Mánudagur 08.12.2008 - 09:13
- Ummæli ( )
Eru þeir að grínast?
Sigurður Jónsson, forstjóri KPMG endurskoðunar, er faðir Jóns Sigurðssonar forstjóra Stoða/FL-Group.
KPMG er endurskoðandi Baugs og Stoða/FL-Group. Hefur skrifað upp á reikninga fyrir hinn þrönga hóp manna sem stendur að þessum fyrirtækjum.
Þessi þröngi hópur var líka aðaleigandi Glitnis.
Það eru uppi áleitnar grunsemdir um að þessir menn hafi misnotað bankann í stórum stíl.
Samt telur Sigurður Jónsson, forstjóri KPMG, að fyrirtæki hans sé hæft til að rannsaka atburði í Glitni síðustu mánuðina fyrir bankahrunið.
Er þetta grín?
« Afvegaleidd umræða
Vonleysi »
Ummæli
( )
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is