eyjan.is

Föstudagur 01.08.2008 - 07:45 - Ummæli ()

Frá tíma gullæðisins

Þetta er forvitnilegt skjal sem þið opnið með því að smella.

rei_and_gge.pdf

Það inniheldur gögn frá kynningu sem var haldin í London í fyrra, á tíma REI samrunans (sem síðar gekk til baka). Höfundar eru Hannes Smárason og Bjarni Ármannsson og það eru ekki smápeningar sem eru í húfi ef marka má hvernig þeir kynntu málið fyrir fjárfestum, heldur 8-9 milljarðar Bandaríkjadala – 600-700 milljarðar íslenskra króna.

Svona átti fyrirtækið að verða verðmætt eftir að það færi á markað árið 2009.

Það er ekki furða þótt þeir Hannes, Bjarni og Guðmundur Þóroddsson sæktu það hart að eignast hlut í þessu, að flýta málinu – og mokgræða ef marka má kynninguna.

Og miðað við þetta er ljóst að hugmyndin hefur verið sú að að orkan átti að forða FL-Group frá falli.

«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is