Sendu Agli póst
silfuregils@eyjan.is
12.12 2008 - Ummæli ()

Ráðherraskipti

Bjarni Benediktsson er búinn að losa sig út úr stjórnarformennskunni í olíufélaginu N1.

Þess er víst ekki langt að bíða að hann verði ráðherra. Það gæti jafnvel orðið um áramót.

Dómsmálaráðherra segja menn. Hann tekur þá við af frænda sínum Birni Bjarnasyni sem hverfur úr ríkisstjórn.

Það er ekki talið að Árni Mathiesen hverfi úr stjórninni þrátt fyrir hverfandi traust kjósenda á honum.

Hann er of handgenginn Geir Haarde.

Svo er það vandamálið Davíð sem vofir yfir flokknum. Samband hans og Geirs er farið að minna allnokkuð á samband Margrétar Thatcher og Johns Major.

Thatcher gerði líf Majors nánast óbærilegt meðan hann var forsætisráðherra.

En hann virkaði líka ráðvilltur – eins og Geir.

Þeirri hugmynd var skotið að mér í gær að gera Davíð að sendiherra í London.

Hann er mikill áhugamaður um Bretland og breska pólitík. Og gæti þótt sér nægur sómi sýndur með þessu.

Það er þó alls ekki víst.

Svo er spurning með Samfylkinguna. Ætlar hún að gera breytingar í ráðherraliði sínu?

Fátt virðist reyndar benda til þess.



«
»

Ummæli ()

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar