Ari Matthíasson sendi mér þetta bréf.
— — —
Sæll Egill.
Þar sem þú hefur hvatt mig til þess að taka þátt í umræðunni skal ég nú
leggja orði í belg. Ég hef að vísu ekki haft jafn mikinn tíma til þess að
gaspra og oft því nú er ég önnum kafinn við að reyna að framleiða og leika
í Við borgum ekki! Við borgum ekki! sem frumsýnd verður í Borgarleikhúsinu
þann 6. júní n.k. Auk þessa er ég líka í meistaranámi í hagfræði og
eitthvað í pólitík.
Mér féll allur ketill í eld þegar ræða átti stjórnarsáttmála og
sósíalistaíhaldsmennirnir og grátkonurnar Ragnar Arnalds og Hjörleifur
Guttormsson tóku til máls um evrópusambandsviðræður. Þá fannst mér ég eiga
litla samleið með VG og gekk út í vorið. Fátt er betur til fallið að efla
með mönnum örvæntingu og teygja þá út í sjálfsmorð (hér er auðvitað átt
við þau pólitísku sem best eru unnin með því að vera ósammála almannarómi
grátkvennanna) en velgjutilfinningin sem óbotnandi þvættingur ofsatrúaðra
harðlínumanna vekja þeim; bölmóður og svartagallsraus er nokkurskonar
gamansemi andstæðinga Evrópusambandsins. Svona menn nenni ég ekki að eiga
orðastað við og það getur reyndar verið óhollt.
Þeim sem aðhyllast hugmyndina um alsherjarsannleik finnst sem mest hætta
stafi af þeim manni sem þá greinir á um aukaatriði, sem fæsta hluti og
smæsta, og vilja láta brenna hann á undan öðrum mönnum.
Þetta var af pólitíkinni.
Af viðskiptalífinu þá fannst mér ágætt að hlusta á Gunnar forstjóra FME í
sjónvarpinu í kvöld, og göfugmannlegt var af honum að verja sitt fólk. Þar
tiltók hann að FME hafi skort úrræði og mannskap til þess að sinna starfi
sínu: Að halda uppi eftirliti og aga með íslenskum fjármálafyrirtækjum.
Mér finnst reyndar að stundum hafi verið misbrestur á því.
Ég hef nokkrum sinnum vakið athygli á úttekt FME á viðskiptaháttum í
verðbréfaviðskiptum hjá Glitni sem fram fór í mars 2007. Í þeirri úttekt
mátti sjá merki um margt at því sem olli bankahruninu og viðbrögð FME við
hinu alvarlega ástandi sem við blasti voru í besta falli linkuleg, en í
versta falli var þar á ferðinni algert getuleysi og vanræksla.
Helstu athugasemdir FME við Glitni voru m.a.(sjá
http://www.fme.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=4872):
Veklagsreglum ekki fylgt og skortur á innra eftirliti. (hvað gerist í
bönkum þegar ekki er farið að reglum: Hann fer á hausinn!)
Frávik frá fjárfestingarstefnum tiltekinna eignasafna. (hvernig var þetta
nú aftur með Sjóð 9??)
Ónóg upplýsingaöflun og mat á þekkingu og reynslu viðskiptamanna áður en
verðbréfaviðskipti áttu sér stað. (er þetta ekki hættulegt fyrir banka??)
Staðsetning greiningardeildar innan markaðsviðskiptasviðs. (varðar þetta
ekki beinlínis lög um markaðsmisnotkun?)
Flestu sem sneri að regluvörslu ábótavant.
(hvað er regluvarsla:
Starfshættir sem miða að því að ætíð sé farið að lögum og reglum innan
fyrirtækis.)
Í mars 2007 var Einar Sveinsson, minn gamli sessunautur á Holtinu,
stjórnarformaður Glitnis. Einar seldi hlut sinn skömmu síðar ásamt Karli
Wernerssyni. Þeir voru víst eitthvað að gráta yfir hversu hörmulega væri
komið fyrir fyrirtækjum á Íslandi og einhver allsherjar ríkissósíalismi
tekinn við. Ja, hérna! Nú slær maður sér barasta á lær.
Við erum sem sagt að tala um eftirfarandi:
Einar Sveinsson og Karl Wernersson lánuðu sjálfum sér miljarða til að
kaupa hluti í Icelandair þegar þeir voru eigendur Glitnis. Þeir eru samt
skuldlausir þegar bankinn leysir til sín hlutabréfin sem voru að veði
skuldanna, en eigandi bankans (almenningur í landinu, sósíalistarnir sem
ekki vill leyfa strákunum að spila áfram) situr uppi með tjónið.
FME vissi að ekki var allt með felldu (og reyndar að allt væri í helvítis
fokking fokki svo töluð sé lágíslenska) inni í Glitni. Athugasemdir FME
voru nefnilega MJÖG alvarlegar, reyndar svo alvarlegar að einn yfirmanna í
áhættustýringu Bandaríska fjármálaeftirlitsins lét þau orð falla að slíkt
hefði hann aldrei séð í skýrslum þarlendra. Hann aftók ekki að ýmislegt
sambærilegt gæti þekkst í hjá þeim, en sagði að slíkt yrði aldrei látið
óátalið og þetta væri ekki eitthvað sem markaðurinn væri fær um að
leiðrétta.
Það hefði nefnilega verið hægt að grípa miklu fyrr inn og koma í veg fyrir
mikið tjón. Vandinn var bara sá brotin vörðuðu beinlínis mikla áhrifamenn
í stjórnmálum og fulltrúa öflugustu viðskiptablokka landsins.
En nú er sem sagt kominn til starfa grandvar og heiðarlegur forstjóri í
Fjármálaeftirlitið og við hljótum að gleðjast yfir þeirri röggsemi að loks
skuli verið búið að vísa málum til hins sérskipaða saksóknara og að
kannski muni fjölga fyrirmönnum við listsköpun á Kvíabryggju.
Kveðja, Ari
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
22 ummæli
Rita ummæli21.05 2009 kl.13:29
Slóð
Það hefur að vísu ekki komið fram hvort fleira var að veði en sjálf hlutabréfin.Sennilega engar persónulegar ábyrgðir.
21.05 2009 kl.13:41
Slóð
Þetta er svo málefnalegt í byrjuninni hjá fallkandídat VG, – boðskapurinn er, ég ætla ekki að eiga orðastað andstæðinga mína heldur kalla þá kellingar og sósíalíhaldsmenn og hrauna svo yfir þá og alla þeirra skoðanabræður með eftirfarandi merkingarleysu um …velgjutilfinningin sem óbotnandi þvættingur ofsatrúaðra harðlínumanna vekja þeim; bölmóður og svartagallsraus…
Afhverju ekki bara helvítis fokking fokk. Það nær þessu betur Ari!
Í guðs friði.
-b.
ps.seinni hluti bréfsins eru svo meira selffölgeligheder sem flestir eru sammála um nema ólafur clausen og þeir aðrir sem telja bankahrunið davíð að kenna…
21.05 2009 kl.13:42
Slóð
Þetta er náttúrlega snilld, fyrst velta þeir skuldunum yfir á ríkið (almenning) og kvarta svo sáran undan ríkisafskiptum. Þessir menn ættu að fá bæði Óskar og Gólden glóp og fyrir vel skrifað handrit og afar sannfærandi leik í þessari snilldaruppfærslu af Vesalingunum. Maður fær tár í augun að vorkunnsemi og meðaumkvun. Eða þannig.
21.05 2009 kl.13:48
Slóð
Ari Matt vælir og segir………………..Þeir eru samt
skuldlausir þegar bankinn leysir til sín hlutabréfin sem voru að veði
skuldanna, en eigandi bankans (almenningur í landinu, sósíalistarnir sem
ekki vill leyfa strákunum að spila áfram) situr uppi með tjónið. Hvaða sósialistar vildu ekki leyfa baugs feðgunum að spila áfram ?
21.05 2009 kl.14:01
Slóð
Þeir menn sem væla yfir ríkissósialisma eru kannski bara tilbúnir að borga sínar skuldir sjálfir ?
Það er þessi ríkissósíalismi sem sér til þess að þeir þurfa EKKI að taka afleiðingum gerða sinna
Því er nú ver og miður
21.05 2009 kl.14:05
Slóð
Ómaklega finnst mér Ari vega að fólki sem hann er ósammála. Hann gæti nú alveg gert svo lítið sem að hafa fyrir því að segja hvað hann er ósammála í stað þess að nota bara fúkyrði. Íslensk þjóð þarf á því að komast ósködduð út úr þessarri ESB-umræðu og svona málflutningur er ekki hjálplegur í því markmiði.
21.05 2009 kl.14:21
Slóð
Mjög málefnalegt bréf hjá Ara. Margir mættu taka hann sér til fyrirmyndar hér
á „Eyjunni.“
21.05 2009 kl.14:28
Slóð
Kallgreyið, Ragnar Arnalds fyrrum ráðherra, er að verða ansi þreyttur og ætti að láta aðra og yngri um að móta stefnu fyrir framtíð Íslands.
Bjarni Harðar er einnig fulltrúi fortíðarinnar, ef ekki fornalda og lítt til þess bær að fjalla um þessi efni.
Fólk verður að sjá glitta í einhverja framtíðarsýn sem er kannski skárri en það sem áður hefur verið.
Burt með spillingu og hin gömlu vanhæfu stjórnmálaþrefara.
21.05 2009 kl.14:30
Slóð
Ég held að Ari eigi bara að leika því hann er skemmtilegur leikari. Hæfileikar hans í pólitík og buisness eru undir frostmarki að mínu mati.
P.s. Er stóra málið á þinginu núna kynjahlutfall í nefndum?
21.05 2009 kl.14:37
Slóð
Þegar kónguló spinnar vef er hægt að rekja vefin út frá miðju.
Hvernig væri nú að teikna upp vefin og út frá honum rekja slóðina.
Setjum bara t.d Geir H.. í miðjuna. Hverji voru hans sérfræðingar.
Hvernig tengist þetta allt frá byrjun.
21.05 2009 kl.14:52
Slóð
Er einhver eftirspurn eftir skoðunum Ara Matt. Maður bara spyr.
21.05 2009 kl.15:30
Slóð
„Mér féll allur ketill í eld þegar ræða átti stjórnarsáttmála og
sósíalistaíhaldsmennirnir og grátkonurnar Ragnar Arnalds og Hjörleifur
Guttormsson tóku til máls um evrópusambandsviðræður.“
Og skal engann undra !
21.05 2009 kl.16:03
Slóð
Hroki, fyrirlitning og algert virðingarleysi fyrir skoðunum annarra.
21.05 2009 kl.17:11
Slóð
Ég þakka Ara Matthíassyni frábæra grein
Hvers vegna var ekkert gert vegna aðvörunar FME í mars 2007 um lántöku Einars Sveinssonar og Karls Wernerssonar úr eigin banka? Þá er rétt að kíkja á lögin. Þar stendur skýrum stöfum að verði FME vart við eitthvað misjafnt skuli málið kært til Seðlabanka sem geri viðeigandi ráðstafanir.
Einu sinni á ári, í september, þurfti FME að skila skýrslu um starfsemi sína til formlegs yfirmanns síns, viðskiptaráðherra. Stjórnarskipti urðu í lok maí 2007. Í skýrslunni til ráðherrans í september 2007 hefði átt að geta athugasemda FME frá því í mars. Var það gert?
Viðbragðsleysi Seðlabankans þarf ekki að koma á óvart þar sem í hlut áttu „góðir menn“ af gamalríkum ættum, ekkert nýríkt Baugshyski. En lét þáverandi bankastjón Seðlabankans, ráðherra seðlabankamála, forsætisráðherrann, vita af þessu máli?
Allt þetta þarf að skoða sérstaklega. Þess má geta að FME hefur fengið frjálsari hendur til a’ð kæra mál eftir að skipt var um stjórn í Seðlabankanum.
Eins og kunnugt er var þingmönnum Sjálfstæðisflokks mjög illa við þau skipti. Er komin skýring á því?
21.05 2009 kl.17:15
Slóð
Athyglisvert er hve illa Sjalfstæðisflokksmönnum er við þessi skrif Ara. Þeir svara þessu á þann eina veg sem þeir kunna: Með persónusvívirðingum um Ara.
21.05 2009 kl.17:46
Slóð
Tek aftur það sem ég sagði í bréfi mínu til Egils að ég nenni ekki að eiga orðastað við Ragnar og Hjörleif. Auðvitað er ég óhræddur við slíkt og ef það má verða til þess að lyfta umræðunni upp á hærra plan þá er það þjóðþrifaverk. Ég áskil mér hins vegar fullan rétt til þess að meta út frá mínum forsendum hvað sé óbotnandi þvættingur og hvenær bölmóður og svartagallsraus sé kominn á slíkt stig að taka beri sem gamansemi.
Til að fyrirbyggja allan misskilning þá er rétt að taka það fram strax að ég er enginn talsmaður Evrópusambandsaðildar. Ég hef hins vegar mikinn áhuga á að um mögulega aðild fari fram lýðræðisleg og fordómalaus umræða. Til þess að sú umræða geti farið fram þarf að komast að því með formlegum hætti hvaða kjör bjóðast.
Það er einmitt ótti andstæðinga lýðræðisins við umræðu sem stendur ákvarðanatöku fyrir þrifum. Þannig er ómögulegt að taka afstöðu til kosta Evrópusambandsaðildar án þess að fá að vita hverjir kostirnir eru. Andstæðingar lýðræðisins eru einnig á móti því að samningur um aðild skuli borinn undir þjóðaratkvæði. Þeir eru einnig á móti jöfnu vægi atkvæða.
Ég hef hins vegar óbilandi trú á Íslendingum og getu þeirra til þess að taka hagfelldustu ákvörðunina.
21.05 2009 kl.18:28
Slóð
Æi mér finnst þetta lélegt. Afskrifa þann sem maður er ósammála með því að kalla þá samheitum fyrir vitleysinga sem er ekki hægt að ræða við. Ef maður er harður á móti e-ju er maður þá fordómafullur og með svartagallsraus? Nei maður er bara með sterka skoðun á stendur á sínu.
Hvers vegna halda menn að Norðmenn hafi fellt aðild 2x um ESB. Það er af því að þessi kjör reyndust bara ekkert svo góð greinilega. Ef menn halda að þessi kjör séu slæm, af hverju ættu þeir þá að vilja kosningu um ESB og hætta á það að þjóðin fari í e-ð sem hún heldur að sé gott en reynist það svo ekki.
21.05 2009 kl.20:07
Slóð
Mér finnst nú það merkilegasta í bréfi Ara þetta með að regluvarsla Glitnis hafi verið ábótavant. Nú væri fróðlegt að vita til hvaða aðgerða FME greip vegna þessa og hvað Glitnir gerði í framhaldi af þessari.
Síðan var þetta varðandi greiningadeild bankans:
Gerðar eru athugasemdir við staðsetningu greiningardeildar innan markaðsviðskiptasviðs m.t.t. reglna um kínamúra.
Er FME með þessu að segja, að greiningardeild Glitnis hafi í raun verið hluti af markaðssviði bankans?
21.05 2009 kl.22:06
Slóð
Sæll Marínó.
Þetta hefur mér einmitt fundist mjög merkilegt og hef reyndar nokkrum sinnum talað um þetta.
Nú er þetta bara úrdráttur úr skýrslunni sem þarna birtist á vef FME og vísað er til. Það væri sannarlega áhugavert að fá að sjá allan pakkann og heyra frekari skýringar á því hvað var þarna á ferðinni og af hverju ekki var ástæða til frekari aðgerða.
Munum einnig að haustið 2007 var FME bent á að ekki væri allt með felldu inni í Glitni vegna Stíms (sem var félag sem virðist hafa markaðsmisnotkun sem sinn eina tilgang). Maður gæti haldið að ef ástand inni í Glitni var svona um vorið og aftur tilefni til rannsókna um haustið að þá væri komið tilefni til alvarlegrar íhlutunar. Sjá:
Lög um verðbréfaviðskipti, nr. 108/2007, 117.gr.: …Með markaðsmisnotkun er átt við að:
1. eiga viðskipti eða gera tilboð sem:
a. gefa eða eru líkleg til að gefa framboð, eftirspurn eða verð fjármálagerninga ranglega eða misvísandi til kynna, eða
b. tryggja óeðlilegt verð eða búa til verð á einum eða fleirum fjármálagerningum, nema aðilinn sem átti viðskiptin eða gaf fyrirmæli um þau geti sýnt fram á að ástæður að baki þeim séu lögmætar og að viðskiptin eða fyrirmælin hafi verið í samræmi við viðurkennda markaðsframkvæmd á viðkomandi skipulegum verðbréfamarkaði,
2. eiga viðskipti eða gera tilboð sem byggð eru á tilbúningi eða þar sem notuð eru einhver form blekkingar eða sýndarmennsku,
Að sjálfsögðu er það í hæsta máta óeðlilegt ef greiningardeild hefur verið staðsettinnan markaðssviðs. Líklega er það líka brot á lögum ef ég skil þau rétt.
Ferlegt er ef óeðlilega hefur verið að lánveitingum til eigenda staðið og tryggingar litlar eða eingöngu veð í bréfum sem lánað var vegna kaupa á. Þá er aðgerðaleysi FME alvarlegt. Eitt er að hafa ekki haft vitneskju um, annað að hafa vitað, en ekki aðhafst.
21.05 2009 kl.23:15
Slóð
Sæll Ari, takk fyrir svarið.
Gunnar forstjóri FME hefur sagt að FME hafi verið vanbúið vegna mannfæðar, en staðreyndin er að FME var fjórum sinnum betur mannað en FSA í Bretlandi, en við sáum svo sem hvernig fór fyrir þeim.
Elín Jónsdóttir, fyrrverandi starfsmaður FME, lýsti því einhverju sinni í viðtali við viðskiptablað Morgunblaðsins, að þegar FME mætti í bankana í úttekt, þá fóru kannski 3 starfsmenn. Úttektir hófust almennt í fundarherbergi, þar sem fyrir hönd bankans voru mættir allt að 15 lögfræðingar. Sagði hún að hvert einasta orð FME hafi verið véfengt og starfsmenn FME hafi því allt of oft verið stöðvaðir í rásblokkinni. Mér sýnist af frásögn hennar, sem bönkunum hafi ekki staðið mikil ógn af FME.
22.05 2009 kl.00:24
Slóð
Forstjóri FME var með Hannesarveikina þurfti ekkert að gera þar sem hann var rískistarfamaður. Þú manns þeir gera ekkert samkvæmt sjöllum. Hann eins og aðir sjallar höfðu sungið það árum saman.
Líka ef hann greiið hefði gert eitthvað þá hefði hann verið tekinn af “ lífi “ og þurft að flýja land. Munum hvernig sjallarnir fara með sitt fólk sem dansar ekki á línunni t.d. Jón Ólafs, Jón Ásgeir , Jóhannes, Hrein o.f. Grimm kvikindi þessir sjallar. Eða til að vera samgjarn þá eru þetta síðari tíma sjallar. Gömlu sjallarnir voru bara í perralátum við hleranir og svoleiðis. Nú er Bjarni Ben hin ungi byrjður að syngja LÍÚ sönginn af öllum kröftum til að fá styrk til að borga flokksskuldirnar. Kannski þeir einu sem eiga peninga.
22.05 2009 kl.11:49
Slóð
Ég er feginn að þú sért tilbúinn að tala við okkur sem erum á móti því að sótt sé um aðild að ESB, þó mér finnist ekki sérlega sanngjarnt að kalla okkur andstæðinga lýðræðisins. Gott væri ef allir aðilar í þessarri deilu gætu hætt að kalla hvorn annan andstæðinga lýðræðisins því þó við séum ósammála um hvað sé rétt hefur enginn talað gegn því að lýðræðislegt stjórnskipulag eigi að ráða á Íslandi og að slík eigi að auka og þróa.
Í stað þess að kalla hvort annað illum nöfnum ættum við að reyna að ræða málefnið. Við samþykkt aðildarumsóknar fer í gang ferli sem ekki bara snýr að því að semja sáttmála sem fer í þjóðaratkvæðagreiðslu heldur fer þegar í gang aðlögun stjórn- og hagkerfisins að því samevrópska. T.d. er talað um að hefja myntsamstarfi við ESB sem fyrsta skref í slíkum viðræðum. VG er flokkur sem hefur talið hag þjóðarinnar best borgið með sjálfstæðri myntstefnu og að sjálfstætt stjórn- og hagkerfi sé í raun forsenda þess að hægt sé að byggja hér það sjálfbæra samfélag sem flokkurinn stefnir að. Að samþykkja að hefja ferli sem mun koma í veg fyrir að hægt sé að byggja upp sjálfbært samfélag á Íslandi er gegn stefnuskrá og grundvallar markmiði VG og þeir frambjóðendur VG sem vilja gera slíkt ættu kannski að hugsa sig um hvort þeir séu í réttum flokki því ekki fæ ég séð að þeir séu að vinna að sama markmiði og flokkurinn.