Er þetta hið akademíska frelsi í Háskólanum í Reykjavík?
Það er agalegt að hugsa til þess að ungt fólk geti orðið svona forpokað.
Katrín flutti ágæta ræðu. En maður þarf ekkert að vera sammála henni frekar en maður vill.
Reyndar er athyglisvert með Háskólann í Reykjavík. Hann hefur beinlínis verið „í boði“ stórfyrirtækjanna (rektor hans var í stjórn Landsbankans), eins og má sjá í eftirfarandi grein sem birtist í Viðskiptablaðinu í mars.
„Fjölmörg fyrirtæki hafa stutt dyggilega við bakið á HR í gegnum tíðina, m.a. Glitnir, Landsbankinn, Kaupþing, Straumur, Síminn, Sjóvá og VÍS, Eimskip, Orkuveita Reykjavíkur, KPMG og Deloitte, auk verkfræðistofa og fjölmargra annarra fyrirtækja. Jafnfamt hefur stuðningur Reykjavíkurborar við skólann verið okkur ómetanlegur,“ segir Svafa. HR er að meirihluta í eigu sjálfseignarstofnunar Viðskiptaráðs Íslands og aðrir eigendur eru Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins.“
Hvað verður um skólann í þessu árferði þegar mörg þessara fyrirtækja eru farin á hausinn eða tæknilega gjaldþrota? Getur þetta módel gengið áfram?