Sendu Agli póst
silfuregils@eyjan.is

Færslur fyrir ágúst, 2008

31.08 2008 - 7 ummæli »

London og hnattræn hlýnun

100_1837.JPG

Lundúnabúar hafa ekki beinlínis verið fórnarlömb hlýnunar jarðar þetta sumar.

Sumarið hefur verið með afbrigðum lélegt.

En í gær var yndislega hlýtt og fallegt veður. Sumir sögðu mér að þetta væri besti dagur sumarsins.

Í dag er aftur farið að rigna. Á forsíðu eins blaðsins sem ég sá í sjoppu stóð að það ætti að rigna næstu tíu dagana. Sagði nú væri monsún tíminn að hefjast á Englandi.

En þessar aðgerðir Borisar Johnson virðast vera ágætar. Fínt að hafa gróður á húsþökum.



31.08 2008 - 7 ummæli »

Ofmetið fyrirbæri

nyhedsavisen.jpg

Endalok Nyhedsavisen koma ekki mikið á óvart. Blaðaútgáfa er hvarvetna í vandræðum.

Marga grunaði að ekki væri hægt að flytja hugmyndina bak við Fréttablaðið til útlanda þar sem aðstæður eru allt aðrar en hér. Nyhedsavisen var samt að mörgu leyti prýðisblað, ágætlega skrifað og vel upp sett.

En fjárhagsgrundvöllurinn var aldrei fyrir hendi. Nú heyrir maður að Fréttablaðið þurfi líka að fara að taka til í rekstrinum eftir langt góðæristímabil. Manni sýnist að fríblöðin hafi verið ofmetið fyrirbæri, sem betur fer; þau grafa undan alvöru blöðum sem þola illa samkeppni frá blöðum sem hafa ekki annan metnað en að selja sem mest auglýsingapláss. Fréttablaðið er svosem ágætt, bak við það er viss metnaður, en fríblöð víðast hvar eru skeinipappír.



31.08 2008 - 8 ummæli »

Pólitísk lík

Þarna fengu Repúblikanar ágætis átyllu til að sýna ekki hin pólitísku lík, George Bush og Dick Cheney.

En Bush getur kannski ekki annað eftir að hafa endanlega tapað trúverðugleikanum þegar Katrín gekk yfir New Orleans fyrir þremur árum.

Og svo er að koma í ljós að allt var rétt sem ég sagði um Söru Palin.

Konan er aðallega furðuleg. Með hrollvekjandi skoðanir. Gamli McCain á betra skilið.

En hann var bara búinn að hitta hana einu sinni áður en hann útnefndi hana sem varaforsetaefni.

Manneskjuna sem á að taka við stjórn heimsveldisins Bandaríkjanna ef hann fellur frá.

palin-vopn2.jpg



31.08 2008 - 21 ummæli »

Móðursýki

Fjölmiðlar í Bretlandi virðast stefna að því að halda almenningi alltaf á barmi móðursýki.

Svona var það í hinu sorglega máli stúlkunnar Madeleine McCann.

Í síðustu viku var það Gary Glitter. Það eru óendanlegar fréttir um að hvað hann sé stórhættulegur og ógeðslegur.

Í gær var skrifað í blöðunum um að hann ætti bara einn vin eftir í landinu.

Rod Liddle ritar grein um svona hýsteríu í Spectator. Hann nefnir alls konar vitleysu sem er notuð til að magna upp æsinginn – af þrýstihópum og hagsmunahópum.

Eins og til dæmis þegar háttsettur lögreglumaður í Bretlandi hélt því fram að eitt af hverjum sex börnum yrði fyrir kynferðislegu ofbeldi.

Þessar tölur voru gripnar á lofti og meðal annars notaðar í umræðu á Íslandi eins og þetta væri bláköld staðreynd.

Hann nefnir líka sem dæmi þegar einn þrýstihópurinn hélt því fram að einn af hverjum þremur íbúum Bretlands væri öryrki.

Málstaðurinn er kannski ágætur, en fullyrðingarnar verða sífellt æstari, skrækari og yfirdrifnari.

Við erum öll öryrkjar, ekkert barn er óhult fyrir barnaníðingum, Gary Glitter er að læðast um úti í myrkrinu og yfirborð sjávar mun hækka um sjötíu metra .



31.08 2008 - 31 ummæli »

Popúlismi

Það er kominn tími til að ráðamenn reyni að finna einhverja lausn á þessu flugvallarmáli. En í staðinn kemur borgarstjórinn fyrrverandi með þessa vitleysutillögu.

Hann vill hleypa málinu upp, þegar í raun er þörf á málamiðlun.



30.08 2008 - 12 ummæli »

Aðskildar í fæðingu

Varaforsetaefnið Sarah Palin.

images-1.jpeg

Og framsóknarkonan góðkunna, Helga Sigrún Harðardóttir.

images.jpeg



30.08 2008 - 52 ummæli »

FL nr. 2

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video



29.08 2008 - 29 ummæli »

Sarah Palin

Mér sýnist í fljótu bragði að Sarah þessi Palin sé það sem kallast no hoper. Að hún muni verða dragbítur á kosningabaráttu McCains.

Hún eyðileggur líka fyrir honum eitt aðalvopnið í baráttunni gegn Obama. McCain byggir hana að miklu leyti á því að Obama sé reynslulaus.

En hvað þá með Palin? Er henni treystandi ef gamli maðurinn hnígur niður með hjartaslag?



29.08 2008 - 10 ummæli »

Fáni sem má ekki nota

tibet-flag.gif

Kunningi minn sagði mér eftirfarandi sögu:

Hann var að vinna á stóru hóteli í Reykjavík. Eitt sinn var hann að finna til fána ásamt öðru starfsmanni. Þeir fundu fána sem hafði verið vafinn inn í svartan ruslapoka og límt fyrir.

Á pokann var fest hvítt blað þar sem á stóð.

Hér er fáni Tíbets. Þessum fána má ALLS EKKI undir neinum kringumstæðum flagga!!

Hann fór að spyrjast fyrir og komst að því að fáninn hafði eitt sinn verið dreginn að húni vegna hóps sem kom frá Tíbet.

Starfsmenn úr kínverska sendiráðinu voru mættir á svipstundu, alveg trítilóðir, og heimtuðu að rifta öllum viðskiptum við hótelið. Þeir voru ekki bara reiðir heldur hreint út sagt brjálaðir, segir kunningi minn.
Þá spurði hann af hverju fánanum hafi ekki bara verið hent, en svarið var:

,,Tja, bara svona ef einhvern tímann…“



29.08 2008 - 26 ummæli »

Á ferð og flugi

Helstu boðberar þess að heimurinn sé að farast vegna loftslagsbreytinga fljúga þvers og kruss um heiminn.

Ólafur Ragnar flýgur yfir þveran hnöttinn til að taka á móti handboltalandsliði á Arnarhóli.

Trúa menn eins og hann – og Al Gore, annar heimsendaspámaður sem er á ferð og flugi – ekki boðskapnum sjálfir.

Eða vilja þeir bara að lágstéttin hætti að fljúga í sólarlandaferðir sínar?




Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar