Sendu Agli póst
silfuregils@eyjan.is

Færslur fyrir janúar, 2009

31.01 2009 - 62 ummæli »

Sjálfstæðisflokkurinn, völdin og ESB

Ég sagði ekki annað en að Bjarni Ben vildi aðildarviðræður við Evrópusambandið.

En uppsker þennan pistil frá frænda hans Birni Bjarnasyni.

Í pistli mínum kemur ekkert fram um að Bjarni vilji aðild að ESB.

Hins vegar er það ekkert sérlega lógísk afstaða að vilja aðildarviðræður en vera þvert á móti aðild.

Sá sem vill aðildarviðræður hlýtur að sjá hvað kemur út úr þeim – og segja svo já eða nei eftir því hvaða samningur býðst.

Annars held ég að sé rétt sem segir í kommentum hjá mér. Markmið Sjálfstæðisflokksins er fyrst og fremst að vera við völd, enda er hann valdaflokkur Íslands. Hefur verið í ríkisstjórnum mestallan lýðveldistímann, nú síðustu 18 ár.

Bjarni Benediktsson er laukur einnar helstu valda- og peningaættar á Íslandi.

Stefnan var að halda sæmilega huggulegan landsfund og ræða ESB; núverandi forysta ætlaði að halda áfram eftir fundinn.

Ríkisstjórnin féll áður en kom til fundarins og líka Geir Haarde og hugsanlega líka Þorgerður Katrín. Það var ekki vegna ESB, heldur vegna efnahagshrunsins.

ESB eða ekki ESB er ekkert aðalatriði hjá forystumönnum flokksins miðað við valdasóknina. Bjarni Ben, Þorgerður, Guðlaugur Þór, Geir, Andri Óttarsson og Þórlindur Kjartansson eru afskaplega praktískt fólk.

En í Seðlabankanum situr Davíð Oddsson Seðlabankanum og verður líklega látinn víkja úr embætti í næstu viku. Ólíkt flestum foringjum Sjálfstæðisflokksins er honum mjög heitt í hamsi vegna ESB. Hann er nánast fanatískur á móti sambandinu, líkti evrunni eitt sinn við gjaldmiðil Norður-Kóreu.

Og ef Sjálfstæðisflokkurinn væri að þokast of langt í þá áttina, gæti maður alveg séð fyrir sér churchillska endurkomu hjá Davíð.

Það myndi koma geysilegu róti á flokkinn. Maður er ekki viss um að allir flokksmenn myndu fagna.

ps. Annars er Evrópufíknin hjá mér ekki meiri en svo að ég hef sagt að mörg mál séu brýnni á þessum tímapunkti en ESB. Líkti umræðum um ESB meira að segja við rauða síld hér um daginn.



31.01 2009 - 64 ummæli »

Bjarni Ben og ESB

Bjarni Benediktsson hefur boðað framboð til formennsku í Sjálfstæðisflokknum.

Hann er stuðningsmaður þess að Ísland sæki um aðild að Evópusambandinu.

Hér er pistil eftir Árna Helgason, framkvæmdastjóra þingflokks Sjálfstæðisflokksins, þar sem hann hvetur til að sótt verði um aðild.

Verður Sjálfstæðisflokkurinn ESB-flokkur í útlegðinni úr ríkisstjórn – verður það partur af endurskoðuninni sem Bjarni boðar?

Eða munu andstæðingar Evrópusambandsaðildar innan flokksins geta teflt fram sínu eigin formannsefni?



31.01 2009 - 63 ummæli »

Fylgi Vinstri grænna

Í kvöld var sagt frá nýrri skoðanakönnun Gallup. Vinstri græn mælast með 30 prósent og eru samkvæmt því langstærsti flokkurinn. Í fréttinni sagði að þetta væri til marks um vinstrisveiflu.

Ég hef hitt marga hægri menn sem segjast mundu kjósa Vinstri græn ef kosið yrði núna.

Ástaðan er einfaldlega sú að ólíkt hinum flokkunum bera þau ekki ábyrgð á hruninu. Og virðist vera treystandi til að gera eitthvað til að hreinsa til.

Ólík hinum flokkunum.



31.01 2009 - 85 ummæli »

Tímasóun?

Bjarni Benediktsson segir að dýrmætum tíma hafi verið sóað.

En hvað var ríkisstjórnin að gera – fyrir og eftir hrun?

Var hún að nota tíma sinn vel?



31.01 2009 - 25 ummæli »

Gunnar í Silfrinu

Gunnar Tómasson hagfræðingur sem er búsettur í Washington verður gestur í Silfri Egils á morgun.



31.01 2009 - 34 ummæli »

Leiðinda PR

Mér leiðist PR.

Og ég segi að það yrði leiðinda PR ef ný ríkisstjórn ætlaði að taka við undir styttunni af Jóni Sigurðssyni.

Hver ætli hafi fengið svona vonda hugmynd?



31.01 2009 - 93 ummæli »

Hvers vegna sigurhátíð?

Mér er alveg fyrirmunað að skilja hví Raddir fólksins boða til sigurhátíðar í dag.

Lítið hefur gerst nema að ein ríkisstjórn er fallin. Önnur hefur ekki einu sinni tekið við.

Nánast á hverjum degi berast fréttir af nýjum hneykslismálum í banka- og fjármálakerfinu. Maður sér ekki að sé mikið verið að taka á fjárglæframönnunum sem settu Ísland á hausinn.

Atvinnuleysi eykst og kjörin versna.

Er virkilega tilefni til að fagna sigri?



30.01 2009 - 13 ummæli »

Andrés Kolbeinsson

ako-001-072-1-1.jpg

Ég skrifaði þessa minningargrein um Andrés Kolbeinsson óbóleikara sem var fæddur á Þorvaldsstöðum í Hvítársíðu 7. september 1919 og andaðist á Vífilstöðum 15. janúar 2008. Greinin birtist í Morgunblaðinu síðastliðinn þriðjudag.

— — —

Við Andrés Kolbeinsson vorum ekki svo mjög skyldir, ég held að faðir minn og hann hafi verið þremenningar, en hins vegar taldi ég til frændskapar við hann umfram þau ættarbönd sem tengdu okkur. Það var einfaldlega vegna þess að maður var stoltur af því að eiga Andrés að frænda.

Við Andrés kynntumst þegar ég var ennþá á unglingsaldri, fyrst á Mokka og síðar á þeim stað sem kallaðist Stúdentakjallarinn. Andrés hafði hlýtt og gamansamt viðmót, ætli megi ekki segja að hann hafi verið ungur í anda því ekki fann ég aldursmun á okkur.

Ástæðan var ekki síst sú að Andrés var áhugamaður um ólíklegustu hluti. Hann og faðir minn pældu stundum í því hvernig hefði farið ef þeir hefðu fæðst nokkrum kynslóðum fyrr og þeir hefðu orðið kotbændur í Borgarfirði. Báðir héldu því fram að þeir hefðu orðið lélegir búmenn. Ég dreg það ekki í efa.

Andrés – sem fór suður til Reykjavíkur í stríðinu að læra hljóðfæraleik og síðan til Englands – hefði ábyggilega ekki verið með hugann við búskap. Hann var áhugamaður um ljósmyndun, tungumál, stjörnuspeki, tækni alls konar, bíla og fleiri hluti sem ég kann ekki að nefna, fyrir utan að vera tónlistarmaður og afburða góður nótnaskrifari.

Ég þakka honum fyrir frændskapinn.

— — —

Myndin að ofan er sjálfsmynd af Andrési frá 1956, sjá hér.

Og fyrir neðan sjá aðra mynd eftir Andrésar. Ljósmyndir hans voru meðal annars sýndar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur sumarið 2006 eins og sjá má hér.

ak1956-1.jpg



30.01 2009 - 41 ummæli »

Að sá í akur óvinarins

Í Sjálfstæðu fólki segir:

Það er til í útlendum bókum ein heilög saga af manni sem varð fullkominn af því að sá í akur óvinar síns eina nótt. Sagan af Bjarti í Sumarhúsum er saga mannsins, sem sáði í akur óvinar síns alt sitt líf, dag og nótt. Slík er saga sjálfstæðasta mannsins í landinu.“

Ég er ekki frá því að mörgu fólki líði svona þegar það verslar við fyrirtæki sem eru í eigu manna sem hafa sett Ísland á hausinn.



30.01 2009 - 36 ummæli »

Vildarviðskiptavinur Kaupþings

Sigrún Davíðsdóttir, fréttaritari útvarpsins í London, flutti þennan pistil í Speglinum í gær. Hún segir frá fundi sínum og Robert Tschenguiz, sem ekki var einungis einn af eigendum Exista og sérstakur viðskiptavinur Kaupþings, heldur sagðist líka vera vinur Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands.

Hér er brot af pistlinum, hann er í heild sinni hér.

— — —

Í ljósi tapfréttanna af Tchenguiz er mjög athyglisvert að Kaupþing skuli hafa haldið áfram að lána honum stórar upphæðir alveg fram að falli bankans í október. Varla margir aðrir til að lána honum. Tchenguiz var hins vegar enginn venjulegur viðskiptamaður Kaupþings. Hann átti 1,5 prósent í bankanum fyrir tæpum tveimur árum og átti svo í Existu sem var stærsti hluthafi Kaupþings. Kaupþing kom að öllum meiriháttar kaupum Tchenguiz undanfarin ár. Fyrrum stjórnandi í Kaupþingi sagði mér í morgun að Tchenguiz hefði verið einn stærsti viðskiptavinur Kaupþings.

Tengsl Tchenguiz og Kaupþings voru þekkt hér. Um leið og breskir fjölmiðlar fluttu fréttir um fall Kaupþings beindist athygli þeirra strax að Tchenguiz. Í fréttafyrirsögnum gat að lesa að Tchenguiz hefði tapað milljarði punda, 160 milljörðum króna sólarhringinn sem bankinn féll.

Sagan um samskipti Tchenguiz og Kaupþings er að mörgu leyti mjög áhugaverð. Hún sýnir að bankinn skipti við frægustu og áhættusæknustu umsvifamennina hér. Annar banki sem lánaði Tchenguiz mikið er Royal Bank of Scotland sem væri kominn í þrot ef breska stjórnin héldi ekki utan um hann. Í gegnum Kaupþing og Existu var Tchenguiz kominn á kaf í íslenskt viðskiptalíf.

Bæði Vincent og Robert Tchenguiz eru vel tengdir í Mið-Austurlöndum. Kaupþing var fyrsti norræni bankinn til að opna skrifstofur í Dubai og Katar og hefur fjárfest með líbýskum yfirvöldum – en það er önnur saga sem síðar verður rakin.




Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar