Jón Þórisson sendi mér þessa grein.
— — —
Enn er ekki kominn kaupandi að Kaupþingi í Lúx, en á undanförnum vikum hafa borist fréttir af áhuga Líbýumanna á bankanum og hefur nafn Sigurðar Einarssonar, fyrrum bankastjóra Kaupþings, verið nefnt í þessu samhengi.
Það er ekkert leyndarmál að Kaupþing var í ágætum tengslum í Austurlöndum áður en bankinn fór í þrot. Þess er skemmst að minnast að á síðustu metrunum fyrir hrunið keypti hans hátign, sheik Mohammed Bin Khalifa Al-Thani, sem er bróðir Emirsins í Katar, 5% hlut í Kaupþingi fyrir um 194 milljónir evra, og varð þar með þriðji stærsti hluthafinn í bankanum. Fyrirtæki Al Thani sem stofnað var í tilefni þessara viðskipta heitir Q Iceland Finance ehf. og er í eigu Q Iceland Holding ehf. sem er eignarhaldsfélag Al- Thani (afsakið, hans hátignar Al-Thani).
Q Iceland Holding ehf, sem ber kennitöluna 560408-1370, hefur lögheimili að Efstaleiti 5 í Reykjavík og deilir því heimilsfangi með Logos lögmönnum og fleiri fyrirtækjum, m.a. 11 fyrirtækjum sem bera nafnið ELL49, Ell 154 og svo framvegis.
Q Iceland Finance ehf, sem ber kennitöluna 510708-0240, er hinsvegar til heimilis að Suðuðurlandsbraut 18 og deilir því heimilisfangi með ýmsum kunnulegum fyrirtækjum svo sem FS7 ehf, Gift fjárfestingafélag ehf, Egla hf, AB 101, AB 124, AB 179, AB180, AB 25, AB 88, Á bleiku Skýi ehf (kvikmyndaframleiðsluarmur Baugs), Eignarhaldsfélagi Samvinnutrygginga að ógleymdu „Félagi áhugamanna tölvuendurskoðenda“ – en ekki er vitað hvað þetta síðastnefnda fyrirtæki sýslar með. Sjá www.rsk.is en þar má finna margt skondið og skemmtilegt!
Voru raunverulegir peningar í spilinu?
Í ljósi þess að kaup Al-Thani í Kaupþingi áttu sér stað síðari hluta septembermánaðar, nokkrum dögum fyrir hrun bankanna, má velta upp þeirri spurningu, hvort raunverulegir fjármunir hafi verið í spilinu í þessum viðskiptum, eða hvort kaupin hafi verið hluti af “hringekjuleik “ bankans, þ.e. að peningarnir hafi komið frá Kaupþingi sjálfu og verið liður í þeim blekkingarleik sem var í gangi með bréf bankans?
Kaupþing með útibú í Katar
Þann 1. Október 2007 fékk Kaupþing leyfi til þess að stunda bankastarfsemi í Katar, fyrstur norrænna banka. Kaupþing mun hafa lagt áherslu á fjárfestingabankastarfsemi og skipulag “auðumsýslu”! („wealth management services“) í Katar. Ekki hafa borist fréttir af því hvort bankinn hafi tekið að sér vörslu á sparnaði landsmanna í Katar – en af honum mun víst vera nóg!
Í janúar á þessu ári var Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í opinberri heimsókn í Katar ásamt fríðu föruneyti (m.a. Össuri Skarphéðinssyni iðnaðarráðherra Samfylkingarinnar) og heimsótti við það tækifæri meðal annars útibú Kaupþings í Doha, sem þá var nýverið tekið til starfa. (Fyrir áhugasama má benda á, að á heimasíðu forsetaembættisins má finna skemmtilegar myndir teknar í heimsókninni, www.forseti.is ).
Víða liggja þræðir
Í ljósi frétta af áhuga Líbýumanna á Kaupþingi í Lúxemborg, má geta þess að Líbýumenn og Katarbúar gerðu á síðasta ári með sér samkomulag um stofnun sameiginlegs fjárfestingasjóðs (Libyan-Qatari joint investment fund). Stofnfé sjóðsins var um 2 milljarðar dollara. Á sama tíma gerðu ríkin með sér samkomulag um samvinnu á sviði fjárfestinga í fasteignum, ferðamannaiðnaði og orkumálum. Bæði ríkin hafa verið virk í fjárfestingum í Evrópu á undanförnum mánuðum, Líbýumenn hafa eignast stóra hluti í einum stærsta banka Ítalíu, keypt hlut í Fortis bankanum í Belgíu og Katarmenn hafa fjárfest m.a. í Barcley’s í Bretlandi og fleiri bönkum.
Nú verður fróðlegt að fylgast með þróun mála Kaupþings í Lúxemborg, en þrátt fyrir endurteknar fréttir fjölmiðla í Lúxemborg og Belgíu af því að verið sé að loka málinu, hefur enn ekkert gerst.
Er hugsanlegt að Sigurður geti notað sambönd sín í Katar og fengð þá í lið með Líbýumönnum til þess að komast yfir Kaupþing?
Og hvað er að gerast með útbú Kaupþings í Katar? Er einhver að fylgjast með starfseminni – og sýsli útibúsins með auð þarlendra?
Yfir til þín Björgvin? Árni? Einhver?
Hér eru myndir teknar af www.forseti.is