eyjan.is

Fimmtudagur 06.11.2008 - 20:06 - Ummæli ()

Alvarleg staða fyrirtækja

Þetta bréf barst mér frá Gunnlaugi Kristinssyni endurskoðanda á Akureyri:

— — —

Ágætu þingmenn og ráðherrar,

Gunnlaugur Kristinsson heiti ég og er löggiltur endurskoðandi.  Ég er endurskoðandi fjölda lítilla og meðalstórra fyrirtækja og þá sérstaklega á Norðurlandi.  Staða flestra þeirra er orðin verulega alvarleg og einsýnt að mörg þeirra fara í þrot innan mjög skamms tíma.  Tel ég þar niður í vikum frekar en mánuðum.  Stærsta bráðavandamálið er alger lausfjárskortur þannig að fyrirtækin geta ekki lengur greitt fyrir vörur og nauðsynlega þjónustu, hvað þá skatta og laun til að reka sig. Í mörgum tilfellum er um að ræða fyrirtæki sem ég hef hingað til talið vera lífvænleg og eiga framtíð fyrir sér.  Í ljósi þeirrar stöðu hafði ég samband við Viðskiptaráðuneytið til að lýsa áhyggjum mínum og krefjast svara um það hvaða vinna væri í gangi til að koma í veg fyrir þau hörmulegu áhrif sem væntanleg gjaldþrotahrina fyrirtækja hefði í för með sér.  Þá krafðist ég einnig svara um það hvers vegna auglýst fyrirmæli frá ráðuneytinu um frystingu erlendra lána stæðust ekki (a.m.k. gagnvart fyrirtækjum).  Við hinum auglýstu fyrirmælum fékk ég ekkert svar en á móti fékk ég neðangreindan tölvupóst um þær “björgunaraðgerðir” sem eru í gangi.  Því miður verð ég að lýsa miklum vonbrigðum með þessar aðgerðir og eru þær ekki til þess fallnar að minnka þær áhyggjur sem ég ber í brjósti. Því beini ég eftirfarandi spurningu til ykkar:  Eru einhverjar aðgerðir í gangi til að verjast fyrirsjáanlegri gjaldþrotahrinu fyrirtækja í landinu?  Þeirri spruningu verður að svara strax þannig að hægt sé að fara í nauðsynlegar aðgerðir til að mæta aðsteðjandi vanda og lágmarka það tjón sem þegar hefur orðið og framundan er við óbreytt ástand.

Virðingarfyllst,

Gunnlaugur Kristinsson
Löggiltur endurskoðandi
GK endurskoðun ehf.
Hafnarstræti 97
600 Akureyri
www.samvirkni.is

Sent: 4. nóvember 2008 12:56
To: Gunnlaugur Kristinsson
Subject: Fyrirtækin

Sæll Gunnlaugur

Til þess að fylgja samtali okkar áðan eftir þá á sér stað margvísleg vinna varðandi fjármálaerfiðleika fyrirtækja.  Þannig er verið að skoða gjaldeyrismálin hjá Seðlabankanum, Samkeppniseftirlitið hefur breytt um áherslur og leggur mikla áherslu á ráðgjöf og að forða samkeppnislegum neikvæðum áhrifum.  Það hefur verið fundað með bönkunum um málið þannig að víða er unnið að úrbótum. Einnig er margvíslegt starf í gangi á vegum Samtaka atvinnulífsins, www.sa.is

«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is