Robert Wade, prófessor við LSE skrifar grein um íslenska efnahagshrunið í tímaritið Challenge.
Í langri og ítarlegri grein bendir hann meðal annars á þessa punkta.
Hvernig var mælikvarðinn á hamingjuna breytist þegar heil efnahagskerfi riða til falls, hvernig mönnum gat yfirsést spillingin og klíkustarfsemin í íslenska kerfinu, hvernig bankamenn frá litlu landi gátu orðið á heimsmælikvarða á örfáum árum, hvernig ofurbjartsýn trú á að hækkandi eignaverð jafngilti auðæfum villti mönnum sýn.
• how measures of “happiness”—and health—are affected when
people’s livelihoods are threatened en masse and the whole eco-
nomic structure is thrown in doubt
• how Transparency International’s measures of “corruption”
could miss the kind of neopatrimonial practices endemic to the
Icelandic civil service—and how such a bureaucracy nevertheless
delivered good-quality public services in many fields
• how the bankers were able to zoom from obscurity to world
players in less than a decade (a Russian money-laundering con-
nection?)
• how the IMF dealt with the fi rst rich country to seek its assistance
since Britain in 1976, how it decided to support Iceland’s capital
controls, and what was the role of the U.S. government and the
Nordic governments in its strategy for Iceland
• how timely warnings of danger ahead were drowned out by
Panglossian assurances that inflating asset prices equaled rising
wealth.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
58 ummæli
Rita ummæli03.06 2009 kl.20:52
Slóð
Þegar verið var að tala um hve skuldir íslendinga væru miklar kom Pétur Blöndal gjarnan í sjónvarpsfréttir og talaði um hve miklar eignir væru á móti þessum skuldum, menn skyldu ekki gleyma því. Það hefur komið á dagin að frjálshyggubrjálæðið hefur gjörsamlega byrgt þessum blessuðu Sjálfstæðismönnum sýn.
03.06 2009 kl.21:07
Slóð
Varðandi Transparency International má minna á þáverandi þingmann, að mig minnir, Sigurjón Þórðarson sem sendi þeim bréf og mótmælti harðlega því glóruleysi að Ísland væri laust við spillingu.
Þorri þjóðarinnar varð brjálaður við Sigurjón vegna þessa.
Ekki það ég hafi oft verið sammála manninum, utan þar, en rétt að halda þessu til haga.
03.06 2009 kl.21:19
Slóð
http://www.youtube.com/watch?v=AkyAfXVpVrM
03.06 2009 kl.21:19
Slóð
Núna þegar alþjóð veit að landinu var breytt í Heimsveldi Heimskunnar væri kannski ráð að heyra svo sem vikulega frá víðsýnum mönnum eins og Robert Wade, fremur en margtyggja trosið úr akademíu heimskunnar, viðskiptafræðinni.
03.06 2009 kl.21:21
Slóð
Þetta er nefnilega stóra málið.
Af aurum verður margur Api !
íslenska þjóðin var áharða hlaupum á eftir gullkálfinum.
ísland var að verða ríkasta land í heimi og öllum leið svo vel…..
Háskólarnir íslensku fóru í pílagrímsferðir með stúdentana sína verðandi stjörnur til að skoða dásemdir Baugs, Glitnis og Kaupþings í London og víðar.
Hver prófessorinn eftir annan fór með lofræður um snillinga að ekki sé nú talað um forsetann á Bessastöðum sem fór yfir öll viðmið.
Jesus…. reynum að gleyma þessu…..
03.06 2009 kl.21:28
Slóð
Aldrei!
’cause History will teach us … nothing!
(sic)
03.06 2009 kl.21:29
Slóð
Heimskan er hættulegasta aflið í heiminum. Íslendingar létu fjölmiðla blekkja sig, ljúga að sér og heilaþvo sig og gera margir enn..
Það er hinsvegar óþolandi að sjá að hvergi var glæta í bankastarfseminni og samtrygging þeirra algjör.
Þeir leppuðu fyrir hvorn annan þvers og kruss og blekktu almenning með þykjustu samkeppni.
Maður fær óbragð í munninn að lesa þessa grein.
En er fólk visst í sinni sök um að Hannes Smárason hafi verið raunverulega við völd í FL Group ?
Eru menn viss um að Ólafur í Samskipum hafi verið við völd í Kaupþingi ?
Ég er viss um að þar er veriið að fókusera á peð í samanburði við þá sem réðu ríkjum í raun.
Hafa þeir keypt sér friðhelgi með þvi að uppljóstra um hina sem fóru að fyrirmælum í einu og öllu. Hvar eru hönnuðurnir Sigurður Einarsson, Hreiðar Már og Jon Ásgeir ? Horfnir ? Hvenær sér fólk samhengi hlutanna.
03.06 2009 kl.21:31
Slóð
Við meigum aldrei gleyma því hvað traust fjármálastjórn sjálfstæðismanna hefur skaðað þjóðina.
03.06 2009 kl.21:41
Slóð
Jónína! . Ég man hvað þú bentir á spillinguna í viðskiptalífinu, það sem þú bentir á var sennilega bara lítið brot af því sem á eftir að koma í ljós.
03.06 2009 kl.21:52
Slóð
Ég vil sjá lög á alþingi sem auðvelda brottrekstur á spilltum opinberum embættismönnum sem misnota vald sitt, það þarf að afeitra þjóðfélagið af sliku fólki.
03.06 2009 kl.21:57
Slóð
Ef fólk vill rifja upp orð Roberts Wade um Ísland og á Íslandi eru hér nokkur myndbrot – skipti þessu í þrennt þar sem ruslsían hjá Agli leyfir bara eina eða tvær slóðir í hverri athugasemd
Frétt um grein RW í fréttum RÚV 1.7.08
http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/video/4681/
Geir Haarde um grein RW í FT – Ísland í dag 3.7.08
http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/video/6670/
03.06 2009 kl.21:59
Slóð
Ef fólk vill rifja upp orð Roberts Wade um íslensk efnahagsmál eru hér nokkrar slóðir að myndbrotum – set inn eina slóð í einu því ruslpóstsía Egils leyfir bara eina slóð í hverri athugasemd:
Frétt um grein Roberts Wade í Financial Times í fréttum RÚV 1.7.08
http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/video/4681/
03.06 2009 kl.21:59
Slóð
Geir Haarde um grein RW í FT – Ísland í dag 3.7.08
http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/video/6670/
03.06 2009 kl.22:00
Slóð
Ummæli RW í fréttum RÚV 7.10.08
http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/video/5665/
Borgarafundur 12.1.09
http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/video/6690/
Kastljós 12.1.09
http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/video/6672/
03.06 2009 kl.22:01
Slóð
Ummæli RW í fréttum RÚV 7.10.08
http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/video/5665/
03.06 2009 kl.22:02
Slóð
Biðst afsökunar á endurtekningum, veit ekki hvað veldur. Egill hreinsar þær vonandi út hjá sér þar sem þær rugla fólk kannski.
03.06 2009 kl.22:08
Slóð
Þessi ágæti maður ætti að líta sér nær. Bretland stendur ekki aðeins á barmi áratuga kreppu, heldur geysar pólitísk kreppa á hans heimili. Þá má búast við, vegna fjármögnunarþörf og skuldasöfnunar breska ríkisins, að Bretar verði 15 ár að vinna sig í átt að eðlilegu og heilbrigðu efnahagsástandi. Þrátt fyrir sumarbólur á mörkuðum, benda undirliggjandi staðreyndir í hagkerfinu til skelfilegrar og langvinnar kreppu, einkum í Bretlandi. Vil ég þá í því sambandi benda á orð Angelu Merkel í öllum helstu fjölmiðlum heims í gær, þar sem hún gagnrýndi seðlabanka heimsins, þ.m.t. ECB. Bretar skulda hátt upp í 700% af þjóðarframleiðslu, sé allt tekið til og hefur ríkið úr mörgu að vinna á næstu misserum. Ég er hræddur um að þessi ágæti sósíalisti, Robert Wade, sjái fram á gúrkutíð í sínu heimalandi, við að roðflétta helstu fjárglæframanna Breta, og má hann byrja á apaköttunum tveimur, Brown og Darling.
03.06 2009 kl.22:09
Slóð
Takk fyrir það Lára.
Gaman að rifja upp hvernig Geir afgreiddi grein Wade sem „aðsenda grein í DV“
03.06 2009 kl.22:13
Slóð
Glettilega góð samlíking hjá Wade með Íkarus frá grísku goðafræðinni og hlutskipti íslenska viðskipta“viðundursins“. Flugu of hátt á lánuðum fjöðrum og sólin brenndi vængina.
Annars verður maður sífellt meir undrandi á hversu illa og lélega Íslandi er og hefur verið stjórnað og í raun líst mér sífellt verr á þetta ástand.
Við erum eins og fótboltalið sem fallið hefur úr úrvalsdeild niður í 4 deild og gerum núna sömu kröfur og þar en höfum ekki lengur þær forsendur.
Núna eru þáttaskil það þarf að skera niður ríkiskerfið um þessi 43% sem það hefur aukist að raunvirði, já undir stjórn Sjálfstæðisflokksins frá 2002 til 2009 sem gagnrýnir skatta og útgjaldahækkanir en hefur í raun ekki frekar en aðrir komið fram með neinar niðurskurðar hugmyndir. Þessi gríðarlegi halli stendur okkur fyrir þrifum og grefur undan hagkerfinu og þetta verður ákaflega sársaukafullt og bitnar á mörgum sem síst skyldi. Að bíða gerir þetta bara helmingi verra og væntanlega þarf að skera niður þessa 200 miljarða að 90-95% með niðurskurði og hitt halast inn með skattahækkunum og hækkun á álögum. Núna á að spara 10% af þessari upphæð og mönnum virðast fallast hendur við það. Þessi niðurskurður er ekki tímabundin hann er varanlegur og sú þjónusta sem verður skert eða afnumin mun ekki koma aftur í bráð.
Þetta er algjör ögurstund fyrir íslenskt efnahagslíf og ef við gugnum á þessu missum við endnlega okkar efnahagslegu stýringu og verðum fátækrarafkimi eins og við vorum fyrir seinni heimstyrjöld. Alveg merkilegt að heyra þetta lágkúrulega karp á Alþingi og í raun virðast fólk þar vera meira a skora einhverjar pólitískar keilur en koma fram með eitthvað uppbyggilegt. Ástandið virðist vera sínu alverlegra en svartsýnustu menn þorðu að spá. Það er ennþá ekki tekist að endurfjármagna bankakerfið. Ljóst er að á Ísland hefur einkennst af lágu viðskiptasiðferði þar sem stórfeld lögbrot hafa verið framin í skjóli lélegs eftirlits og löggjafar.
Lausnin á okkar málum liggur hér á Íslandi og til þess að komast í höfn þarf að róa í takt og ausa annars sökkvum við með manni og mús. Það verður engin olía á Drekasvæðinu, það verður ekki aukið á afkastagetu álversins í Straumsvík, Rio Tinto er nær gjaldþrota og stefnir burt frá álvinnslu, álverð er komið niður fyrir 1400 dollara tonnið auk þess er væntanlega Landsvirkjun nær gjaldþroti og hefur ekkert lánstraust til að byrja á framkvæmdum. Fiskverð er í lægstu lægðum og birðir hrannast upp og á síðustu 6 mánuðum hefur útflutningsverðmætið fallið um 1/4 þeas um 25% og á væntanlega eftir að dragast enn meira saman nú á næstu mánuðum. Eini ljósi púnkturinn er að viðskiptajörnuðurinn er jákvæður og eina ástæða þess er lágt gengi krónunnar og gríðarlega lágt olíuverð á alþjóðlegum mörkuðum og þessi viðskiptajöfnuður er í raun of lítill og þessi gjaldeyrir virðist ekki skila sér inn fyrir þennan íslenska krónu múr þar sem gengi íslensku krónunar virðist styrkjast meðan hún veikist utan við múrinn.
03.06 2009 kl.22:15
Slóð
„In Argentina four presidents were turned
out of offi ce in a single month. Iceland lags behind this particular
curve, because the president remains in place.“
Grisinn var fagurgalli spillingar
03.06 2009 kl.22:21
Slóð
Þetta er „makaber“ lesning.
Dýr verður Davíð allur!!!
03.06 2009 kl.22:29
Slóð
Blekkingarnar halda áfram. Þær hafa aldrei hætt. Allar þrjár ríkisstjórnir samfylkingarinnar hafa einkenst af ákvarðannatregðu vegna einhvers lags þöggunar eða sýndarumræðu. Þessi umræða á Íslandi lýtur stjórn sömu manna og lugu að okkur fyrir hrun
Eitt dæmi um grófan áróður er að Það er lögð ofuráhersla á að frjálst flæði fjármagns geti hadið áfram milli Íslands og umheimsins. Grýlumyndir eru dregnar upp af gjaldeyrishöftum, þó er þetta okkar eina bjargráð og þarf ekki að vera slæmt á tölvuöld. Það er allt annað að sæta gjaldeyriseftirliti í dag þegar allar færsur eru rafrænar og gjaldeyrisleyfi fæst samstundis í gegn um fyrirtækjabanka til eðlilegra viðskipta.
Hverjir þurfa þetta frjálsa fjármagnsflæði?
Svar: Það eru þeir sem þurfa að fytja stórar fjárhæðir sem þola ekki dagsljós á mili landa.
Hverjir þurfa evru sem líklega færir okkur úr öskunni í eldinn eins og lettar eru að upplifa skv Daily Telegraph i dag.? Lettar eru tengdir evru eins og islendinga dreymir um. Þeir þurfa að fella gengið, AGS ráðeggur þeim að gera það, en ESB bannar þeim það: „Leaks suggest that the IMF favours devaluation, the normal cure for countries that overheat. It was overruled by the European Commission, deeming retreat from the ERM peg to be a threat to Europe’s fixed-exchange orthodoxy. “ (DT netútgafan í dag)
Þeir sem þurfa evru eru þeir sem þurfa að koma verðmætum undan íslenskri lögsögu og skattheimtu svo þau rýrni ekki við eignajöfnun og efnahagsaðgerðir í landinu. Maður vill græða á góðærinu, en stinga af þegar mögru árin koma.
Ég tel að ESB lygin sé sú hættulegasta sem er í gangi í dag. Sá sem skuldar peninga er ekki frjáls, en sá sem er háður gjaldmiðli annara landa er þræll.
03.06 2009 kl.22:31
Slóð
The second reason the Icelandic economy would have experienced
a fi nancial meltdown even without a global crisis is that the economy
had come to be based on a growth model that was more phony than
miraculous. In the name of “infl ation targeting,” the central bank set
a high interest rate (15 percent by 2007), which failed comprehensively:
it failed to lower infl ation, it encouraged domestic households
and fi rms to borrow abroad in lower-interest-rate currencies, and it
attracted huge quantities of hot money seeking to benefi t from the
interest rate differential and from the appreciation of the ISK (by 2007
the stock of speculative capital was estimated at more than 50 percent
of GDP). The speculators saw it as a one-way bet, because they knew
the central bank would be reluctant to lower interest rates in view of
the fact that the likely fall in the ISK would raise the already heavy
burden of foreign currency debt of households and fi rms.
Dabbi minn….thetta er malid….
03.06 2009 kl.22:42
Slóð
Annars finnst mér umræðan um þessi efnahagsmál einkennast af raunveruleikaflótta en markvissum lausnum. Það virðist ennþá ríkja mikil óvissa um flesta hluti þrátt fyrir það að nú eru brátt 8 mánuðir frá hruninu. Þessar tafir sem hafa orðið held ég að skrifist á íslenska ákvarðanafælni sem einkennist af því að eiga erfitt með að taka erfiðar ákvarðanir vilja helst leggjast í var eins og bátur í óveðri og halda að veðrið skáni, því miður er þettta ákaflega dýrkeypt skjól gríðarlega óhagstæð lántaka og einangrun íslanska hagkerfisins ásamt gríðarlegu tapi á eignasöfnum bankanna er afleiðingin. Það væri síðan eftir öllu að slá á hönd IMF og alþjóðasamfélagsins og fara í sjálfsþurftarbúskap og áframhaldandi einangrun. Evrópubandalagsaðild er vert að athuga en að það sé lausn á öllum okkar málum er nátturulega ótrúlegur barnaskapur. Við þurfum sjálf að leysa okkar mál á Íslandi hjá okkur liggur 95% af lausninni.
03.06 2009 kl.22:58
Slóð
Þessar umræður eru eins og framhald af Draumalandinu með hrollvekjublæ. Djúpsigling ef ekki kafsigling. GS. Er þér sammála um að okkar litla efnahagskerfi þolir ekki frjálst flæði fjármagns og hefur aldrei gert.
Hvað eftir annað höfum við fengið brotsjói á okkur og gengið hefur verið fellt. Þá líða aldrei mörg ár þangað til við höfum öllu gleymt og kafsiglum þjóðarskútuna með kolvitlausu gengi.
Það er von að Bretar séu í vondum málum og ástandið hjá þeim slæmt. Raunveruleg verðmæti eru ekki að baki, en þeir hafa kunnað að laða til sín olíufjármagn frá Arabaríkjum.
Frá námugrefti og fyrrverandi nýlendum sínum sem notað er til að búa til gervigróða og síðan skýjaborgir.
Síðan eru búnar til kenningar í háskólum og þetta útbreitt eins og ný sannindi. Háskólinn hér ætti að taka upp sérstaka verðbólgu-hagfræði sem kennslugrein eftir reynslu okkar síðustu 50 ár. Í stað þess að eftirapa allt frá útlöndum.
03.06 2009 kl.23:32
Slóð
Því miður Bestla, kaldur raunveruleikinn blasir við okkur og þeir sem stinga höfðinum ofan í sandinn eru einugis að plata sjálfan sig. Hallalaus fjárlög er algjör forsenda fyrir því að við náum að klóra okkur að bakkanum. Íslenska hagkerfið hefur lennt í því sem hefur verið skilgreint í því virta tímariti Economist sem „the perfect storm“. Þetta líkist nær efnahagslegri hryllingssögu en nokkru öðru.
Ekkert nútíma þjóðfélag hefur lent í þess líku (1) allt fjármálakerfi lands hrynur og landið virðist ekki hafa burði til að rétta það við hjálparlaust, (2) tiltrúin á gjaldmiðlinum hrynur og ekkert bendir til þess að tiltrúin aukist þvert á móti eru forsendur fyrir því að hann falli enn meira. (3) Stærsti hluti fyrirtækja eru skuldum sett og mörg gjaldþrota eða tæknilega gjaldþrota og mörg fallinn aftur í skaut ríkisins. (4) Ísland hefur á einni nóttu breyst í alþýðulýðveldi þar sem mikill meirihluti fyrirtækja er beint eða óbeint á framfæri eða í eigu ríkisins eigum meira sameinlegt með Kúbu og Norður Kóreu en Evrópu. (5) Stórfellt atvinnuleysi er skollið á og að öllu óbreyttu eigum við eftir að sjá tölur í kringum 15% með haustinu. (6) Við höfum ennþá ekki séð byrjunina á Íslensku „subprime“ krísunni þar sem mörg heimili hafa komið sér í ofurskuldir sem hafa snarhækkað og gríðarlega ofmetinn húsnæðismarkað sem á eftir að snarfalla þetta mun gera mörg heimili gjaldþrota og margir munu missa sitt efnahagslega sjálfstæði þetta er ekki nema að litlu leiti skollið á og óljóst hversu mikla hjálp ríkið getur veitt því að hendur rikisstjórnarinnar eru bundnar enda hefur (6) ríkið ekkert lánstraust erlendis og þess vegna neyddust þeir að knýja dyra hjá IMF.
(7) Til að kóróna þetta allt saman bætist við alþjóðleg kreppa sem vonandi verður ekki eins djúp eða langvinn.
Það eru engin dæmi um hvernig leysa á þennan hnút enda finnst þess engin dæmi um að þjóð hafi lent í álíka efnahagshörmungum. Þetta verður erfitt og við færumst kannski 2 áratugi aftur í lífskjörum og verðum væntanlega nær Tékklandi og Póllandi hvað varðar lífskjör og opinbert þjónustustig mun endurspeglast í þessu. Þetta er sárgrætilegt og ástæðan er að okkur er og var stjórnað af amatörum og þessir viðskiptahættir sem stundaðir voru á gamla Íslandi voru í hæsta máta óeðlilegir og´ólöglegir í flestum öðrum ríkjum.
03.06 2009 kl.23:39
Slóð
Fólk veit nóg til að vita hvað verður að gera til að landið fari ekki í þrot ef það bara vildi opna augun og fara að vinna saman. Þessar þriggja síðustu ríkisstjórn verður minnst sem ríkisstjórna þverhausa, skattahækkana og vonlausra úrlausna.
03.06 2009 kl.23:45
Slóð
En hvað um bankakerfið í Bretlandi?
Breska ríkið er búið að dæla fé skattborgaranna í bankana og tekið þá marga yfir. Breskir bankar hafa tapað þvílíkum stjarnfræðilegum upphæðum að íslensku bankarnir eru barnaleikur í samanburði.
Mr. Wade ætti að líta sér örlítið nær – ástæðulaust að fara yfir pollinn til að velta fyrir sér hvernig bjartsýnir bankamenn geta sett þjóðfélag á hliðina.
Og bráðum komið breskri ríkisstjórn frá völdum.
Svo þegar hann hefur greint Bretland og hrunið í City – þá getur hann farið yfir sundið til Írlands – en allir írsku bankarnir með tölu er gjaldþrota og er haldið á lífi af írskum skattgreiðendum.
Svo getur hann skellt sér til Baltic landana – séð ástandið þar – og haldið svo áfram til austur Evrópu.
Þegar hann er búinn þar – er sjálfsagt að halda áfram til Rússlands, sem er í klessu, og þaðan yfir Kyrrahafið til USA – þar sem allir fjárfestingarbankarnir, margir stofnaðir á 19. öld, eru gjaldþrota og viðskiptabönkunum, svo sem City og Bank of America er haldið gangandi með endalausu austri skattpeninga til þeirra.
Mr. Wade hefur ótrúlegan – en algjörlega ástæðulausan – áhuga á Íslandi og Íslendingum.
En – Egill er skotinn í útlenskum „sérfræðingum“ – enda er enginn spámaður í sínu heimalandi.
03.06 2009 kl.23:46
Slóð
Já SH en þeir sem hafa hvað harðast gagnrýnt skattahækkanir hafa ekki komið með neinar niðurskuðrarhugmyndir og hér er það eiginlega uppskurðar eða holskurðarhugmyndir. Ef við gerum ráð fyrir að atvinnuleysið aukist og það eru allar líkur á þvi þá mun atvinnuleysistryggingasjóður geta tæmst rétt yfir sumarið og það þýðir 5-6 miljarða á mánuði í útgjöld sem bætast við hallann sem kemur til með að verða 200 miljarðar plús þeir tala um lægri tölu til að minnka þrýsting en fá eiginlega ekki lán fyrir þessu og við erum of skuldum sett.
03.06 2009 kl.23:53
Slóð
Gunnr,
Að hækka skatta, við núverandi aðstæður, er eins og lemja rænulítinn mann í hausinn – til að hressa hann við.
Atvinnuleysisbætur er greiddar í krónum. Ríkið getur prentað krónur – og þarf því ekki lán fyrir því.
Að skera niður ríkisútgjöld um 50 til 100 milljarða er afskaplega auðvelt. Fyrir VG og SF er það reyndar ómögulegt. Fyrir þá flokkar er hið opinbera aldrei of stórt – bara of lítið. Að skera það niður – er landráð.
Því munu þessir flokkar hækka skatta og prenta peninga – þangað til þeim verður skipt út í næstu kosningum.
03.06 2009 kl.23:55
Slóð
Gunnr þú ert góður penni. Það sem þú skrifar er skýrt og rökrétt. Ég er algjörlega sammála þér. En reynum að vera bjartsýn því við höfum mikla möguleika hér á landi við höfum svo margt sem aðrir hafa ekki, góðan infrastrúktur, hreint vatn í miklu magni, „hreint“ rafmagn, hreint loft, nýlegar fasteignir, náttúrufegurð, fisk, dugnað og vinnusemi og við gefumst aldrei upp, hvað þurfum við meira?
Áfram Ísland.
04.06 2009 kl.00:03
Slóð
Ísland hefur afar öflugan sjávarútveg – ef hann er látinn í friði af Samfylkingunni, þá býr hann til 180 milljarða í gjaldeyristekjur á ári.
Ferðaiðnaður býr til um 100 milljarða.
Áliðnaður mun koma sterkur inn þegar kreppan gefur eftir út í heimi. Þá munu orkufyrirtækin samhliða ná vopnum sínum.
Önnur framleiðslufyrirtæki eru strax farin að eflast og dafna. Útflutningur vex en innflutningur minnkar – enda eyðsla Íslendinga nánst komin í núllpunkt.
Viðskiptajöfnuður er orðinn hagstæður – en var 2007 og 2008 með methalla.
Þegar viðsnúningur verður á kreppunni – verða allir jafn hissa og þegar góðærinu lauk. Íslendingar vilja trúa að það ástand sem er hverju sinni – sé viðvarandi um aldur og ævi.
Það er ekki þannig. Þetta sveiflast upp og niður. Getur ekki annað.
04.06 2009 kl.00:06
Slóð
Gunnr: Með skattahækkunum í þessu ástandi dregur enn úr kaupmætti fólks sem leiðir af sér enn meira atvinnuleysi, og fleiri fyrirtæki leggja upp laupana og svo koll af kolli.
Með því að láta skatta vera eins og þeir eru, leiðrétta skuldastöðu fólks og fyrirtækja, aukast peningar í umferð og ríkið fær auknar skattatekjur vegna þess að fólk eyðir meiru. Það þarf að ýta atvinnulífinu af stað, ekki drepa það alveg eins og stefnir í með þessum skattahækkunum.
Kaupmáttur fólks minnkar enn frekar núna, því þetta er algjörlega það sem á alls ekki að gera, því þetta eykur verðbólguna og seinkar vaxtalækkunum.
Þau eru að ýta vítahringnum hraðar og hraðar, þar til allir detta úr rólunni.
04.06 2009 kl.00:09
Slóð
Egill minn,
Hvernig væri nú að taka fyrir algert getuleysi íslenskra blaða og sjónvarps manna í næsta silfri.. er það virkilega of eldfimmt .. mér finnst þeir bara orðnir að atlægi þar sem BT og aðrir miðlar eru á undan þeim með skúbbin sem liggja hér um allt eins og hráviðri.. bara niðurlægjandi fyrir þá að mínu mati
Etv segir þetta meira til um eignarhaldið á þessum skeinipappírum sem fólki hér er boðið uppá frekar en nokkuð annað..
kveðja
Siggi
04.06 2009 kl.00:10
Slóð
Því miður spekingur það sem er forsenda fyrir þvfií að ná áttum er að gera almennilegt „damage controll“ en það virðast menn forðast og ræða allt aðra hluti. Auðvitað er hægt að komast út úr þessu en það krefst samheldni og geysilega agaðrar hagstjórnar. Mér finnst mikið af umræðunni vera raunveruleikafyrrt bull. Mér virðist lítið hafa áunnist á þessum bráðum 8 mánuðum eftir hrun og umræðan í þjóðfélaginu beinist í allar áttir í átt að olíu á Drekasvæðinu sem var augljóslega fáir höfðu áhuga á að leita að. Að EB sem einhvers konar lausn á öllum okkur málum eða sem algjört helvíti á jörð. Í átt að stjórnlagaþingi og síðan þessi vitfyrrta kosningabarátta þar sem ekkert kom fram að viti um hvað ætti að gera enda hefur enginn stjórnmálaflokkur neina vitræna lausn á okkar málum. Umræðan er bara karp og bull þar sem flestir líta til fortíðar og það er mikilvægt það en mikilvægast er að líta tíl framtíðar og finna möguleikana og takast á við vandamálin en ekki hlaupast frá þeim.
04.06 2009 kl.00:10
Slóð
Allt þetta var hægt með meðvirkum fjölmiðlum og álitsgjöfum, auðtrúa hagfræðingum, sinnulausum stjórnvöludum og stjórs hluta þjóðarinnar spilaði með.
Allir sem voguðu sér að benda á að þetta væri ekki besti heimur allra heima voru kveiðnir í kútinn af sömu aðilum. Og þeir eru voldugir.
Fjölmiðlar og álitsgjafar í bloggveröldinni hafa meir mátt en nokkur ríkisstjórn.
Þannig var það 2007 og þannig er það nú.
04.06 2009 kl.00:42
Slóð
Ég hef heyrt að bæði Vísir og Mbl ætli bara að vera með RSS strauma frá erlendum fjölmiðlum.. og segja öllu blaðamönnum upp..þeir gera hvort sem er ekki rassgat..
04.06 2009 kl.01:20
Slóð
Er Wade ekki að halda við einhverja samfó kellingu ? Skýrir það ekki griðarlegan áhuga hans á íslandi.
04.06 2009 kl.02:01
Slóð
Robert Wade er kommúnisti.
04.06 2009 kl.04:39
Slóð
Hérna eru það fyrst og fremst fyrrverandi og núverandi RÁÐAMENN sem ættu að SKAMMAST SÍN!
Og FJÖLMIÐLAR, enda hafa þeir verið hluti af darraðardansinum; horft hugfangnir á aðfarirnar, og tekið virkan þátt í að móta hina skökku heimsmynd.
04.06 2009 kl.06:01
Slóð
Ein af þessum pólitískt lituðu “hagfræðigreinum”, þar sem erfitt er að aðskilja spinnið.
Þegar ég lít á listann yfir þá sem hann þakkar, þá fer mig að gruna að þetta liður í áróðursherferð Samfylkingarinnar.
“
ROBERT WADE is a professor of political economy, London School of Economics. The author thanks Sigurbjorg Sigurgeirsdottir, Thorvaldur Gylfasson, Gunnar Karlsson, Stefan Olafsson, Willem Buiter, Anne Sibert, Robert Boyce, and others who requested anonymity.”
04.06 2009 kl.06:57
Slóð
Að hækka skatta, við núverandi aðstæður, er eins og lemja rænulítinn mann í hausinn – til að hressa hann við.
Lond einsog Danmork, Bretland og Frakkland dæla opinberu fei inn i kerfid, en thad er ofugu farid med Ungverjaland,Lettland og fleiri lond sem er i somu stodu og Island . Vid Island hofum ekkert svigrum og thad er lika spurning hvort sum lond fara ekki ad herda a thessum lempelsum svo vid faum ekki 80s syndromid aftur.
I sambandi vid grein Wade kemur margt hryllilegt fram i dagsljosid ….en thetta..
„He(David) has not lived outside Iceland, has no background in monetary
economics, and understands little about international fi nance. He
is his own expert and likes to dispense with real experts, including
those in the central bank.“
Nu var einn umsækjandinn ,sem var talinn hæfastur, starfandi i Sedlabankanum (eda voru thad bædir) .Eg myndi telja thetta algjoran aumingjahatt geta ekki set sig amoti algjorum asna (einsog David er lyst i thessari grein). Vid vitum afleidingar gjordahans og mer finnst thetta vera ahugavert ransoknarefni , hversu mikid vissu thessir serfrædingar.Lokudu their bara augunum og sogdu si sona vona thetta reddist.
Ad vera aumingji getur varla talist ad vera hæfileiki til ad gegna stodu Sedlabankastjora.
04.06 2009 kl.08:05
Slóð
Það er í raun sorglegt hvernig fólk skoðar heiminn í gegnum flokkspólitísk gleraugu og sjálfur hef ég orðið fyrir gríðarlegum vonbrigðum með alla flokka ekki minnst Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu vegna aðgerðarleysis andvaraleysis og ábyrgðarleysis.
Það er náttúrlega sjálfgefið að yfir 95% af þessum gríðarhalla þarf að vera með niðurskurði, væntanlega verða síðustu miljarðarnir gríðarlega sársaukafullir og núna er verið að kremjast vegna 20 miljarða sparnaðar….. Það mun væntanlega vekja mikla þjóðfélagslega ólgu að stóreignafólk í stórum skuldlausum húsum sleppur meðan það koma til með að verða lokað deildum á sjúkrahúsum ásamt skólum og aldrað og lasburða fólk sent í fang ættingja og sú reiði sem mun brjótast út þegar skuldsett heimili verða umvörpum gjaldþrota þá óttast ég í raun nánast upplausnarástand.
04.06 2009 kl.08:20
Slóð
Það virðist eins og öll sök/ábyrgð er kastað á Seðlabankann en það er náttúrlega barnaskapur og það sést í raun á því að það virðist ekkert breytast þar eftir að skipt var um stjórn.
Að mínu viti fáheyrt að kasta nánast allri sök á Seðlabankann meðan það voru fyrverandi ríkisstjórnir sem kynntu bálið með gríðarlegri uppbyggingu á hinu opinbera með 43% aukningu á ríkisútgjöldunum yfir 7 ára tímabil. Lækka skatta þegar þennslan var í botni og auka opinberar framkvæmdir auk þess hefur þetta góðvinakerfi í gegnum pólitíska spillingarvefi sem greinast í alla flokka en mest Sjálfstæðisflokk, Samfylkingu og ekki gleyma þætti Framsóknarflokksins og í raun hefur enginn almennilega beðið þjóðina afsökunnar á þessu eða viðurkennt eitt eða neitt.
Vextir koma til með að verða háir í langan langan tíma, krónuna komum við til með að þurfa að hafa í langan langan tíma.
Við erum ekki einu sinni búin að fjármagna bankakerfið og framvegis verða bankarnir einungis lánað út það fé sem þeir fá í innlánum og ef verðbólgan fellur og jafnvel verðhjöðnun komi held ég að fólk vilji heldur hafa handbært fé en að hafa það í fallvöltum bankastofnunum á lágum vöxtum ef verðbólgan væri 0 held ég ekki að fólk sætti sig við minna en 5-7,5% innlánsvexti og síðan þarf bankakerfið að lifa á muninum á innlánum og útlánum og gleymum því ekki að framboð og eftirspurn ræður að nokkru leiti vaxtastigi og lágt vaxtastig í ótraustum gjaldmiðli er algjör katastrófa. Það eru ótalmargir sem hafa nefnt að við tækjum upp annan gjaldmiðil en það stóra ef er að enginn hefur í raun komið fram með hver ætti að fjármagna það fyrir okkur en til þess hefur íslenska hagkerfið enga burði í dag og næsta áratuginn að mínu mati.
Þjóðin bundin í skuldaklafa og svigrúmið ekkert. Við erum í stöðu Íkarusar eftir að sólin bræddi af honum vængina.
04.06 2009 kl.08:23
Slóð
GS kemur hér með góðan punkt.
Um margt er það sama fólkið sem nú stýrir þjóðfélaginu og áður.
Lygarnar í Baugsmiðlunum halda áfram vegna þess aðvitað að sami maður á enn þessa fjölmiðla.
Samfylkingunni er hlíft eins og áður vegna þess að sami maður á þessa fjölmiðla og hann á líka umtalsverðan hluta af leiðtogum flokksins.
Hvar annars staðar yrði þetta þolað?
Hvar annars staðar myndu við þessar aðstæður sitja menn í ríkisstjórn landsins sem þegið hafa fé af glæpaklíkunni sem gert hefur þjóðina gjaldþrota?
Ég segi eins og Jónína Ben. Hvenær ætlar þessi þjóð að sjá hið rétta samhengi hlutana?
04.06 2009 kl.09:08
Slóð
Þessi Robert Wade er alltaf jafn steiktur.
04.06 2009 kl.09:31
Slóð
Gunnr. Hvað er gjaldmiðill?
Mér finnst það vera spurning sem er algjörlega ósvarað. Hagfræðingar kenninga sem eru að renna sitt skeið á enda halda því fram að gjaldmiðill sé eitthvað sem geti flutt verðmæti með ofurhraða í kring um hnöttinn og helst svo að lítið beri á. Mér skilst á þeim að gjaldmiðill sé eitthvað sem hægt sé að verða ríkur á að kaupa, selja og leigja út. Gjaldmiðillinn þarf þess vegna að hafa traust.
Ég er ekki viss um að ég sé sammála. Mér finnst gjaldmiðill vera ávísun á vöru og þjónustu. Það að eignast of mikið af svona gjaldmiðli yfir nótt verður þá þjófnaður frá samfélaginu.
Sé gjaldmiðill ávísun á vöru og þjónustu þá má verja þá skoðun að íslenska krónan sé betri pappír en evran.
Í heimskreppu hafa fáir gjaldmiðlar traust. Kreppan í evrópu er dýpri en menn virðast gera sér grein fyrir á Íslandi. Hættumat vegna óeirða hefur verið margendurskoðað og búist við óróa. Fólk lætur ekki endalaust fjármagnsmarkaðina stela frá sér verðmætum.
04.06 2009 kl.10:00
Slóð
Hinn möguleikinn er náttúlega vöruskiptaviðskipti og það þýðir í raun að hagkerfið fari tilbaka og það er í raun staðfesting á algjöru hruni.
Það sem þú gerir með að gjaldfella gjaldmiðil er að þú lækkar laun og kostnað innanlands og minnkar innflutning.
Við högnuðumst gríðarlega á ofskráðu gengi krónunnar og sköpuðum okkur falska velsæld og núna er hún burtu eins og þetta innistæðulausa góðæri.
Held í raun GS að þú sért að gera of mikið úr kreppunni í EB og USA það hefur ekkert hagkerfi lennt í öðru eins og við nú og það er ekkert hægt að líkja þessu saman við neitt og held annars að við þurfum að fara aftur fyrir kreppuna fram að fyrri heimstyrjöld til að finna dæmi um annað eins hrun eins og hjá okkur og það versta er að það virðist ekki vera neitt sérstaklega bjart um að litast fram á veginn. Því miður var það ótrúleg og innistæðulaus bjartsýni sem gerði okkur að skuldakóngum og „við“ (eiginlega þeir) spiluðu hátt …. og töpuðu í rúllettunni og núna súpum við kyrfilega seyðið af þessu.
04.06 2009 kl.10:08
Slóð
Lykilatriði er að hækka ekki skatta. Þyrfti helst að lækka þá. Að hækka skatta við núverandi aðstæður er eins og að berja rænulítinn mann í hausinn með hamri – til að hressa hann við!
Síðan þarf að skera niður hið opinbera – sem er alltof stórt. Allskonar bull í gangi – listamannalaun, sinfónía, tónlistarhús, göng í flest fjöll, 9 mánaða fæðingaorlof, háskólar út um allt, varnarmálaskrifstofa sem enginn skilur, sendiráð út um allar trissur, landbúnaður á framfæri skattgreiðenda o.s.frv. o.s.frv.
Gallinn er sá að VG og SF geta ekki skorið hið opinbera niður – því samkvæmt þeirra bíblíu getur það aldrei orðið of stórt!
Því munu þeir hækka skatta, slá lán og prenta peninga. Þá mun hún sækja sér hnefa í lífeyrissjóði landsmanna.
Þessi ríkisstjórn er ríkisstjórn fákunnáttu, skatta, flumbrugangs, þöggunnar og svo auðvitað himnaríkisins sjálfs – ESB.
04.06 2009 kl.10:37
Slóð
Gunnr. Ég held ekki að ég sé að gera of mikið úr kreppunni í evrópu, gjaldþroti austanjárntjaldslandanna innan ESB og stjórnarkreppunni í bretlandi. Það er órói í loftinu,
Svíar þurfa að lána 1600 miljarða til að mæta tapi í Lettlandi. Ég held ekki að þau lönd sem lofuðu okkur stuðningi verði aflögufær og við eigum engan annan kost en vöruskipti og íslenska krónu og best sé að byrja strax og áður en við tökum fleiri lán.
Hrun íslenska efnahagskerfisins er í 300 000 manna landi. Það verður þess vegna yfir alla línuna.
Ég hef þá trú að fámennið á Íslandi lúti öðrum lögmálum en fjöldinn í stærri hagkerfum. Persónuleg tengsl eru virkari á Íslandi en í stærri löndum. Þessi persónulegu tengsl hafa galla, en líka kosti á svona tímum.
Greinin sem við erum að ræða hefur áhugaverðan kafla um hagsögu okkar frá stríði. Við byggðum upp okkar velferðarkerfi í lokuðu hagkerfi og í raun allt landið. Um stríð voru ytri mörk Reykjavikur við Hlemm!
Þakka annars þín innlegg. Það er stimulerandi að lesa þau.
04.06 2009 kl.11:40
Slóð
Transparency International mælir ekki spillingu heldur aukakostnað erlendra fyrirtækja við að stunda viðskipti í viðkomandi landi. Þarna er átt við mútur og annað tilliðkunarfé. Í Nígeríu er þetta mikið fé.
Á Íslandi ríkti öfug spilling eftir þessum mælikvarða: Erlendir kaupahéðnar voru dregnir í lax og annan lúxus bara ef þeir vildu koma. Þeir þurftu ekki að liðka fyrir viðskipum sínum hér. Þess vegna mældist Ísland eitt minnst spillta land í heimi og það þótt allt stjórnkerfið, embættiskerfið og viðskiptalífið væri gjörspillt.
04.06 2009 kl.11:48
Slóð
Sammál „Comon“ hér að ofan um niðurskurð í opinberri þjónustu. Ekki samt gleyma því að það var íhaldið sem byggði upp þetta risa stóra opinbera apparat sem við sitjum uppi með.
Sammála að sleppa öllu þessu rugli með listamannalaun., sem eru jafnvel ævilöng ( Þráinn Bertelsson) og endalausa gælustyrki og verkefni, bora ekki í fleiri fjöll og leggja niður helminginn af sendiráðum.
04.06 2009 kl.14:13
Slóð
Já, hann lætur okkur bara heyra það hann Wades. Lýsir ástandinu og ráðamönnum sumum sem hálfgerðum heimalingum sem ekki hafi þekkt haus eða sporð á nokkrum hlut – og faktískt lítið gert nema dást að sjálfum sér og bendir td. á hve ESB umræðan er úti á túni:
„… strong political consensus has united
groups across the political spectrum against membership in the
European Union.
Whereas most other nations have modifi ed their
implicit concept of sovereignty to include as an important component
the right to participate in international organizations and sit
at the table where regional and global decisions are being made, a
majority of Icelanders have stuck to an older notion of sovereignty
as freedom from outside infl uence—freedom to remain “special” in
the ranks of nations.
The leader of the Left-Green political party
said in 2000, “Membership [in the EU] would mean diminished
independence and sovereignty, loss of speciality.”
A prominent
Left-Green politician echoed him, saying that “membership in the
EU will undermine Iceland’s self rule.”
Toward the other end of the
political spectrum, then prime minister David Oddsson declared in
2002 that the EU was “one of the most undemocratic bureaucratic
monsters man has ever created.”
04.06 2009 kl.16:06
Slóð
Af hverju skrifar hann ekki um Bretland.
All í klessu, atvinnuleysi upp um alla veggi, gjaldmiðillinn hruninn, bankarnir á hausnum, ríkisstjórnin að gefast upp og þar fram eftir götum.
Konan hans er í Samfylkingunni. Já – ok. Hann er að vinna sér inn prik.
Af hverju vaskar hann ekki bara oftar upp?
04.06 2009 kl.17:31
Slóð
Segir að það sé í sjálvu sér grundvallarmunur ái td. BNA og/eða Bretlandi sem geri það að verkum að ástandið sé miklu mun alvarlegra á Íslandii:
„Iceland’s meltdown is much more severe than in the United States
or the UK (for all that London is now sometimes referred to as “Reykjavik-
on-Thames”).
The United States has a bust banking system and
millions of insolvent households, but the government (the sovereign)
is able and willing to socialize private losses by increasing public debt.
The UK is in a similar position. Its public debt/GDP ratio is about
40 percent, low enough for the government to absorb the fiscal costs
of bailouts and the costs of additional fiscal stimulus and still not
go much above 60 percent, which is doable.
Iceland, however, has a
currency crisis, a banking crisis, and a near sovereign debt crisis.
Its banks’ losses are much bigger than the capacity of government to bail
them out, and its sovereign debt is probably well over 100 percent
of GDP, though estimates vary widely, even four and a half months
after the crisis hit.“
04.06 2009 kl.21:41
Slóð
Skuldir íslenska ríkisins verða ekki meiri en að meðaltali í OECD löndunum þegar það hefur selt aftur bankana.
Krónan er vandamál – en líka styrkur. Með því að gefa verulega eftir dregur hún úr innflutningi og eykur útflutning.
Hallinn í USA er svipaður og hér landi pr. mann – eða um 1 trilljón dollarar í heildina.
Rökin um að bandaríska ríkið sé að „þjóðnýta“ tap banka og fyrirtækja – og því sé ástandið betra þar – skil ég ekki.
Mr. Wade á að vaska meir upp – ef hann vill fá prik hjá konunni.
04.06 2009 kl.22:58
Slóð
Comon skrifar:
Skuldir íslenska ríkisins verða ekki meiri en að meðaltali í OECD löndunum þegar það hefur selt aftur bankana.
Hallinn í USA er svipaður og hér landi pr. mann – eða um 1 trilljón dollarar í heildina.
Í ljósi skrifa þinna um önnur mál held ég að rétt sé að fara fram á að þú birtir heimildir.
06.06 2009 kl.07:35
Slóð
Már Guðmundsson rak minni áróður fyrir hækkun vaxta „vega yfirvofandi þenslu“ – áður en framkvæmdir við álver á Reyðafirði og Kárahnjúka hófust…
þá var þessi stefna þegar mörkuð – hann er einn af höfundunum…. og þeim sem hvöttu til þessarar stefnu… það er rétt