Sendu Agli póst
silfuregils@eyjan.is
25.10 2008 - Ummæli ()

EES og Icesave

Fátt er leiðinlegra í stjórnmálum en spuni. Þegar er vísvitandi reynt að rugla umræðu, afvegaleiða hana eða slá ryki í augu fólks. Það er í raun eitt mikilvægasta hlutverk fjölmiðlamanna að vera á varðbergi gagnvart spuna.

Nú er sá spuni í gangi að EES samningnum sé í raun að kenna um ófarir Íslendinga, að það til dæmis sé honum að kenna að Icesave dæmið fór svona en ekki dæmalausu klúðri íslenskra bankamanna, eftirlitsstofnana og ráðamanna.

Ég fékk þetta bréf frá sérfróðum manni, lögfræðingi:

„Bæði forsætisráðherra og viðskiptaráðherra hafa vísað til EES vegna Icesave.

Fjármálaeftirlitið getur bannað stofnun útibús erlendis á EES enda gerir tilskipun ESB um málið ráð fyrir að hægt sé að koma í veg fyrir stofnun útibús á EES. Um það er fjallað í 4. mgr. 36. gr.laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002.   

„Fjármálaeftirlitið getur bannað stofnun útibús skv. 1. mgr. ef það hefur réttmæta ástæðu til að ætla að stjórnun og fjárhagsstaða hlutaðeigandi fjármálafyrirtækis sé ekki nægilega traust.“

Þetta ákvæði er í samræmi við 20. gr. tilskipunar  ESB 2000/12/EB.  Ákvæðið er líka í samræmi við tillögu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem gerði úttekt á íslenska fjármálamarkaðnum á árinu 2001.

Íslenskur banki á því ekki sjálfkrafa rétt til að stofna útibú Evrópska efnahagssvæðinu það er alveg kýrskýrt.  Það var algjört glapræði og í raun stórkostlega vítavert að leyfa íslensku bönkunum að stofna útibú á tugmilljóna mörkuðum erlendis. Ástæðan fyrir því vitum við öll því hún er bæði einföld og augljós.  Gífurlegur stærðarmunur er á Íslandi og öðrum löndum í öllu samhengi fjármálalegs eðlis.  Á það bæði við um stjórnunalega þáttinn og þann fjárhagslega.

Stjórnunarlega eru íslensku bankanir vanþróðuð kríli á öðrum mörkuðum EES.  Þeir uppfylla því ekki stjórunarlega þáttinn, bæði vegna vanþróunar og stærðar.

Fjárhagstaða íslenskra banka er, var og hefur aldrei verið, og mun aldrei vera nægjanlega traust til að fara inn á tugmilljóna innlánsmarkaði, líkt og þann breska eða hollenska.  Ef það er ekki réttmæt ástæða þá er hún ekki til.  Nema kannski að þeir séu gjaldþrota þegar þeir óska eftir að stofna útibú erlendis? Varla er ótraustur banki heima fyrir að fara úti í heim.

Það sem verra er að engin úttekt virðist hafa verið gerð á málinu og hagsmunum Íslands áður en Icesave var leyft!  Atriði sem vert væri að kanna!

Málið er að það er miklu ódýrara og fljótlegra að stofna útibú en dótturfélag eða kaupa banka sem verður síðan dótturfélag.  Skýrir það að Landsbankinn var með útibú en ekki dótturfélag fyrir Icesave.

Allir sem að komu að málinu vissu þessa augljósu staðreynd.



«
»

Ummæli ()

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar