Sendu Agli póst
silfuregils@eyjan.is
14.03 2008 - Ummæli ()

Hæfasta fólkið?

Ég get ekki stillt mig að birta á meira áberandi stað þessa athugasemd sem barst við síðustu færslu:

„Samt sitja bankarnir og fitna eins og púki á fjósbita. 650.000.000.000… já sex hundruð og fimmtíu þúsund milljónir í framvirkri stöðu gagnvart krónunni. Gróðinn?? Jú. Litlar sjötíu þúsund milljónir síðasta mánuðinn.

En það er ekki nóg. Þeir hafa grátið utan í svörtu höllina á Arnarhóli síðan um áramót og heimtað stýrivaxtalækkun strax svo krónan falli aðeins meira.

Litlu guttarnir í greiningardeildunum sitja síðan kæruleysislega í nýlegum Chadwick stólunum með krosslagðar lappir uppá eikinni.

Spádómur gærdagsins var að krónan væri komin í hægt lækkunarferli…

“Við spáum því að gengi krónunnar lækki á komandi mánuðum og að það verði lægst á sumarmánuðum þessa árs. Evran verður þá í kringum 107 kr.”
Guttarnir í morgunkorni Glitnis þann 13. 3. 2008.

Hálftíma síðar stóð evran í 110 krónum…

Svo eru menn að tala um að bankarnir hafi ráðið til sín allt hæfasta fólkið!“



«
»

Ummæli ()

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar