Það eru fleiri en Agnes Bragadóttir og Þorbjörn Þórðarson, blaðamenn á Morgunblaðinu, sem Fjármálaeftirlitið hefur í sigtinu.
Hér má lesa að í skotlínunni eru við líka, Kristinn Hrafnsson og ég – og Eyjan.
Eyjan vegna þessa pistils sem fjallaði um þá ákvörðun að laga stöðu peningamarkaðssjóðs hjá Glitni. Þar kom fram að forsætisráðherra og fjármálaráðherra hafi beitt stjórn bankans þrýstingi til að þetta yrði gert.
Meti menn svo hvort þessi frétt á erindi við almenning. Ég tel að svo sé – í hæsta máta.
Annars mætti kannski fara að rannsaka Fjármálaeftirlitið sjálft, t.d. tregðu þess til að veita sérstökum saksóknara upplýsingar. Og hvers vegna það aðhafðist nánast ekkert í sjúku fjármálakerfi þar sem innherjaviðskipti og furðuleg krosseignatengsl voru nánast normið. Það virðist til dæmis hafa farið framhjá FME að hlutabréfaverði í bönkum var kerfisbundið haldið uppi með markaðsmisnotkun.
Svo mætti skoða hvort FME hafi þegið fleiri gjafir eins og rauðvínið sem það fékk frá Kaupþingi á jólum 2007 – og forstjóranum þótti ekkert athugavert. Og almennt hvernig samskiptum FME, þessa yfirvalds, við fjármálastofnanir var háttað.
Þetta er svosem ekki flókið. Ef glæpamenn taka yfir göturnar, þá hlýtur maður að spyrja hvort lögreglan sé að standa sig. Hvað þá ef glæframenn taka yfir bankakerfi heillar þjóðar og setja það á hausinn – er þá hægt að segja að yfirvaldið hafi staðið sig í stykkinu?
Arna Schram, formaður Blaðamannafélagsins, hefur sagt að þetta sé tilraun til að kúga blaðamenn til þagnar. En Agnes segir að Fjármálaeftirlitið ætti frekar að rannsaka bankamenn en blaðamenn.
Loks virðist vera að fjölmiðlafulltrúi FME hafi ekkert vitað um málið. Kannski hefði verið sniðugt að þeir hefðu ráðfært sig aðeins við hann fyrst. Hann er skynsamur maður.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
95 ummæli
Rita ummæli02.04 2009 kl.20:09
Slóð
Þessir hrægammar eru enn að telja peningana sem við erum að gefa þeim fyrir að vinna ekki vinnuna sína heldur hjálpa vinum sínum að kollvarpa þjóðfélaginu, jafnvel þó sumir þeirra séu ekki þarna lengur!
02.04 2009 kl.20:12
Slóð
Vissulega mætti rannsaka FME enda hefur tiltrú almennings á því agnarsmáa batteríi ekki verið mikið upp á síðkastið. FME virkar eins og eftirlit með bankaleynd en fáu öðru. Því miður.
02.04 2009 kl.20:13
Slóð
Quis custodiet ipsos custodes?
02.04 2009 kl.20:15
Slóð
Þetta heitir einfaldlega að vaða yfir á skítugum skónum. Og því verður haldið áfram enn um sinn.
02.04 2009 kl.20:16
Slóð
„Það ræðst á næstu dögum og vikum hvort að Ólafur Ólafsson tapar öllum sínum stærstu eignum. Allt stendur og fellur með nauðasamningum sem Egla, dótturfélag í hans eigu, reynir að ná við kröfuhafa.“
http://www.visir.is/article/20090402/VIDSKIPTI06/353206178/-1
___________________
Þessa menn á FME að vera að elta, ekki þá blaðamenn sem vilja upplýsa samfélagið. Takið á JÁJ og co, Björgúlfsfeðgum og Sigurði E. og Hreiðari. Það er verið að elta í suður þegar á að vera að elta í norður. Þvílíkt lið!!!
02.04 2009 kl.20:21
Slóð
Einhverjir fulltrúar gamla olarkísins að glefsa í ungu lýðræðisbylgjuna í þjóðfélaginu?
Af heift og hatri.
En (vonandi) í dauðateygjunum.
Víkjum nú ekki! Kveðum óværu þjóðarinnar í kútinn fyrir fullt og allt.
ALLA LEIÐ til lýðræðis!
02.04 2009 kl.20:22
Slóð
FME er eins og ríki í ríkinu.
Rannsaka það og þótt fyrr hefði verið.
02.04 2009 kl.20:23
Slóð
Hélt að ný ríkisstjórn og viðskiptaráðherra hefði dug til að taka til í FME.
Eitt og sér hefðu jólagjafir sem voru vínflöskur til starfsmanna FME frá þeim sem þeir hafa eftirlit með átt að hrinda af stað rannsók á starfsemi stofnunarinnar. Það er vísbendig um að meira en lítið sé að.
Er sammála „jónasi“ um að FME virðist aðallega hafa virkað eins og eftirlit með því að úrelt bankaleynd sé haldin. Hvað þarf að fela?
Meira að segja G20 hafa samþykkt að afnema bankaleynd.
02.04 2009 kl.20:24
Slóð
Þetta er enn ein sönnunin fyrir því að grunnhugsun FME er alveg kolröng.
Á sama tíma og þeir nudda velsnyrtum laukhringjum í augnkrókana, þá eru G20 löndin saman komin í London með tvö stór mál á dagskránni:
1. Koma draslinu í gang með fjárframlagi.
2. Sameinast um það að opna upp fyrir bankaleynd.
Á sama tíma keppast molbúarnir á Íslandi um að viðhalda flokkakerfinu í stað þess að standa saman.
Og á sama tíma virðast eftirlitsyfirvöld hafa tekið að sér það hlutverk að vinna gegn gegnsæinu.
Það næsta sem gerist er að einhver vonarstjarnan í Samfylkingunni sttendur upp á fúinn eldhúskoll og glamriar “Ísland er svo sérstakt, aðrar þjóðir geta lært af okkur, tekið Ísland til fyrirmyndar”.
Það er hinsvegar rangt að þessu sé beitt gegn fjölmiðlum. Ekki vera svona hörundsárir, blaðamenn!
Það á sér stað gífurlegur viðsnúningur í afstöðunni gagnvart bankaleynd. Sviss og Lichtenstein hafa skipt um skoðun á nokkrum vikum hvað þetta varðar, fyrst og fremst til þess að komast hjá því að fá á sig skammarstimpil. Þetta hafa íslensk (eftirlits-)yfirvöld ekki skráð á radarinn hjá sér enn sem komið er.
02.04 2009 kl.20:24
Slóð
Er skatturinn ekki að brjóta bankaleynd með þvi að setja allar bankabækur manns inná skattskýrsluna. Automatiskt. Ssama hversu lítið er á bókinni.
02.04 2009 kl.20:25
Slóð
Hvaða alþjóðleg eftirlitsstofnun hefur eftirlit með apparati eins og FME?
02.04 2009 kl.20:30
Slóð
Rósa: Ætil bankarnir þrír hafi skilað til ríkisins, fjármagnstekjuskattinum sem þeir innheimtu af þessum innistæðum og var dregið af vaxtatekjum almennings. Maður fer hreinlega að spyrja sig eftir að vita svona vinnubrögð hjá FME…. ljótt að segja þetta…. en maður verður pirraður yfir svona vitleysis yfirgangi eftir allt sem á undan er gengið.
02.04 2009 kl.20:33
Slóð
Hérna hafið þið það:
http://www.offshorebankingtoday.com/offshore-banking-centers-andorra-lichtenstein-and-switzerland-relax-bank-secrecy/
Þessi tepruskapur um bankaleynd fjallar ekki um íslenska blaðamenn. Krafan um gegnsæi er mjög þung, kemur frá öllum heimshornum, frá bæði stjórnmálamönnum og fjármálageiranum sjálfum.
02.04 2009 kl.20:34
Slóð
Það yrði ekki undarlegt miðað hvað sem er að ske í þjóðfélaginu, það að þið Agnes færuð í fangelsi.
Fangatíðindi myndu sjálfsagt fara í endunýjun lífdaga.
Það að særa Sigurð Einarsson og félaga er náttúrlega svo mikill glæpur að við verðum að fara íhuga að taka upp dauðarefsingu..þó ekki gegn Hannesar jafna
02.04 2009 kl.20:36
Slóð
Stórþjófarnir eru orðnir hræddir og farnir að kippa í spottana…
02.04 2009 kl.20:38
Slóð
Varðandi sjóð 9 hjá Glitni og lífeyrissjóðina hjá Landsbankanum þá velti ég fyrir mér eftirfarandi:
http://eyjan.is/blog/2009/03/17/sertakur-saksoknari-rannsakar-meint-brot-fimm-lifeyrissjoda-hja-landsbanka/
1. Var Davíð Harðarson (framkvæmdastjóri lífeyrissjóðanna) ekki í sömu stöðu og Illugi Gunnarsson (í stjórn sjóðs 9 hjá Glitni) ?
2. Af hverju fengu þeir ekki sömu meðferð ?
3. Af hverju voru sjóðir Davíðs tómir og hann rekinn ?
4. Af herju var peningum dælt í sjóð Illuga og honum hlíft ?
02.04 2009 kl.20:38
Slóð
Nei, en þetta beinist gegn blaðamönnum sem hafa verið í eldlínunni.
Ég bendi á að Þorbjörn Þórðarson á Mogganum hefur verið að standa sig afar vel.
02.04 2009 kl.20:42
Slóð
Það getur verið að FME sé að bregðast við greinum í Mogganum, en sá viðsnúningur sem á sér stað núna — og hefur gert á örfáum vikum — er mjög athyglisverður, og greinilegt að íslensk stjórnvöld eru lítið með á nótunum hvað sveiflur í alþjóðastjórnmálum (og fjármálum varðar). Það snýst allt um að viðhalda flokkakerfinu, klofningnum.
Hef sagt það áður hérna: það sárvantar ’sense of urgency’ á meðal íslenskra stjórnmálamanna.
02.04 2009 kl.20:45
Slóð
Kannski að það beinist gagnvart einhverjum blaðamönnum. En staðreyndin er sú að það hefur átt sér gífurlegur viðsnúningur á meðal G20 landanna hvað varðar sjónarmið á bankaleynd.
Þetta eru íslensk stjórnvöld ekki búin að átta sig á. Því sem beint er gegn blaðamönnum er í raun í mikilli mótsögn við það sem akkúrat er að gerast á G20 fundinum.
Sennilega vegna þess að á Íslandi gengur allt út á það að viðhalda helvítis flokkakerfinu. Í stað þess að vinna saman (þjóðstjórn).
Það vantar illa ’sense of urgency’ í íslenska stjórnmálamenn.
02.04 2009 kl.20:45
Slóð
Er þetta ekki það fyrsta og eina raunhæfa rannsóknin og kæran sem hefur komið frá FME á þessu rúma hálfa ári síðan hrunið átti sér stað og tengist því?
02.04 2009 kl.20:47
Slóð
Nú lágu menn í því. Eru ekki bloggarar samsekir líka?
Margir hafa dreift upplýsingum úr fjölmiðlum um netið.
Verða ekki allir að mæta fyrir rétt, eins og hjá sýslumanninum á Selfoss.
Það er nánast enginn endir á heftu lýðræði.
Skyldu þeir hafa mannaval í þetta nú?
02.04 2009 kl.20:56
Slóð
Mín spá er sú að allir þeir þrjátíu og tveir sem fengu að leika sér eins og lítil börn í sælgætisbúð óáreitt, þar sem verslunartstjórinn hafði enga ábyrgð og sleppur því.. en þau fá 3 til 6 ára fengelsisdóm eftir tvö ár.
Nokkrir af þeim fá skilyrðisbundið vegna heilsustands.
Kúlufólkið fær smávægilega dóma, en skömm.
02.04 2009 kl.20:57
Slóð
Annað hvort er þetta smjörklípa á undan storminum eða það er engin stjórn á neinu hjá þessum ráðherrum. Hvert á maður að flytja? Hef enga trú á þessu liði sem á að vera að stjórna núna.
Hvenig hefði þjóðstjórn virkað? SVONA??
02.04 2009 kl.21:03
Slóð
Er FME leyniþjónustudeild fyrir auðrónana? FME á að bæla niður allar vangavelur um glæpi auðrónanna og ofsækja þá sem reyna að fletta ofan af glæpastarfseminni. Hvað er í gangi?
02.04 2009 kl.21:04
Slóð
Stability. Growth. Jobs.
Þetta eru einkunnarorð G20 fundarins í London.
Á meðan er kosningabarátta á Íslandi. Og einstaka þingmaður tekur lagið í pontu.
02.04 2009 kl.21:05
Slóð
Ég hef bara ekki þolinmæði lengur gagnvart þessum fólum. Lítum á örfá atriði Kaarlo Jannari finnski banka- og krísusérfræðingur hefur að segja um FME á frekar kurteislegan máta:
„The FME has encountered severe difficulties in hiring competent staff.“ Lesist: ÓHÆFT STARFSFÓLK.
„Another resource problem that the FME has been struggling with is the technical infrastructure. In particular, building a secure and well-functioning IT system for reporting and analysis of data has been slow due to a shortage of competent IT personnel and equipment. „Lesist: BYGGÐU EKKI UPP FULLNÆGJANDI OG STARFHÆFT UPPLÝSINGAKERFI TIL AÐ HAFA EFTIRLIT MEÐ FLÓKNUM VIÐFANGSEFNUM. CreditInfo hefur bent á skilvirkt upplýsingakerfi sé grundvallaratriði til að átta sig á umfangi og flækjustigi eignarhaldsfélaganna sem áttu bankanna.
„Indeed, it appears necessary to alleviate the present situation by transferring responsibility for burdensome forensic investigations of past developments to other bodies that have been established to investigate the events leading to the crisis and let the FME concentrate on present and future supervisory tasks. „Lesist: Í GUÐANNA BÆNUM LÁTIÐ EKKI LÁTA FME KOMA NÁLÆGT RANNSÓKNINNI Á HRUNINU EN LÁTIÐ ÞAR TIL BÆRA RANNSÓKNARAÐILA GERA ÞAÐ.
Þetta túlkar fyrrverandi forstjóri FME sem viðurkenningu fyrir starfsmenn FME og uppbygginguna þar…..???!!!
02.04 2009 kl.21:07
Slóð
Á fólk að hlæja eða gráta núna. Allt í einu er rekið upp ramakvein um lög og reglur gagnvart blaðamönnum.
Á ekki bara að reyna að þagga niður ljótan sannleika sem er á leiðinni fram í dagsljósið.
Blaðamenn og þið sem eitthvað vitið. Látið ekki hræða ykkur. Þetta sem þið hafið verið að gera skiptir máli í því að létta hulunni af ósómanum.
Hvar eru lög og reglur gagnvart gráðugum bankastjórum og útrásarvíkingum????
Hvernig væri nú að hjóla í rétta menn.
02.04 2009 kl.21:07
Slóð
Hvað er eiginlega í gangi í henni Reykjavík.
Nú er komin ný stjórn, en margt bendir til þess að Vinstri grænir séu jafn máttlausir og hinir flokkarnir. Enn blasir við okkur vitfirringahæli.
Ég er farin að halda að Íslendingar séu hreinlega vanhæfir til að vera fullvalda þjóð. Almenningur er rúinn inn að skyrtunni, samt vill fjórðungur þjóðarinnar kjósa Íhaldið.
02.04 2009 kl.21:09
Slóð
Ætli að það séu mútur í gangi ??? til að siga einhverjum á þessa blaðamenn sem stóðu í eldlínunni ???
02.04 2009 kl.21:09
Slóð
Það er sannarlega áhyggjuefni þessi algjörlegi skortur fme á ábyrgð sinni á efnahagshruni okkar. Það má vera að einhver lög um bankaleynd hafi verið brotin, en landið var gert gjaldþrota af vafasömum aðilum og þess vegna víkur bankaleyndin.
Egill og nokkrir aðrir blaðamenn hafa aðeins verið að sinna skyldu sinni gagnvart almenningi, sem er meira en fme getur státað af.
Það væri algjört óráð fyrir fme að reyna að þagga niður í þeim. Reyndar mætti segja að fme sé að safna glóðum að höfði sér með þessu, eins og svo mörgu öðru sem þeir taka sér fyrir hendur eða vanrækja að taka sér fyrir hendur.
Þetta eru greinlega ennþá sömu kjánarnir.
02.04 2009 kl.21:11
Slóð
Þetta er stórmerkilegt á svo marga vegu að maður veit ekki hvar á að byrja.
Gott og vel að það gildi ákveðin lög um ákveðna hluti, en hver segjir að öll lög sem sett séu reynist vel?
Sem dæmi þessi lög um bankaleynd, hefði hagsmunum þjóðarinnar verið betur borgið með því að við vissum ekki um þessi umdeildu lán?
Er réttur Kaupþings meiri en hagsmunir þjóðarinnar þegar kemur að yfirdrætti Tjengis?
Blaðamenn og fjölmiðlamenn yfir höfuð hafa oftar en ekki þurft að taka afstöðu með því hvort að hagsmunir heildarinnar sé betur borgið með birtingu upplýsinga og það er fjandakornið ekkert eðlilegt að Stasi mæti á svæðið og hóti fangelsisvist.
Ég skil bara ekki hvað í fjandanum er að hjá fólki sem finnst öll þessi þöggun eðlileg og góð?
Eigum við s.s að borga Icesave reikningana en ekki fá að vita í hvaða subbuskap þeir peningar voru síðan notaðir?
Ég er farin að halda að gæjinn sem skrifaði Karlar sem hata konur hafi í raun verið að skrifa um ísland? Þar sem að blaðafulltrúar aumingjana eru verðlaunaðir með kjánalegum loftbóluþáttum í fjölmiðli í eigu eins þeirra, en þeir blaðamenn sem eru að reyna að komast að sannleikanum er hótað með sektum og eða fangelsi?
02.04 2009 kl.21:13
Slóð
Þetta voru ekki upplýsingar úr bönkum heldur þrotabúum.Þar fauk traustið
endanlega á FME.
02.04 2009 kl.21:14
Slóð
Þó svo að lög um bankaleynd hafi verið brotin með því að birta fundargerð Glitnis, er það þá í verkahring FME að stöðva birtinguna? Ætti það þá ekki að vera í höndum einhverra annarra að reyna að stöðva það? T.d. efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra. Er þetta ekki FJÁRMÁLAEFTIRLIT og á að hafa eftirlit með fjármálastofnunum en ekki hvað aðrir eru að birta um þessar stofnanir.
02.04 2009 kl.21:14
Slóð
Blaðamenn sem berið okkur þessar fréttir, Agnes, Egill o.sfrv…..ekki gefast upp. Ef þið verðið tekin að þá verður hér endanleg bylting.
Hlakka til að sjá hver verður ráðinn forstjóri FME…
02.04 2009 kl.21:18
Slóð
Skv. Davíð að þrátt fyrir að hafa ráðið i átján ár, þá réð hann ekki neinu.
Eins og ummæli Ástu Ragnheiðar 1999 bera með sér, þá hafa þau ráðið.
Davíð og sjálfstæðisflokkurinn var þjónn fólksins, en djöfullinn leyndist í samfylkingunni og við hann var ekki ráðið, því fór sem fór.
02.04 2009 kl.21:18
Slóð
Þetta eru merkileg tíðindi miðað við það ástand sem er í þjóðfélaginu.
Vonandi verður þetta frumhlaup FME til þess að sett verða bráðabirgðalög um afnám bankaleyndar á gömlu bankana og öll eignarhaldsfélög sem fengið hafa torskýrða fyrirgreiðslu í þeim sömu fyrirbærum.
Á meðan ættu bloggarar og þeir sem af mikilli áræðni hafa komið mikilvægum upplýsingum á framfæri við almenning að taka höndum saman og birta öll ný og gömul gögn á eins mörgum vefsíðum, Facebook, Myspace, eða Youtube og hægt er.
Fjöldinn er slíkur að útilokað er að lögsækja þúsundir manna og kvenna fyrir birtingu á „bankaleyndar“ gögnum.
Nú er orðið tímabært að hefja bloggbyltinguna til varnar réttlætinu.
Fyrir þá sem efast langar mig að benda á eftirfarandi til hughreystingar,
http://kari-hardarson.blog.is/users/c7/kari-hardarson/files/kenning_um_borgaralega_ohlydni.pdf .
02.04 2009 kl.21:27
Slóð
Malefni.com er með link sem heldur utan um öll mikilvæg mál sem hafa komið upp eftir hrunið. Sambærilegt ætti að vera hér á eyjunni þar sem safnað er saman mikilvægum upplýsingum.
Í kjölfar tíðindanna í dag þá er augljóst að við þegnar landsins verðum að sjá um þess rannsókn sjálf. Öflin eru greinilega það sterk að þau ógna þeim stofnunum sem við eigum að treysta og eiga að sjá um þetta.
Stöndum vörð um blaðamenn okkar og uppljóstrara. Stöndum vörð um málfrelsi!! Watergate hefði aldrei komist upp hefði það ekki verið vegna uppljóstrara og blaðamanna. Þar sá maður enga blaðamenn handtekna. Enda náði réttvísin fram að ganga.
Blaðamenn, hafið samband við erlenda blaðamenn og komið þessu á framfæri hvað er að gerast hér í dag.
Stöndum saman!
02.04 2009 kl.21:30
Slóð
Þarna hefur greinilega verið hitt á veikan blett. Getur verið að Fjármálaeftirlitið sé að slá skjaldborg um starfsmenn sína og fyrrverandi forstjóra?
Er mögulegt að hérna séu að koma fram staðreyndir sem gera kleift að lögsækja þetta fólk fyrir vanrækslu í starfi? Og jafnvel þá einstaka stjórnmálamenn fyrir að hafa haft óeðlileg afskipti af málinu (hérna voru nefndir fv. forsætisráðherra og fv. fjármálaráðherra)?
Það er eitthvað sem veldur þessari skyndilegu viðkvæmni FME. Nú þarf viðskiptaráðherra að berja í borðið og vernda almenning fulltrúa hennar, pressuna.
02.04 2009 kl.21:35
Slóð
Enn einn vinkill á málið:
Getur verið að þessir blaðamenn hafi verið að fá einkunnina 10 ??? Þess vegna þurfi að snúa þá niður og lækka í þeim rostann. Reynið ekki að halda að þið séuð eitthvað, við skulum hjálpa ykkur að komast að því!
02.04 2009 kl.21:38
Slóð
Hvernig kemur íslensk þjóð að afgreiða það Seðlabanki Íslands lánaði bönkunum 500milljarða korteri fyrir gjaldþrot?
Fé sem lifir vel með hirði á Tortúlu núna.
02.04 2009 kl.21:39
Slóð
Ég get ekki betur séð en að hér sé komið tækifæri fyrir alla sem vita eithvað um sorann, að koma fram og segja sína sögu.
Þetta útspil FME er þvílíkt helvítis bull að nú eru virkilega allar gáttir að opnast.
Það er nokkuð ljóst að ef yfirvöld, hver sem þau eru, ætla að fara fram með þessum hætti, þá verða þau sett til hliðar með heldur harkalegum aðferðum.
02.04 2009 kl.21:39
Slóð
Ég ætla að mælast til að fólk geri eitt. Fyrst FME ætlar að reyna að þagga niður í umræðunni, þá skulum við taka afrit af pistlum Egils sem verið er að fetta fingur út i, afrit af umfjöllun í tengslum við lánabækur Kaupþings, afrit af skjlainu sem Egill birti, og svo taka „Streisand effect“. Streisand effect virkar þannig að þegar reynt er að þagga eitthvað niður, þá taka hundruðir ef ekki þúsundir manna sig saman, og birta þetta hjá sér og sínum. Það verður því erfiðara og erfiðara fyrir viðkomandi þöggunaraðila að koma í veg fyrir að gögn sem mega ekki þola dagsins ljós birtast.
En þetta hringir allavega bjöllum um það eitt, að e.t.v. á að rannsaka FME og það hið snarasta. Það er einhver kominn nálægt einhverju eldfimu þar innanhús, einhverju sem þeir vilja ekki að fjölmiðlar birti fréttir af.
02.04 2009 kl.21:43
Slóð
EN það er ENGIN BANKALEYND EF menn vilja, FME er úti að aka.
Hef svo sem póstað þessu áður:
Sé áhugi á því að fletta ofan af þessu öllu saman þá er það ekki aðeins hægt, það gæti meira að segja verið tiltölulega auðvelt. Okkur hefur verið afhent til þess hálfgert gereyðingarvopn af Breskum stjórnvöldum. Þökk sé Gordon Brown og Alister Darling þá var Íslenskur lögaðili beittur Breskri löggjöf um hryðjuverk. Bresk stjórnvöld komu þessari löggjöf á að Bandarískri fyrirmynd til að útrýma bankaleynd um heim allan til þess að hryðjuverkamenn gætu hvergi höfði sínu hallað, lesist, hvergi komið fjármunum í umferð.
Með vísan til beitingar þessara laga gagnvart Íslenskum lögaðila geta Íslensk stjórnvöld auðveldlega krafist afnáms bankaleyndar um allan heim þar sem þess þarf, líka á Íslandi, og jafnvel fengið til þess góðan stuðning, nefnilega frá Breskum og Bandarískum stjórnvöldum sem eftir allt saman komu þessum lögum á og hafa væntanlega fullan hug á að séu virt, allsstaðar.
02.04 2009 kl.21:46
Slóð
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var áðan á Alþingi að fjargviðrast yfir skorti á siðferði í þinginnu !!!!!!
02.04 2009 kl.21:50
Slóð
Mér er skapi næst að labba niður í FME og bera þessa spillingarpésa út úr húsinu. Þegar sólinn skín á þessa myrkahöfðingja molna þeir sjálfsagt niður.
Þetta er ótrúlegt, alveg ótrúlegt að FME skuli ráðast á fjölmiðla… sýnir svo ekki sé um að villast að stór-öfl í samfélaginu hafa ýmislegt að fela.
Já.. landið er rotið og maðkarnir komnir á kreik…
Fjölmiðlafólk. Haldið áfram …. oft er þörf nú er nauðsyn.
02.04 2009 kl.21:53
Slóð
Ég óttast að þetta sé fyrsta skrefið í þá átt að sökkva eyjunni.
Tek undir með Agnari hér að ofan, tökum sjálf afrit af sem allra flestu, til að nota sem vopn.
02.04 2009 kl.21:55
Slóð
Góð rannsóknarblaðamennska er ekki drefing gagna á netinu sem á hvílir bankaleynd. Gott væri ef Egill gæti bent á eitthvað sambærilegt erlendis frá, þá skal ég éta þetta allt ofan í mig. Ef blaðamenn telja sig yfir lög hafna eins og í þessu tilviki þá erum við komin í vond mál. Hver veitir þeim vald til þess að meta það hvenær þeir megi brjóta lög án refsingar. Þó svo þessir bankamenn kunni að hafa brotið lög að þá veitir það ekki blaðamönnum rétt til þess að brjóta lög. Blaðamenn sem búa yfir svona gögnum og meta að lögbrot sé fyrir hendi ættu einfaldlega að hafa samband við sérskipaðan saksóknara og óska eftir rannsókn.
Held að það sé misskilningur að halda það að vinna G20 gagnvart bankaleynd snúi að því að upplýsingar banka um viðskiptavini sína og alla þeirra gjörðir eigi að vera aðgengilegar á netinu fyrir þá sem vilja. Þarna er fof verið að veita eftirlitsaðilum auknar eftirlits- og rannsóknarhemildir.
Þetta er hárrétt greining Finnans á göllum í starfi FME. FME hefur sannarlega staðið sig illa eins og Seðlabankinn og ábyrgð þeirra er mikil, en þeir hafa allavega séð í gegnum þetta og burgðist við.
02.04 2009 kl.22:00
Slóð
Svik í fjármálastofnunum komast oftast upp vegna ábendinga og leka.
Það er staðreynd.
Þarna gegna fjölmiðlar mikilvægu hlutverki.
Þess vegna eru í gildi svokölluð whistleblower lög í mörgum löndum, til að vernda heimildarmenn sem skýra frá vafasömu athæfi.
Eða vildu menn frekar að það spyrðist ekki út hvað var í lánabókum Kaupþings eða að ráðherrar voru að krukka í peningamarkaðssjóðina í Glitni?
Enron málið var að miklu leyti tilkomið vegna leka.
02.04 2009 kl.22:02
Slóð
Hvenær skal nauðsyn brjóta lög?
02.04 2009 kl.22:06
Slóð
Já, var það ekki Höskuldur.
Þorgerður Katrín predikar siðferði. Manneskjan sem fór tvisvar til Kína, með kallin í eftirdragi og sagðist mundi gera það aftur, ef tækifæri gefst.
Ef einhver embættismaður er gjörspilltur, þá er það Þorgerður Katrín.
Að þetta fólk skuli ekki hafa vit á því að halda kjafti.
02.04 2009 kl.22:10
Slóð
Er þessum mönnum alvara?!? Þetta eru grafalvarlegar fréttir.
Það er ólýsanlega tortryggilegt að FME gangi fram með þessum hætti til að þagga niður í fjölmiðlum. Með því að beina spjótum sínum með þessum hætti að þeim sem mest hafa látið að sér kveða er ekki einungis verið að þagga niður í þeim, heldur er þetta hótun til allrar stéttarinnar.
Lykilspurningin er: Eru fréttamenn komnir á einhverja slóð sem liggur til starfsmanna FME?
Það er margt sambærilegt með þessari taktík og þess sem við sáum í aðferðum Joseph McCarthy þingmanns. Frægt er hvernig hann réðist að Edward Murrow og öðrum aðstandendum þáttarinns „See it Now“ 1954. Eins og Edward Murrow þá verða allir frétta og fjölmiðlamenn að standa í lappirnar gegn þessari aðför.
Munum; leynd er óaðskiljanlegur hluti glæpastarfsemi. Hér hefur FME orðið uppvíst að tilraun til yfirhylmingar. Hvers vegna er spurningin sem þarf að fá svar við. Á tímum þegar jafnvel Svisslendingar, Cayman Eyjar, Jersey og Gurnsey leggja bankaleynd til hliðar er algerlega absúrd að láta sér detta í hug að leggja fyrir sig slíka röksemdafærslu hér við þær aðstæður sem nú ríkja. Reglurnar um bankaleynd voru aldrei hugsaðar til að slá skjaldborg um athæfi líkt og hér er verið að upplýsa almenning um.
02.04 2009 kl.22:11
Slóð
Það er ótrúlegt að sumir þingmenn, stofnanir og fyrirtæki átta sig ekki á því að það hefur orðið algjör viðsnúningur hjá almenningi. Hann lætur ekki bjóða sér lengur gamaldags leynimakk og spillingu. Mér sýnist að Raddir fólksins þurfi að fara að sýna sig til að halda öllum á tánum.
G20 fundurinn samþykkti að ganga á hólm við bankaleynd og feluleiki auðmanna í siðlausum skattaskjólum. Ef yfirvöld ætla halda í gamaldags vinnubrögðum sínum þá mun spillingarstimpillinn festast á Ísland.
02.04 2009 kl.22:12
Slóð
Fimmhundruð og tugttugumilljarða lánuðu sakleysingarnir tveir og Kristur er á Golgata voru krossfestir.
Fé þetta sem þjóð við ballarhaf þarf að borga, en féð er staðsett með góðum hirði erlendis.
02.04 2009 kl.22:18
Slóð
Haltu þínu striki Egill.
Vertu jafnvel enn harðari.
Landið fer á hvolf ef þessir andskotar hrófla við þér.
02.04 2009 kl.22:22
Slóð
Lög eru lög – hvort sem um er að ræða auðmenn eða blaðamenn.
Lög nr. 161/2002
58. gr. Þagnarskylda.
Stjórnarmenn fjármálafyrirtækis, framkvæmdastjórar, endurskoðendur, starfsmenn og hverjir þeir sem taka að sér verk í þágu fyrirtækisins eru bundnir þagnarskyldu um allt það sem þeir fá vitneskju um við framkvæmd starfa síns og varðar viðskipta- eða einkamálefni viðskiptamanna þess, nema skylt sé að veita upplýsingar samkvæmt lögum. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi.
- Sá sem veitir viðtöku upplýsingum af því tagi sem um getur í 1. mgr. er bundinn þagnarskyldu með sama hætti og þar greinir. Sá aðili sem veitir upplýsingar skal áminna viðtakanda um þagnarskylduna.
02.04 2009 kl.22:27
Slóð
Hvernig í fjandanum var hægt að lána gjaldþrota einkabönkum „520″ milljarða án veða, fimm mínútum fyrir gjaldþrot.
Hvar eru þeir peningar nú?
Heldur þetta þríeyki úr „gamla“ seðlabankanum að þeir sleppi með þessa svífyrðu?
Hvað eru landráð ef ekki svona lagaður helvítis gjörningur?
02.04 2009 kl.22:29
Slóð
Ef réttlætis á að gæta þá ætti Egill að fá 8 ár óskilyrðisbundið, Agnes 5 mánuði skilyrðisbundið.
Spegillinn hjá Rúv.lífstíðardóm án möguleika á náðun
02.04 2009 kl.22:30
Slóð
Nú er mál að fara að munda potta og pönnur við Fjármálaeftirlitið og rifja upp hverjir vilja þagga niður allt um milljarðaframlagið og sjóðina góðu sem áttu að vera svo öruggir, sumir eru svo ósvífnir að bjóða sig fram til Alþingis.
Ætli sé eitthvað fleira sem Fjármálaeftirlitið og frambjóðendurnir vilja halda leyndu? Fyrir hvern á svona pukur að vera? Þarna var skattfé notað á heldur betur vafasaman hátt. Bankaleynd getur varla hvílt á notkun slíkra fjármuna. Ráðstöfun á skattfé er ekkert einkamál – ekki var verið að lækna sýfillis og lekanda nafngreindra einstaklinga með þessum peningum. Auðvitað er þetta vandræðalegt fyrir þá sem eiga í hlut, en leynd eins og bankaleynd var einhverntíma ætluð heiðarlegu fólki.
Ekki mátti persónugera vandann, en nú á að persónugera upplýsingu almennings og ofsækja hana. Nú ræðst Fjármálaeftirlitið á einstaklinga. Hvar eru einstaklingarnir með milljarðana? Fá þeir að vera í friði?
02.04 2009 kl.22:31
Slóð
Teningunum er kastað.
Þessir undercover handrukkarar hjá FME fylla mælinn.
Málfrelsið er undirstaða allra annarra mannréttinda.
Nú duga ekki búsáhöld, það þarf að knésetja þessa kúgara með sambærilegu ofbeldi og þeir beita sjálfir.
Daniel Ellsberg þætti vafalaust fróðlegt að heyra að enn væri verið að reyna svona vinnubrögð einhversstaðar á „vesturlöndum“.
http://en.wikipedia.org/wiki/Pentagon_Papers
02.04 2009 kl.22:32
Slóð
Guðmundur.
Nákvæmlega, þetta er svipað og með blaðmenn sem villa á sér heimildir til að komast inn á átakasvæði (það er jú lögbrot í sjálfu sér) til þess að geta komið með fréttir af því sem raunverulega er að gerast.
Ef það er svona mikið vandamál að þessar upplýsingar hafi verið birtar, þá verður maður að spyrja sig af hverju svo sé.
Þó svo að ég sé nú ekki beint talsmaður þess, þá hef ég oft tekið upp hanskann fyrir fólkið sem vinnur hjá FME, vegna þess að það er jú að vinna eftir lögum og reglum sem aðrir settu.
Og .þá komum við að kjarna málsins, af hverju er þessum lögum ekki breytt, hver hefur staðið í vegi fyrir því og hvaða hagsmuna er verið að gæta þar?
Þegar ég les um FME og hvað þar á bæ gerist, dettur mér oft til hugar að þar sé eftirlitsaðili um fjármálastofnanir sem vinnur eftir lögum um skipasmíðar eða eitthvað þaðan af verra.
02.04 2009 kl.22:32
Slóð
PK. Ekki víst að þagnarskyldan eigi við. Fyrirtækið er fallið og starfar ekki lengur nema í gjörgæslu skilanefndar. Víða eru lög sem tryggja hag „wistleblowers“, þeirra sem skýra frá ólöglegri starfsemi þeirra fyrirtækja sem þeir starfa hjá. Þeir stafsmenn hafa sumstaðar orðið þjóðhetjur.
02.04 2009 kl.22:37
Slóð
Ef einhver fjölmiðlamaður fær sekt eða fangelsi fyrir að reyna að komast að sannleikanum
þá trilast allir úr reiði.
02.04 2009 kl.22:37
Slóð
FME notar 58. gr. laga nr. 161/2002, lög um fjármálafyrirtæki. Það er spurning hvort þeir hafi farið fram úr sjálfum sér við túlkun greinarinnar því í athugasemdum við frumvarpið segir svo í lokaorðum um greinina; „Í mörgum tilvikum mundi viðtakandinn sjálfur vera bundinn þagnarskyldu samkvæmt lögum, en svo þarf þó ekki að vera í öllum tilvikum.“
02.04 2009 kl.22:39
Slóð
Hörður,
Sama hér, fannst nóg vera komið af sýndarmennsku þegar Katrín Þorgerður og fylgdarlið fór aðra ferð til Kína.
Ólafur Ragnar og frú voru þar líka og öll hirðfíflinn að baða sig í velgengni strákanna. Var þetta þá keppni milli þeirra að fá athyglina á kostnað þegnana? Á meðan brann Róm. Hvað skyldi líða sýningaskálanum í Shanghai?
Eftir öllu að dæma er ekki niðurskurður þar né í sendiráðunum. Á sama tíma og mörg fyrirtæki búa við 50% samdrátt.
FME þarf líklega að greina milli þjóðarhags og vernd handa einstökum ráðamönnum.
02.04 2009 kl.22:39
Slóð
Þessi hópur íslenskra blaðamanna sem ráðist hefur verið á úr launsátri þarf að finna fyrir þéttu baklandi almennings, og helst að fá stuðning mannréttindasamtaka erlendis. Ekki seinna en núna. Spyrna þarf við þessu ofbeldi af öllu afli.
http://en.wikipedia.org/wiki/Daniel_Ellsberg
02.04 2009 kl.22:39
Slóð
Nú eru einhverjir 23 málþófs-ósjálfstæðismenn á mælendaskrá með ansvörum, svörum við andsvörum og bla bla út í nóttina.
Hugsið ykkur að við skulum standa upp í klof í skítnum sem þetta lið hefur mokað yfir okkur og svo stendur þetta helvítis lið í því að hindra okkur í því að þrífa eftir það.
Helvítis fokking fokk !!!!!!!!!
02.04 2009 kl.22:43
Slóð
PK
2. apríl, 2009 kl.22:22 Tilkynna óviðeigandi ummæli!
Slóð Lög eru lög – hvort sem um er að ræða auðmenn eða blaðamenn.
Lög nr. 161/2002
58. gr. Þagnarskylda
_________________
Hvaða bull er þetta PK? Þetta hefði átt við ef Egill væri starfsmaður innan t.d. banka, en ekki blaðamaður. Hann gæti hafa skrifað undir svona plagg ef hann mætti ekki segja hvað Palli Magg aðhefðist eða viðskiptavinir RÚV.
02.04 2009 kl.22:44
Slóð
Sjálfstæðismenn eru að reyta af sér síðustu óákveðnu atkvæðin með þessu málþófi sínu. Mæli með því að fólk sýni sig þarna niðurfrá næstu daga og láti í sér heyra.
02.04 2009 kl.22:46
Slóð
Hér hafa verið stofnuð hollvinasamtök af minna tilefni en því að verja útverði málfrelsisins á viðsjárverðum tímum.
Það er löngu búið að rjúfa friðinn og svívirða réttlætið hér; síbrotamenn mega ekki lengur njóta vafans.
Það er búið að rétta fram hina kinnina mörgum sinnum, svo fossblæðir.
02.04 2009 kl.22:53
Slóð
Þap einfaldaði dæmið hjá mér þar sem ég er í Reykjavík norður, að það kemur ekki annað til greina en að kjósa Jóhönnu.
Verður spennandi að sjá hversu vel hún gerir, tekur hún Mörð með sér?
Hún stendur sig vel..það gerir líka Steingrímur og hans VGlið.
Undarlegt við hluta íslenska þjóðarsál hvursu tryggir þeir eru við sjálfstæðisflokkinn.
02.04 2009 kl.23:03
Slóð
Ólafur.
Hjartanlega sammála þér.
En ég er farin að efast um að þeir þori að fylgja þessu eftir.
Það er þó orðið nokkuð ljóst að hér er að kvikna eldur hjá þjóðinni, sem verður erfitt að slökkva.
Þetta útspil FME varð kveikjan að því að nú opnast alt, með stuðningi okkar „breiðu“ baka, sem geta orðið verulega breið hlið við hlið.
Þetta er alveg að kæfa fólk.
02.04 2009 kl.23:06
Slóð
Upplýsingar úr lánabókum er enginn mælikvarði á mögulegum glæp bankastjóranna eða eigenda bankanna. Það á ekkert skylt við rannsóknarblaðamennsku. Á þessum listum voru félög sem ekkert hafa unnið sér til saka. Lekar sem leiða af sér rannsókn og mögulega sakfellingu eru velþekktir. T.d. er birting álagningar skattmanns tilraun til þess að kalla fram leka um möguleg skattsvik náungans. Þar er reynt að fá aðila til að gefa sig fram við viðkomandi eftirlitsvald og það metur það síðan í framhaldinu hvort rannsóknar er þörf. Það fer enginn með það í fjölmiðla þó svo að þeir telji Sigga nágranna vera að svíkja undan skatti, enginn fjölmiðill myndi heldur birta slíkt. Á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins geta menn lagt fram í nafnleysi skoðun eða upplýsingar um mögulegt samkeppnisagabrot. Þú ert að blanda saman óskyldum hlutum Egill og ég held að þú vitir það mætavel. Þetta er ekki gott mál.
02.04 2009 kl.23:09
Slóð
Nú eru ekki tímar fyrir þrælsótta eins og þann sem leyfði ofstopamönnum að ræna almenning inn að skinni og kenna fórnarlömbunum síðan um glæpinn.
Ríkisstjórnin þarf að biðjast afsökunar á að þessi atlaga hefur verið gerð með þegjandi samþykki hennar. Er fjármálaráðherrann missing in action?
Ef þessi ömurlegu fordæmi halda áfram að hlaðast upp verður aldrei líft hér fyrir ósvífnum sjálftökumönnum. Þeir hafa greinilega valið að beita hræðsluáróðri. Það er ein birtingarmynd þess terrorisma sem saklaus almenningur hér hefur verið sakaður um.
Terrorstarnir eru enn að störfum í skjóli „ríkisvædds“ (sic) fjármálakerfis.
Og aðgerðaleysi réttarkerfisins bendir til að það sé samsekt, annað hvort bókstaflega eða vegna vanrækslu.
02.04 2009 kl.23:14
Slóð
Þetta fær mann til að hugsa – AFTUR! (sem er auðvitað af því góða, í sjálfu sér.) Og þegar maður hélt að dimmustu dagarnir væru kannski liðnir. Hér koma nokkrir þankar, hversu sundurlausir þeir eru, það veit ég ekki:
# Er nokkuð ótrúlegt að sumt af því sem hefur verið að gerast á hinu pólitíska LEIKSVIÐI undanfarnar vikur sé ákkúrat það: LEIKSÝNING – sett upp til að RÓA LÝÐINN. Á meðan valdastéttin endurskipuleggur sig?
(T.d.: Ef Samfylkingin verður ráðandi í næstu „ríkisstjórn“ spái ég því að ISG komi fljótlega fram á sjónarsviðið sem upprisin Mjallhvít og setjist í hásætið sem hæstráðandi vesalings þjóðarinnar.)
# Athugið að samkvæmt nýjustu könnun ætla um 58% þjóðarinnar að kjósa óstjórnarflokka hrunsins. Ætla má að talsverður hluti þess fólks sé með beinum eða óbeinum hætti framleiðendur bólunnar glæpsamlegu sem sprakk framan í þjóðina. Hinir eru síðan nytsamir sakleysingjar.
# AÐFÖR „Fjármálaeftirlitsins“ að opinskáum blaðamönnum sem barist hafa gegn spillingunni fær mann síðan til að hugsa þetta: HVAÐ EF RAUNVERULEGA VERÐUR ÞAGGAÐ NIÐUR Í GAGNRÝNI með ólögum?
Guð hjálpi þjóðinni þá!
02.04 2009 kl.23:21
Slóð
Þegar maður hélt að nú færi mögulega að byggjast upp traust á stofnunum og þær færu að snúa sér í alvöru að rótum vandans þá kemur þetta. Maður verður hálfvonlaus eitthvað. Mig misminnir kannski en var ekki nýlega sagt frá einhverjum sem leggjast gegn sakaruppgjöf, að öllu eða einhverju leyti, fyrir þá sem upplýsa saknæmt athæfi tengt hruninu? Hvers vegna skyldu menn vera á móti því?
02.04 2009 kl.23:23
Slóð
Lísa:
Jóhanna verður kannski í eitt ár, henni er teflt fram fyrir kosningar vegna vinsælda hennar, persónulega.
Endurskipulagning Samfylkingar veður eftir kosningar.
02.04 2009 kl.23:32
Slóð
Punktur „sj“ kl. 23.21 er mjög athyglisverður:
“ … var ekki nýlega sagt frá einhverjum sem leggjast gegn sakaruppgjöf, að öllu eða einhverju leyti, fyrir þá sem upplýsa saknæmt athæfi tengt hruninu? Hvers vegna skyldu menn vera á móti því?“
Egill, heldurðu að það væri þjóðinni ekki hollt að huga að þessu?
„SH“, auðvitað kemur hvíta prinsessan aftur, sjálfur hinn syndlausi engill lítilmagnans.
02.04 2009 kl.23:34
Slóð
Ég sakna þess tíma er við stóðum á Austurvelli og börðum potta. OG ÞAÐ VAR TEKIÐ MARK Á OKKUR!!!
02.04 2009 kl.23:37
Slóð
Lísa.
Það verður héðan af, ekki þaggað niður í þessarri þjóð.
Ruglið niður á Alþingi nú í nótt, verður til þess að þjóðin springur í loft upp.
Hugsaðu þér að þessi bölvaður hópur rugludalla, geti haldið alþingi Íslendinga í gislingu, nú á þessum tímum.
Hafi þeir skömm fyrir.
Malandi um að ekki sé tekið á málum. Svei þeim.
02.04 2009 kl.23:46
Slóð
Hætt er við því að gjörspilltur fjórflokkurinn skilji ekki hve mikið langlundargeð fólk er að sýna með því að bíða eftir stjórnlagaþingi og leyfa mannorðslausu flokkakerfi að stjórna hér nokkuð áfram.
Tímabilið eftir kosningar, meðan beðið er viðunandi stjórnarskrár og fyrstu kosninga eftir stjórnlagaþing, á að skoða sem nokkurs konar starfsstjórnartímabil. Samanber það sem kennt er við lame duck president vestanhafs.
http://en.wikipedia.org/wiki/Lame_duck_(politics)
Flokkunum þarf að skiljast að umboð þeirra er í raun runnið út, en þeim leyfist að starfa áfram á undanþágu kjósenda, svo framarlega sem farið verði út í traustvekjandi aðgerðir nú fyrir kosningar.
T.d. bindandi loforð um tiltekna hegðun sem sannar að þeir kunni að skammast sín og séu líklegir til að bæta ráð sitt.
Sýni fram á að þeir skilji að þeir eru „lausir gegn skilorði“ framyfir stjórnlagaþing og raunverulega siðbót.
02.04 2009 kl.23:47
Slóð
Dögg Pálsdóttir „þingmaður“.
Þú ert nú ekki svara verð í kvöld.
03.04 2009 kl.00:12
Slóð
Ekki er langt síðan birtar voru skoðanakannanir um fylgi flokkanna nánast án fyrirvara þótt aðeins 58% svarenda tækju afstöðu.
42% höfðu svo mikla óbeit á flokkakerfinu að þeir skiluðu auðu!
Þögnin um þetta er æpandi. Auð atkvæði falla niður dauð og áhrifalaus í kosningakerfi fjórflokksins.
Þetta valdabandalag er í raun vanhæft um að standa fyrir kosningum.
Traustvekjandi aðgerðir þurfa að koma til svo þjóðarsátt verði um skilorðsbundnar bráðabirgðakosningar.
Kosningaloforð sem skipta einhverju máli. Ekki um flugvelli og jarðgöng.
03.04 2009 kl.00:43
Slóð
Mér var nú að detta annað í hug.
Hvað ef þetta er ekki skilaboð til þessara fjórmenninga, heldur skilaboð til þeirra sem lumað gætu á viðkvæmum upplýsingum í kosningabaráttu sem mun verða óvægin og hörð, að halda sig á mottunni?
Getur verið að það sé þöggunin sem verið er að ná fram?
03.04 2009 kl.01:10
Slóð
Jón Ágúst, þú ert að lýsa ógnarstjórn.
Guð hjálpi Íslandi.
03.04 2009 kl.01:31
Slóð
Það hefur ekkert breyst. Það mun ekkert breytast, nema að við höfum það bara verr en áður. En allt annað í þessum stofnunum breytist ekki ! Hvað eru annars margir dagar liðnir frá hruninu? Hálft ár eða næstum því ! Og er eitthvað að breytast ?
Já ég er svartsýnn á þetta ástand enda full ástæða til
03.04 2009 kl.01:32
Slóð
Þarf ekki að fara að athuga vensl starfsmanna FME við þá sem koma við sögu í skrifum um hrun bankanna…
Þetta er afar einkennileg hótun sem þessir blaðamenn eru að fá… – drepfyndið ef EYJAN lendir í „sigtinu“ líka…
Það verður gaman að lenda í nornaveiðunum…
En væri þeim ekki nær að fara að sinna vinnunni sinni ??
Leggja til gögn svo megi rannsaka það sem komið hefur fram í fjölmiðlumu… eða á að setjast yfir allt og þagga niður …
fannst starfsmönnum OKKAR í FME nóg semsagt þessi 1-3 mál sem sérstakur saksóknari fékk…
03.04 2009 kl.03:59
Slóð
á FME ekki að benda lögreglu á svona mál en ekki að aðhafast sjálft?
Þó þeim fari best að þeija.
Hér í tjásunum er verið að bísnast yfir 500 milj. kr til bankanna en enginn nefnir 500 milj. € sem kaupþíng fékk þrátt fyrir að minnsta kosti 100% líkur á gjaldþroti
03.04 2009 kl.04:50
Slóð
Sagði Eva Joly ekki nákvæmlega þetta?
Þegar menn (í okkar tilfelli blaðamenn) nálgast glæpamennina þá setja stjórnvöld í bakkgírinn.
Nú skiptir máli að almenningur styðji við bakið á góðum blaðamönnum og hvetji þá til dáða. Látum ekki blekkja okkur enn eina ferðina.
Áfram Egill, Agnes, Þorbjörn og hvað þið heitið, sem viljið hreinsa út úr skúmaskotum þessa lands.
03.04 2009 kl.05:56
Slóð
Það þarf að rannsaka þátt FME í hruninu.
Hver vissi hvað, hvenær.
Hver tengdist hverjum, hvernig.
Stofnunin er ekki hafin yfir gagnrýni né frekari rannsókn.
Ísland er gjaldþrota.
Krónan er ónýt.
Þriðjungur ungu kynsólðarinnar vill flytja úr landi.
Hvenær ætla stjórnvöld — og almenningur!! — að vakna? Gera sér grein fyrir því að það þarf neyðaráætlun í gang?
Kosningabárátta, söngur á þingi, „endurnýjun“ flokksforystu…..þetta eru hlutir sem skipta ekki ra…….t máli!!
Þjóðin er eins og froskur sem stillt hefur verið upp á eldavélarhellu, og kveikt undir. Mildur hiti í byrjun, nú er froskurinn hinsvegar fastur á hellunni.
03.04 2009 kl.07:12
Slóð
Þegar presturinn tónar þá syngur (grát)kórinn allur með! Það eru lög í þessu landi bæði um bankaleynd sem og persónuvernd. Auk þess er fólk saklaust uns sekt er sönnuð síðast þegar ég tékkaði.
03.04 2009 kl.08:16
Slóð
Stórmerkilegur „framkvæmdahraði“ hjá FME, þetta leyndist þarna
03.04 2009 kl.10:07
Slóð
Þetta er held ég besta lýsing á FME sem ég hef fundið.
http://en.wikipedia.org/wiki/Quango
Það er í sjálfu sér ekkert hægt að agnúast út í svona anorakka sem eru hér að túlka lög um bankaleynd ansi frjálslega, það er vissulega ekkert gaman að fá menn í regnfrökkum heim get ég ímyndað mér, en þetta hefur ekki akkúrat skemmt orðstír fjórmenningana sem um ræðir.
Ég verð sífellt sannfærðari um að þessi stofnun hafi verið sett upp sem svona Facade, Hollywood frontur sem átti að gefa ákveðið image en var í raun bara hálfklárað verk.
Það er þreytandi og eiginlega soul destroying að gruna alla um græsku og að vera með einbeiitan brotavilja og sem betur fer hef ég fulla trú á því að hér á landi búi fleira heiðarlegt en óheiðarlegt fólk.
En við verðum þá líka að geta gert upp þá hluti sem illa fara og læra af reynslunni.
Og stundum gæti verið ágætt að kíkja upp úr flórnum og tala við samsvarandi eftirlit erlendis og sjá hvaða reynslu þau hafa.
Það er að koma á daginn að SEC skeit upp á bak , það voru víða brotalamir hjá eftirlitsaðilum og ekki bara hér, en það á ekki að túlka sem svo að þá sé bara allt í gúddí af því að þetta klikkaði hjá öllum.
Við eigum að taka þessar rústir sem FME er, fjársvelt og illa mönnuð og vinna heimavinnuna okkar, ekki bara apa upp einhverja löggjöf frá ESB og halda að það sé nóg, það þarf að þjálfa fólk, senda það erlendis, byggja upp reynslu og tryggja að sú reynsla sé ekki keypt út af einhverjum krimmum.
Og hugsanlega segja þessum ágætu mönnum sem sömdu þessi bréf að þeir eru nýbúnir að vinna sigur á The Bad Timing Awards.
03.04 2009 kl.10:10
Slóð
Mandla!
Þarna hittirðu naglann beint á hausinn…
Einmitt í svona málum… þá er rokið upp og allt sett i rannsókn…
Áfram Eyjan… áfram þið heiðarlegu og ákveðnu fjölmiðla- og blaðamenn sem þorið að upplýsa okkur um það sem þið vitið …
Látið þjóðina vita ef verið er að reyna að berja ykkur í þöggun…
03.04 2009 kl.10:15
Slóð
Skítt með FME og þeirra herferð gegn fjölmiðlum!
Áfram með kolan blaðamenn!!! Egill Helgason, Agnes Bragadóttir, Þorbjörn Þórðarson, Kristinn Hrafnsson og Eyjan.
03.04 2009 kl.19:48
Slóð
[...] blaðamenn Morgunblaðsins, ritstjóri Eyjunnar og Egill Helgason hafa fengið á sig kæru, fyrir að birta gögn af fundi í Glitni. Kærandi er [...]