Nokkrir punktar um Evrovisjón:
Áhugi okkar Íslendinga á keppninni og framganga í henni er líklega til marks um að við séum austantjaldsþjóð. Við vorum einmitt að losna úr fjötrum sambandsvaldsins um svipað leyti og ríkin í Austur-Evrópu losnuðu undan sínu oki.
Ísland fékk fjögur stig frá Spáni. Ég geri fastlega ráð fyrir að það sé vegna Íslendinga á Alicante svæðinu.
Rússneska skautaatriðið með Stradivariusar-fiðlunni var óvenju hallærislegt. Ég var alltaf að bíða eftir að skautamaðurinn skautaði á söngvarann. Eða yfir tærnar á honum.Gríska lagið var Beyonce með smá bousouki. Armenska lagið var Shakira með dökkt hár. Annars er gaman að sjá að nánast allar konur í Evrópu eru ljóshærðar núorðið.
Svo er greinilega orðið mjög algengt að konur sem taka þátt í keppninni syngi með rassinum.
En Regína tekur ekki þátt í því.
Vangaveltur um hvar við Íslendingar ættum að halda keppnina reyndust óþarfar þetta árið.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
14 ummæli
Rita ummæli24.05 2008 kl.22:11
Slóð
Ríkisrekin diskókeppni. Hvernig getur það orðið annað en púkó?
24.05 2008 kl.22:20
Slóð
Þetta var bara fínt. Techno Tinni og bakraddasöngkonan glaðbeitta stóðu sig mjög vel. Var ekki hægt að búast við meiru. Gott mál.
24.05 2008 kl.22:45
Slóð
Engar áhyggjur að skautamanninum Egill. Evgeni Plushenko er þrefaldur heimsmeistari á skautasvellinu. Hafði meiri áhyggjur af því að Dima myndi slá Stradivarius fiðluna úr höndum Edvin Marton.
2008 hefur svo sannarlega verið gott fyrir Rússa. Nýr forseti kosinn sem er ekki úr röðum harðlínumanna, heimsmeistarar í íshokkí, UEFA meistarar, vinsamlegir gestgjafar fyrir breskar fótboltabullur, og nú sigurvegarar í Eurovision. Og svo eru það vetrarolympíuleikarnir í Sochi 2014.
Ok, nú er bara næsta mál á dagskrá að slaka aðeins á vænisýkinni og leyfa Kasparov að komast í sjónvarpið.
Gaman að þessu. Russia´s back…
25.05 2008 kl.00:27
Slóð
Hvaða fávitar hér á landi kusu danska lagið?! Ókei, fínt að gefa dönum nokkur stig, en fokking 12?! Fólk vælir um nágrannakosningar og klíkuskap Austur-Evrópulandanna, en svo reynumst við vera alveg jafnmiklir fávitar.
Bosnía-Hersegóvína og Frakkland fengu mín atkvæði (sonur minn 11 ára fékk að gefa Svíum eitt, þessi ungdómur nú til dags…).
25.05 2008 kl.00:44
Slóð
Mér hefur alltaf þótt 16. sætið meira viðeigandi.
25.05 2008 kl.02:17
Slóð
Þýskaland var með lang besta lagið.
25.05 2008 kl.03:21
Slóð
Ætli það hafi verið fráhneppta skyrtan og bringuhárin sem gerðu útslagið hjá rússneska drengnum?
Og krúttstuðullinn…
25.05 2008 kl.09:19
Slóð
Ég tek undir með Oddi, 16. sætið er okkar.
25.05 2008 kl.09:54
Slóð
Sú gríska var Christina Aguilera klónun sótt beint frá Brooklyn… kann ekki meir í grísku en Jennifer Anisto-poulosososos-n…
Sú úkraínska, Ani Larok (Karólína afturábak), var megabeib… og getur sungið…fullt af flottum lögum með henni á Youtube, þar sem hún syngur á móðurmálinu..óuppsexuð NB!
Annars var þetta flott prodúksjón..sviðið m.fl…en liðið sem kom nálægt þessu…gæti það verið meira plastík!!!!? StebbiogEyfi-Nína hvað?
Ha!!?
25.05 2008 kl.12:55
Slóð
er það ekki ful mikill hræsni í íslendingum að kvarta yfir samheldni austurevrópu þegar við dælum yfirleitt stigum til skandinava?
25.05 2008 kl.13:03
Slóð
Það virðist vera regla í Evrópu, ef þú ert kona með ljóst hár – sama hversu gerviljóst það er – færðu að fara í Júróvisjón!!!
25.05 2008 kl.13:32
Slóð
Hvernig gat Úkraína ekki unnið þessa keppni? Góð söngkona, flott atriði og allur pakkinn.
25.05 2008 kl.17:56
Slóð
Nafni minn Eiríkur S. hér að ofan virðist missa sig eftir miðnætti um helgar
26.05 2008 kl.11:16
Slóð
Palli Magg og Þórhallur eiga að sjá sóma sinn í að draga þjóðina út úr þessari vitleysu. Sýna kjark og hætta þessu júróvisjon bulli. Hugsið ykkur hvað væri hægt að gera margt skemmtilegt fyrir peninginn. Fleiri flottar leiknar sjónvarpsseríur kýs ég fram yfir syngjandi hálf nakið fólk og homma. Og þetta með áhorfið, það er beinlínis búið að þvinga þjóðina til að horfa á þennan viðbjóð, með allri umfjölluninni og partýunum. Ég er viss um að mannaveiðar og næturvaktin séu ekki með mikið minna áhorf en þessi helv… söngvakeppni. spyrjiði bara fólk í kringum ykkur hvort það hafi einhvern áhuga á þessu. Fólk er pýnt til þess. Sér þetta með öðru auganu í partýi. Maður skammast sín þegar útlendingar koma hingað í aðdaganda júróvision og sjá alla umfjöllunina í fjölmiðlum. Þeir skilja ekkert í þessu. Finnst þetta náttúrulega bara hallærislegt og skrítið.