Sendu Agli póst
silfuregils@eyjan.is
20.05 2009 - Ummæli ()

Kirkja formyrkvunar

Kirkjan kúgaði írska þjóð, hélt henni í greipum ofstækis, fáfræði og formyrkvunar. Það er hryllingur að sjá hvernig börn og ungmenni voru leikin af prestum og nunnum – það er varla hægt að orða það öðruvísi en að kirkjan hafi svikið æskuna.

Ekki var það fyrr en Írland fór að efnast að ráði, eftir að það gekk í Evrópusambandið og opnaðist, að tök kirkjunnar fóru að linast.

Og þá laukst upp Pandóruaskjan: sagan um endalausa misnotkun.

Sekt þessarar stofnunar er mikil. Það er skrítnast að Írar skuli ekki einfaldlega henda henni út í sjó.



«
»

Ummæli ()

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar