Það er alveg rétt sem segir einhvers staðar hér á síðunni. Við megum ekki gleyma Björgólfi Guðmundssyni og Björgólfi Thor Björgólfssyni. Ábyrgð þeirra á íslenska hruninu er ekki lítil.
Þeir hafa sett nánast allt sem þeir hafa komið nálægt á Íslandi á hausinn. Björgólfur eldri hefur tvo banka á samviskunni auk margra gróinna félaga sem maður hefði haldið að ætti að vera hægt að reka með sóma. Dugir að nefna Eimskip og gömlu Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna. Hann hefði líklega aldrei átt að koma nálægt peningum í lífi sínu.
Þeir eiga ennþá fjárfestingarbanka sem heitir Straumur. Maður óttast að hann verði notaður til að kaupa eignir hér á brunaútsölu. Feðgarnir eru ekki minni kennitöluflakkarar en aðrir viðskiptamenn hér.
Þeir ættu að selja fyrirtæki sín í útlöndum og koma heim með fé sitt og bæta þann skaða sem þeir hafa unnið á íslensku efnahagslífi.
Tengsl þeirra, einkum Björgólfs yngri, við lönd í austri eru tortryggileg og þarf að skoða nánar. Feðgarnir auðgast í Pétursborg á tíma þegar þar ríkir skálmöld. Björgólfur yngri hefur verið mikið í fjárfestingum í gjörspilltum löndum eins og Búlgaríu og Serbíu.
Hann hefur starfað í gegnum eignarhaldsfélög á Kýpur. Ég kom þangað fyrir nokkrum árum og sá að Rússar höfðu nánast lagt undir sig eyjuna.
Margt grunsamlegt var á seyði í Landsbankanum áður en yfir lauk. Það þarf að fara í saumana á því hvernig peningamarkaðssjóðirnir voru misnotaðir.
Eigendur Landsbankans bera ábyrgð á Icesave hneykslinu sem hefur eyðilagt orðspor Íslands og steypt þjóðinni í skuldafen.
Það er ömurleg tilhugsun að sama fólkið og stóð í þessu bixi skuli enn vera að störfum í bankanum.
Ég tel að menn eins og Björgólfur og Björgólfur eigi ekki að vera þátttakendur í atvinnulífinu hér framar. Japanskur vinur minn sem kom hingað í heimsókn um daginn sagði mér að ýmsir leikendur í hruninu þar í kringum 1990 hefðu verið sviptir eigum sínum; þeir hefðu upp frá því búið í blokkaríbúðum eins og annað fólk.
Það er hægt að vera hamingjusamur í blokk. Miðað við Björgólf og Björgólf búa meira en 99 prósent jarðarbúa við þröngan kost. Einhvern veginn bjargast þeir. Margir eru meira að segja ánægðir með lífið.
Svo spyr ég hvort sá yngri ætli að standa við kaupin á Fríkirkjuvegi 11?
Ég vona eiginlega ekki, enda var ég alltaf á móti því að þessi fallega bygging yrði gert að monthúsi fyrir auðmann, sem þráði að eignast það vegna þess að hann langaði að undirstrika hvað hann væri mikill thorsari. Einhvers konar Thor Jensen nútímans. (Björgólfur yngri kallar sig aldrei annað en „Thor“ í útlöndum.)