Hér er myndband með viðtölum við hagfræðinga hjá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum þar sem þeir ræða ástandið á Íslandi.
Þeir segja að kreppan verði djúp og erfið en að valkosturinn að nota ekki hjálp frá IMF hefði verið verri.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
32 ummæli
Rita ummæli26.11 2008 kl.19:31
Slóð
Athyglisvert. Verður án efa rætt í kappræðum Guðlaugs Þórs og Ögmundar annaðkvöld.
26.11 2008 kl.19:33
Slóð
eitthvað komment á að davíð láti rjúfa útsendingu íþróttafrétta á RÚV til að tilkynna um eitthvað rugl?
er ekki kominn tími til að hann láti bara gott heita???
26.11 2008 kl.20:04
Slóð
Vandamálið: Of stórt bankakerfi miðað við getu Seðlabankans til að sinna hlutverki sínu sem lánveitandi til þrautavara.
Sökudólgar: Bankarnir og ríkið sem leyfði þeim að stækka svona.
Hverjir greiða: Íslenskur almenningur
En hvað með þá sem lánuðu bönkunum peninga til þess að ráðast í þessar fjárfestingar? Er sök þeirra og ábyrgð engin?
Greinilega ekki því almenningur á að greiða þeim lánin til baka. Það er sem sagt allt í lagi að vera alþjóðlegur fjárfestir og fjármagna 25% viðskiptahalla og leggja hagkerfi í rúst. IMF sér til þess að þú fáir peningana til baka.
Lausn (skv. myndbandinu): Gríðarleg skuldsetning og sérfræðiaðstoð að utan.
Ástandið fyrir hrunið: Gríðarleg skuldsetning auk fjármálakerfis sem byggt var upp með sérfræðiaðstoð að utan.
Það er eitthvað meira en lítið bogið við þetta allt saman!
26.11 2008 kl.20:04
Slóð
Við, íbúar íslenska lýðveldisins, á þessum tímum efnahagsþrenginga og yfirvofandi gjaldþrots þjóðarinnar, viljum koma því á framfæri við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, Seðlabanka grannþjóða Íslands og ríkisstjórnir þeirra að það sé ekki til framdráttar fyrir íslensku þjóðina að núverandi ríkisstjórn taki við lánsfé ykkar.
Vegna spilltra innlendra stjórnmála og óstjórnar efnahags- og peningamála stöndum við nú andspænis þessum efnahagsþrengingum. Við trúum því að stjórnmálaleg ábyrgð og siðleg stjórnsýsla séu frumforsendur þess að hér komist á raunverulegur efnahagsbati og ný skipan fjármála. Til þess þarf að skipta um ríkisstjórn svo endurvekja megi traust og trúverðugleika bæði innanlands og utan.
Við krefjumst þess að kosningar verði haldnar sem fyrst og við erum sannfærð um að þær leiði til nýrrar og bættrar stjórnskipunar. Þangað til,
Vinsamlegast afhendið ríkisstjórn Íslands ekki lánsfé.
HREYFING FYRIR NÝJU LÝÐVELDI Á ÍSLANDI
26.11 2008 kl.20:04
Slóð
..auðvitað segir imf að allt annað en imf hefði verið hræðilegt.
26.11 2008 kl.20:09
Slóð
Geysifallegar myndir frá Íslandi í þessari frétt.
Vonandi munum við eiga þessa dýrlegu náttúru áfram.
26.11 2008 kl.20:11
Slóð
IMF um Ísland í júlí: „Öfundsverðar langtímahorfur“
26.11 2008 kl.20:18
Slóð
eggert sagði „… að davíð láti rjúfa útsendingu íþróttafrétta á RÚV til að tilkynna um eitthvað rugl?“
Bíddu hvenær var þetta?
26.11 2008 kl.20:41
Slóð
http://www.iht.com/articles/ap/2008/10/08/business/LT-Venezuela-US-Meltdown.php
Why does he speak of confidence, does he consider the Krona human?
26.11 2008 kl.20:51
Slóð
Paulson er klónaður sem afrit af Henry Paulsson och Bush og þar af leiðandi er IMF þátttakandi í cover up fyrir núverandi Bush stjórn.
http://odeo.com/episodes/23477699-Bush-Speech-from-G7-IMF
Tékkið á greiningunni sem gerð er í lokin, því það er athyglisvert.
26.11 2008 kl.20:54
Slóð
Mætti svo líka athuga þá fréttagrein sem kom í dag í sambandi við það eftirlit sem CIA hafði á Tony Blair og mætti þess vegna gera ráð fyrir að fleiri lönd í Evrópu hafi haft stöðugt eftirlit bandarískra stjórnvalda, sérstaklega ef að þáttaka í Írakstríðinu var ekki nógu áhugasöm um að sinna stefnu Bandaríkjanna. Kem þá til hugar Þýskaland og kanslara þess.
26.11 2008 kl.20:56
Slóð
hrikalega ósanngjarnt að Íslenskur almenningur eigi að þurfa borga skuldir sem einkafyrirtæki hafa skapað, ef þetta hefði ekki verið bankar þá hefði enginn ættlast til að þjóðin skildi borga en ríkisvaldið vissi að ef illa færi þá myndi þetta lenda á allmenningi í landinu (EES).
Þetta hræðilega ástand er algjörlega orsakað af ríkisstjórnini og stærsta hlut á Sjálfstæðisflokkurinn þar sem hann hefur verið allsráðandi á Íslandi í svo mörg ár.
Það er kominn tími til að hreinsa til í Íslensku politikini og stokka upp, síðan á að ákæra þessa glæpamenn sem hafa stolið fullt af peningum um alla Evrópu.
26.11 2008 kl.21:02
Slóð
„Megin eldsneytið í þessari reiði í dag er auðvitað óvissan“
Séra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, sagði í Íslandi í dag nú fyrr í kvöld að; „“Megin eldsneytið í þessari reiði í dag er auðvitað óvissan“. Því miður óttast ég að viðbrögð við minnstu tilefni komi til með að verða meiri og jafnvel ennþá öfgafyllri þegar atburðir á við það sem gerðist í Njarðvík koma upp.
Ríkisstjórn Geirs Haarde hefur haldið þjóðinni í óvissunni í þær 8 vikur sem hafa liðið síðan bankarnir hrundu og hún virðist ekkert ætla að gera nema að halda okkur úti í kuldanum áfram. Svo sprettur þessi mikla reiði fram í fólki undir svona óhuggulegum kringumstæðum og á endanum fer allt úr böndunum.
Ég held að eina mögulega leiðin út úr vandanum sé að fólkið fái að ráða (kjósa í vor) – að óháðir aðilar taki við landinu þar til fólkið hefur kosið sér nýja leiðtoga sem sátt ríkir um. Þetta er ekki svo flókið og það hafa margi fróðir menn komið fram sem áður hafa ekki sést sem geta vel stýrt Seðlabankanum og sett fram frumvörp um lög á alþingi í svokallaðri utanþingsstjórn. Menn og konur (sérstaklega) sem hafa ekki aðra eða báðar hendur inni í allri spillingunni.
Við verðum að fá þjóðarsátt og hún næst ekki með Geir í stól forsætisráðherra.
26.11 2008 kl.21:05
Slóð
Leiðinlegt þegar einshverjir hópar eins og „HREYFING FYRIR NÝJU LÝÐVELDI Á ÍSLANDI“ leyfir sér að tala í nafni þjóðarinnar. ´Þau tala ekki í mínu umboði: Takk!
Og þessi áskorun þeirra um að veita okkur ekki aðstoð er náttúrulega út í hött.
26.11 2008 kl.21:15
Slóð
Sammála þessu Magnús. Þeir hafa ekkert umboð frá þjóðinni. Það hafa þjóðkjörnir fulltúrar. Þó að 5000 mæti á fundinn hans Harðar Torfasonar og nokkrir þeirra hendi eggjum á Alþingishúsið eru það 295.000 sem ekki mæta á þann fund þannig að þetta fólk hefur ekkert meira umboð en ég, þú eða Egill eða aðrir hérna á blogginu.
Ég hef ekkert gefið Herði Torfasyni eða öðrum mitt umboð. Það fá þeir í kosningum sem bjóða fram. Þær leikreglur verðum við öll að virða þótt við höfum skoðanir á þessu öllu saman.
26.11 2008 kl.21:16
Slóð
http://www.mbl.is/mm/frettir/sjonvarp/index.html?media_id=21296;play=1
Henry Paulsson – he got the tools he says, and GWB uses the same term. What at coinsidence! and what are the tools? Seems like a shot Henry Paulsson.
26.11 2008 kl.21:22
Slóð
Tek undir það. Siðleg stjórnsýsla er eins og ónæmiskerfið. Þegar hins vegar einn Flokkur ræður öllu í meira en 4 kjörtimabil samfellt. Og býsna þétt þar á undan. Þá einfaldlega sofnar þetta klapplið á verðinum.
Einhver kom með eitt besta comment sem ég hef heyrt á Fjármálaeftirlitið og forstjóra þess. Ef við gefum okkur að forstjórinn sé frjálshyggjumaður þá trúir hann í blindni á markaðinn. Markaðurinn á að leysa allt.
- Mun svona maður einhverntíma gera ráð fyrir þvi að haustið 1929 geti endurtekið sig ?
SVARIÐ ER AUGLJÓST. Þess vegna er TJÓNIÐ meira en það hefði annars orðið. Ef það er svo satt að Forstjóri FME hafi sitið einn á fundum á skrifstofu Hreiðars Más, þá er hann með öllu óhæfur. Allt IceSave málið sannar það reyndar.
26.11 2008 kl.21:24
Slóð
„Iceland allowed a very oversized banking system to develop.“
Burtséð frá því hvernig bankarnir fjárfestu eða hvort þeir hafi gert eitthvað ólöglegt eða ekki, er þetta þá ekki kjarni málsins, þeas að Ísland leyfði þessu að gerast?
Það að bankarnir fóru á hausinn er bankastjórunum að kenna og ef að markaðurinn virkar svona vel þá fá þeir væntanlega ekki vinnu aftur. Það að Ísland fór „á hausinn“ er þeim sem stjórna Íslandi að kenna, þeas ríkisstjórninni og Alþingi.
26.11 2008 kl.21:31
Slóð
Menn eru að tala um að hreinsa þurfi rækilega til í stjórnkerfi landsins. Það er ekki nóg að skipta um fólk í æðstu stöðum það verður auðvitað að skipta um hugmyndafræði, sem getur orðið erfiðara og staðið illyrmislega í stjórnmálaflokkunum. Þeir hafa allir verið með sínar hugmyndir innan „pheriferiu“ markaðshyggjunnar, þar sem gróðahyggjan er í hásæti, arðránið á aðra hönd og spilling á hina. En kapitalisminn er eins og loftsteinn sem er að brenna upp í gufuhvolfinu, miklir hvellir, sprengingar og ljósagangur, síðan algeir sundrun. Forvígismenn kaupsýslustéttarinnar munu reyna hvað þeir geta til að draga endalok hans á langinn, en geislar sólar nýrrar hugmyndafræði, sem byggir á andlegum gildum, eru byrjaðir að skína við sjónarrönd. Mannkyninu eru allir vegir færir.
26.11 2008 kl.21:34
Slóð
Ég verð að viðurkenna að ég sakna pínulítið þeirra tíma þegar mesta umræðan á þessum vef og víðar var um miðbæjarskipulag í Reykjavík..
Saklausari tímar.
26.11 2008 kl.21:59
Slóð
Jón Bjarnason vill leggja niður forsætisráðherra-, fjármálaráðherra- og seðlabankastjóraembættið! Væri hægt að spara eitthvað þar. Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn stýri hvort eð er stefnunni í fjármálum.
http://jonbjarnason.blog.is/blog/jonbjarnason/entry/725949/
26.11 2008 kl.22:05
Slóð
Flottar myndir frá Íslandi. Einhver auglýsingagúrúinn sagð „no news is bad news“, þannig „any news is good news“.
Voltare sagði að ef þú sérð Svissnenskan bankamann hoppu út um gluggan á fimmtu hæð, þá skaltu elta hann út um gluggan – því það er hægt að græða péning á leiðinni niður.
Auglýsum Ýsland sem fyrirmyndaríki og þá koma túristarnir (eftir 1-3 ár). Ef olíufélögin geta selt sig sem græn og náttúruvæn, þá getum við líka snúið þessu á haus (og grætt á leiðinni niður).
26.11 2008 kl.22:08
Slóð
Er þetta djók?
Þetta er bara IMF auglýsing, var þetta eitthvað annað en það?
Ég væri til í að heyra í þeim sem segja að við séum geðveik….
Steypum þjóðinni í enn meiri (erlendar) skuldir með því að reyna að styrkja minnsta gjaldmiðil í heimi, sem er dauður fyrir umheiminum!
26.11 2008 kl.22:13
Slóð
Það er nokkuð ljóst að ég ætla ekki að sitja hérna á þessu skeri og láta taka mig í óæðri endan. Mér dettur ekki í hug að borga eina einustu krónu og því síður ætlast ég til að börnin mín geri það heldur.
Er byrjaður að pakka, gangi ykkur sem best í framtíðnni, þið sem ætlið að kyngja þessu rugli. Á meðan fólk nennir ekki einu sinni að mæta niður i bæ til láta í sér heyra þá sé ég ekki að okkur sé viðbjargandi. Við ætlum að láta ráðamenn og konur vaða yfir okkur á skítugum skónum, taka þessu af karlmennsku og borga síðan fyrir partýið hjá Bjöggum og co.
Mér dettur heldur ekki hug að hanga hérna meðan ekki einn einasti kjaftur er gerður ábyrgur. Kannski ég komi í heimsókn til ykkar einhvern tíman en það verður örugglega bið á því og ábyggilega ekki meðan sama liðið situr en að kjötkötlum.
Síðan mætti líka benda Geir og Sollu á að kirkjugarðarnir eru fullir af ómissandi fólki ef þau virkilega halda að þeim sé best treystandi fyrir endurreisninni, sem hefur ekki gengið neitt sérstaklega hjá þeim.
26.11 2008 kl.22:14
Slóð
Ég get ekki tekið undir að mistökin hafi verið að banka kerfið hafi verið orðið of stórt fyrir hagkerfið. Hljómar svoltið eins og smjörklípu skýring.
Ástæðan fyrir hruninu og ástæðan fyrir að við erum enn að lenda í dýpri holu er spilling og vanhæfni á öllum æðstu stigum í þjóðfélaginu.
Stór banki hrynur ekkert bara af því hann er orðinn of stór miðað við hagkerfið sem hann er í, hann hrynur af því hann er illa rekinn. Einu vandræðin með að við vorum með ofstóra banka miðað við hagkerfið var að við gátum ekki haldið spillingarveislunni gangandi.
Mér finnst það betra að þeir voru keyrðir útaf núna heldur en ef við hefðum haft gjaldeyrisvarasjóð því það hefði farið alveg eins bara gerst seinna, og kreppan í öðrum löndum kemur því ekkert við að hér hrundi pappírsverksmiðjan SF (samvinna allra bankanna, seðlabankans og víkinganna) ekkert skrítið að króna hafi lækkað í verði þegar svona gríðarlegu magni af krónum er fleytt inn í kerfið.
Ég er mest hissa að hún sé ekki hruninn neðar, og verðbólgan meiri. Það sem gæti verið að hjálpa okkur er að mest af peningunum gufuðu upp í verðbréfum og það sem var skuldað og ekki greiðist lendir á ríkinu þannig það heldur ekki áfram að velkjast í kerfinu. Þar af leiðandi minna af krónum til að valda verðbólgu og fella gengið.
26.11 2008 kl.22:29
Slóð
Já, en hvernig stendur á því að útrásarmennirnir voru slíkar pissudúkkur að þeir gátu verið stórir karlar meðan allt lék í lyndi, en kastað tapinu í ríkið?
Hvað varð um hinn stolta viðskiptajöfur sem stendur og fellur með sínum ákvörðunum SJÁLFUR?
Fyrir utan þá augljósu staðreynd að hver kjaftur í ríkisstjórninni vissi að ríkið var ábyrgt og því um alvarlega afglöp í starfi að ræða hjá henni.
Allt að því glæpur gegn mannkyni, að dæma heila þjóð í þrælabúðir.
Eða verða Vesturveldin að biðja afkomendur Hitlers, Himmlers og hinna stríðsglæpamannanna afsökunar?
26.11 2008 kl.23:01
Slóð
gæðin a þessu eru þau sömu og kynningarmyndbönd fyrir danska hojskole……….
26.11 2008 kl.23:28
Slóð
Fróðlegt ! Við ekki í góðum málum.
Verð samt að gera athugasemd við nokkur ummæli eða nöfn þeirra. Þora menn ekki enn þann daginn í dag að koma fram undir nafni ? Er þessi leyndarhyggja að verða einhver þjóðaríþrótt ?
Hvet alla til að skrifa undir nafni (fornafni eða alnafni). Hræðumst það ekki !
26.11 2008 kl.23:30
Slóð
Er ekki hægt að fá stærra letur í þetta athugasemdakerfi, Egill?!! – til þess að geta hrópað hærra!
Þetta eru landráð og ekkert annað. Við munum sækja ykkur til saka Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Geir Hilmar Haarde fyrir að selja okkur í ánauð IMF. Og til hvers eru allir þessir peningar fengnir að láni?
Til þess að geta fleytt krónunni? Ég hef enn ekki heyrt sannfærandi og trúverðuga skýringu á því hvað þetta gegnur útá!!!!
Er einhver með skýringu? Nei, einmitt, þetta er fullkomið rugl. Hafa menn ekki fylgst með því sem er að gerast útí heimi? Hvaða heilvita manni dettur í hug að krónan geti orðið stabíll alþjóðlegur gjaldmiðill í þessu umhverfi?
Það sem mun gerast er að IMF lánið verður brennt upp á altari spákaupmanna á nokkrum dögum – og hvað þá?
Hvað er plan B?
Að við flytjum úr landi? – Því það munum við gera ef svo fer sem horfir!
27.11 2008 kl.01:11
Slóð
Ég gafst upp á Íslandi fyrir 15 árum og fluttist til mið evrópu. daginn sem ég flutti gerðist ísland drauma paradís. Launin voru há og lífsstandarinn hár. ég var alvarlega að huxa um að flytja heim, en sem betur fer er ég sljór og dapur.
27.11 2008 kl.06:47
Slóð
ég flutti frá fróni fyrir 19 árum sídan og sé örugglega EKKI eftir thví og flyt aldrey tilbaka var búinn ad fá nóg af thessum helvítis klíkuskap (stjórmálamenn) og spillingu..
27.11 2008 kl.16:00
Slóð
Alex Jones um IMF og Ísland….
http://www.youtube.com/watch?v=nXpDckltkFw