Þetta bréf er skrifað af Óskari Steini Gunnarssyni í Hafnarfirði.
— — —
Góðan dag.
Það sem ég vill ræða hér er mál sem snertir okkur öll. Undanfarið ár
hefur verðbólgan verið 10 til 15 prósent. Ríkisstjórn okkar hefur
ekki gert nóg til að keyra hana niður. Eftir neyslufyllerí fárra
landsmanna, fjárhættuspil bankastjóra, útlánastefnu einkabankana og
algjört eftirlitsleysi yfirvalda með einkabönkunum sitjum við
meðaljónarnir/jónurnar í skuldasúpu sem fáir sjá fyrir endann á nema
eitthvað kraftaverk gerist. Meira að segja þeir sem voru aðhaldssamir
í fjármálum sínum, versluðu íbúðalánið hjá Íbúðalánasjóð, keyptu sér
bíl án láns eða notuðu strætó og slepptu öllum óþarfa eru í vanda sem
fáir átta sig á.
Íbúðalánasjóður lánar einungis gegn verðtryggingu, sem er reiknuð sem
bein afleiðing af verðbólgu. Verðbólgumarkmið seðlabankans kemur
málinu í raun ekkert við, þó að það ætti að gera það því þá væri það
hagur ríkisins að halda verðbólgunni niðri. Núna skiptir það
íbúðalánasjóð litlu sem engu máli hve há verðbólgan er. Peningarnir
þeirra eru tryggðir, tryggðir hjá okkur sem tóku lánið í góðri trú um
að ríkið og seðlabanki gætu haft einhverja stjórn á verðbólgunni.
Nú tek ég dæmi um íbúðalán sem ég tók fyrir tæpu ári. Ég keypti mér
íbúð fyrir 21.9 milljónir, tók lán hjá íbúðalánasjóð fyrir 18
milljónir og greiddi mismunin með sparifé. Þetta lán hljóðar núna
uppá rúmar 20 milljónir. Það eru u.þ.b. 11,5 % vextir. Sem stendur er
verðbólgan kominn upp fyrir 13,5% sem kemur út á að vextirnir á láninu
eru 18,4%. Tvöföldunar tími lánsins er c.a. 6 ár
Árið 2014 verður lánið komið uppí c.a. 40 milljónir og árið 2020
verður það komið uppí c.a. 80 milljónir. Miðað við verðbólguspá mun
íbúðalán mitt hækka um c.a. 4 milljónir á næsta ári. Það gerir meira
en 10.000 kr.- á dag alla daga ársins. Þetta er raunin þótt
samviskusamlega sé borgað af láninu.
Allir þessir útreikningar gera ráð fyrir afborgunum, sem sagt greitt
af láninu mánaðarlega og samt mun þetta vera niðurstaðan.
Ef þú trúir mér ekki þá getur þú rannsakað og reiknað þetta sjálf/ur.
http://www.ibudalanasjodur.is/
Ríkið ber meðal annars ábyrgð á Íbúðalánasjóð og seðlabankanum,
seðlabankanum sem á að halda verðbólgunni í 3,5%. Ef
verðbólgumarkmiðin myndu haldast þá væri tvöföldunar tími þessa lán
svolítið öðruvísi. Þá væri tvöföldunar tími lánana ekki til.
Höfuðstóll 18 milljón króna láns færi mest uppí 25.969.542 kr.eftir 19
og hálft ár. Seðlabankinn og ríkið bera ábyrgð á þessu. Það þýðir
ekki að fela sig á bakvið reglugerðir lengur. Alþingi seðlabankinn og
íbúðalánasjóður geta ekki lengur falið sig á bakvið afsakanir. Þetta
snýst ekki lengur um afsakanir og sök. Ef þetta verður ekki leyst og
bakfært að einhverju leyti mun þetta valda því að enginn mun geta selt
íbúðina sína sem að á íbúð sem stendur. Einfaldlega vegna þess að við
munum ekki geta borgað íbúðalánasjóði mismuninn milli andvirðis
íbúðarinnar og hve mikill höfuðstóll lánsins er orðinn.
Alþingi gat sett neyðarlög til að yfirtaka bankana á einni helgi. Þið
getið sett neyðarlög til að bjarga okkur borgurum þessa lands. Það
erum við borgararnir sem munum bera hitan og þungan af öllu því sem að
Alþingi gerir og eða gerir alls ekki.
Núna verður alþingi að gera eitthvað til að bjarga okkur, þið
alþingismenn eruð þjónar okkar, eigið að gæta hagsmuna okkar. Ekki
nokkurra einstaklinga sem eru rétt feðraðir, eða eiga nóg af peningum
til að fjármagna kosningabaráttu ykkar eða eiga inni pólitíska greiða.
Flestum okkar er sama um kvóta og önnur slík smáatriði ef að við
endum í skuldafeni sem við getum aldrei borgað okkur útúr. Við þurfum
lausn núna strax.
Endilega áframsendið þennann póst till allra þeirra sem þið teljið að
þetta eigi erindi til.
Kveðja.
Óskar Steinn Gunnarsson
Hafnarfirði