Sendu Agli póst
silfuregils@eyjan.is

Færslur fyrir mars, 2008

31.03 2008 - 30 ummæli »

Gátan ráðin

olafur-f.gif

Í viðtali við sjónvarpið í kvöld var borgarstjórinn ekki í vafa um hver bæri ábyrgð á ófremdarástandinu í miðbæ Reykjavíkur:

Framsóknarflokkurinn!



31.03 2008 - 6 ummæli »

Samsæri í Norður-Atlantshafi

Sjálfur Paul Krugman er farinn að skrifa um Ísland.

Við erum fræg!



31.03 2008 - 11 ummæli »

New Statesman um mansal og hlýnun jarðar

009_p54.jpg

Það er oft hressandi að lesa greinar sem ganga gegn rétttrúnaði í samtímanum.

Hér eru tvær af vef hins vinstrisinnaða tímarits New Statesman. Þetta er tímarit sem var feiki áhrifamikið á sinni tíð, átti niðurlægingarskeið en hefur nú aðeins rétt úr kútnum. Ég las það í flugvél á leið til Íslands um daginn og fannst það hafa batnað mikið.

Önnur greinin fjallar um mansal. Segir frá bók eftir konu sem heitir Laura Augustin. Þar er því haldið fram að þetta vandamál sé stórlega ýkt. Margar af þeim konum sem sagt sé að séu fórnarlömb mansals hafi tekið meðvitaða ákvörðun um að fara að heiman. Þetta séu duglegar og sjálfstæðar konur sem vilji allra síst að velviljað fólk á Vesturlöndum bjargi sér og sendi sig aftur heim.

Hin fjallar um hlýnun jarðar. Hún er eftir David Whitehouse sem var vísindafréttamaður hjá BBC árum saman, er með doktorspróf í geimeðlisfræði. Greinin var skrifuð í lok síðasta árs og þar er því haldið fram að hitastig jarðar hafi ekkert hækkað á þessari öld. Hlýnunin hafi stöðvast.



31.03 2008 - 28 ummæli »

Ólafur F og Kristján Möller ná saman

preview.jpg

Þessi samgöngumiðstöð er ekki boðleg meðan óvissa ríkir um framtíð Reykjavíkurflugvallar.

Það er líka fals að kalla það samgöngumiðstöð:

Þarna verður aldrei miðstöð fyrir strætisvagna og það er heldur ekkert vit í því að stefna langferðabílum á þennan stað.

Þetta er auðvitað ekki annað en flugstöð.

Hví að byggja flugstöð fyrir flugvöll sem kannski verður ekki þarna nema nokkur ár í viðbót?

En það er athyglisvert að sjá Ólaf F. Magnússon og Kristján Möller ná svona fallega saman.

Og það er líka merkilegt að sjá að borgarstjórinn ætlar einhvers staðar að láta „verkin tala“.

En Kristján segir að byggingarnar verði notaðar í „annað“ ef flugvöllurinn fer.

Maður hlýtur að bíða eftir því að Gísli Marteinn, Hanna Birna og Dagur – flokksbróðir samgönguráðherrans – bregðist einhvern veginn við.



31.03 2008 - 21 ummæli »

Kjúklingar og kindur

Verði á kjúklingum er haldið uppi á Íslandi til að verja framleiðslu á kindakjöti.

Þetta kann að horfa einkennilega við. Sauðfé fer um fjöll á sumrin og bítur gras. Kjúklingar alast upp í óhugnarlegum verksmiðjum.

Ég var á Spáni um daginn og sá að kílóið af kjúklingabringum kostar víðast 3-4 evrur. Innan við fimm hundruð krónur eftir gengisfall.

Hér kostar kílóið af sömu vöru ekki minna en 2000 krónur. Það er engin ástæða til að svo miklu dýrara sé að hafa kjúklinga á boðstólum hér á Spáni önnur en neyslustýring og ríkisafskipti.

Verðinu er haldið svona háu til að fólk hætti ekki að borða kindakjöt og snúi sér alfarið að kjúklinganeyslu.

Víðast í heiminum er lambakjöt lúxusmatur meðan kjúklingar eru ómerkileg hversdagsfæða.

Það fer vonandi að koma að leiðarlokum í þessu. Bændur eru alls góðs maklegir, en almenningur í þessu landi á ekki að þurfa að standa undir svona vitleysu.

Hann hefur kannski ekki heldur efni á því lengur.



31.03 2008 - 9 ummæli »

Þegar Rod var snillingur

Ég las í blaði að söngvarinn Daníel Ágúst Haraldsson væri farinn að skarta hárgreiðslu eins og Rod Stewart var með upp úr 1970. Í mínu ungdæmi prófuðu ýmsir svona hárgreiðslu. Daníel sagðist líka vera að hlusta á plötur með Rod frá þessu tímabili.

Margir hafa sopið hveljur þegar ég hef sagt þeim að Rod Stewart sé einn af mínum uppáhalds rokktónlistarmönnum. Þeir þekkja þá ekki plöturnar sem við Daníel Ágúst höfum hlustað á.

Um þetta skrifaði ég í grein fyrir nokkrum árum:

„Ég las einhvers staðar að Rod Stewart hefði orðið sextugur um daginn. Poppstjörnur æsku minnar gerast aldurhnignar. Rod Stewart gerði nokkrar frábærar plötur í kringum 1970 – þar fór saman einstæð söngrödd hans, innilegur flutningur og skemmtilega alþýðlegur andi tónlistarinnar. Hann hafði líka með sér einhverja bestu hljómsveit í sögu rokksins, en þar var fremstur í flokki gítaristinn Ron Wood.

Svo fóru þeir hver sína leið. Sjaldan hafa menn sólundað hæfileikum sínum eins og þeir félagarnir. Þeir urðu svosem nógu ríkir og óðu í kvenfólki, svo kannski skipti það ekki máli. Wood varð undirleikari hjá Richards og Jagger í Rolling Stones, hálfgerð skrípafígúra, en Stewart týndist í ljóskum, fótbolta og glaumgosalíferni. Strax 1975 var ljóst að hann hafði fjarlægst uppruna sinn svo að í tónlist hans buldi eins og tómri tunnu.

Æ síðan hefur hann verið í hallærislegum eltingaleik við að tolla í tískunni – afkáralega sólbrúnn, með strípur og gullkeðju um hálsinn. Merkilegt nokk lafir hann þó ennþá sem einhvers konar poppstjarna, ekki síst á síðum súðurblaða.

Nú fer maður í súpermarkaði og lyftur og alls staðar er verið að spila plötu þar sem Stewart syngur gömul amerísk dægurlög. Þetta gerir hann af einstöku tilfinningaleysi – svo úr verður sætsúpuleg kringlumúsík. Plöturnar fljúga upp vinsældalista, en þær hljóta að teljast með því vemmilegasta sem hefur heyrst lengi. Smekkleysið er allsráðandi.

Eftir standa Gasoline Alley, Every Picture Tells a Story og Never a Dull Moment; plöturnar sem Stewart gerði um og upp úr 1970. Meðal snilldarverka rokksins. Hlustið á þær.“

Annars bendi ég á þetta myndband. Þarna er Rod að flytja lagið Maggie May með hljómsveitinni Faces á gullaldartímanum. Þetta var eitt frægasta sukkband rokksins; meðlimirnir voru Ron Wood, Ronnie Lane, Ian McLagan og Kenny Jones.

Eitthvað af þessu er greinilega playback en þeir hafa gaman að þessu:

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

Það er sami hlýlegi og elskulegi hljómurinn í þessu, Ronnie Lane úr Faces að syngja lagið sitt Oh la la:

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video



30.03 2008 - 6 ummæli »

Tímanna tákn

Aðgangur bannaður að lánsfé.



30.03 2008 - 10 ummæli »

Væri fróðlegt að sjá

Það er eitt sem fjölmiðlar eru að klikka á að segja okkur:

Hvernig fara viðskiptin með krónuna fram?

Í bönkunum situr einhvers staðar fólk við tölvur og stendur í þessum viðskiptum. Eða það hlýtur að vera.

Þarf ekki að sýna okkur inn í þessar merku launhelgar?

Og hvaða fólk er þetta sem hefur svo mikil völd yfir afkomu okkar?

Mættum við fá að sjá framan í það – kynnast því aðeins nánar hvernig verð krónunnar ræðst?



30.03 2008 - 34 ummæli »

Ófremdarástand

Síðunni hefur borist þetta bréf. Efni þess er merkilegt:

„Ég get ekki stillt mig um að benda þér á hvernig mjög  margir – mér liggur við að segja samfélagið allt – gera sér greinilega engan veginn ljóst þvílíkt ófremdarástand ríkir í fjármálum þjóðarinnar og hvað er í vændum. Ég hyggst reyna að koma þessu frá mér í stuttu máli en bæti því við að ég tel að fjölmiðlar í landinu endurspegli á engan hátt veruleikann. Við ræðum það ef til vill síðar en ég velti fyrir mér hvort eignarhald ráði þar einhverju.

Krónan: Krónan er augljóslega ónýt og búin að vera sem gjaldmiðill. Þetta eru meiriháttar tíðindi. Jafnvel þótt gengi hennar rísi á ný að einhverju marki- og á því hef ég litla sem enga trú – mun almenningur í þessu landi gera þá kröfu að aldrei aftur verði lagðar þvílíkar hörmungar á þjóðina. Þetta mun vitanlega hafa víðtækar pólitískar breytingar í för með sér.

En taktu eftir að Evrópusambandsumræðan mun hefjast fyrir alvöru vegna hrakninga þjóðarinnar en ekki á grundvelli hugsjóna eða umræðu um stöðu Íslands í heiminum. Samningsstaða Íslendinga verður mun veikari en ella hefði verið. Sjálfstæðisflokkurinn mun snúast. Sennilega verður það eina færa leiðin til að bjarga stjórnarsamstarfinu. En þetta mun taka tíma – lengri tíma en flestir ætla nú. Ég spái því að Ísland verði orðið eitt aðildarríkja ESB á árabilinu 2012-2015.

Áhrif gengishruns og verðbólgu á sparnað og lífeyrissparnað: Áhrifin til skemmri tíma eru auðvitað augljós enda fjalla fjölmiðlar mest um hið augljósa og þar með þau. Ekkert fer hins vegar fyrir því að rætt sé hver áhrif kreppunnar verða á sparnað og lífeyrissparnað fólks. Hann er að brenna upp þessa dagana vegna gengishruns og verðbólgu. Ég á við almenning allan og er ekki að hugsa um hlutabréf. Um þetta er ekki fjallað! Langtímaáhrifin verða geigvænleg.

Kreppa: Þessi kreppa á eftir að verða dýpri og lengri en flesta grunar. Ég spái því að hún standi minnst í tvö og hálft ár. Hún mun hafa djúpstæð áhrif og margvíslegar afleiðingar. Ein verður sú að ójöfnuður mun vaxa í samfélaginu. Til verður stétt fólks sem áfram mun geta ferðast til útlanda og leyft sér munað. Hinum mun fjölga til mikilla muna sem ekki munu geta leyft sér að ferðast. Fargjöld eiga eftir að hækka gríðarlega. Hinir efnaminni munu ekki einu sinni geta leyft sér að ferðast innanlands sökum bensínkostnaðar. Taktu eftir; allt sem nefna má „lókalismi“ mun „aukast“ og „eflast“.

Ríkisstjórn: Ég tel að hún standi frammi fyrir meiriháttar vanda. Almenningur er orðlaus vegna framgöngu eða öllu heldur framtaksleysis stjórnmálamanna. Geir H. Haarde hefur aldrei verið í erfiðari stöðu á ferli sínum. Fjármálaráðherrann er augljóslega búinn að vera.“



30.03 2008 - 52 ummæli »

Stuttmyndir

Ef það er eitthvert listform sem flestum finnst rosalega óáhugavert og fæst hvergi sýnt nema á fámennum hátíðum lengst úti á jaðrinum, þá eru það stuttmyndir.

Ég veit þetta af eigin raun, því eitt sinn var ég formaður dómnefndar í stuttmyndasamkeppni.

Samt er eins og menn séu að missa vitið út af stuttmynd.

Þegar leiðtogar arabaríkja eru farnir að mótmæla þessu erum við komin langt út á lendur absúrdismans.

Kann að vera að fyrir þeim vaki fyrst og fremst að beina augum almúgans frá slæmu ástandi heima fyrir?




Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar