Sendu Agli póst
silfuregils@eyjan.is

Færslur fyrir október, 2008

31.10 2008 - 32 ummæli »

Nostalgía

Enn erum við að færast aftur í tímann – nú til sirka 1980.

Þá gekk einatt orðrómur um bæinn um ríflegar hækkanir á áfengi og tóbaki.

Reykingamennirnir og hinir ölkæru ruku til, tóbak hvarf úr hillum verslana og í áfengisverslunum var geysileg örtröð.

Ekki laust við að maður verði smá nostalgískur.

Er ennþá hægt að kaupa Twenty One?



31.10 2008 - 35 ummæli »

Atvinnuástandið 2009

Sigurður Ingi benti á þetta.

En hér er tengillinn.



31.10 2008 - 24 ummæli »

Flott hjá Sinfóníunni

Sinfóníuhljómsveit Íslands komst ekki til Japans – sem ég veit að voru sár vonbrigði. Í staðinn er hljómsveitin að spila fyrir Íslendinga. Þegar ljóst var að ekki yrði úr Japansferðinni var drifið í að efna til tónleika hér á Íslandi, á Akureyri, Höfn og Eskifirði. Áhersla er lögð á að dagskráin sé létt og skemmtileg.

Hljómsveitin hefur líka verið að spila í Kringlunni, Smáralind og Ikea.

Svo hefur verið slegið upp tónleikum í Háskólabíói þar sem verður meðal annars leikin fimmta sinfónía Beethovens og Kristján Jóhannsson syngur einsöng.

Það er sérlega gaman að þessi stórskemmtilegi söngvari skuli vera aftur meðal okkar.

Við þurfum líka að nota tækifærið og sýna meira af Sinfóníuhljómsveitinni í sjónvarpi. Hún stendur svo sannarlega undir því.



31.10 2008 - 60 ummæli »

Einangrun

Mér datt í hug Gísli á Uppsölum þegar ég las þennan pistil.

Flestir hefðu litið svo á að Gísli væri einangraður.

En kannski leit hann þetta allt öðrum augum.

Og taldi að hann hefði einangrað alla hina?



31.10 2008 - 69 ummæli »

Sjálfstæðisflokkur miklu minni en VG

Gallup hefur sérstaka aðferðafræði í skoðanakönnunum sínum sem ganga undir nafninu Þjóðarpúls.

Þær eru gerðar yfir heilan mánuð og niðurstöðurnar birtar í lok hans.

Síðasta könnun sýndi að fylgi Sjálfstæðisflokksins væri 26 prósent. Það er niðurstaðan yfir mánuðinn. En þegar allur tíminn er skoðaður má sjá sveiflu eins og segir í þessari frétt Ríkisútvarpsins:

Sjálfstæðisflokkurinn er með rúmlega 28% fylgi í byrjun október en stendur nú í  21,3%. Samfylking eykur hins vegar fylgi sitt frá byrjun til lok mánaðar um tvö prósentustig. Vinstri Græn byrja í rúmum 25% og enda í tæplega 30% fylgi.

Úrtakið í könnun Gallup var tæp 6000  manns, svarhlutfall var 66%, vikmörk allt að 3,8% þegar fylgi var skoðað eftir vikum, 29%  ætla að skila auðu eða taka ekki afstöðu.

Samkvæmt þessu var Sjálfstæðisflokkurinn orðinn næstum tíu prósentustigum lægri en VG í lok mánaðarins.



31.10 2008 - 10 ummæli »

Sá sem eyðilagði kosningarnar

Þá er maður orðinn frægur í Ameríku. Eða þannig.

Annars er þetta sniðugt, það er bara hægt að setja inn hvaða nafn sem er.

Eða það held ég.



31.10 2008 - 13 ummæli »

Bréf: Rekstrarreikningurinn, IMF, bankanáð o.fl.

Rekstrarreikningurinn

Nú væri gott að geta beðið Þjóðhagsstofnun um efnahags og rekstrarreikning hagkerfisins:

1) Hverjar eru skuldir þjóðarbúsins
2) Hverjar af þessum skuldum verða eftir nettó eftir að búið er að gera upp bankana
3) Hverjar verða eignir þjóðarbúsins nettó eftir uppgjörið
4) Hver verður staða ríkisbankanna eftir uppgjörið
5) Hversu mikið seljum við nettó fyrir til útflutnings.

Sá sem veit svörin við þessu hefur öll tögl og hagldir í íslenskum stjórnmálum.

— — —

Hvað varð um peningana?

Samkvæmt upplýsingum í Mbl. í dag námu inneignir á ICESAFE reikningunum í Bretlandi:

861 milljarði króna, plús það sem var í Hollandi, samtals vel yfir eittþúsund milljarðar króna, margra ára þjóðarframleiðsla Íslands.

Því er spurt :

Hvað varð um alla þessa peninga, sem lagðir voru inn í Landsbankann á Íslandi ?

— — —

Bankanáð

Þakka þér fyrir þáttinn þinn og vefinn. Ég ætti ekki að trufla þig, en ég er
bara eins og margir áhyggjufull af því sem koma skal í peningamálum
einstaklinga og fyrirtækja. Getur þú ekki fengið Jóhönnu Sigurðard. ráðh. í
þátt til þín og spurt hana hvort ekki komi til greina bankanáð eins og
Guðmundur Ólafsson orðaði það í útvarpi um daginn. Þessi aðgerð myndi standa
t.d. í 6 mán. sagði hann. Það eru að koma jól og börn heyra um verbólgudrauga
sem munu éta húsin þeirra og þau skilja ekki orðin, en skynja áhyggjur í féttum
og hjá mömmu og pabba. Svo er er verið að undirbúa í einstaka sveitafélagi að
hægt verði að opna súpueldhús, þannig að þeir verst settu fái þó að borða einu
sinni á dag. Þetta er satt. Hve langt aftur erum við komin? Þú ert í þeirri
stöðu Egill að geta haft áhrif og ráðamenn hlusta á þig.

— — —

Tvær gátur 

Ég sá þetta á netinu, þetta er áhugavert í þessu súrrealíska ástandi.

Gáta 1:

Hver ákvað að hækka stýrivexti?

Össur segir að það hafi verið Seðlabankinn http://www.althingi.is/altext/raeda/136/rad20081028T133713.html

Ingibjörg segir að það hafi verið ríkisstjórnin http://www.visir.is/article/20081029/FRETTIR01/408109672/-1

Davíð og Árni Matt segja að það hafi verið Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item233719/

Gáta 2:

Er leynd yfir skilmálum IMF?

ISG segir já (hún sagði að blaðamannafundinum að það væri krafa stjórnar IMF)

IMF segir nei http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item234036/

— — —

Hvar á að geyma silfrið?

Komdu sæll Egill Helgasson,
hefur þú séð e-ð frá e-m,
sem þú berð enn traust til,
um hvar sparifjáreigendur geta
varið fé sitt best.
-Eða varið því best.

Þ.e.:
-hvar á að geyma sitt „silfur“ ?
Það hlýtur að vera mikilvægt fyrir
okkur að sem allra flestir haldi
áfram að vera fjárhagslega sjálfbjarga.

— — —

Vantar svör

Annað mál sem mér finnst vanta í umræðunni er hvað á að gera fyrir fólkið sem hélt að það væri með örugg húsnæðislán í íslenskum krónum, verðtryggðum, sem verðbólgan étur upp og yfirdráttavexti sem eru að rjúka upp úr öllu valdi. Hvernig verður komið á móts við mig sem tók íslenskt lán í íslenskum krónum en ekki erlent áhættugengislán. Allir vissu af áhættunni sem fylgir því að taka lán í erlendri mynt út af gengisáhættu. Lánin þeirra munu lækka með styrkingu krónunnar en íslensku verðtryggðu lánin munu haldast í hæstu hæðum með hærri greiðslubyrði. Hvað verður gert fyrir okkur sem fóru “öruggu leiðina” og tókum ekki gengisáhættuna?? Og á endanum förum við verst út úr þessu.

Hvergi eru svör að fá, hvorki í bönkum né ráðuneytum íslensku þjóðarinnar.

Áhyggjufullur ÍSLENDINGUR sem vantar svör

— — —

Nýi Glitnir

Ég ætla að opna nýjan reikning í Nýja Glitni í dag. Með 200 milljón króna innistæðu. Hvet þig til að gera slíkt hið sama.
Ég get að vísu ekki lagt inn á hann 200 millur, en vextirnir af þeim á næstkomandi áratugum koma til með að borga upp stofnframlagið mitt.

Getur núverandi bankastjóri neitað mér um að stunda samskonar viðskipti og hún hefur gert?

Neeeh – varla.

— — —-

Hvernig væri að stytta bindiskyldu á verðtryggðum reikningum?

Samkvæmt lögum Alþingis þá er bindiskyldan á innlánsreikningum 3. ár hið minnsta
á verðtryggðum reikningum. Verðtryggð lán verða svo að vera hið minnsta til 5. ára.
Ef að bindiskyldan á verðtryggðum innlánsreikningum væri stytt, þá myndi það auka stöðutöku
í íslenskri krónu og koma í veg fyrir flótta úr gjaldmiðlinum. Ég tel styttingu bindiskyldu
virka betur en dyntóttir stýrivextir Seðlabanka Íslands. Sérstaklega þar sem raunávöxtun
er töluvert hærri á verðtryggðum reikningum þessa stundina.

Að sama skapi þá verður fé laust fyrr til fjárfestingar og annara notkunar hjá þeim sem þegar hafa
flúið með það í verðtryggða reikninga. Með að stytta bindiskylduna væri hægt að sjá þessa peninga
í umferð í lok árs 2009, í stað þess að þeir væru fastir til lok árs 2011 hjá þeim hópi fólks sem
hefur flúið í nýlega þetta skjól með fé sitt.

Það hlýtur að vera borðliggjandi að þessi aðgerð sé að hluta lausn á þeim vanda sem við erum að fást við með að flýta fyrir efnahagsbata á næstu árum og að tempra flótta úr íslenskri krónu yfir í aðra gjaldmiðla.

— — —

Falskt sjálfstæði banka

Ég hef verið að velta fyrir mér þessar greiðslustöðvanir hjá stóru fyrirtækunum sbr. Stoðum og fl. Eins allan tímann sem tekur að greiða út úr sjóðunum hjá bönkunum.

Maður vill trúa því að tíminn fari í að redda peningum til að fyrirtæki geti starfað áfram og að fólk fái sína peninga til baka úr sjóðum.

Svo les maður bréf eins og frá bankamanninum sem skrifar um að innanbúðar menn og konur sé að redda sér sem þýðir bara að sjóðir rýrna.

Hver er að fylgjast með þessu núna? Hvað þýðir hvítbókin í raun ef hún er ekki að skoða það sem er að gerast í dag og þá sem sitja við völd í dag.

Mér sýnist Dabbi, Geir og félagar vera að reyna að skapa mjög falskt sjálfstæði bankana í dag með því að vera með öll þessi tilmæli til þessara stofnana, í staðinn fyrir að umgangast þá eins og hverja aðra ríkisstofnun.

Tilraunin hjá Dabba til að festa gengi án þess þó að festa það, heldur að nota einhverskonar loðin tilmæli.

Geir, Ingibjörg og Björgvin ofl. eru endalaust að koma með einhver tilmæli eins og að ríkið eigi þetta ekki.

Hvern er verið að reyna að plata? Það vita allir að ríkið ( við ) á þetta í dag.

Það er augljóst að peningavöldin hafa ekki misst úr takt þegar að það kemur að því að stjórna stjórnamálamönnum á Íslandi.



31.10 2008 - 23 ummæli »

Betra lýðræði í Austur-Evrópu en hér

Þar virðist altént vera opnari umræða um IMF aðstoð en hér – ef marka má Marinó G. Njálsson.

Pukrið varð ósköp hallærislegt þegar Ingibjörg Sólrún hélt því fram að vaxtahækkun væri upprunnin í Seðlabankanum – sem svaraði að þetta væri skilyrði Alþjóða gjaldeyrissjóðsins númer nítján.

Samkvæmt fréttum í kvöld verður mál Íslands ekki tekið fyrir í stjórn IMF fyrr en 5. nóvember. Eftir tæpa viku.

Fáum við ekkert að vita fyrr en þá. Um hin átján skilyrðin – eða hvað þau eru nú mörg?

Svo er það að staðfest sem ég sagði um Seðlabankann í fyrradag. Það er búið að taka af honum völdin og hlutverk hans þessa dagana meira í ætt við gamla Fjárhagsráð.



31.10 2008 - 15 ummæli »

Lögfræðiher til Flórida

Demókratar eru mæta með fimm þúsund lögfræðinga – í sjálfboðavinnu – til að forða því að svindlið fyrir átta árum endurtaki sig.



30.10 2008 - 42 ummæli »

Varla byrjað

Maður er búinn að missa töluna á öllum fjöldauppsögnunum sem maður hefur heyrt um í dag.

Hversu mikið verður þetta á morgun?

Ég fékk þetta bréf frá manni sem þekkir vel til í byggingabransanum:

Ég sendi þér um daginn smá póst vegna byggingariðnaðarins sem nú er að leggja upp laupana, ég get sagt þér að í þessar tölur vantar mikið því þarna eru ekki allir þeir fjölmörgu einyrkjar sem jafnvel njóta ekki atvinnuleysistrygginga allt frá parketslípurum og pípurum til gröfumanna og bílstjóra á eigin tækjum. Þetta er sá hópur sem nú er ekki bara atvinnulítill eða laus heldur eiga þeir stórar fjárhæðir hjá byggingafyrirtækjum af öllum stærðum.

Ég held eftir samtöl mín undanfarinna daga við  suma þessara manna að ljóst sé að vandræði þeirra séu af stærðargráðu sem vandi er að skilja, smáverktakar eru að reyna að selja vélar úr landi en vegna tvöföldunar á gengi er veðsetning með þeim hætti að erfitt er með sölu. Kaupleigur riða vegna bílalána og fjármögnunarsamninga tækja, og hjá flestum smáverktökum eru hús fjölskyldu veðsett fyrir öllu.

En ég hef sagt það áður og segi það enn, þetta er varla byrjað……….




Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar