Sendu Agli póst
silfuregils@eyjan.is
28.08 2008 - Ummæli ()

Vestur í Denver

Sósíaldemókratar hafa lengi leitað sér að átrúnaðargoðum í hverfulum heimi.

Um hríð var Tony Blair helsta goðið, hann féll af stalli þegar hann ákvað að ráðast inn í Írak. Þá voru haldnar stærstu mótmælaaðgerðir í heiminum til að styðja einn argasta harðstjóra sögunnar.

Svo var sagt að Blair hefði stjórnað eftir fókusgrúppum. Nei, það gerði hann einmitt ekki.

Ingibjörg Sólrún hefur horft mjög til Zapateros á Spáni, en fæstir Íslendingar skilja spænsku; þeir vita of lítið um Spán til að ágrúnaðargoð þaðan geti gert gagn.

Zapatero hefur reyndar verið að gera ágæta hluti, í óþökk einnar leiðinlegustu stofnunar í heimi, spænsku kirkjunnar.

En nú hefur nýtt átrúnaðargoð stigið fram á sviðið.

Barack Obama.

Þeir samfylkingarmenn sem ekki eru komnir til Denver að hlusta á hann halda ræðu láta sig dreyma um að vera þar.

Obama ávarpar flokksþing Demókrata í nótt að íslenskum tíma.

En vandinn er að hann mun tapa kosningunum. Þær fara í síauknum mæli að snúast um litarraft hans og þá kemur í ljós að Bandaríkjamenn eru ekki tilbúnir fyrir þeldökkan forseta.

Því miður.

Því Obama er maður sem gæti breytt heiminum, þó ekki væri nema vegna þess að hann getur slegið á Bandaríkjahatrið sem er svo útbreitt og sýnt fram á að Bandaríkin geta verið mikilvægt afl til góðs í heiminum – eins og þau hafa oft verið.

Eða það vonar maður. Ef hann yrði forseti hefði hann sögulegt tækifæri.

En það er líklega ekki að verða.



«
»

Ummæli ()

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar