Sendu Agli póst
silfuregils@eyjan.is
26.02 2008 - Ummæli ()

Veit ekki

Ég veit ekki með þennan dóm. Því verður ekki neitað að Ómar R. Valdimarsson var talsmaður ömurlegasta fyrirtækis sem hefur skolað upp á íslenskar fjörur, fyrirtækis sem byggir á þrælastefnu og einhvers konar kerfisbundnum rasisma.

Menn gera ýmislegt fyrir peninga – en þegar þeir ganga í skítverk geta þeir varla búist við fagnaðarlátum.

Ég skildi heldur ekki í manninum að nenna að fara í þessa málshöfðun – ef ég hefði verið að elta ólar við allar svívirðingarnar sem hafa birst um mig í bloggheimum myndu dómsmálin skipta tugum, ef ekki hundruðum – og ég væri löngu orðinn geðveikur.

Besta ráðið er að loka bara tölvunni. Það skiptir ekki öllu máli hvað einhverju fólki úti í bæ finnst um mann.



«
»

Ummæli ()

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Facebook síða Twitter síða RSS straumar
Mínar stillingar