Sendu Agli póst
silfuregils@eyjan.is
31.12 2008 - Ummæli ()

Þvæla – 5 mínútur undir jólatré á Austurvelli

Á Vísi.is stendur einhver ótrúleg þvæla um spjallþáttstjórnanda sem eigi að hafa staðið álengdar í mótmælunum við Hótel Borg og látið hlakka í sér.

Þetta er komið frá Sigmundi Erni, stjórnanda þáttarins.

Ég hringdi í Sigmund þegar ég frétti af þessu og hann kannaðist ekki við að hafa sagt þetta við Vísi.

Hann sendi mér SMS núna áðan og sagði að þetta væri misskilningur.

En það er sjálfsagt að segja frá.

Ég á heima í Skólastræti. Það er í sirka 30 metra fjarlægð frá Hótel Borg.

Ég ætlaði ekki að horfa á Kryddsíldina. Konan mín kveikti á þættinum þegar nokkuð var á hann liðið. Sagði mér að eitthvað uppnám væri í gangi.

Ég og sonur minn áttum eftir að fara út að kaupa flugelda.

Gengum yfir Austurvöll eins og endranær – á leið okkar að ná í bílinn sem var í stæði niðri í bæ.

Mótmælunum var lokið, en einhver hópur var þarna ennþá að þvælast.

Mikið af lögreglumönnum, meðal annars víkingasveitarmenn á ómerktum bílum sá ég.

Ég hitti þarna nokkuð af fólki sem ég þekki.

Þar á meðal Kristján Má Unnarsson, fréttamann af Stöð 2.

Hann stóð og hristi hausinn yfir þessu.

Ég sagði við hann að erfitt væri annað en að skilja reiði fólks út í ríkisstjórn sem virtist ekki ætla að taka ábyrgð á neinu.

Að vissu leyti væru mótmælin skiljanleg.

Svo kvöddumst við.

Nú er ég eiginlega að barna söguna fyrir þeim á Vísi.is.

En ég held ekki að við Kári höfum staldrað meira en 5 mínútur við á Austurvelli, stóðum þá undir jólatrénu og spjölluðum við Pál Baldvin, Kötu, Kára son þeirra og Illuga Jökulsson.

Eftir að mótmælunum lauk.

Við fórum svo og keyptum flugelda – bæði hjá KR og hjálparsveitunum.

— — —

Bæti svo við varðandi færslu hér að neðan sem einhverjir virðast túlka sem fögnuð yfir ofbeldi.

Hún var skrifuð ÁÐUR en útsending Kryddsíldarinnar var rofin – meðan maður vissi ekki annað en að fyrir utan væru mótmælendur með háreysti.

Og þarna var ekki annað látið í ljós en að þetta hefði oftast verið heldur leiðinlegur þáttur.

Líka meðan ég stjórnaði honum. Hann var ekkert skárri þá.

Það hefur þótt rosa viðburður í þessum þætti ef einhver fær sér aðeins of mikið að drekka og talar pínu óheflað.

En að kannski gæti þetta orðið svolítið sögulegt í þetta skipti.

Svo er ég ekkert alveg viss um að þetta hafi verið sniðug umgjörð fyrir þjóðarleiðtogana þetta árið, í veislusal innan um fínerí.



«
»

Ummæli ()

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar