyr svona í rólegheitum hverjum treystir fólk hér á landi lengur. Ekki neinum flokki sem er á þingi, ekki neinum bankamanni, ekki neinum starfsmanni ráðuneyta, ekki neinum fjárfesti og svo framvegis. Hverja eigum við þá að láta vinna þessi störf? Ráða útlendinga?
25.05 2009 kl.09:56
Slóð
Þetta er merkilegt. Egill ýtir á takkann og fram streymir fljót af hálffasísku hægra bulli og illsku. Ég man ekki betur en meiri hluti þjóðarinnar væri með glýju í augunum yfir útrásinni. Og nú er forsetinn orðinn landráðamaður fyrir það að reyna að greiða götu viðskipta- og listamanna í útlöndum. En kannski aðallega fyrir það að hafa verið í Alþýðubandalaginu. Egill ætti að hugsa sig um tvisvar áður en hann ýtir á svona takka. Takkann sem eignar hrunið forseta þjóðarinnar. Er þetta boðlegt, Egill?
25.05 2009 kl.10:01
Slóð
Ef einhver efast um heidarleika forsetans, vil ég minna á í hans tíd sem fjármálarádherra hvernig hann gaf heilu bæjarfélögin til einstaklinga á einni nóttu án thess ad blikna, í dag eru thetta svo kalladir sægreifar og eiga fiskinn í sjónum og okkur hinum kemur thad bara ekkert vid (svo er verid ad velta sér upp úr heidarleika hans)
Thad má öllum vera ljost ad núverandi stjórnarflokkar med adstod forseta vors, eiga sér draumrikistjórn og rádherralid sem verdur skipad eftirfarandi !
1. Jón Àsgeir J, Forsætisrádherra hann er svo snöggur ad taka ákvardanir.
2. Björgólfur Thor, Fjámálarádherra á i engum vanda med ad selja einhverrja thúfu upp á heidi, og skaffa gjaldeyri.
3. Bjarni Ármann, Félagsmálarádherra hann er svo gódur i ad skila peningum til baka, eins og er ætlast af minnihlutahópum í dag.
4. Magnús Ármann, Heilbrigisrádherra hann thekkir dópid svo vel, af eigin raun og einkaklúbbana/nektarstadina.
5. Pálmi Haraldsson sem samöngumálarádherra, eini adilinn i hópnum sem kann ad leggja samann minus + minus verda margar milljónir í plus (samanber Sterling og Meersk)
6. Thorstein Vilhelmsson sem sjávarútvegsrádherra.
7. Óla í Samskipum sem Dómsmálarádherra.
Og thad er ekki ad ástædulausu ad ganga med bindi á Althingi, thvi allir hafa jú RIDDARAKROSSINN um hálsinn ekki rétt ?
Og ef illa gengur, thá munu their leita ráda hjá Stein Bagger hinum Danska fjármála snillingi sér til halds og trausts sem sedlabankastjóra.
Haltu áfram Egill.
Vitdi til
25.05 2009 kl.10:02
Slóð
Magnús Björgvinsson.
Skelfing ertu litblindur maður. Sérðu ekki að seta Ólafs Ragnars Grímssonar á stóli forseta er álíka galin og seta Davíðs Oddssonar á stóli bankastjóra Seðlabankans!
Vitlaus maður á vitlausum stað á vitlausum tíma.
Taktu líka eftir því að vinnubrögðin hafa ekkert breyst eftir stjórnarskiptin! Þögn hér, þöggun þar og sama fólkið í bönkum og skilanefndum.
Forsetinn og fjölskylda hans er nátengd helstu auðhringjunum en það má ekki tala um það að því að hann, Össur og Steingrímur J. eru svo góðir félagar.
25.05 2009 kl.10:03
Slóð
الأيسلندي شخص غبي سخيف حتى مجرد أنهم يستحقون الحصول على مارس الجنس
25.05 2009 kl.10:04
Slóð
Langlundargeð Egils og kurteisi gagnvart Ólafi Ragnari Grímssyni hef ég alltaf skoðað þannig að henn beri það mikla virðingu fyrir embættinu að hann láti ekki öfugsnúinn einstakling breyta því.
Nú breytist vindáttin. Það boðar tíðindi. Kannski þó ekki önnur en þau að forsetaritari tekur upp símtólið og hellir sér yfir Egil Helgason, líkt og hann gerir reglulega við þá fjölmiðlamenn landsins sem birta eitthvað bullið úr munni Möðruvellingsins burtrekna.
25.05 2009 kl.10:19
Slóð
Dálítið fyndið að sjá íhaldskonur eins og Ragnhildi ásaka menn fyrir McCarthyisma.
Hún skýrskotar að vísu til “more general term”, en ofstæki McCarty’s enkenndist ekki aðeins af hatri gegn kommunistum, heldur gegn öllu sem var liberal og á vinstri væng stjórmála. Og staðgengill McCarthyismans á Íslandi hefur alltaf verið og er enn Sjálfstæðisflokkurinn.
25.05 2009 kl.10:32
Slóð
Þó það komi þessari umræðu lítið við þá læt ég þetta samt flakka,
Var það ekki stjórnmálamaðurinn ÓRG sem lét loka fullt af fyrirtækjum um allt land vegna skattaskulda, en feldi svo niður skuldir fyrirtækis núverandi aðstoðarmanns forsætisráðherra hér um árið?
(reyndar svolítið íslenskt að maður sem ekki gat vandræðalaust rekið fyrirtæki fyrir nokkrum árum sé nú orðinn hvað valdamestur manna á landinu)
var ekki forsetinn ÓRG að vasast sem beinn þátttakandi í stjórnarsprengingum og stjórnarmyndunum nú í vetur?
Getur verið að stjórnmálamenn þeirrar gerðar sem ÓRG eru séu einfaldlega óhæfir í forsetaembættið?, rétt eins og DO var forsögunnar vegna óhæfur í starf bankastjóra??
Ætli Steingrímur J verði ekki næsti forseti
25.05 2009 kl.10:37
Slóð
Er ekki búid ad ákveda ad Svavar Getsson verdi nærsti forseti ??
25.05 2009 kl.11:06
Slóð
Getsson Icesavar þessu.
25.05 2009 kl.11:35
Slóð
Það er ekki forsetinn heldur frúin sem er áhugaverð persóna í þessu. Dorrit er jú vinkona hinna austrænu fursta og hefur líklega komið á þessum tengslum öllum í Katar og víðar – sömuleiðis eru Tchenguiz bræður nánir vinir hennar. Getur verið að Dorrit hafi verið broker í að koma viðskiptum þessara manna á í Kaupþingi? Venjan er að brókerinn fái sitt cut! Hefur einhver skoðaða skattamál Dorritar? Borgar hún yfirhöfuð skatt hér? Eða er hún með sín mál í skjóli á einhverri aflandseyju?
25.05 2009 kl.11:36
Slóð
FLÍSINA OG BJÁLKANN.
Sæll Egill! Það mátt þú eiga að þú syndir ekki á móti straumnum, svona yfirleitt! Ert sennileg best lukkaði „popularisti“ sem þjóðin hefur eignast!
Á það bendir Magnús Björgvinsson hér að ofan, að Ólafur Ragnar Grímsson hegðaði sér nákvæmlega í samræmi við vilja meirihluta þjóðarinnar 2007, þegar hann var einn helsti pr-maður „útrásarvíkinganna“ og auðstéttarinnar. Þeir voru líka hetjur þjóðarinnar 2007, raunar ofurhetjur hennar! Var gerður góður rómur að öllu þessu í öllum miðlum landsins, Séð og Heyrt og Silfur Egils ekki undanskilin! Allir þeir sem ekki hrifust og voguðu sér að gagnrýna auðkýfingana, hegðun þeirra og framferði fyrirtækja þeirra, svo sem mynkörfu lán bankanna þeirra, voru öfundsjúkar nöldurskjóður og gott ef ekki stórhættulegir kommúnistar og niðurrifseggir!
Við öll ættum að líta í eigin barm og spyrja okkur sjálf: Hvernig gat þetta gerst? Af hverju létum VIÐ þetta viðgangast? Hversvegna létum VIÐ blekkjast? Hversvegna lét þjóðin ræna sig um hábjartan dag undir eigin lófataki?
25.05 2009 kl.11:39
Slóð
Það er greinilegt að sjálfstæðismenn fengu hér innlegg frá Agli, sem þeim líkar.
Við vitum öll að flokkurinn HATAR Ólaf og það væri alveg sama HVAÐ hann gerði, burt vilja þeir hann.
Afhverju?
Jú – því hann hefur MÓÐGAÐ konung þeirra og átrúnaðargoð, dugleysingjan Davíð, oftar en einu sinni og oftar en tvisvar.
Sendi bara Ólafi mínar bestu kveðjur og vona hann verði sem lengst á Bessastöðum – Davíð og öllum hans skósveinum til armæðu.
Áfram Ólafur !!!!! bið að heilsa Dorrit !!!!
25.05 2009 kl.11:59
Slóð
Þegar Ólafur Ragnar var fjármálaráðherra lét hann ríkisssjóð kaupa skuldir
SVART Á HVÍTU bókaforlags í eigu nokkurra langskólagenginna vina sinna.
Það voru yfir 50 milljónir á þeim tíma.
Rausnarlegri var hann þegar hann gaf Þormóði Rammma á sigló, síldar
verksmiðjur ríkissins og ruddi þar með brautina fyrir aðra pólitíkusa í gjafa-
austri á eigum almennings til valinna vildarvina.
Æ skal gjöf gjalda.
JÓN ÓLAFSSON sem alldrey hefur komið nálægt dópinnflutningi að eigin
sögn borgaði samkvæmt reikningum birtum í DV á sínum tíma
Ólafi Ragnari 5 millur til forsetaframboðs.
FINNUR INGÓLFSSON lét HALLDÓR KRistjánnson lána téðum JÓNI gríðar-
legar upphæð til að braska með og stórgræða á Arnarneslandinu .
INGIBJÖRG SÓLRÚN lét Reykjarvíkurborg Kaupa Stjörnubíóreitinn af téðum
Jóni fyrir litlar 140 milljónir á sínum tíma.Við borguðum.
Þetta er aðeins toppurinn á ísjaka siðferðisspillingar þessa heiðursfólks.
Æ SKAL GJÖF GJALDA.
25.05 2009 kl.12:00
Slóð
Auðun,
ég held að vandasamt sé að kenna allri þjóðinni um hvernig fór, og þar með fría forsvarsmenn okkar ábyrgð….hver heldur þú að hafi haft betri upplýsingar þú eða ráðherrar ríkisstjórnarinnar.
það er svo sem rétt hjá þér að margir klöppuðu, en það breytir ekki né minnkar ábyrgð þeirra sem við treystum fyrir hagsmunagæslu okkar.
fyrir það fyrsta eru þeir kosnir til þess að sjá um okkar mál og til þess hafa þeir verkfæri og umboð, „þjóðin“ hefur ekki aðkomu að ákvörðunum né aðgerðum, til þeirra verka kjósum við fólk sem við verðum að geta treyst.
stór hluti þess vanda sem við stöndum frammi fyrir í dag má þakka forsvarmönnum okkar kjörnum og ekki kjörnum…
Og af því að þú spyrð hvers vegna VIÐ létum blekkjast, megin ástæðan er lygaþvættingur hringrásarvíkinga, sumra stjórnmálamanna, fjölmiðla og forsetans.
hvernig á þjóðin að vara sig þegar sjálfur bankamálaráðherra skrifar grein þann 5.8 2008 um pakkið í útlöndum sem öfundar okkur af frábæru bönkunum og öllum snillingunum hér á landi, þetta pakk bara skilji ekki hið frábæra íslenska viðskiptamódel.
25.05 2009 kl.12:09
Slóð
Fjármálagjörningar Ólafs hér áður fyrr er svona svipað og ræna sparibauk miðað við rán fyrrum Seðlabankastjóra DO, sem, þrátt fyrir að vita, að eigin sögn, að hrun væri væntanlegt, afnam bindiskyldu á innlán íslanskra banka erlendis ( svo það væri nú örugglega pottþétt ef illa færi, að vinir hans í Landsbanka, þyrftu nú EKKI að bera ábyrgðina, heldur bara öll íslenska þjóðin)
Síðan hélt hann áfram að lána bönkunum, þrátt fyrir að hann vissi að eigin sögn, að hrun væri framundan.
Lánaði m.a. Sparisjóðabankanum 15 fallt – takið eftir – 15 fallt – eigið fé hans til að hann gæti lánað vinum hans í Landsbankanum, sem ekki var hægt að lána beint því þeir stóðu svo illa!!!!!!
Þetta eru gjörðir hans bara í nokkrar viku, þrátt fyrir að HANN VISSI, að eigin sögn, að hér yrði hrun.
Síðan er svo gjöf hans á bönkunum til vina sinna enn ein „fjöðurinn“ í hatt hans gjörðir gegn íslaenskri þjóð, vinum sínum til handa.
Hvað skyldi hann hafa fært Agnesi?
25.05 2009 kl.12:14
Slóð
Sæll Elías! Það er alveg rétt hjá þér, að ráðherrar þáverandi ríkisstjórnar létu þetta viðgangast, enda var allt það sem á gekk, í samræmi við srefnuna, óheftan kapítalisma og frjálshyggju. FLOKKURINN bjó til það umhverfið, sem til þurfti. Síðan var allt látið gossa, frjást og óheft! Í UMBOÐI KJÓSENDA! Auðmennirnir voru ofurhetjur þjóðarinnar 2007 og, ef ekki hefði komið til fjármálakreppan væru þeir enn ofurhetjur þjóðinnar 2009!
Lítum í eigin barm og spyrjum okkur sjálf: Er það þetta sem við viljum áfram? Óheftan kapítalisma? Frjálshyggjuna í boði Sjálfstæðisflokksins? Og Samfylkingarinnar? Og Framsóknarflokksins? Hvað viljum við? Hafa okkur að fíflum áfram eða skapa hér annarskonar samfélag?
25.05 2009 kl.12:26
Slóð
Forsetinn og iðnarráðherra hvöttu til samstarf við Katar,forsetinn fór tvisvar en Össur einu sinni
25.05 2009 kl.12:28
Slóð
Voan að Ólafur verði áfram þegar þessu kjörtímabili lýkur – fínn forseti og ég vil bara benda ykkur á að
ÞESS VAR ÓSKAÐ af þjóðinni að hann styddi útrás Íslands erlendis á öllum sviðum.
Svekkelsi sjálfstæðismanna út í hann er af allt öðrum rótum en að hann hafi stutt þá í útrásinni.
25.05 2009 kl.12:35
Slóð
Æi, ekki byrja með óhefta frjálshyggju kapitalista frasaruglið.
það voru stjórnmálamenn úr öllum flokkum sem brugðust, VG engin undantekning…
það voru líka viðskiptasnillingar og hringrásarlið úr öllum flokkum sem brugðust okkur, VG kannski undantekning enda engir „bisnes-menn“ þar innanbúðar
já og embættismennirnir voru víst örugglega úr öllum flokkum líka……
man einhver þau ramakvein sem stjórnarandstaðan rak upp þegar tekist var á við Baugs-fólkið í dómskerfinu, sumir stjórnmálamenn létu hafa eftir sér að ekki ætti að lögsækja það fólk vegna kostnaðar, það mál snerist um misnotkun á stöðu innan almenningshlutafélags ofl…….
ætli dómafordæmið síðan þá gæti ekki hjálpað víkingunum núna?
25.05 2009 kl.13:16
Slóð
Hvenær bað þjóðin forsetanefnuna að stýra klappliði útrásarsnillinganna?
Það fór amk framhjá mér.
Auðvitað bað þjóðin manninn ekki um nokkurn skapaðan hlut.
Hann tók þetta upp hjá sjálfum sér.
Og brást þannig almenningi í landinu.
25.05 2009 kl.14:01
Slóð
HANNA nafnleysingi.
Þú réttlætir ekki óheiðarleika eins með öðrum. Skilur þú þetta ekki.
Við eru að tala um æðstu stjórn ríkissins, stjórmál snúast um traust
á þeim sem við fólkið í landinu kjósum til trúnaðarstarfa.
Ef því er fyrirgefið, verður að víkja viðkomandi frá, og í hæsta
lagi borga ekki meira en atvinnuleysisbætur í eftirlaun.
Er almenningur meðvitaður um að tæplega 7oo fyrrverandi Pólitikusar,
embættismenn,og sendiherrar eru á flottum eftirlaunum samkvæmt gamla
spilta kerfinu sem er úr öllum takti við það sem aðrir ÍSLENDINGAR búa við.
OG ÞETTA ER AÐ GERAST Í GJALDÞROTA LANDI.
Það mætti halda að margir væru með klofinn góm og enga kennitölu.
Alla vega eru öll ljós kveikt hjá politikusunum og enginn heima.
Ég nenni ekki að halda þessu skrípapakki uppi.
25.05 2009 kl.15:07
Slóð
The First Lady
Ég er ekki litblindur takk! Kannski tileygður. Minni þig á að Ólafur hefur ekkert haft með neina samninga að gera. Hann hefur ekkert vald nema að skrifa undir lög frá Alþingi. Minni á að allir ráðherrar Sjálfstæðismanna hafa farið erlendis með útrásarvíkingum og Valgerður og fleiri frá framsókn. Þetta tíðkast hér á landi. Og Ólafi var hrósað fyrir þetta á árunum 2005 til 2007. En nú hefur hann og aðrir viðurkennt að þetta hafi kannski verið full mikið.
Veit ekki hvað fólk vill. Ef hann segir af sér vegna svona mála, hver á að koma í staðinn.
Minni svo fólk á að skuldir okkar eru ekki vegna þessara ferða erlendis og flestar erlendar skuldir bankana lenda ekki á okkur heldur. Stærstu skuldir okkar eru vegna lána Seðlabanka til bankana.
Síðan ef fólk vill getum við kennt t.d. fjölmiðlum um að hafa kosið þessa menn: Menn ársins. Agli Helgasyni fyrir að hafa verið með þáttinn sinn í 10 ár og ekki varað okkur við 2005 áður en vitleysan byrjaði. Mönnum sem unnu í Kárahnjúkum því þeir unnu að því að koma hér af stað þennslu. Öllum alþingismönnum síðan um 1980 þegar að verðtryggingu var komið á. Öllum sem hafa unnið hjá öllum bönkunum, útrásarfyrirtækjum. Öllum sem tóku lán hjá bönkunum og hvöttu þá til ´sækja fleiri lán erlendis til að lána . Öllum sem þáðu kauphækkanir sem auðsjáanlega voru ekki innistæður fyrir.
En það er spurning hvað við græðum á að vera að velta okkur upp úr þessu. Hvernig væri að fara að horfa til framtíðar og eyða kröftunum í að finna lausnir í stað þess að reyna að hengja einhvern. Minni á að kosningar til forseta kosta um 200 milljónir. Það eru árslaun 50 til 70 manna.
25.05 2009 kl.15:38
Slóð
Elías er greinilega eitthvað svekktur, þegar sannleikurinn á bakvið „útrásarbullið“ og stefnuna, sem ekki brást (sic), er dreginn inní umræðuna!
25.05 2009 kl.15:39
Slóð
Magnús,
mikið líður mér betur úr því að forsetinn hefur viðurkennt að „kannski hafi þetta verið fullmikið“ hjá honum. Nú þurfa bara allir hinir að viðurkenna að „kannski hafi þeir gert full mikið eða full lítið“ af einhverju og málið er dautt.
Ekki vissi ég að seðlabankinn hefði átt stærstan hlut í 15.000.000.000.000,- króna skuldum þjóðarinnar í haust, en bíður í grun að þú hafir verið í þeim hópi sem gangrýndir þann sama banka fyrir aðgerðaleysi, fagmennskuskort og lítinn stuðning við bankana mánuðina fyrir hrun, kannski allir búnir að gleyma þeirri gífuryrðakeppni sem var þá í gangi.
Síðasta málsgreinin þín er svo náttúrulega bara bull rökþrota varðhunds. Bendi samt á að rökin um 200 millj.kostnað við forsetakjör eru ekki ólík rökum sem notuð voru í stóru dómsmáli sem gekk í partíinu miðju.
Einn möguleikinn er líka að hætta með þetta embætti í þeirri mynd sem það er í dag.
25.05 2009 kl.15:41
Slóð
Elías verður greinilega eitthvað svekktur, þegar sannleikurinn um baksvið „útrásarbullsins“ og stefnuna, sem ekki brást (sic), er dreginn inní umræðuna!
25.05 2009 kl.15:52
Slóð
sá sannleikur er ekki falinn í innihaldslausu frasarugli um kapítalista eða óhefta frjálshyggju…….ekki frekar en vandræði ráðstjórnarríkjanna verða útskýrð með viðlíka frasanotkun á hinum kantinum.
25.05 2009 kl.16:03
Slóð
Magnús Björgvinsson.
Þú segir: „Hver á að koma í staðinn?“. Þetta var algengt viðkvæði hjá stuðningsmönnum fyrri stjórnar!
Skerum fituna af kerfinu og spörum hundruði milljóna árlega með því að leggja embættið af og kosningar til þess – enda valdalaust skv. þínu áliti.
Ef forsetinn veldur sundrungu í stað þess að sameina þá sé ég ekki tilganginn með embættinu. Greiðum frekar atkvæði um umdeild lagafrumvörp í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Allir gömlu útrásarráðherrarnir nema þrír eru sem betur fer farnir úr embættum og DO líka. Eftir stendur hins vegar forsetafjölskyldan allsber út á Bessastaðatúni.
25.05 2009 kl.16:13
Slóð
Elías
Eins og þú veist þá eru erlendarskuldir og lán bankana í gömlubönkunum og við sem þjóði komum ekki til með að þurfa að borga þær. IceSave er talið að kosti okkur kannski 72 milljarða. Helstu skuldir okkar eftir þetta verða uppgjörin skuldir vegna lána Seðalbankans. SJá grein Ólafs Arnarsonar á pressan.is þar sem segir m.a.:
„Gjaldþrot Seðlabankans var ekkert smágjaldþrot. Bankinn tapaði nálega 350 milljörðum á útlánum sínum en átti fyrir eigið fé upp á einhverja 90 milljarða þannig að gatið var stórt. Íslenska ríkið þurfti að koma bankanum til hjálpar með því að kaupa ónýtar eignir af honum og gefa út skuldabréf upp á 270 milljarða á móti. Þetta tap fellur óskipt á ríkissjóð Íslands og þar með íslenska skattgreiðendur. Óvíst er samt hvort þetta dugar til að fjármagna Seðlabankann með viðunandi hætti.“
Sjá nánar hér http://pressan.is/Frettir/Lesafrett/pressuuttekt-olafs-arnarsonar-hvernig-vard-sedlabankinn-gjaldthrota/
25.05 2009 kl.16:19
Slóð
The First Lady
Til þess að svo megi verða verður að halda stjórnlagaþing og það vilja Sjálfstæðismenn ekki!
Forsetinn er ekkert heilagt embætti fyrir mér og ekki Ólafur heldur. En mér finnst út í hött að þó hann hafi flogið með einhverju í flugvél og farið í opinberar heimsóknir og skaffað einhverja fundi þá sé honum kennt um útrásina eða hrunið. Finnst að þó hann hafi staðið með fyrirtækjum sem unnu að markmiði Sjálfstæðisflokksins um fjármálamiðstöð heimsins hér á landi geri hann ekki sekan um neitt. Þjóðin fagnaði þessu framtaki hans fram á mitt ár 2008.
25.05 2009 kl.16:28
Slóð
Magnús,
það er rétt að við sem þjóð skildum eftir ca 10 til 12 þúsund milljarða í gömlu bönkunum, munum skulda ca 2.200 milljarða erlendis um áramót, um síðustu mánaðarmót skuldaði ríkið 660 milljarða innanlands og 325 milljarða erlendis. Skuldir ríkisins hérlendis og erlendis munu vaxa skuggalega á næstu mánuðum ef áætlanir ríkisstjórnar vinstrimanna halda.
Hvað varðar bæði bók og umrædda grein Ólafs þá finnst mér hún því miður skrifuð með gleraugum „hringrásarinnar“, þó ég sé um margt sammála þeim örugglega ágæta manni.
Staðreyndin er sú að megnið af því klúðri sem varð hjá bankanum rétt fyrir hrun var vegna björgunaraðgerða sem þrýst var á af bönkum og stjórnmálamönnum. Mér er alla vega minnisstætt skítkastið sem bankinn og stjórnendur hans fengu vegna ónógrar aðstoðar og stuðning við bankana.
25.05 2009 kl.16:29
Slóð
Menn verða að átta sig á því að Ólafur Arnarsson er fyrrum starfsmaður Baugsfyrirtækis og hefur fengið sem slíkur styrk til að skrifa um bankahrunið á „réttum nótum“ og færa umræðuna frá þeim sem í raun báru mesta ábyrgð á bankahruninu.
Þegar talað er um skuldir Seðlabankans vegna íslensku bankanna þá verða menn að hafa í huga að á þessum tíma voru allar bjargir bannaðar íslensku bönkunum. Seðlabankinn reyndi sem hann gat að halda þeim á floti uns vonandi úr rættist, en sem aldrei gerðis. Þeir sem gagnrýna nú hvað harðast lán Seðlabankans eru nákvæmlega sömu aðilarnir og gagnrýndu Seðlabankann fyrir að gera of lítið til aðstoðar bönkunum og sérstakleg þá ákvörðun hans um að láta ekki Glitni hafa 85 milljarða rétt fyrir hrunið.
25.05 2009 kl.16:30
Slóð
Var það ekki meira svona Halldór forsætisráðherra og Sigurður riddarakrosshafi og bankastjóri sem ræddu alheimsfjármálamiðstöðvarruglið???
25.05 2009 kl.16:33
Slóð
má klúður hjá mér í tölunum hér að ofan, ríkið skuldar sennilega ca 800 milljarða erlendis núna, sorry
25.05 2009 kl.16:34
Slóð
Það sem mér finnst ámælisvert við framgöngu forsetans og Össurar Skarphéðinssonar er eftirfarandi:
Þeir fara til Katar í föruneyti útrásarvíkinga og fara að ráðskast þar með auðlindir þjóðarinnar. Mannauð, jarðvarma og fjármálakerfi sem er komið í einkaeigu en er samt skattheimtukerfi út af verðtryggingunni.
OG HVER ÁTTI AÐ GRÆÐA Á ÖLLU SAMAN…var það þjóðin….eða var það Bjarni Ármanns og fleiri.
Samhliða þessari „útrás“ var verið að selja auðlindir, ríkiseignir og eignir sveitafélaga til aðila þessu tengdu.
Það var einfaldlega leynimakk í gangi um að komast yfir hagfræðilega rentu af auðlindum sem kosnum fulltrúum hafði verið treyst fyrir að gæta af þjóðinni.
Þessir kosnu fulltrúar eru m.a. ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON OG ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON.
Flokkaskipting skiptir hér engu máli. það er einfaldlega virk klíka í samfélaginu bundin böndum um að komast yfir þjóðareignir.
Ég kalla þessa klíku rottur í stjórnmálum því þetta eru afætur á þjóðinni.
25.05 2009 kl.16:37
Slóð
Bergþór Pálsson á Bessastaði !
25.05 2009 kl.16:40
Slóð
Þegar spurt er hver á að koma í staðinn segi ég einfaldlega það er til fullt af hæfu fólki í samfélaginu sem getur tekið við stjórninni. Ég held að hvorki verkamanni á eyrinni né ræstingakonu/manni hefði tekist að klúðra hlutunum eins rækilega og þeim sem farið hafa með völd hér.
Valdhafar sem stýra í skjóli leyndar eru ekki trúverðugir. Hvar er gagnsæið, hvar eru breytingarnar.
Nei við erum enn í sama skítnum með þjófótta og óheiðarlega valdhafa.
25.05 2009 kl.17:36
Slóð
Senda þennan umtalaða baugs-seta úr landi, og hann getur tekið
IMF agentinn með sér….. og höfund áróðursritsins sofandi að feigðarósi !!
skyldann annars fást til að skrifa kilju, þó væri ekki nema 50 bls um glæpi
fyrrverandi vinnuveitanda JAJ ????
25.05 2009 kl.17:55
Slóð
Egill! Ég veit að þú ert í klemmu. Annars vegar viltu ögra og fá mikla umræðu. Það er hagur vefsins þíns. Hins vegar viltu að fólk gæti velsæmis. Síðan spyrðu ögrandi spurninga sem framkalla allra handa sora. Mörg ummælin hér eru einstök dæmi um efnislegan subbuskap.
En e.t.v. ertu aðeins að fá stikkprufu um ástand þjóðarsálarinnar um þessar mundir þegar hægri menn eru í sárum. Þú gerir sem sagt þjóðfræðilega rannsókn!
25.05 2009 kl.18:53
Slóð
Gísli Gunnarsson ég er ekki hægri maður og hef alldrey verið.Reyndu að ná
þér út úr hefðbundnum skilgreiningum fjórflokksins þegar þú verð spillingu
og forréttindi valdhafa og ræningja. Djöfulsins tepruskapur í þér, þú ert á móti frjálsum skoðannaskiptum sem er ekki stjórnað af dauðhreinsuðum
hagsmunum eða keyptum aulum sem kalla sig blaða og fréttamenn.
25.05 2009 kl.19:39
Slóð
Jakobína ég er ekki að ná þessu:
„Þeir fara til Katar í föruneyti útrásarvíkinga og fara að ráðskast þar með auðlindir þjóðarinnar. Mannauð, jarðvarma og fjármálakerfi sem er komið í einkaeigu en er samt skattheimtukerfi út af verðtryggingunni. “ Össur var að gera tvíhliða viðskiptasaming við Katar. Málið snérist um fjárfestinga erlendis. Það var svo allt annað mál að Geysir green ætlaði að eignast hluta OR á tombóluverði. Össur hafði ekkert með það að gera Það voru Sjálfstæðismenn og Framsókn. Ólafur eins og gefur að skilja kemur ekkert að þessu máli.
Á þessum tíma voru allir á því að næsta útrás okkar væri í tækniþekkingu varðandi orkuvinnslu. Og mörg félög stofnuð hér til að fjárfesta erlendis.
En eins og þú átt að vita þá var Ólafur Ragnar að vekja athyggli á kunnáttu okkar að virkja háhita. Finnst hans þáttur í þessu ekkert óeðlilegur.
Það er svo allt annað mál að nú er komið í ljós að Ólafur Ólafsson og fleiri voru með einhvern blekkingarleik varðandi hluti í Kaupþing með einhverjum frænda sjeksins í Katar. En það kemur þessu máli ekki við. Nema að við viljum stofna leyniþjónustu sem rannsakar alla sem biðja forsetan um að koma með sér á fundi.
25.05 2009 kl.22:45
Slóð
Er maður, sem setið hefur á þingi fyrir 3 flokka og tengist þeim fjórða nú, –
ekki besta finnanlega sameiningartáknið?!
26.05 2009 kl.02:06
Slóð
Hann Gísli okkar Gunnarsson verður að sjá til þess að hann Össur komi þessu Katar máli algjörlega á hreint áður en hann fer að semja um aðild að ESB.
Það má ekkert misjafnt koma í bakið á aðalsamningamanni þjóðarinnar í því máli.
Ólafi Ragnari er hægt að skipta út, en aldrei Össuri.
Blessaðir drengirnir. Ætli þeir hafi fengið að sjá kvennabúrið?
26.05 2009 kl.10:43
Slóð
Það er komið nýtt þing . . .
Það er komin ný ríkisstjórn . . .
Það er komin ný stjórn í Fjármálaeftirlitinu . . .
Það er komin ný stjórn í Seðlabankann . . .
Þegar talað erum hið „Nýja Ísland“, er ekki eðlilegt að skoða allt valdkerfið frá upphafi til enda?
Er ekki hægt að skilgreina Ólaf Ragnar Grímsson sem afsprengi þess tíma í stjórnmálasögu Íslands þar sem pólitískir vinagreiðar þóttu sjálfsagt mál?
Sá sem situr í embætti forseta Íslands er sameiningartákn þeirrar tímaskekkju sem hefur einkennt þá spillingu og óráðsíu sem þjóðin gerði uppreisn gegn núna í vetur.
Það er kominn tími til að hópur góðs fólks safnist saman við Bessastaði og hrópi einni röddu: „Vanhæfur forseti!“
26.05 2009 kl.11:06
Slóð
Þegar Bjöggarnir voru að koma ár sinni fyrir borð í St. Pétursborg tóku þeir einu sinn með sér mann að nafni Ólafur Ragnar. Voru teknar myndir af þeim með forsetanum og bæjarstjóranum í Pétursborg, sem þá var reyndar yfir mafíósinn í borginni og gegnir nafninu Pútín. Síðar, þegar Bjöggi yngri þurfti að hefða eignarrétt sinn á fasteignum, sem engir pappírar voru fyrir, af því að þinglýst afsöl og þvíumlíkt var ekki í hávegum haft í Rússlandi, þá sýndi hann bara myndir af sér með Pútín og þá var eignarrétturinn virtur. Menn spurðu kannski: Hver er þessi ljóshærði, þarna við hliðina á ykkur? Það er bílstjórinn okkar svaraði Bjöggi. Þessa sögu heyrði ég fyrir nokkrum árum og þótti góð. Svo yngri Bjögginn virðist hafa kunna á kerfið fyrir austan og eignast volduga vini þar – með óvirkri aðstoð forsetans okkar. Svo eitthvað gagn hefur verið hægt að hafa af honum í útrásinni.
26.05 2009 kl.18:55
Slóð
Ég skrifaði í gær, kl.17.15, um vandamálið að skrifa á ögrandi hátt án þess að vera með persónulegar svívirðingar. Tveir menn koma síðan til að sanna hve erfitt þetta getur verið, þeir eru reiðir þessari ábendingu. Hér er um að ræða Benedikt 18.53 í gær og GS 2.06 í dag.
26.05 2009 kl.19:53
Slóð
Magnús Björgvinson:
Þú segir:
Össur var að gera tvíhliða viðskiptasaming við Katar. Málið snérist um fjárfestinga erlendis.
Hvort er Össur businessmaður eða ráðamaður? Hvað var verið að semja um í Katar og fyrir hverja? Hvar hefur það komið fram og hvað var forsetinn að gera með honum? Um hvað var verið að semja og hverjir voru að fjárfesta?
Þú segir einnig:
Á þessum tíma voru allir á því að næsta útrás okkar væri í tækniþekkingu varðandi orkuvinnslu. Og mörg félög stofnuð hér til að fjárfesta erlendis.
Er það ekki einmitt málið. Voru forsetinn og ráðherran ekki einmitt að vinna í anda útrásarinnar, þ.e.a.s. að í gegn um klíkuskap að koma tækifærum í hendur fárra á kostnað almenning.
Það er ekki rétt að þarna hafi verið einhver frændi sjeiksins heldur er Sjeikinn sem tengist svikamálum Kaupþings bróðir emírsins í Katar sem Ólafur Ragnar og Össur Skarphéðinsson heimsóttu og vildu auka samvinnu við um íslenskt bankakerfi. Þessi fjölskylda tengist peningaþvætti.
Þetta er bara staðreind sem lesa má um í opinberum gögnum.