eyjan.is

Mánudagur 28.04.2008 - 15:41 - Ummæli ()

Þröngsýni

Herstöðvaandstæðingar kvarta undan því að tveimur fræðimönnum – sem hafa veitt stjórnvöldum í Bretlandi og Bandaríkjunum ráðgjöf – sé boðið að halda fyrirlestra um stríðið í Afganistan í Háskólanum.

Þetta er skrítið viðhorf. Það er einmitt mikils virði að heyra sem flest sjónarmið; líka þeirra sem styðja veru alþjóðaherliðsins í Afganistan. Í ran er sérstaklega áhugavert að heyra hvað þeir hafa að segja sem standa nærri valdinu; hvernig þeir rökstyðja hernaðinn, hvernig þeir sjá fyrir sér framtíðina?

Fólk getur svo sallað rök þeirra niður ef því sýnist.

Herstöðvaandstæðingar gætu til dæmis boðið hingað Noam Chomsky eða Robert Fisk – mönnum sem eru örugglega á móti þessum hernaði. Sumir myndu kannski ekki vilja hlýða á rök þeirra, en ég myndi óður og uppvægur vilja fá þá í Silfrið.

«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is