Sendu Agli póst
silfuregils@eyjan.is
24.05 2008 - 11 ummæli »

Heimskt er heimaalið barn

Ef marka má fjölmiðla þessa dagana eru ferðalög stjórnmálamanna af hinu vonda.

Miklu plássi er varið í að tíunda ferðakostnað bæði þingmanna og borgarfulltrúa. Stundum er eins og þetta sé aðalmál samtímans.

Ólafur F. Magnússon fær sérstakt hrós fyrir að fara aldrei neitt. Fyrir að vera bara heima.

Þetta er dálítið annar tónn en heyrðist fyrir nokkrum áratugum. Þá var oft kvartað undan því að íslenskir stjórnmálamenn væru heimalningar sem aldrei hefðu komið út fyrir landsteinana.

Vissu ekkert um aðstæður í útlöndum og héldu því að allt væri best, merkilegast og einstakast á Íslandi.

Ólafur F. virðist reyndar vera haldinn þeirri hugmynd. Hann telur að Reykjavík sé svo einstök að útlendir arkitektar geti ekki skilið hana.

En ég held samt að borgarfulltrúar í Reykjavík geti lært eitthvað af því að skoða erlendar borgir.

11 ummæli

Rita ummæli

torfi
24.05 2008 kl.12:28

Ég hef ekkert á móti því og tel það hollt að komandi stjórnmálamenn hafi ferðast erlendis og kynnst öðrum löndum, helst áður en þeir fara út.
Held reyndar að maður kynnist öðrum löndum mun betur með því að fara þangað og búa aðeins meðal lýðsins. Lítið lærist á því að fara í eina eða tvær koktelveislur í einhverjum höllum. Þannig tel ég að gagnrýni fjölmiðla geti á ákveðinn hátt átt við rök að styðjast, þó alls ekki eigi að banna mönnum að ferðast. Alltaf spurning um val.

Mergurinn liggur hins vegar í því að best er að stjórnmálamenn forframi sig og afli sér víðsýni erlendis og heima áður en þeir sitjast á kjötkatlana en ekki alltaf eftir á. Svo virðist nú reyndar einnig að þeir sem hafa ferðast mest erlendis, fjármálafurstar og aðrir, trúi því meir en aðrir að íslendingar séu eitthvað sérstakir.

Dúddi Dind
24.05 2008 kl.13:03

Við erum merkilegasta þjóð í heimi.

Við vitum allt best – útrásarvíkingarnir okkar eru eitt besta dæmið um það.

Einnig framistaða okkar í Júróvísion og hvað við erum að leggja mikið að mörkum í útlöndum, eins og ISG sagði.

Teitur Atlason
24.05 2008 kl.13:03

Hefur enginn tekið eftir smjörklípunni sem Ólafur F er að smyra í eyru fjölmiðlamanna með þessum upplýsingum? Það er deginum ljósara að Ólafur F er að reyna að slá sig til riddara með þessum upplýsinigum. Á meðan allir eru að tala um ferðakostnað þá tala þeir amk ekki um stóru málin, hverfand fylgi Sjálfstæðisflokksins og örfylgi listan hans Ólafs F. Gremju borgarbúa varðandi pólistískar ráðningar, sóðalegan miðbæ, stöðnun í flugvallarmálinu, REI -vitleysuna og hvernig stofnað var til þessa hæpna meirihluta.

Enn og aftur kemur fáfræði fjölmiðlamanna mér á óvart.

Haukur Kristinsson
24.05 2008 kl.13:12

Heimskt er heimaalið barn er eitt af fjölmörgum spakmælum, sem ég kann ekki að meta og menn nota í tíma og ótíma og þykist hafa sagt eitthvað af viti. En gleymum því.
Ég starfaði í áratugi hjá fyrirtæki erlendis og fór í margar ferðir á vegum þess. Í hvert einasta skipti varð ég skrifa ferða – report og greina frá því sem ég hefði séð og heyrt, hver árangur ferðarinnar var. Það þótti sjálfsagður hlutur og var manni sjálfum holl og góð vinna. Vertrauen ist gut, Kontrolle ist besser. Nú spyr ég; gera þingmenn og borgarfulltrúa skýrslur eftir ferðalag? Er einhver sem fylgist með því hvort ferðin hafi verið nauðsynleg? Er Egill virkilega svo naïve að trúa því að öll ferðalög, sem farin eru á kostnað skattgreiðanda komi að gagni? Auðvitað gera þau það ekki. Mikið af þessum þveitingi út um hvippinn og hvappinn hefur bara kostnað og timburmenn í för með sér. Einnig skal haft í huga að margir koma úr ferðlögum heimskari en þegar lagt var af stað. Eru svo uppfullir af eigin ágæti að þeir bera ekki kennsl á það sem er lærdómsríkt og athyglisvert.

Rétt sem Torfi segir; áður en menn takast á við ábyrgðamikil störf er holt að hafa búið meðal annara þjóða.

Þráinn Bertelsson
24.05 2008 kl.13:18

Best er að fá sæmilega menntað og víðsýnt fólk í borgarstjórn í staðinn fyrir eitthvert lið sem verður að senda í endalausar „námsferðir“ erlendis.
Ég held að enginn hafi áhyggjur af því að fólk ferðist of mikið í nauðsynlegum erindagjörðum, heldur hinu að kjörnir fulltrúar eigi það til að eyða tíma og peningum í ónauðsynleg ferðalög.

Egill Helgason
24.05 2008 kl.13:20

Ég hef fyrir satt að ferð sem borgarfulltrúar fóru til Seattle hafi gerbreytt viðhorfum sumra til skipulagsmála. Í Seattle hefur verið lögð mikil áhersla á að stöðva útþenslu borgarinnar.

Rómverji
24.05 2008 kl.13:38

Þessi ferðakostnaður er ekkert yfirgengilegur, að því er virðist. Það mætti hins vegar gera grein fyrir gangverki þessa kerfis og hugsanlega sníða af því agnúa sem ekki eru sæmandi.

Talandi um kostnað við ferðalög hins opinbera. Er það t.d. enn svo að ráðherra fái dagpeninga á ferðalögum – til að mæta útlögðum kostnaði – en ríkið greiði svo allan þennan sama kostnað sjálft?

Við eigum ekki að búa eins og værum við ráðstjórnarríki eða ríki þar sem fámenn og heimsk elíta ræður för. Við eigum að byggja upp og viðhalda lýðræðisríki á Íslandi.

Útgjöld og meðferð almannafjár á að ákveða með lögum og það þurfa að vera gild rök fyrir útgjöldunum.

Misbeiting stjórnmálamanna á umboðsvaldi sínu vofir alltaf yfir, og mun alltaf gera. Eftirlaunamálið er þar skýrast dæmi.

Fjalar
24.05 2008 kl.14:09

Ég hef reyndar ekki heyrt marga býsnast yfir kostnaði borgarinnar vegna ferða, eftir að listinn birtist. Þvert á móti finnst mér eins og athyglin hafi meira beinst að þeirra undarlegu staðreynd að einn borgarfulltrúi/ borgarstjóri hafi aldrei farið út fyrir póstnúmer 1xx – amk ekki í embættiserindum.
Kaffistofuspjallið sem ég hef heyrt hefur frekar snúið að því og hugsanlegum ástæðum fyrir þessari ferðafælni. Er það örugglega af prinsípástæðum og sparnaðarhugsjón? Og ef svo er, hvers vegna hefur borgarstjóri þá aldrei tekið sérstaklega til máls um það sem honum hlýtur að þykja gríðarleg sóun á fjármunum borgarinnar? Ef engin þörf er á því að borgarfulltrúir fari til útlanda (eða Akureyrar?), hvers vegna lætur borgarstjórinn þá líðast að milljónum sé sóað í slíkt á hverju ári?
Eða er staðreyndin óþægilega sú að borgarstjóra er einfaldlega illa við að ferast af persónulegum ástæðum og reynir að smíða eitthvert prinsíp úr því svona eftir á? Mér finnst amk frekar ljóst að smjörið festist ekki þar sem borgarstjóri ætlaði að láta það festast. Hann er sjálfur í kastljósi ferðakostnaðarins.
En gleymum ekki tilefninu. Jakob Frímann og hans ráðning var tilefni borgarstjóra til að vekja máls á einhverju allt öðru, allt til að dreifa athyglinni eða koma höggi á þá sem gagnrýndu. Það má ekki vera auðvelt að veifa síld (red herring) framan í fjölmiðla til að beina athyglinni frá því sem málið snerist um. Mér sýnist það bragð ekki hafa tekist hjá borgarstjóranum seinheppna að þessu sinni.

F.

pj
24.05 2008 kl.14:22

þetta er nú meiri steypan. Farsinn um Ólaf F. heldur áfram. Næst fáum við upplýsingar um fæðiskostnað, ljósritunarkostnað, blek, ljósaperunotkun og fleira og fleira hjá Ólafi F. versus allir hinir.
Er rétt sem sagt er að maðurinn sé svona yfirmáta flughræddur?

Systa
24.05 2008 kl.15:08

Ólafur F. er læknir – sérhæfður í heimilislækningum að því er mér hefur skilist (vonandi leiðréttir mig einhver ef það er ekki rétt). Heimilislækningar voru til skamms tíma eina sérhæfingin innan læknisfræðinnar sem hægt var að stunda hérna heima án þess að þurfa að fara til útlanda til frekara náms. Nú þekki ég dæmi þess að læknar hafi sérhæft sig í heimilislækningum til þess eins að þurfa ekki að fara til útlanda – sem þeir hefðu þurft hefðu þeir valið sér aðrar sérgreinar. Eflaust hafa sumir þeirra haft góðar og gildar ástæður fyrir því að vilja ekki nema erlendis t.d. fjölskylduaðstæður o.s.frv. – ég er ekki að gera lítið ú því.

Ég er aðeins forvitin – veit einhver hvar Ólafur F. stundaði sína sérhæfingu í heimilislækningum? Hefur hann búið erlendis?

Kannski kemur mér þetta ekkert við? Og þó – like it or not – ég sit núna uppi með þennan mann sem minn borgarstjóra.

Balzac
25.05 2008 kl.08:37

(pj) ,,Er rétt sem sagt er að maðurinn sé svona yfirmáta flughræddur?“

Menn komust á milli landa áður en Otto Lilienthal lyfti sér til flugs.

Meint flughræðsla er því ekki skýring á tryggð Ólafs við heimahagana.

Annars hafa miklir andans menn löngum verið heimakærir. Kant, til dæmis. Og Davíð.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

 


Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar